Fréttablaðið - 06.02.2003, Blaðsíða 32
Maðurinn á sér marga varnar-hætti. Einn er sá að gera grín að
því sem maður óttast. Reyna að gera
lítið úr því, bæði gagnvart sjálfum
sér og öðrum. Þetta heyrir maður oft
í umræðu um fólk af erlendu bergi
brotið. Um daginn var ég svo óheppin
að álpast inn á vitlausa útvarpsrás í
leit að handboltalýsingu í bílnum.
Þetta var rétt áður en leikur okkar
manna við Arabaríkið Katar hófst.
Útvarpsmaðurinn á þessari stöð hafði
gríðarlega skemmtun af nöfnum leik-
mannanna og taldi sig greinilega um
leið vera að skemmta áheyrendum.
Grínið fólst í því að nöfnin væru af-
skaplega sviplík og sum nöfnin komu
fyrir aftur og aftur, að hluta eða í
heild. Mér varð þá hugsað til þess að
hugsanlega væri annar útvarpsmaður
í öðru landi að telja upp íslensku leik-
mennina sem heita allir -son, nema
annar markmaðurinn ef ég man rétt,
að minnsta kosti þrír heita Sigurds-
son og þjálfarinn góði hvorki meira
né minna en Gudmundur Gudmunds-
son. Skyldi þeim hafa þótt það fynd-
ið?
Í BLAÐI gærdagsins mátti lesa að
nærri 40% þeirra sem afstöðu tóku
í skoðanakönnun telja að of margir
útlendingar fái dvalarleyfi hér á
landi, í heimsþorpinu Jörð árið
2003. Á 21. öld, þegar samskipti við
umheiminn eru orðin jafn aðgengi-
leg og samskipti út í næsta hús. Ótt-
inn við hið óþekkta er samt enn til
staðar og þessi afstaða stafar lík-
lega af honum. Ótti við fólk sem
hefur alist upp í öðru landi, talar
annað tungumál og hefur alist upp
við aðra siði og menningu. Þessi ótti
virðist enn fyrir hendi þó að heim-
urinn sé orðinn svona lítill.
ÞAÐ ER ALGENGT að óttast það
sem maður þekkir ekki. Óttinn brýst
svo út í tortryggni sem getur svo
undið upp á sig og leitt til neikvæðra
samskipta eða „gríns“ í anda útvarps-
mannsins. Fjölgun innflytjenda á Ís-
landi er til þess að gera ný af nálinni,
að minnsta kosti miðað við nágranna-
löndin. Þetta ætti að vera styrkur
okkar. Við höfum reynslu annarra að
byggja á, bæði jákvæða reynslu og
neikvæða. Sömuleiðis ætti hinn
minnkandi heimur að leiða til þess að
innflytjendum sé tekið með opnari
huga nú á öld samskiptanna en tíðk-
aðist þegar minna var um upplýs-
ingaflæði. Vonandi berum við gæfu
til að láta ekki óttann ráða för. ■
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 515 75 00, fax: 515 75 16 Ritstjórn: 515 75 05, fax: 515 75 06, ritstjorn@frettabladid.is
Auglýsinga- og markaðsdeild: 515 75 15 - fax 515 75 16, auglysingar@frettabladid.is Dreifing: 515 75 00, dreifing@frettabladid.is
VI Ð S EG J U M F R É T T I R SM Á A U G L Ý S I N G AS Í M I N N E R 515 7500
Bakþankar
Steinunnar Stefánsdóttur
Á ferð með
óttanum
HIMNESK STUND V e l k o m i n í s u n d
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
I
TR
1
91
78
01
/2
00
3
Fyrir alla húð, hendur og fætur
Helosan
Sótthreinsandi,
græðandi,
mýkjandi.