Fréttablaðið - 06.02.2003, Side 13

Fréttablaðið - 06.02.2003, Side 13
13FIMMTUDAGUR 6. febrúar 2003 Léttu þér lífið – með gómsætum léttum ostum Ólögmæt uppsögn: Rekinn vegna kynhneigðar NEW YORK, AP Fyrrum hótelstjóra á hóteli á Manhattan í New York hafa verið dæmdar yfir ellefu milljónir Bandaríkjadala í bætur vegna ólögmætrar uppsagnar. Kviðdómur í málinu komst að þeirri niðurstöðu að maðurinn hefði verið rekinn úr starfi vegna þess að hann er samkynhneigður og að framkoma vinnuveitanda í hans garð hefði auk þess verið einstaklega fjandsamleg. Leonu Helmsley, eiganda hót- elsins, er gert að greiða mannin- um tíu milljónir í skaðabætur og 1,2 milljónir í miskabætur en eignir hennar eru metnar á hátt í fjóra milljarða. Sækjandinn hafði farið fram á 40 milljónir en var þó sáttur við niðurstöðu dómara. ■ VESTMANNAEYJAR Deilur sem staðið hafa í Vestmannaeyjum vegna sauðfjár sem beitt hefur verið í Helgafell þar sem börn hafa unn- ið að gróðursetningu, hafa tekið á sig nýja mynd. Nú virðist sem svo að kindurnar í Helgafellinu séu hluti af land- græðsluátaki og sé beitt þar til að auka gróður. Fyrir því stendur Gísli J. Óskarsson, kennari og frétta- maður Sjónvarpsins í Eyjum: „Fyrir löngu flaug mér í hug að gera líffræðilega tilraun með Helgafellið sem byggði á því að bera húsdýraáburð í hlíðar Helga- fells til að auka gróskuna. Erfið- asti hluti verksins var að koma áburðinum frítt upp í hlíðar Helgafells,“ segi Gísli J. Óskars- son, sem dó þó ekki ráðalaus. „Þá hugkvæmdist mér að nota kindur sem lifandi áburðardreifara og dreifa þannig lífrænum áburði í hlíðar fellsins,“ segir hann. Gísli staðhæfir að eftir að hann fór að beita fé í hlíðar Helgafells hafi gróður þar aukist. Fátt sé bet- ur fallið til að koma gróðri til í sandi en lambaspörð sem þar falla. Hann leggur áherslu á að fénu sé aðeins beitt í hlíðar Helga- fells frá miðjum nóvember og fram í miðjan mars: „Fénu hefur aldrei verið beitt á Helgafellið á vorin, sumrin eða að hausti. Kindurnar hafa verið vandar á sérstæða hringrás sem felst í því að þær koma heim á hverjum degi, fá fóður og fara svo aftur upp í fellið og svo koll af kolli,“ segir Gísli, sem hefur tröllatrú á tilraun sinni og vinnur að gerð kvikmyndar um framtak- ið sem hann vonast til að geti nýst í náttúrufræðikennslu í grunn- skólum. Kindurnar í Helgafellinu hafa farið mjög fyrir brjóstið á garð- yrkjustjóranum í Vestmannaeyj- um, sem krefst þess að þær verði fjarlægðar. Þá hafa forsvars- menn landgræðslunnar einnig lýst áhyggjum sínum vegna þessa. Sýslumaður og bæjar- stjóri í Eyjum hafa hins vegar sammælst um að grípa ekki til lögregluaðgerða að svo komnu máli. Gísli bendir á að kindurnar í fellinu hafi verið hluti af gróð- urátaki í Eyjum svo áratugum skipti en ekki sé von að garð- yrkjustjórinn skilji það. Hann sé aðfluttur og hafi aðeins starfað í Eyjum í tvö ár. eir@frettabladid.is „Fátt er betur fallið til að koma gróðri til í sandi en lambaspörð sem þar falla.“ RÓM, AP Ítalskir smákaupmenn hafa hingað til verið lífseigari en kollegar þeirra annars staðar í Evrópu en nú er svo komið að einnig þeir verða að laga sig að breyttum tímum. Á undanförnum árum hefur stórmörkuðum skotið upp eins og gorkúlum í ítölskum borgum og bæjum og með lægra vöruverði og lengri opnunartíma hefur þessum verslunum nú loks tekist að vinna almenning á sitt band. Í kjölfarið hefur hver smá- kaupmaðurinn á fætur öðrum þurft að leggja upp laupana og finna sér annað lífsviðurværi. Margir trúðu því að Ítalir myndu aldrei bregða út af alda- gömlum innkaupavenjum sínum en samfara breyttum lífsháttum hafa þeir nú neyðst til þess að endurskoða jafnvel sínar rótgrón- ustu hefðir. Fyrir fáeinum árum voru í gildi lög í landinu sem bönnuðu matvöruverslunum að blanda saman vöruflokkum. Þannig var bakaríum t.d. óheimilt að selja ávexti, grænmetissalar máttu ekki hafa egg á boðstólum og þar fram eftir götunum. Þetta hafði í för með sér að innkaup til heimilisins voru afar tímafrek og var lögunum að lokum breytt í takt við nýja tíma. ■ Tímamótadómur: Mega aug- lýsa áfengi STOKKHÓLMUR, AP Svíar geta farið að auglýsa áfengi löglega á nýj- an leik eftir að markaðsdóm- stóllinn í Stokkhólmi dæmdi 24 ára bann við slíkum auglýsing- um ólöglegt. Niðurstaða dómstólsins er áfall fyrir sænsk stjórnvöld, sem hafa reynt að halda uppi þröngri löggjöf sinni um áfeng- issölu allt frá því landið varð aðili að Evrópusambandinu. Dómurinn þykir hins vegar sigur fyrir framleiðendur og dreifendur áfengis, sem hafa barist gegn banninu í langan tíma. ■ MENNINGARTENGD FERÐAÞJÓN- USTA Borgarráð samþykkti í gær að Menningarborgarsjóður, sem hefur meðal annars haft umsjón með Listahátíð Reykjavíkur, taki nú að sér að úthluta til verkefna á sviði menningartengdrar ferða- þjónustu. TENGIBYGGING VIÐ LAUGALÆKJ- ARSKÓLA Borgaryfirvöld hafa samþykkt tilboð Framkvæmdar ehf. í uppsteypu og utanhússfrá- gang á tengibyggingu við Lauga- lækjarskóla. Tilboðið hljóðaði upp á 81 milljón króna. BORGARMÁL KAUPMAÐURINN Á HORNINU Ítölsk yfirvöld vonast til þess að með fjölgun stórmarkaða muni skapast fleiri störf en glat- ast. Þess eru mörg dæmi að smákaupmenn sem orðið hafa að loka verslunum sínum séu komnir í vinnu hjá stóru keðjunum. HELGAFELL Kindur notaðar sem lifandi áburðardreifarar – með góðum árangri eins og hér má sjá. Kindur í landgræðslu Búfjárdeilurnar í Vestmannaeyjum taka á sig nýja mynd. Tómstundabóndi telur að lausa- ganga búfjár í hlíðum Helgafells hjálpi gróðri. Ítalir laga sig að breyttum aðstæðum: Smákaupmenn í útrýmingarhættu

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.