Fréttablaðið - 12.02.2003, Síða 1
STRÍÐSÁTÖK Bandaríski herinn á
Keflavíkurflugvelli var settur í
aukna viðbragðsstöðu í fyrradag
vegna væntanlegrar innrásar í
Írak:
„Viðbúnaði var lyft á varnar-
svæðinu en það mun ekki hafa
nein áhrif í Flugstöð Leifs Eiríks-
sonar,“ segir Jóhann R. Benedikts-
son, sýslumaður á Keflavíkurflug-
velli. „Hærra viðbúnaðarstig gild-
ir aðeins innan girðingar varnar-
liðsins og birtist helst í nákvæm-
ari leit í hliðum vallarins,“ segir
hann.
Auknar öryggiskröfur á Kefla-
víkurflugvelli vegna stríðsundir-
búnings Bandaríkjamanna og
bandamanna þeirra kallar á aukið
starf íslenskra lögreglumanna á
staðnum: „Við þurfum að bæta í
en það er allt innan þess ramma
sem við ráðum við,“ segir sýslu-
maðurinn.
Ríkislögreglustjórinn í
Reykjavík hefur enn ekki fengið
nein boð frá utanríkisráðuneyt-
inu um hert eftirlit í einni eða
annarri mynd vegna yfirvofandi
stríðsátaka eða hermdarverka
þeim tengdum. Í Bandaríkjunum
hefur borgurum verið tilkynnt að
næstefsta viðvörunarstig al-
mannavarna hafi tekið gildi
vegna rökstudds gruns um
hermdarverk sem vænta megi
um miðjan þennan mánuð. Að-
gerðirnar á Keflavíkurflugvelli
eru hluti af þeim viðbúnaði öll-
um. ■
TÓNLEIKAR
Flytja nýtt verk
eftir Atla Heimi
bls. 14
Þverholti 9, 105 Reykjavík — sími 515 7500 Miðvikudagurinn 12. febrúar 2003
Tónlist 14
Leikhús 14
Myndlist 14
Bíó 16
Íþróttir 12
Sjónvarp 18
KVÖLDIÐ Í KVÖLD
NÁMSKEIÐ Á stórmarkaði trúar-
bragðanna nefnist námskeið um
kristna trú og nýjar trúarhreyfing-
ar sem hefst í kvöld á vegum Leik-
mannaskóla þjóðkirkjunnar. Séra
Þórhallur Heimisson hefur umsjón
með námskeiðinu. Kennt er í Aðal-
byggingu Háskóla Íslands.
Á stórmarkaði
trúarbragðanna
STJÓRNMÁL Alþjóðakjarnorkuráðið
ræðir um stöðuna í Norður-Kóreu á
fundi í dag.
Norður-Kórea
rædd
FUNDUR Þörf á endurskoðun reglna
um ráðherraábyrgð verður rædd á
málstofu í stofu 101 í Lögbergi í
Háskóla Íslands í dag. Málshefj-
endur verða Róbert R. Spanó, að-
stoðarmaður umboðsmanns Alþing-
is, og Bryndís Hlöðversdóttir al-
þingismaður. Málstofan er opin öll-
um.
Ráðherraábyrgð
rædd
AFMÆLI Röskva, samtök félags-
hyggjufólks við Háskóla Íslands, er
fimmtán ára í dag. Í tilefni dagsins
ætla frambjóðendur Röskvu fyrr
og nú að hittast á efri hæð Sólons
Íslandus í Bankastræti klukkan
21.00 og eru Röskvuvinir boðnir
velkomnir.
Röskva
fimmtán ára
AFMÆLI
Listir og
bankamál
MIÐVIKUDAGUR
36. tölublað – 3. árgangur
bls. 16
Útsala
afsláttur
70%
allt a›
Girnilegar
tilboðskörfur
Smáralind - Glæsibæ
FATAHÖNNUN
Íslensk innrás
í Barcelona
bls. 22
ATVINNA Ríkisstjórnin hefur ákveð-
ið að setja 6,3 milljarða króna í
ýmsar framkvæmdir á næstu 18
mánuðum til að sporna gegn
auknu atvinnuleysi í landinu og
þeim slaka sem kominn er í efna-
hagslífið.
Davíð Oddsson forsætisráð-
herra segir að atvinnuleysi hafi
aukist örlítið meira en ríkisstjórn-
in hafi búist við. Þá hafi skýrsla
Seðlabanka Íslands sýnt að slak-
inn í atvinnulífinu sé meiri en
spáð hafi verið. Hann segir að Al-
þýðusamband Íslands og Samtök
atvinnulífsins hafi óskað eftir því
við ríkisstjórnina að gripið yrði til
einhverra aðgerða til að sporna
gegn þessari þróun.
Davíð segir að vegna þessa hafi
ríkisstjórnin samþykkt á fundi
sínum í gærmorgun að veita 4,6
milljörðum í vegaframkvæmdir
til að stuðla að eflingu atvinnu-
tækifæra fram til þess tíma er
áhrifa af stóriðjuframkvæmdum
fer að gæta til fulls. Einnig hafi
verið samþykkt að hrinda í fram-
kvæmd áætlun um menningarhús
og auka fé til atvinnuþróunar. Alls
verður 1,7 milljörðum veitt í þess-
ar framkvæmdir.
Auk þess að leggja út í nýjar
framkvæmdir hefur ríkisstjórnin
ákveðið að flýta ýmsum vega-
framkvæmdum sem þegar hefur
verið ákveðið að leggja út í.
Þessi ákvörðun ríkisstjórnar-
innar á sér engin fordæmi í Ís-
landssögunni. Að vísu hefur áður
verið ákveðið að auka fram-
kvæmdir til þess að bregðast við
atvinnuleysi og slaka í efnahagslíf-
inu, en aldrei hefur jafn miklu fé
verið varið til þess og nú. Halldór
Ásgrímsson utanríkisráðherra
segir að þessi ákvörðun ríkis-
stjórnarinnar komi til með að
skapa hundruð starfa. Þetta sé ekki
varanleg efnahagsleg aðgerð en
falli mjög vel að því tímabili sem
fram undan sé því meginþungi
stóriðjuframkvæmdanna verði
ekki fyrr en árin 2005 til 2007.
Til þess að fjármagna nýjar
vegaframkvæmdir og atvinnuþró-
unarátakið hyggst ríkisstjórnin
selja bréf ríkisins í Búnaðarbank-
anum, Landsbankanum og Ís-
lenskum aðalverktökum. Ríkið á
enn 2% hlut í Búnaðarbankanum
og 9% í Landsbankanum og verða
þeir seldir á almennum markaði,
en hluturinn í Íslenskum aðal-
verktökum verður boðinn út í
mars.
trausti@frettabladid.is
HERT EFTIRLIT
Aukin leit í hliðum Keflavíkurflugvallar
vegna væntanlegra stríðsátaka.
Stríðsundirbúningur teygir sig til Íslands:
Viðbúnaður aukinn
á Keflavíkurflugvelli
Sex milljarðar til
eflingar atvinnulífs
Alls verður 4,6 milljörðum króna veitt í vegaframkvæmdir á næstu 18 mánuðum til að
sporna gegn auknu atvinnuleysi. Milljarður verður settur í byggingu menningarhúsa
og 700 milljónir í atvinnuþróunarátak. Aðgerðin á sér engin fordæmi í Íslandssögunni.
ÁFANGI
bls. 21
Kominn
heim í
frelsið
ÓSKARINN
Chicago
með flestar
tilnefningar
bls. 22
NOKKRAR STAÐREYNDIR UM
MEÐALLESTUR FÓLKS Á ALDRINUM 12 TIL 80 ÁRA
Á HÖFUÐBORGARSVÆÐINU ER 69,6% SAMKVÆMT
FJÖLMIÐLAKÖNNUN GALLUP Í OKTÓBER 2002.
Fr
é
tt
a
b
la
ð
ið
M
o
rg
u
n
b
la
ð
ið
Meðallestur 25 til 49
ára samkvæmt
fjölmiðlakönnun
Gallup frá
október 2002
29%
D
V
80.000 eintök
70% fólks les blaðið
Hvaða blöð
lesa 25 til 49
ára íbúar á
höfuðborgar-
svæðinu á
miðviku-
dögum?
55%
81%
RÍKISSTJÓRNIN BREGST VIÐ AUKNU ATVINNULEYSI
Aðgerðir ríkisstjórnarinnar eiga að brúa bilið fram að stóriðjuframkvæmdunum sem
leggjast á af fullum þunga árið 2005.
REYKJAVÍK Suðaustanátt átt
5-10 m/s og skýjað. Hiti 0
til 6 stig.
VEÐRIÐ Í DAG
VINDUR ÚRKOMA HITI
Ísafjörður 5-10 Úrkomulítið 4
Akureyri 15-20 Léttskýjað 4
Egilsstaðir 15-20 Bjartviðri 5
Vestmannaeyjar 10-15 Skýjað 3➜
➜
➜
➜ +
+
+
+
FJÁRÚTLÁT RÍKISINS
Vegagerð: Milljónir
Höfuðborgarsvæðið 1.000
Norðausturland 1.000
Vestfirðir 1.000
Suðurstrandavegur 500
Almannaskarð 500
Hellisheiði 200
Gjábakkaleið 200
Þverárfjallsvegur 200
Samtals 4.600
Aðrar framkvæmdir:
Atvinnuþróunarátak
Byggðastofnunar 700
Menningarhús á Akureyri
og í Vestmannaeyjum 1.000
Samtals 1.700
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M