Fréttablaðið - 06.02.2003, Side 6
6 6. febrúar 2003 FIMMTUDAGUR
LÖGREGLUFRÉTTIR
VEISTU SVARIÐ?
Svörin eru á bls. 30
1.
2.
3.
Hvað heitir maðurinn sem krafð-
ist rannsóknar á tildrögum þess
að hann þurfti saklaus að sitja
inni vegna hvarfs Geirfinns Ein-
arssonar?
Frægur upptökustjóri hefur verið
kærður fyrir morð eftir að kona
fannst látin á heimili hans í Los
Angeles. Hver er maðurinn?
Frægur bandarískur kvikmynda-
leikari hefur tekið að sér listræna
stjórn Old Vic-leikhússins í
London. Hver er maðurinn?
GENGI GJALDMIÐLA
Bandaríkjadalur 75.68 -1.75%
Sterlingspund 125.09 -1.27%
Dönsk króna 11.11 -0.74%
Evra 82.62 -0.77%
Gengisvístala krónu 121,32 0,42%
KAUPHÖLL ÍSLANDS
Fjöldi viðskipta 353
Velta 5.275 milljónir
ICEX-15 1.356 0,17%
Mestu viðskipti
Íslandsbanki hf. 547.536.215
Fjárfest.fél. Straumur hf. 428.603.810
Össur hf. 89.160.100
Mesta hækkun
SÍF hf. 4,44%
Kaldbakur fjárfestingarfélag hf. 2,70%
Vátryggingafélag Íslands hf. 1,77%
Mesta lækkun
Líftæknisjóðurinn MP BIO hf. -10,00%
Skýrr hf. -5,88%
Íslenski hugb.sjóðurinn hf. -3,57%
ERLENDAR VÍSITÖLUR
DJ*: 8145,8 1,7%
Nasdaq*: 1331,7 2,0%
FTSE: 3678,7 2,5%
DAX: 2733,0 3,8%
Nikkei: 8549,9 0,8%
S&P*: 861,0 1,5%
*Bandarískar vísitölur kl. 17.00
Vonskuveður á Vesturlandi:
Þakplötur
skemmdu bíla
VEÐUR Nokkrir bílar skemmdust eft-
ir að þakplötur fuku á þá í vonsku-
veðri sem gekk yfir Suðvestur- og
Vesturland í gærmorgun. Mikil
ófærð var á Snæfellsnesi og var
skólahaldi í Ólafsvík og á Hellis-
sandi aflýst. Kallað var eftir aðstoð
björgunarsveitarmanna Slysa-
varnafélags Landsbjargar á Snæ-
fellsnesi klukkan sjö um morguninn
til að hefta fok á þakplötum sem
voru að fjúka á Rifi. Að sögn björg-
unarsveitarmanna voru aðstæður
erfiðar, þreifandi blindbylur og
hvassviðri. Fljótlega fóru svo að
berast beiðnir um aðstoð frá vegfar-
endum en margir komust ekki til
vinnu vegna ófærðar. Veðrið byrj-
aði svo að ganga niður á ellefta tím-
anum. Eftir það gengu björgunar-
sveitarmenn í það að fjarlægja bíla
af götum svo hægt væri að ryðja.
Blindhríð var á Hellisheiði í gær-
morgun og ekkert ferðaveður. Á
Sandskeiði var blindhríð og skaf-
renningur. Þá var mikil hálka og
skafrenningur á Reykjanesbraut.
Undir Hafnarfjalli var óveður og
fór vindhraði yfir 30 m/sek. Að sögn
lögreglunnar í Borgarnesi hefur
einu sinni áður mælst meiri vind-
hraði, 15. nóvember á síðasta ári.
Engin óhöpp urðu vegna veður-
hamsins. ■
Rúmur fjórðungur
segist kjósa annað
Mikill meirihluti kjósenda kýs sama flokk og í síðustu kosningum.
SKOÐANAKÖNNUN Tæplega 70 pró-
sent svarenda sem taka afstöðu í
könnun Fréttablaðsins telja líklegt
að þau muni í komandi kosningum
kjósa sama flokk og síðast. Rúm 30
prósent segjast munu kjósa annan
flokk. Þetta er niðurstaða úr könnun
sem gerð var um síðustu helgi.
Sjálfstæðisflokkurinn virðist ekki
laða til sín nýja kjósendur. Af þeim
sem styðja flokkinn í könnuninni og
taka afstöðu segja einungis 3,8 pró-
sent líklegt að þau kjósi annað í
kosningunum í vor en þau kusu síð-
ast. 96,2 prósent þeirra sem styðja
Sjálfstæðisflokkinn í könnuninni
segja líklegt að þau kjósi sama flokk
og síðast.
Spurt var: Finnst þér líklegra að
þú munir kjósa sama flokk í kosn-
ingunum í vor og í kosningunum
1999 eða annan flokk en þá? 55,4
prósent töldu líklegt að þau kysu
sama flokk, 24,7 prósent töldu lík-
legt að þau kysu annan flokk, 16,2
prósent voru óákveðin og 3,7 pró-
sent neituðu að svara. Úrtakið var
600 manns.
Varasamt er að draga miklar
ályktanir af svörum þeirra sem
styðja Framsóknarflokk, Vinstri
græna og Frjálslynda vegna smæð-
ar í úrtakinu. Tilhneigingin virðist
þó vera sú að stuðningsmenn Fram-
sóknarflokksins eru líklegri til að
tilheyra þeim sem kusu þá síðast.
Kjósendur Samfylkingarinnar
skiptast nokkuð jafnt milli þeirra
sem telja líklegt að þeir kjósi sama
flokk og þeirra sem telja líklegt að
þeir kjósi annan. 51,8 prósent þeirra
sem styðja Samfylkingu í könnun-
inni og taka afstöðu segja líklegt að
þau kjósi sama flokk í vor og síðast.
43,7 prósent segja líklegt að þau
kjósi annan.
Hvorki er marktækur munur á
svörum við spurningunni milli kynj-
anna, né heldur eftir því hvort svar-
endur búa í þéttbýli eða á lands-
byggðinni.
Ef aðeins eru teknir þeir sem
tóku afstöðu segjast 77,4 prósent
þeirra sem styðja Framsóknarflokk
líklegt að þau kjósi það sama og síð-
ast, en 22,6 prósent annað. 96,2 pró-
sent sjálfstæðismanna segjast lík-
lega kjósa sama flokk, en 3,8 pró-
sent annað. 51,8 prósent samfylk-
ingarfólks kýs sama flokk, en 43,7
prósent annað. 46,2 prósent Frjáls-
lyndra kjósa sama flokk á móti
53,8% sem skipta. 55,6 prósent
vinstri grænna segja líklegt að þau
kjósi sama flokk og síðast á móti
44,4 prósentum sem nefna annan.
Af þeim sem eru óákveðnir um
hvaða flokk þeir styðja nú segja
57,3 prósent líklegt að þau kjósi
annan flokk en síðast. 42,7% segja
líklegast að þau kjósi þann sama.
Samkvæmt nýjustu könnun
Fréttablaðsins tapar Sjálfstæðis-
flokkurinn um þremur prósentum
frá kosningum. Flokkurinn tapar
því ekki miklu af þeim kjósendum
sem kaus hann síðast, en tekst ekki
að stela kjósendum frá öðrum
flokkum. Samfylkingin eykur fylgi
sitt um tæp sex prósent í könnun-
inni frá kosningum. Samfylkingin
hefur tapað hópi kjósenda sinna til
annarra, en vinnur á móti veruleg-
an hóp nýrra kjósenda á sitt band.
Töluverð hreyfing er því á kjós-
endahópi Samfylkingarinnar.
Framsóknarflokkurinn tapar
nokkru af kjósendum sínum, en
nær að laða til sín örlítinn hóp
nýrra kjósenda. ■
Símnotendur grípa til sparnaðar:
Loka heimasíma
á GSM
SPARNAÐUR Þúsundir símnotenda
hafa gripið til þess ráðs að láta
loka fyrir möguleika á að hringja
úr heimasíma sínum í GSM-síma.
Ástæðan er óheyrilegur kostnað-
ur sem í mörgum tilvikum hleyp-
ir símreikningum heimilanna
upp úr öllu valdi:
„Um tíu prósent af skráðum
notendum heimilissíma hafa látið
loka fyrir hringingar í farsíma.
Flestir gera það þó með dulkóðun
þannig að þeir geta sjálfir opnað
og lokað á möguleikann kjósi þeir
það sjálfir,“ segir Heiðrún
Jónsdóttir, upplýsingafulltrúi
Símans.
Um 140 þúsund heimilissímar
eru í notkun á vegum Landssím-
ans þannig að tala þeirra sem
gripið hafa í taumana og látið
læsa á GSM-hringingar er liðlega
14 þúsund. Ljóst er að Landssím-
inn verður af umtalsverðum tekj-
um vegna þessara lokana:
„Við lítum hins vegar á þetta
sem þjónustu við viðskipavini
okkar sem með þessu eru að
reyna að stýra útgjöldum sínum.
Við verðum að bæta okkur upp
tekjumissinn með öðru móti,“
segir Heiðrún. ■
ÓK DRUKKINN Á KONU Tveir
ökumenn voru teknir síðustu
helgi grunaðir um ölvun. Voru
mennirnir báðir að koma af
þorrablóti. Annar ökumannanna
ók á gangandi vegfaranda, mið-
aldra konu, við eitt samkomuhús-
anna án þess þó að teljandi
meiðsl hafi orðið en konan var
flutt á heilsugæslustöðina á
Hvolsvelli til skoðunar. Hinn öku-
maðurinn keyrði m.a. yfir girð-
ingu og var í kjölfarið tekinn
höndum af vegfaranda, sem kom
ökumanninum í hendur lögreglu-
manna skömmu síðar.
HRÍÐ Á HÖFUÐBORGARSVÆÐINU
Vetur konungur minnti óneitanlega á sig í gærmorgun þegar mikið hvassviðri gekk yfir
landið að sunnan og vestan.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M
HEIÐRÚN JÓNSDÓTTIR
Fólk er að stýra útgjöldum sínum.
ER LÍKLEGT AÐ KOSINN SÉ SAMI EÐA ANNAR FLOKKUR Í VOR OG Í SÍÐUSTU ÞINGKOSNINGUM?
Sami flokkur
(52%)
Annar flokkur
(48%)
Sami flokkur
(52%)
Annar flokkur
(48%)
Sami flokkur
(52%)
Annar flokkur
(48%)
ALLS STYÐJA SJÁLFST.FL. STYÐJA SAMFYLK.