Fréttablaðið - 06.02.2003, Síða 2

Fréttablaðið - 06.02.2003, Síða 2
2 6. febrúar 2003 FIMMTUDAGUR Árni Sigfússon, bæjarstjóri í Reykjanesbæ, hefur verið duglegur við leikarastörf að undanförnu. Hann leikur lögregluþjón í kvikmyndinni Didda og dauði kötturinn. Þá brá hann á leik í bæjarrevíunni í Reykjanesbæ þar sem var gert mikið grín að bæj- arstjóranum. Árni lék sjálfan sig í einu atriðanna og tók það áhorfendur víst dálitla stund að átta sig á því að þar var kominn bæjarstjórinn sjálfur en ekki leikari. Það er alltaf gott að hafa að einhverju að snúa sér ef pólitíkin bregst. SPURNING DAGSINS Ertu að huga að nýjum starfsferli? SAKAMÁL Dómsmálaráðuneytið segir ekkert í skýrslu Láru V. Júlíusdóttur, setts saksóknara, sem bendi til þess að opinberir aðilar hafi haft rangt við varð- andi þátt Magnúsar Leopolds- sonar í Geirfinnsmálinu. Ráðuneytið segir rannsókn- ina vel unna og ítarlega. Mark- mið hennar, sem hafi verið „að kanna ásakanir um að opinberir embættismenn hafi gerst sekir um tilbúning sönnunargagna, einkum leirmyndar, í þeim til- gangi að bendla Magnús Leo- poldsson við hvarf Geirfinns Einarssonar,“ segir ráðuneytið hafa náðst að fullu og bætir því við að frekari aðgerðir af hálfu ráðuneytisins séu ekki fyrirhug- aðar. „Meginniðurstaða setts sak- sóknara er að ekkert hafi komið fram við rannsóknina sem bendi til þess að rannsóknaraðilar hafi ætlað að láta umrædda leir- mynd líkjast Magnúsi Leopolds- syni....Meginástæðan sem leiddi til handtöku Magnúsar og fleiri aðila og gæsluvarðhalds í kjöl- farið árið 1976 er að mati setts saksóknara rangur framburður þriggja aðila.“ Ekki náðist í Magnús Leopoldsson í gær. ■ Skýrsla sögð hreinsa lögreglu í máli Magnúsar Leopoldssonar: Ekki falsanir gegn Magnúsi Leopoldssyni DAUÐAGILDRA? Margt bendir til þess að NASA hafi um árabil vitað af því hversu viðkvæmir vængir geimflauga stofnunarinnar eru en ekki fundið leið til þess að eyða þeirri hættu sem af því stafaði. Geimskutlan Columbia: Gallinn var vel þekktur HOUSTON, AP Í skýrslu sem unnin var af bandarískum verkfræðing- um og afhent bandarísku geim- ferðastofnunni, NASA, fyrir um þrettán árum síðan er varað við því að skemmdir á hlífðarplötum á vængjum geimflauga geti skap- að mikla hættu. Þrátt fyrir ítrek- aðar tilraunir hafði sérfræðingum NASA ekki tekist að finna lausn á þessu vandamáli þegar geim- flauginni Columbia var skotið á loft í síðasta mánuði. Þessar upplýsingar hafa vakið mikla athygli í ljósi þess að flest bendir nú til þess að hörmuleg ör- lög Columbia megi rekja til skemmda sem urðu á hitahlífum á vinstri væng flaugarinnar þegar í flugtaki. Að sögn Peter Fischbeck, eins skýrsluhöfund- anna, vann NASA að því árum saman að tryggja að brak úr elds- neytistönkum geimflauganna gæti ekki valdið skaða á hlífðar- skjöldum vængjanna. Nokkur ár- angur náðist en vandamálið var þó aldrei leyst að fullu. Hjá NASA hefur enginn viljað tjá sig um málið að svo stöddu. ■ ÁFENGISNEYSLA Í EVRÓPU Í nýrri opinberri skýrslu í Noregi kemur fram að neysla áfengis er minni þar en í nokkru öðru Evrópu- landi, eða aðeins 4,3 lítrar á mann á ári. Mest er drykkjan á Írlandi en Rúmenar, Portúgalar og Þjóð- verjar fylgja þar fast á eftir. Áfengisneysla á Íslandi og í Sví- þjóð er lítið meiri en í Noregi. ATVINNULEYSI EYKST Um 11% vinnufærra manna voru atvinnu- laus í Þýskalandi í janúar. Þetta er mesta atvinnuleysi sem mælst hefur í landinu í fimm ára valda- tíð Gerhard Schröder. Mikill þrýstingur er á kanslarann að grípa til aðgerða til þess að koma síversnandi efnahag landsins á réttan kjöl. Þingflokksformaður Framsóknarflokksins um starfslok forstjóra Símans: Rétt að birta leyniskýrsluna SÍMINN „Ég er þeirrar skoðunar að það eigi bara að birta skýrslu rík- isendurskoðunar um starfslok Þórarins V. Þórarinssonar, fyrrum forstjóra Landssímans, enda hefst ekkert upp úr því að neita um upp- lýsingarnar, annað en leiðindi. Þetta mál er mjög umdeilt í þjóð- félaginu og það er ekki önnur leið fær, sýnist mér, en að upplýsa það til fulls. Og mér finnst að stjórn Símans hefði bara átt að gera það strax,“ sagði Kristinn H. Gunnars- son, þingflokksformaður Fram- sóknarflokksins. Hann deilir þar skoðun með sautján manna þingflokki Sam- fylkingarinnar og Gunnari I. Birg- issyni, þingmanni Sjálfstæðis- flokksins. Í dag er fyrirhuguð á Alþingi fyrri umræða um þingsályktunar- tillögu Samfylkingarinnar, sem kveður á um að samgönguráð- herra birti nú þegar skýrslu Ríkis- endurskoðunar. Óvíst er hvort um- ræðan fer fram, en fjörutíu mál eru á dagskrá þingsins og tillaga Samfylkingarinnar er fertugasta málið. „Ég er efnislega sammála til- lögunni. Þó það hafi ekki verið rætt formlega í okkar þingflokki þykir mér líklegt að það sé al- mennt viðhorf að upplýsa eigi málið,“ sagði Kristinn H. Gunn- arsson, formaður þingflokks Framsóknarflokksins. ■ ÍRAKSDEILAN Colin Powell, utan- ríkisráðherra Bandaríkjanna, sagði Íraka hafa flutt gjöreyð- ingarvopn og hreinsað upp nær 30 staði þar sem þeir hefðu framleitt og geymt efnavopn til að koma í veg fyrir að vopnaeft- irlitsmenn Sameinuðu þjóðanna fyndu sönnunargögn um að Írak- ar hefðu brotið gegn banni Sam- einuðu þjóðanna við að þeir réðu yfir gjöreyðingarvopnum. Þetta sagði Powell þegar hann reyndi að sannfæra öryggisráð Samein- uðu þjóðanna um að Írakar hefðu brotið gegn samþykkt öryggisráðsins frá síðasta ári. Powell lék upptökur af sam- tölum íraskra herforingja, sýndi myndir sem teknar voru úr gervihnöttum og vitnaði til orða sjónarvotta þegar hann flutti mál sitt. Þetta sagði hann sýna að Írakar héldu uppteknum hætti við að byggja upp vopna- búr gjöreyðingarvopna. Meðal annars byggju þeir yfir hreyfan- legum efnavopnaframleiðslu- tækjum sem nær ómögulegt væri að finna. Bandaríkjamenn hafa reynt að tengja afstöðuna gagnvart Írak við baráttu sína gegn hryðjuverkum. Powell sagði sannanir fyrir því að Írakar hefðu átt samstarf við al Kaída- hreyfinguna og skotið skjólshúsi yfir félaga hreyfingarinnar eftir að þeir voru hraktir frá Afganistan. Þetta er þvert á nið- urstöðu skýrslu sem breska varnarmálaráðuneytið lét vinna og vitneskju ísraelsku leyniþjón- ustunnar. Hvorugur aðilinn seg- ir greinanleg tengsl milli hryðjuverkahreyfingarinnar og íraskra stjórnvalda. Mohammed Al-Douri, utan- ríkisráðherra Íraks, sagði málflutning Powells ekkert eiga skylt við sannleikann. Markmið Powells væri að réttlæta stríð með öllum tiltækum ráðum. Tang Jiaxua, utanríkisráð- herra Kína, lagði áherslu á að orðið yrði við beiðnum vopnaeft- irlitsmanna um lengri tíma til að halda áfram vopnaeftirliti. Hann sagði kínversk stjórnvöld vilja pólitíska lausn án þess að kæmi til stríðs. Igor Ivanov, utanríkis- ráðherra Rússlands, tók undir með Jiaxua að vopnaeftirlitið yrði að fá að halda starfi sínu áfram, engin ákveðin tímamörk hefðu verið sett fyrir því starfi. Jack Straw, utanríkisráðherra Bretlands, sagði Íraka sýna vopnaeftirlitsmönnum fyrirlitn- ingu. Það yrði að sýna þeim fram á alvöru málsins. ■ Sagði upptökur sanna að Írakar hefðu falið efnavopn Hleruð samtöl og njósnamyndir sanna að Írakar hafa falið efnavopn, að sögn utanríkisráðherra Bandaríkjanna. Hann sagði bein tengsl á milli Íraka og al Kaída. Leyniþjónustur Ísraels og Bretlands hafa sagt að engar sannanir séu fyrir því að svo sé. SÓLVEIG PÉTURSDÓTTIR OG MAGNÚS LEOPOLDSSON Dómsmálaráðherra afhenti Magnúsi Leopoldssyni skýrslu setts saksóknara um tildrög þess að Magnús var bendlaður saklaus við Geirfinnsmálið og hafður í einangrun svo mánuðum skipti. HLÝTT Á MÁL COLINS POWELLS Utanríkisráðherrar Chile, Kína og Frakklands fylgjast með Colin Powell, starfsbróður sínum í Bandaríkjunum, færa rök fyrir því að Írakar hafi brotið efnislega gegn samþykktum ör- yggisráðs Sameinuðu þjóðanna. Yfir höfðum þeirra blasa við myndir sem Powell sagði sýna fram á að Írakar hefðu falið efnavopn og sannanir fyrir tilvist þeirra til að villa um fyr- ir vopnaeftirlitsmönnum. COLIN POWELL Hélt nærri einnar og hálfrar klukkustundar ræðu þar sem hann lagði fram gögn til að sanna brot Íraka. AP /M YN D EVRÓPA Bandarískur þingmaður: Réttlætti fangabúðir BANDARÍKIN Howard Coble, þing- maður sem stýrir undirnefnd bandaríska þingsins um varnir heimalandsins, sagði í útvarps- þætti að það hafi verið rétt ákvörðun hjá bandarískum stjórnvöldum að loka Banda- ríkjamenn af japönskum upp- runa inni í einangrunarbúðum á tímum síðari heimsstyrjaldar. Hann sagðist þó ekki hlynntur því að arabar yrðu settir í slíkar einangrunarbúðir nú vegna stríðsins gegn hryðjuverkum og fyrirsjáanlegrar innrásar í Írak. Í seinni tíð hefur almennt ver- ið litið á einangrun Japana eftir árásina á Perluhöfn 1941 sem mannréttindabrot. ■ KRISTINN H. GUNNARSSON Segir starfslokasamning fyrrverandi for- stjóra Símans svo umdeildan að sú ein leið sé fær að birta skýrslu Ríkisendur- skoðunar um málið. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /V IL H EL M

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.