Fréttablaðið


Fréttablaðið - 06.02.2003, Qupperneq 21

Fréttablaðið - 06.02.2003, Qupperneq 21
21FIMMTUDAGUR 6. febrúar 2003 SÍMI 553 2075 Sýnd kl. 5.15, 8 og 10.30 Sýnd kl. 4 og 6 8 MILE kl. 8 og 10.15 THE LORD OF THE RINGS b.i. 12 kl. 4.30 JUWANNA MANN kl. 4 og 6 GULL PLÁNETTAN m/ísl. tali kl. 4 og 6 Sýnd kl. 8 og 10 b.i.14.ára Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10 b.i.14.ára JAMES BOND b.i. 12 ára 5.30 og 10 TRANSPORTER b.i. 14 kl. 6, 8 og 10 5.30, 8 og 10.30 bi. 12 Sýnd kl. 6., 8. og 10.30 KVIKMYNDIR Spy Kids var vel heppnuð ogskemmtileg fjölskyldumynd sem gerði það gott í kvikmynda- húsum árið 2001 og því sjálfsagt að fylgja henni eftir með fram- haldi. Myndin naut þess að leik- stjórinn Robert Rodriguez er frumlegur og skemmtilegur ná- ungi sem kann að gera gott bíó. Krakkarnir sem léku njósna- systkinin Carmen og Juni heill- andi og skemmtileg og ekki spillti fyrir að erkitöffarinn Ant- onio Banderas lék föður þeirra með ýktum tilþrifum. Nýja myndin gefur þeirri fyrri lítið eftir. Krakkarnir eru enn hin mestu krútt en lítið fer fyrir söguþræði í tæknibrellu- hamaganginum. Þeim sem eru komnir til vits og ára finnst sjálf- sagt full langt gengið en yngri áhorfendur skemmta sér að sama skapi konunglega. Þá er hresst upp á myndina með því að tefla fram illkvittnum systkinum og börnum vonds njósnara sem höfuðandstæðingum Carmen og Juni. Þá hinn kostulegi Steve Buscemi góða innkomu sem klikkaður vísindamaður. Spy Kids 2 er þvottekta sunnudags- mynd fyrir fjölskylduna og virk- ar það vel að þegar er byrjað að leggja drögin að þriðju myndinni. Þórarinn Þórarinsson SPY KIDS 2: ISLAND OF LOST DREAMS Leikstjóri: Robert Rodriguez Leikarar: Antonio Banderas, Carla Gug- ino, Alexa Vega, Daryl Sabara. Kátir krakkar bjar- ga heiminum aftur TÓNLIST Breska rokksveitin Fleetwood Mac er við það að gefa út sína fyrstu breiðskífu með nýj- um lögum síðan árið 1986. Platan heitir „Say You Will“ og kemur út þann 15. apríl. Liðsskipan á nýju plötunni er sú sama og hún var árið 1977 þegar sveitin gaf út hina klassísku plötu „Rumours“. Það þýðir að Mick Fleetwood, John McVie, Lindsey Buckingham og Stevie Nicks koma öll við sögu á nýju plötunni. Hljómborðsleikar- inn Christine McVie neitaði að vera með að þessu sinni. Í kjölfar útgáfunnar ætlar sveit- in í tónleikaferð um Bandaríkin. Hefst hún þann 7. maí með tónleik- um í Columbus í Ohio. Platan var hljóðrituð á 18 mán- uðum í Los Angeles. Lindsey Buck- ingham stjórnaði upptökum. ■ FLEETWOOD MAC Enn lifir í gömlum glæðum. Þeir sem töldu að Fleetwood Mac hefði sungið sitt síðasta höfðu blessunarlega rangt fyrir sér. Fleetwood Mac: Ný breiðskífa væntanleg Hjónin Catherine Zeta-Jones ogMichael Douglas ákváðu að gera hjónaband sitt að fjölmiðlaat- burði. Þetta viðurkenndu þau í breskum réttarsölum þar sem þau reyna nú að fá greiddar skaðabæt- ur frá tímaritinu „Hello!“. Hjónin kærðu blaðið fyrir að svindla inn ljósmyndara inn í brúðkaupið en þau voru búin að gera samning við „OK“ um einkarétt á birtingu mynda. Ástralska hljómsveitin TheVines fékk flestar tilnefningar, eða sex talsins, til NME-verðlaun- anna í ár. Íslandsvinirnir í Cold- play fengu fimm tilnefningar og Oasis fjórar. Athygli vakti að Ms. Dynamite og The Streets, sem fengu flestar tilnefningar til Brit- verðlaunanna, fengu einungis eina hver. Verðlaunin eru valin af les- endum blaðsins. Hátíðin fer fram 13. febrúar. Dave Grohl, fyrrum trommariNirvana og núverandi höfuð- paur Foo Fighters, kom aðdáend- um sínum skemmtilega á óvart þegar hann stökk upp á svið með hljómsveitinni The Hard On’s sem var að hita upp fyrir Foo Fighters á tónleikum. Allt í einu birtist Grohl og tók með þeim Motor- head-lagið „Ace of Spades“, tón- leikagestum til mikillar ánægju. FÓLK Breski leikarinn Edward Woodward, sem áhorfendur Stöðv- ar 2 muna eflaust eftir úr þáttun- um „The Equalizer“, berst nú við krabbamein í blöðruhálskirtli. Leikarinn, sem er 72 ára gamall, er nú í meðferð gegn meininu. Lækn- ar eru ánægðir með árangur hans. Woodward hefur fengið tvö hjartaáföll, árin 1987 og 1994, sem bundu nánast enda á leikferil hans. Eftir að hafa gengist undir þrjá hjartauppskurði ákvað hann að hætta að reykja. Hann létti sig um 15 kíló. Frægasta kvikmyndahlutverk Woodward er án efa aðalhlutverk „The Wicker Man“ sem var frum- sýnd 1973. Þar lék hann á móti Britt Ekland og Christopher Lee. ■ EDWARD WOODWARD Þótti afar sannfærandi sem „reddarinn“ í þáttunum „The Equalizer“. Sú persóna tók aldrei peninga fyrir störf sín ef réttlætinu var náð. Leikarinn Edward Woodward: Berst við krabbamein

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.