Fréttablaðið - 06.02.2003, Qupperneq 23
23FIMMTUDAGUR 6. febrúar 2003
Eldheittilboð
SAMAN Á FRUMSÝNINGU
Breski leikarinn Hugh Grant og hin banda-
ríska Sandra Bullock voru í góðum gír þeg-
ar þau mættu á frumsýningu myndarinnar
„Two Weeks Notice“ í Lundúnum á dögun-
um. Þau fara með aðalhlutverkið í mynd-
inni, sem ku vera bæði rómantísk og gam-
ansöm.
FRASIER
Kelsey Grammer er ekki á þeim buxunum
að hætta að leika útvarpsmanninn Frasier
Crane, sem fyrst sló í gegn í Staupasteini.
Grammer vill leika í 12.
þáttaröðinni um Frasier:
21 ár á
skjánum
sem Frasier
Crane
SJÓNVARP Leikarinn Kelsey
Grammer, sem fer með aðalhlut-
verkið í sjónvarpsþáttunum vin-
sælu Frasier, er að íhuga að leika
í þáttunum í eitt ár til viðbótar.
Ekki er langt síðan Grammer
samþykkti að leika í elleftu þátta-
röðinni um útvarpssálfræðinginn
knáa og í sjónvarpsviðtali sem
birtist næstkomandi á laugardag
segist hann vel geta hugsað sér að
halda hlutverkinu áfram. Í viðtal-
inu segist Grammer vera sáttur
við launin sem hann fær fyrir
Frasier, en þau nema um 128
milljónum króna á þáttinn.
Verði tólfta þáttaröðin að veru-
leika verður Frasier Crane sú
persóna sem lengst allra hefur
verið á sjónvarpskjánum í Banda-
ríkjunum, eða í 21 ár. Þar eru
Staupasteinsþættirnir vinsælu,
þar sem Frasier var í aukahlut-
verki, teknir með í reikninginn.
Grammer fór nýverið með
gestahlutverk sem Frasier í þátt-
unum um lækninn geðstirða
Becker. Þar hitti hann fyrir fé-
laga sinn úr Staupasteini, Ted
Danson. „Við erum bara tveir
gamlir hundar Við stígum bara
inn í hringinn og skemmtum okk-
ur,“ sagði Grammer í viðtalinu. ■
AP/M
YN
D