Fréttablaðið - 06.02.2003, Síða 10

Fréttablaðið - 06.02.2003, Síða 10
10 6. febrúar 2003 FIMMTUDAGUR Friðrik Jón Arngrímsson: Vísvitandi rangfærslur SKIPASKRÁNING „Í þessu felast líka auknir möguleikar fyrir íslenska sjómenn og við vísum gagnrýni samtaka sjómanna um annað á bug. Því miður er gagnrýnin ekki á rökum reist og margt af henni sett fram vísvitandi gegn betri vitund,“ sagði Friðrik Jón Arn- grímsson, framkvæmdastjóri Landssambands Íslenskra útgerð- armanna. Hann segir að fjölmörg til- fallandi verkefni séu í boði fyrir íslensk fiskiskip erlendis, til dæmis ef skip erlends ríkis ferst eða stöðvast af öðrum orsökum þurfi einhver að veiða kvóta þess. Veiðiheimildir annarra ríkja, inn- an eða utan lögsögu þeirra, sé yf- irleitt einungis hægt að nýta með skipum sem bera fána viðkom- andi ríkis. „Við höfum misst af svona verkefnum og lagabreytingin er hugsuð til að gera okkur frekar kleift að taka að okkur slík verk- efni,“ sagði Friðrik Arngrímsson. KEYPTI ÁFENGI FYRIR UNGLINGA Lögreglan í Kópavogi var köll- uð að áfengisútsölu þar sem grunur lék á að maður hafi ver- ið að kaupa áfengi fyrir ung- menni sem ekki hafði aldur til. Kaupandinn var yfirheyrður og lagt hald á áfengið sem keypt var. Reikna má með að hann fái háa sekt vegna brotsins. TVÖ FÍKNIEFNAMÁL Í KÓPAVOGI Tvö fíkniefnamál komu upp í Kópavogi um helgina. Í öðru til- vikinu var lagt hald á hassmola og í hinu var lítilsháttar af am- fetamíni og tóbaksblönduðu hassi. Bæði málin teljast upp- lýst. Sjóræningjablær á frumvarpi ráðherra Sjómenn og útgerðarmenn deila um frumvarp sem heimilar tvískráningu íslenskra fiskiskipa. Sjómenn segja tilganginn að fá ódýrt erlent vinnuafl á íslensk fiskiskip. Útgerðarmenn benda á aukna möguleika til að nýta íslensk skip í verkefni erlendis. SKIPASKRÁNING „Einn meginkostur- inn við frumvarpið að mati út- gerðarmanna er að það tryggir hagsmuni útgerðarinnar í við- skiptum við önnur lönd. Við spyrj- um á móti, hvar er trygging fyrir okkar menn sem lenda um borð í þessum skipum? Hún er nákvæm- lega engin. Þetta er afturhvarf til fortíðar,“ sagði Sævar Gunnars- son, formaður Sjó- mannasambands Íslands, um frum- varp sem heimilar tvískráningu ís- lenskra fiskiskipa. Frumvarpið er nú til meðferðar á Alþingi en tilurð þess má rekja til beiðni Landssambands íslenskra útvegsmanna sem óskaði eftir því í apríl 1999 að stjórnvöld heimil- uðu tvískráningu íslenskra fiski- skipa. Frumvarpið er mjög um- deilt svo ekki sé meira sagt og skiptast hagsmunaaðilar í tvö horn. Útgerðarmenn segja að með tvískráningu aukist möguleikar íslenskra útgerða á að nýta skip sín til verkefna erlendis. Samtök sjómanna segja hins vegar að út- gerðarmenn vilji tvískráninguna í þeim tilgangi að fá ódýrt erlent vinnuafl til starfa á skipum sín- um, í samkeppni við íslenska sjó- menn. „Þar með þyrftu útgerðarmenn ekki að fara eftir neinum samn- ingum. Það eru engin lönd í Norð- ur Evrópu og þó víðar væri leitað sem leyfa þessa tvískráningu, nema ef til vill eitt eða tvö lönd við Eystrasaltið,“ sagði Sævar Gunnarsson og bætti við að að- búnaði, öryggi og kjörum sjó- manna væri ógnað. Minnihluti samgöngunefndar tekur undir sjónarmið samtaka sjómanna og styður ekki frum- varpið. Fulltrúar Samfylkingar- innar í samgöngunefnd segja að ekki hafi komið fram nógu sterk rök fyrir breytingunni en þeim mun sterkari varnaðarorð. Full- trúi Vinstri grænna segir að sú stefna sem lögð sé upp í frum- varpinu hafi á sér alþjóðlegan sjó- ræningjablæ og samræmist ekki áherslum Íslands á alþjóðavett- vangi. „Ég undrast mjög að formaður samgöngunefndar, Guðmundur Hallvarðsson, sem jafnframt er fyrrverandi varaformaður Sjó- mannasambandsins, skuli fara svona þvert á hagsmuni sjómanna í þessu máli. Ég get ekki orða bundist og er hundfúll út í hann og aðra sem ætla að keyra þetta í gegn,“ sagði Sævar Gunnarsson og bætti við að linnulaus barátta gegn frumvarpinu undanfarin þrjú ár virtist töpuð. the@frettabladid.is Strætó skerðir þjónustu: Hættir næturakstri SAMGÖNGUMÁL Stjórn Strætó bs. hefur ákveðið að hætta akstri svo- kallaðra næturvagna aðfaranætur laugardaga og sunnudaga. Ákvörð- unin hefur þegar tekið gildi. Ekið var á þremur leiðum umræddar nætur og voru brottfar- ir frá Lækjar- götu klukkan 02.30, 03.30 og 04.30. Sam- kvæmt Strætó bs. hefur eftir- spurn eftir þjón- ustu næturvagnanna minnkað um- talsvert með tilkomu rýmri reglna um opnunartíma skemmtistaða. Aðra sögu var að segja þegar skemmtistaðir borgarinnar lokuðu allir á sama tíma. Notkun vagnanna mun hafa ver- ið sáralítil undanfarnair vikur og þykir stjórninni því sjálfgert að leggja hana niður. ■ Fangar á dauðadeild: Hungur- verkfall í mótmæla- skyni BANDARÍKIN, AP Fangar á dauða- deild í ríkisfangelsinu í Grater- ford í útjaðri Fíladelfíu hafa verið í hungurverkfalli að undanförnu til þess að knýja fram lengri heimsóknartíma. Um helmingur fanganna á deildinni, eða um 25 manns, tekur þátt í verkfallinu. Óánægju mannanna má rekja til þess að fangar á dauðadeild fangelsisins í Greene í Pensylvan- íu fengu á síðasta ári heimsóknar- tíma sinn lengdan úr tveimur klukkustundum upp í einn heilan dag í hverri viku. Í Graterford eiga fangarnir aftur á móti aðeins rétt á einni klukkustund á viku. Að sögn talsmanns yfirvalda hafa fangelsi rétt til þess að takmarka heimsóknartíma ef öryggi þeirra er ekki talið nægilegt. ■ FRIÐRIK ARNGRÍMSSON Vísar gagnrýni sjómannasamtaka á frum- varp um tvískráningu á bug, segir hana ekki á rökum reista og setta fram gegn betri vitund. LÖGREGLUFRÉTTIR LÖGREGLUFRÉTTIR SÆVAR GUNNARSSON Segist hundfúll út í þá sem ætla að keyra frumvarp um tvískráningu íslenskra fiskiskipa í gegn. Tilgangurinn sé sá einn að heimila útgerð- armönnum að ráða ódýrt erlent vinnuafl til starfa á skipum sínum. „Það eru eng- in lönd í Norður-Evr- ópu og þó víðar væri leit- að sem leyfa þessa tví- skráningu.“ VILDI KOMA KONUNNI HEIM Í eftirlitsvélum í miðborg Reykjavíkur sást hvar maður var að aka öðrum í innkaupakerru á leið úr miðbænum á sunnudags- morgun. Þegar lögregla hafði uppi á viðkomandi kom í ljós að um var að ræða eiginmann sem var að koma konu sinni heim. Þeim var gert að skila kerrunni. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /R Ó B ER T Breytt meðferð hælisleitenda: Verði vistaðir erlendis BRETLAND Bresk stjórnvöld áforma að gjörbreyta stefnu sinni gagnvart með- ferð hælisleitenda sem leggja leið sína til landsins, að sögn breska dagblaðsins The Guardian. Þar segir að stærstum hluta hælisleit- enda verði sjálfkrafa neit- að um hæli í Bretlandi en þeir fluttir á öryggissvæði á vegum Sameinuðu þjóð- anna í þeim heimshlutum þaðan sem þeir koma. Þar verði þeir vistaðir í hálft ár meðan athugað er hvort aðstæður í heimalandi þeirra batni. Þyki ástæða til að veita þeim hæli taka evrópsk ríki við þeim samkvæmt fyrir- fram ákveðinni formúlu. Að sögn blaðsins er gert ráð fyrir að opinberar tölur sem kynntar verða síðar í mánuðinum sýni að 100.000 manns hafi sótt um hæli í Bretlandi á síð- asta ári. Fjöldinn hefur aldrei áður verið svo mik- ill. Tony Blair forsætisráð- herra hefur lagt mikla áherslu á að draga úr fjölda þeirra sem leita hælis og fá aðstoð breskra stjórnvalda meðan farið er yfir mál þeirra. ■ TONY BLAIR Vill draga úr fjölda þeirra sem leita hælis í Bretlandi. ATVINNUÞÁTTTAKA NÁMSMANNA 2001 66,6% 1999 60,4% 1997 51,9% 1995 51,6% Nær 70% námsmanna frá sextán ára aldri vinna með námi samkvæmt upplýsingum Hagstofunnar. Árið 2001 voru námsmenn alls 32.400 og fjölgaði þeim um 1.200 frá árinu á undan. Fæstir námsmanna eru í fullri vinnu, árið 2001 var meðalfjöldi vinnustunda á vikur 23,8 klst. Vinnu- stundafjöldinn hefur sveiflast nokkuð und- anfarin ár. Langflestir námsmenn starfa innan þjónustugeirans. SVONA ERUM VIÐ STRÆTÓ Notkun næturvagna hefur verið sáralítil undanfarnar vikur. www.casema.is Harðviðarhús, einbýlishús, sumarhús, klæðningarefni, pallaefni og bílskúrar. Sími: 564-5200 og 865-7990

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.