Fréttablaðið - 06.02.2003, Blaðsíða 16
16 6. febrúar 2003 FIMMTUDAGURSKAUTAHLAUP
Á FULLRI FERÐ
Lee Kyou-hyuk frá Suður Kóreu var í ess-
inu sínu í 1000 metra skautahlaupi á Vetr-
arólympíuleikum Asíu sem haldnir eru í
Japan um þessar mundir. Lee vann gull-
verðlaun fyrir hlaupið, sem stóð yfir í eina
mínútu og 13,96 sekúndur.
FÓTBOLTI
ÍÞRÓTTIR Í DAG
16.45 Sjónvarpið
Handboltakvöld
18.00 Sýn
Sportið með Olís
18.30 Sýn
Western World Soccer Show
(Heimsfótbolti með West Uni)
19.15 DHL-Höllin
Úrvalsdeild karla í körfubolta
(KR-Tindastól)
20.00 Sýn
US PGA Tour 2003 (Phoenix
Open)
21.00 Sýn
European PGA Tour 2003
(Heineken Classic)
22.00 Sýn
Football Week UK (Vikan í
enska boltanum)
22.30 Sýn
Sportið með Olís
23.00 Sýn
HM 2002 (Spánn - Paragvæ)
STANGARSTÖKK Vala Flosadóttir,
stangarstökkvari úr ÍR, stökk 4,10
metra á boðsmóti Pacer í Chicago
í Bandaríkjunum um helgina.
Þetta var fyrsta mót Völu á árinu.
Vala lenti í þriðja sæti á mótinu
en æfingafélagi hennar, Hanna-
Mia Persson, sigraði með stökki
yfir 4,20 metra.
Vala stefnir á að taka þátt í
nokkrum mótum á næstunni. Hún
stökk hæst 4,30 m innanhúss á síð-
asta ári og var þá aðeins einu sæti
frá því að komast í úrslit á EM
innanhúss, þar sem hún varð í
níunda sæti. ■
FÓTBOLTI „Pires var frá í sex mán-
uði og er hungraður í að skora
mörk. Hann lagði hart að sér á
meðan hann var meiddur og ég tel
að hann sé aftur kominn í sitt
besta form,“ sagði Arsene Weng-
er, knattspyrnustjóri Arsenal, eft-
ir að Frakkinn Robert Pires skor-
aði bæði mörk liðsins í sigurleik
gegn Fulham um síðustu helgi.
Pires meiddist illa á hné í bik-
arleik gegn Newcastle í mars á
síðasta ári. Fyrir vikið missti hann
af lokasprettinum með Arsenal í
deildinni auk þess sem hann gat
ekki leikið með franska landslið-
inu á HM í fyrrasumar. Þar var
hans klárlega sárt saknað enda er
Pires hugmyndaríkur og skapandi
miðjumaður sem bæði getur lagt
upp mörk fyrir félaga sína og
skorað þau sjálfur. Lagði hann
meðal annars upp sigurmark
franska landsliðsins á EM árið
2000 en tveimur árum áður hafði
hann orðið heimsmeistari með lið-
inu.
Pires, sem verður þrítugur á
þessu ári, var keyptur til Arsenal
frá franska liðinu Marseille sum-
arið 2000. Hjá Marseille hafði
hann staðið sig vel og lék meðal
annars með liðinu í Meistaradeild
Evrópu leiktíðina 1999-2000. Áður
en Pires kom til Marseille lék
hann með Metz í Frakklandi og
varð bikarmeistari með liðinu árið
1996.
Pires segist vera ánægður í
herbúðum Lundúnaliðsins Arsen-
al og er tilbúinn til að framlengja
samning sinn við félagið, sem
rennur út í lok næstu leiktíðar.
„Ég myndi vilja framlengja samn-
inginn um tvær til þrjár leiktíðir
því hérna líður mér vel. Þetta er
borg sem hentar mér. Síðan ég var
lítill hefur mig alltaf dreymt um
að klæðast treyju Real
Madrid. En núna, eftir að
ég kynntist ensku úr-
valsdeildinni og enskum
lífsháttum, hef ég skipt
um skoðun,“ sagði Pires í
nýlegu viðtali. „Það sem mér
finnst heillandi hér er sú virðing
sem almenningur ber fyrir leik-
mönnum. Þegar ég var hjá
Marseille voru áhangendurnir til-
búnir til að ráðast á mann ef liðið
tapaði, en hérna eru hlutirnir
öðruvísi.“
Ljóst er að Arsene Wenger hef-
ur mikið álit á Pires og vill ómögu-
lega missa hann úr liði sínu: „Ro-
bert hefur sérstæða hæfileika.
Leikur okkar er meira fljótandi
með hann á vellinum. Hann er
eins og olían í vél okkar sem lætur
hlutina gerast.“ ■
Talið er að Arsenal sé á höttun-um á eftir Brasilíumanninum
snjalla Ronaldinho, sem leikur
með franska félaginu Paris Saint
Germain. Kappinn hefur einnig
verið orðaður við Manchester
United og Inter Milan.
JÓHANNES KARL
Jóhannes Karl Guðjónsson hefur vakið
mikla athygli fyrir frammistöðu sína hjá
Aston Villa.
Jóhannes Karl:
Valinn í lið
vikunnar
FÓTBOLTI Jóhannes Karl Guðjónsson,
leikmaður Aston Villa, hefur verið
valinn í lið vikunnar á fótboltavefn-
um soccernet.com. Þar er hann í
hópi ekki ómerkari leikmanna en
meðal annars þeirra Robert Pires,
leikmanns Arsenal, Gianfranco Zola
hjá Chelsea og Rio Ferdinand, varn-
armanns hjá Manchester United.
Þess má geta að markið sem Jó-
hannes skoraði í fyrsta leik sínum í
ensku úrvalsdeildinni gegn Midd-
lesbrough hefur verið tilnefnt
ásamt fimm öðrum Villa-mörkum
sem mark janúarmánaðar á heima-
síðu Aston Villa. ■
KÖRFUBOLTI Latrell Sprewell, leik-
maður New York Knicks, setti
nýtt NBA-met þegar hann hitti úr
9 þriggja stiga körfum í röð í sig-
urleik gegn L.A. Clippers, 105:92, í
NBA-deildinni í fyrrakvöld.
Sprewell skoraði 38 stig í leiknum,
sem er það mesta sem hann hefur
náð á leiktíðinni.
Michael Jordan skoraði 27 stig
og gaf átta stoðsendingar þegar
Washington Wizards vann
Cleveland Cavaliers með 93 stig-
um gegn 84. Jordan hefur verið í
miklu stuði undanfarið því hann
skoraði 45 stig í sigri gegn New
Orleans á laugardag. Jerry Stack-
house, aðalstigaskorari Wizards,
var fjarverandi í báðum leikjun-
um vegna meiðsla en það kom ekki
að sök. Kobe Bryant var atkvæða-
mikill fyrir L.A. Lakers sem vann
Indiana Pacers naumlega 97:94.
Bryant skoraði 5 stig í leikjum.
Shaquille O’Neal, samherji hans,
skoraði 19 stig og tók 12 fráköst.
Í öðrum leikjum vann Sacra-
mento Kings lið Dallas Mavericks
110:109 í hörkuleik. Toronto
Raptors vann Milwaukee Bucks
98:95, Minnesota Timberwolves
vann Houston Rockets 103:89,
Denver Nuggets bar sigurorð af
Chicago Bulls 102:100 og Portland
Trailblazers vann Orlando Magic
98:89. ■
AP/M
YN
D
SPREWELL
Latrell Sprewell tekur þriggja stiga skot í leiknum í fyrrrakvöld. Corey Maggette, leikmaður
Clippers, kemur engum vörnum við.
NBA-met sett í fyrrakvöld:
Sprewell með níu þriggja stiga körfur í röð
VALA
Vala Flosadóttir keppti á sínu fyrsta móti á árinu um síðustu helgi.
Vala Flosadóttir:
4,10 á
fyrsta
mótinu
PIRES
Robert Pires var valinn leikmaður ársins í ensku úrvalsdeildinni í fyrra, enda átti hann
stóran þátt í tvöföldum meistaratitli Arsenal. Hann mun eflaust verða liðinu mikilvægur í
titilbaráttunni sem fram undan er.
Pires lætur hlutina
gerast hjá Arsenal
Robert Pires, leikmaður Arsenal, er farinn að láta að sér kveða eftir sex
mánaða fjarveru vegna meiðsla. Hann dreymdi um að leika með Real
Madrid en hefur nú skipt um skoðun og vill framlengja samning sinn.
FERILL ROBERT PIRES
Arsenal (frá 2000): 76 deildarleikir 21 mark
Marseille (1999-2000): 66 deildarleikir 8 mörk
Metz (1996-99): 162 deildarleikir 43 mörk
Frakkland (frá 1997): 49 leikir 7 mörk
AP
/M
YN
D
Meistaramótið í frjálsum:
Jón Arnar
tekur þátt
FRJÁLSAR ÍÞRÓTTIR Meistaramót Ís-
lands í frjálsum íþróttum innanhúss
fer fram um helgina í Fífunni í
Kópavogi. Á meðal keppenda verð-
ur Jón Arnar Magnússon tugþraut-
arkappi, sem kemur heim frá Sví-
þjóð til að taka þátt í mótinu. Mun
hann keppa í sex greinum.
Um aðra helgi tekur Jón síðan
þátt í boðsmóti Erki Nool í Eistlandi
í sjöþraut þar sem hann mun reyna
að vinna sér sæti á heimsmeista-
mótinu innanhúss sem haldið verð-
ur í Birmingham dagana 14.-16.
mars.
Þórey Edda Elísdóttir stangar-
stökkvari og Sunna Gestdóttir lang-
stökkvari verða einnig á meðal
keppenda í Fífunni. ■
Peter Hoekstra hjá Stoke:
Í banni gegn
Chelsea
FÓTBOLTI Peter Hoekstra, leikmað-
ur Íslendingaliðsins Stoke City,
verður að öllum líkindum í leik-
banni þegar Stoke tekur á móti
Chelsea í fimmtu umferð ensku
bikarkeppninnar um aðra helgi.
Hoekstra fékk gult spjald í
jafnteflisleik Stoke gegn Norwich
um síðustu helgi og hefur hann
því alls fengið fimm gul spjöld á
leiktíðinni. Fer hann því sjálf-
krafa í eins leiks bann. ■
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/B
IL
LI