Fréttablaðið - 06.02.2003, Blaðsíða 31

Fréttablaðið - 06.02.2003, Blaðsíða 31
31FIMMTUDAGUR 6. febrúar 2003 ÚLPUR FYRIR ALLA á 50-80% lægra verði Einnig barna- og unglingafatnaður EVERLAST-gallar Fullorðins 2.990 Krakka st. 100-170 2.500 Opið Mán. - fös. 11-18 Lau. 11-16 OUTLET 10 + + + m e r k i f y r i r m i n n a + + + FAXAFENI 10 – SÍMI 533 1710 Ge rðu góð ka up Herrar Bene jakkaföt 12.500 4u skyrtur 1.990 Herrapeysur 2.990 Dömur Urban dömukápur 5.500 Levi’s gallabuxur 2.990 Laura Aime 1.990 Úlpur Everlast úlpur 4.990 Fila barnaúlpur 2.990 Fila úlpur 4.500 DKNY úlpur 7.900 Is-it-zo úlpur 3.500 Barna Fila barnaúlpur 2.990 Flísbuxur 2.990 Flíspeysur 2.990 Flís barnagallar 1.990 Póstsendum Ný sending af Blanco y Negro barnafatnaði Sparisjóðir gefa fjármálahandbók: Leiðsögn í nýju hlutverki FJÁRMÁL Sparisjóðirnir munu á þessu ári senda þeim sem eru nýorðnir 18 ára, og um leið fjár- ráða, fjármálahandbók að gjöf. Þessum hópi gefst einnig kostur á að sækja fjármálanámskeið hjá Sparisjóðunum. Þegar einstaklingur verður fjárráða ræður hann sjálfur yfir fjármálum sínum, öðlast fjár- hagslegt sjálfstæði. Á þessum tímamótum er nauðsynlegt að fá leiðsögn um næstu skref sem tek- in eru í fjármálum. Allar ákvarð- anir varðandi fjármál hafa áhrif á líf fólks. Þær leggja því skyldur á herðar og ábyrgð sem fólk hefur ekki þurft að bera fram að því. Til þess að njóta velgengni í fjármálum er nauðsynlegt að sýna aðgát. Sparisjóðurinn gefur út fræðsluefni til allra viðskiptavina og sinnir fjármálakennslu í skól- um og í Fræðslumiðstöð Spari- sjóðsins. Einnig er að finna fræðslu á öllum vefjum Spari- sjóðanna. Hægt er að sækja um fjármálanámskeiðið á vefnum namsmenn.is. ■ Ráðherra bíður umsagnar landlæknis Sjóntækjafræðingar hunsa lög og mæla sjón á augum fólks sem þarf á gleraugum að halda. Augnlæknar segja kerfið gott eins og það sé og að það komi í veg fyrir sjúkdóma. HEILBRIGÐISMÁL Jón Kristjánsson heilbrigðisráðherra bíður eftir til- lögum frá Landlæknisembættinu um hvort tímabært kunni að vera að breyta lögum um hverjum sé heimilt að mæla sjón manna og ávísa í framhaldi á gleraugu. Lögin kveða á um að það skuli vera á verksviði augnlækna en Kjartan Kristjánsson sjónfræð- ingur segir sjónfræðingum þykja lögin úrelt og bendir á að það hafi viðgengist lengi að sjóntækja- fræðingar hafi mælt fyrir linsum án forskriftar frá læknum. Hann sjái ekki mun á að mæla sjón vegna gleraugna eða linsa. Kjart- an bendir á að lögin séu mjög ruglingsleg og banni eða heimili hvorki augnlæknum né sjón- fræðingum að gera það sem nauðsynlegt er til að sinna þörf fólks á sjónhjálpartækjum. „Þeg- ar augnlæknar segja að þeir einir geti komið auga á sjúkdóma í aug- um þá bendi ég á að sjón- fræðingum ber að skoða sjóntaug- ina og líta meðal annars eftir gláku og sykursýki. Við höfum bent fólki á að leita augnlæknis ef við verðum varir við að eitthvað sé að.“ Elínborg Guðmundsdóttir, for- maður Augnlæknafélagsins, segir rétt að augnlæknar hafi lengi am- ast við því að sjónfræðingar mæli fyrir linsum því þeir hafi ekki leyfi til slíks. „Við teljum að hér á Íslandi höfum við gott kerfi sem gefur okkur ákveðið forskot. Hér greinum við fyrr en í nágranna- löndunum ýmsa sjúkdóma á byrj- unarstigi.“ Elínborg segir mat augnlækna að ekki kunni góðri lukku að stýra að viðskiptahagsmunir fari saman en ef lögum verði breytt muni sjónfræðingar bæði mæla sjón og selja gleraugu. Þar geti stangast á hagsmunir seljanda og neytanda. Jón Kristjánsson heilbrigðis- ráðherra segist eiga von á niður- stöðum Landlæknisembættisins á næstunni. „Okkur þótti rétt á sín- um tíma að hann sem fagaðili myndi vinna þessar tillögur fyrir okkur. Ég á ekki von á öðru en að ég taki til greina þá umsögn sem kemur frá Landlækni.“ Jón segir báða aðila hafa rætt við sig á sínum tíma. Hann veit ekki nákvæmlega hvenær niður- stöðunnar er að vænta en á von á henni mjög fljótlega. „Þá mun ég taka afstöðu til þess hvort breyta þurfi þessum lögum.“ ■ LISTNÁM Í AFGANISTAN Hamidullah kennir hinni tvítugu Shaimu að teikna upp snið í kennslustund í klæð- skurði í listaskóla í Kabúl í Afganistan. Skólinn starfar allan ársins hring og býður stúlkum upp á ókeypis námskeið í teikn- ingu og saumaskap. Stjórnandi skólans segir mikilvægt að viðhalda listum í Afganistan þar sem lönd séu ekki lifandi nema listin dafni í þeim. UNGT FÓLK Þeirra sem verða sjálfráða og fjárráða um leið bíður nýtt og oft á tíðum flókið hlut- verk sem gott er að fá leiðsögn um. AUGNLÆKNAR VILJA MÆLA SJÓN Sjóntækjafræðingar vilja bera sjálfir ábyrgð á mælingum og segjast líta eftir sjúkdóm- um um leið. Það sé kennt í þeirra námi. Norman Mailer: Áttræður og eldklár í kollinum BÆKUR Bandaríski rithöfundur- inn Norman Mailer fagnar 80 ára afmæli sínu á föstudaginn og er býsna ánægður með það enda gerði hann ekki ráð fyrir að ná fertugu á sínum tíma. Hann hefur lifað lengur en Ernest Hemingway og aðrar hetjur hans á bókmenntasvið- inu. Hann kvartar undan líkam- legum slappleika en er eldklár í kollinum. Mailer hefur hlotið Pulitzer- verðlaunin tvisvar, fyrir bæk- urnar The Armies of the Night og The Executioner’s Song. Hann á níu börn og tókst næst- um að myrða aðra eiginkonu sína og reyndi einu sinni að ná kjöri sem borgarstjóri New York. ■

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.