Fréttablaðið - 12.02.2003, Blaðsíða 2
2 12. febrúar 2003 MIÐVIKUDAGUR
EVRÓPA
Pétur Blöndal alþingismaður hefur í gegnum árin
verið talsmaður þess að draga úr ríkisumsvifum.
Já, ég tel að þetta sé lausn á atvinnuleysis-
vandanum, að flýta framkvæmdum. Þetta
brúar bilið þar til virkjunarframkvæmdir
hefjast fyrir austan. En ég vænti þess að þá
verði opinberar framkvæmdir skornar niður.
SPURNING DAGSINS
Pétur, eru það opinberar
framkvæmdir sem við þurfum?
Steingrímur Sigfússon:
Skynsamleg
ráðstöfun
ATVINNA „Ég er auðvitað mjög
ánægður með að ríkisstjórnin
skuli horfast í augu við vaxandi
a t v i n n u l e y s i s -
vanda,“ segir Stein-
grímur Sigfússon,
formaður Vinstri
grænna. Hann seg-
ir þetta að vísu
lykta af komandi
kosningum en eigi
að síður ætli hann
ekki að vera í fýlu
út af því. „Það er
sama hvaðan gott kemur. Það að
veita meira fé í samgöngufram-
kvæmdir er eitt það skynsamleg-
asta sem menn geta gert, einkum
í atvinnulegu og ekki síður í
byggðarlegu tilliti. Í það heila tek-
ið finnst mér þetta mjög jákvætt.“
Steingrímur segir þannig stan-
da á að slaki sé á hagkerfinu og
vaxandi atvinnuleysi. Því ætti
ekki að vera hætta á þenslu vegna
þessa framkvæmda. ■
Össur Skarphéðinsson:
Útspil tauga-
veiklunar
ATVINNA Össur Skarphéðinsson,
formaður Samfylkingarinnar,
segir að auðvitað fagni Samfylk-
ingin því þegar rík-
isstjórnin verði við
kröfum ASÍ og
stjórnarandstöð-
unnar um að grípa
til flýtifram-
kvæmda til að
skapa atvinnu.
Hann bendir þó
á að skort á störfum
megi fyrst og
fremst rekja til
mistaka ríkisstjórn-
arinnar við stjórn
efnhagslífsins. Össur segir að
engum dyljist að þetta útspil geis-
li af þeirri taugaveiklun sem hef-
ur gripið um sig vegna þess að
kannanir hafi sýnt að það vatni
hratt undan stjórnarflokkunum.
„Auðvitað vil ég veita nýju
blóði í atvinnulífið á landsbyggð-
inni en það er með ólíkindum að
sjá hversu afskipt höfuðborgar-
svæðið er í þessari aðgerð.“ ■
BANNA TÓBAKSSÖLU TIL BARNA
Öldungadeild franska þingsins
hefur samþykkt bann við sölu á
tóbaki til barna undir 16 ára
aldri. Samþykki neðri deild
þingsins lagafrumvarpið verður
það í fyrsta skipti sem frönskum
unglingum verður bannað að
kaupa tóbak.
NAUT FLÝJA TRÚARATHÖFN Naut-
gripir sem átti að fórna sem
hluta af íslamskri trúarhátíð ollu
miklum usla í Istanbúl, höfuð-
borg Tyrklands, þegar þau
reyndu að flýja örlög sín. Fjöldi
nauta hljóp um götur borgarinnar
klukkustundum saman meðan
eigendur þeirra og dýralæknar
reyndu að hafa uppi á þeim.
Grétar Þorsteinsson,
forseti ASÍ:
Þörf á að
brúa bilið
ATVINNA Grétar Þorsteinsson, for-
seti ASÍ, segir ekki ástæðu til ann-
ars en að fagna þessari ákvörðun
stjórnvalda. „Ég sé
ekki að þetta skapi
þenslu. Það er auð-
vitað þörf á að
brúa bilið þar til
stórframkvæmdir
hefjast á Austur-
landi. Atvinnuleys-
ið hefur vaxið og
er komið á fjórða
prósent. Yfir sex
þúsund manns eru
atvinnulaus, sem
er auðvitað graf-
alvarlegt mál.“
Grétar segir
þetta geta breytt
því töluvert en það
byggist á að ráðist
verði í þessar framkvæmdir
strax. „Því ríður á að sveitarfélög-
in bregðist við, einkum í þeim
þáttum sem snúa að skipulags-
málum.“ ■
Ari Edwald:
Tímasetning-
in heppileg
ATVINNA „Mér líst vel á þetta útspil
ríkisstjórnarinnar og tel tíma-
setninguna mjög hagstæða,“ segir
Ari Edwald, fram-
k v æ m d a s t j ó r i
Samtaka atvinnu-
lífsins.
Hann segir að
þar sem mikill
slaki sé á efnhags-
lífinu, lítil eftir-
spurn á vinnu-
markaði og vax-
andi atvinnuleysi
sé heppilegt að
stofna til þessara
f r a m k v æ m d a
núna. „Með þessu
skarast þessar framkvæmdir ekki
við væntanlegar virkjunarfram-
kvæmdir og það er gott.“
Ari telur ekki ástæðu til að ótt-
ast þenslu í efnahagslífinu, enda
séu þessar framkvæmdir ekki af
þeirri stærðargráðu að ástæða sé
til að óttast það. ■
RÍKISBORGARARÉTTUR Íslenskir rík-
isborgarar halda eftirleiðis ís-
lensku ríkisfangi þótt þeir öðlist
ríkisborgararétt í öðru ríki, sam-
kvæmt samþykkt Alþingis. Gild-
andi lög kveða á um að einstak-
lingur missi íslenskt ríkisfang ef
hann hlýtur erlent ríkisfang sam-
kvæmt umsókn sinni eða skýlausu
samþykki, eða með því að ganga í
opinbera þjónustu í öðru ríki.
Stjórnvöld hafa í vaxandi mæli
orðið vör við verulega óánægju ís-
lendinga vegna þessa en í sumum
löndum þurfa menn að vera þar-
lendir ríkisborgarar til að njóta
ýmissa réttinda. Iðulega er fólk
ósátt við að þurfa að afsala sér ís-
lensku ríkisfangi vegna þess eins.
Eitt meginsjónarmiðið við að
heimila ekki tvöfaldan ríkisborg-
ararétt er að koma í veg fyrir að
maður geti gegnt herskyldu í
tveimur ríkjum. Þetta á þó ekki
við hér, enda ekki herskylda á Ís-
landi. Svíar heimiluðu nýlega tvö-
faldan ríkisborgararétt og urðu
þar með fyrstir norrænna ríkja til
að heimila tvöfalt ríkisfang. Ís-
land fylgir nú í kjölfarið en í Nor-
egi, Danmörku og Finnlandi er
tvöfalt ríkisfang óheimilt. Víða
annars staðar í Evrópu er tvöfalt
ríkisfang heimilt en trúlega er
frjálsræðið í þessum efnum hvað
mest í Frakklandi. Þar viðurkenna
menn regluna um margfaldan rík-
isborgararétt. ■
STEINGRÍMUR
SIGFÚSSON
Ánægður með
ráðstöfunina.
ÖSSUR
SKARPHÉÐ-
INSSON
Segir skort á
störfum ríkis-
stjórninni að
kenna.
ARI EDWALD
Hann segir mik-
inn slaka í efna-
hagslífinu og
litla eftirspurn á
vinnumarkaði.
Því sér tímasetn-
ingin heppileg.
GRÉTAR ÞOR-
STEINSSON
„Atvinnuleysi er
komið yfir þrjú
prósent og yfir
sex þúsund
manns eru án
vinnu og því
geta fram-
kvæmdirnar
breytt,“ segir
hann.
ÍSLENDINGAR
Með samþykkt Alþingis halda landsmenn
nú íslensku ríkisfangi þó þeir öðlist annað
ríkisfang.
Alþingi:
Heimilar tvöfaldan ríkisborgarrétt
NATO Ekkert hefur gengið að leysa
erfiðustu deilu sem risið hefur
innan Atlantshafsbandalagsins í
áratugi. Tilraunir fulltrúa nítján
a ð i l d a r r í k j a
bandalagsins til að
ná sameiginlegri
niðurstöðu um
hvernig skuli
bregðast við beiðni
Tyrkja um aðstoð
við varnir gegn
hugsanlegum flugskeytaárásum
Íraka höfðu engan árangur borið í
gærkvöldi. Fundi bandalagsins
þar sem svara átti beiðni Tyrkja
hefur ítrekað verið frestað meðan
reynt hefur verið að ná sáttum.
„Það er enginn vafi á því að
samskiptin innan Evrópu og við
Bandaríkin hafa beðið skaða af
því sem hefur gerst innan Atlants-
hafsbandalagsins,“ segir Halldór
Ásgrímsson utanríkisráðherra.
„Ég er þeirrar skoðunar að það sé
mikilvægt að lágmarka þann
skaða. Það verður aðeins gert að
þessar þjóðir standi við sínar
skuldbindingar,“ segir hann og
vísar til Þjóðverja, Frakka og
Belga sem neitað hafa að verða
við beiðni Tyrkja.
Halldór segir að deilan snúist
um grundvallaratriði, það að ef
ráðist sé á eina þjóð jafngildi það
árás á þær allar. Með þessu hafi
öryggi Íslands verið tryggt á tím-
um Kalda stríðsins. Nú óttist
Tyrkir árás og eigi kröfu á stuðn-
ingi bandalagsríkja sinna. „Menn
verða að koma eins fram í öllum
tilfellum. Þetta var grundvallarat-
riði fyrir Þjóðverja á Kaldastríðs-
árunum.“
„Auðvitað snýst þetta að ein-
hverju leyti um forystu,“ segir
Halldór um deiluna. „Það hefur
verið draumur Þjóðverja og
Frakka að gegna meira forystu-
hlutverki í heim-
inum og það hef-
ur verið draumur
Evrópu að skapa
meira mótvægi
við styrkleika
Bandaríkjanna í
utanríkismálum.
Það er alveg ljóst
að þessi uppá-
koma innan Nató
hefur ekki styrkt
Frakka og Þjóð-
verja í því for-
ystuhlutverki. Ég
er hins vegar
þeirrar skoðunar að það sé mjög
mikilvægt að Evrópa styrki sig
sem heild á sviði utanríkismála.“
brynjolfur@frettabladid.is
ALLT STOPP
Bandaríkjamenn hafa í þrjár vikur reynt að fá Atlantshafsbandalagið til að samþykkja varnir til handa Tyrkjum vegna fyrirsjáanlegs stríðs í
Írak. Eftir að Þjóðverjar, Frakkar og Belgar höfnuðu því hefur allt verið stopp þrátt fyrir formlega beiðni Tyrkja um varnir gegn ógn sem
steðji að landinu.
Deilur veikja Evrópu
Deilan innan Atlantshafsbandalagsins snýst að einhverju leyti um for-
ystuhlutverk, segir utanríkisráðherra. Hún hefur þó síst orðið til að
styrkja vonir Frakka og Þjóðverja um aukin áhrif.
„Auðvitað
snýst þetta að
einhverju leyti
um forystu.“
HALLDÓR
ÁSGRÍMSSON
Furðar sig á af-
stöðu Frakka,
Þjóðverja og
Belga.
Banaslys í Grafarvogi:
Ungur
maður féll af
vinnupalli
SLYS Maður féll niður af vinnupalli
í Bryggjuhverfi í Grafarvogi í
gær og lést.
Tilkynnt var um slysið klukkan
13.30. Að sögn lögreglu féll mað-
urinn, sem var fæddur árið 1973,
niður á steinsteypt plan. Hann var
fluttur með sjúkrabifreið á slysa-
deild, en var látinn þegar þangað
var komið.
Lögreglan vinnur að rannsókn
málsins. ■
FRAMKVÆMDIR Ekki er hægt að ráð-
ast í gerð mislægra gatnamóta við
Kringlumýrar- og Miklubraut á
næstu mánuðum vegna þess að
skipulag er ekki fyrir hendi, að
sögn Davíðs Oddssonar forsætis-
ráðherra. Steinunn Valdís Óskars-
dóttir, formaður skipulags- og
byggingarnefndar Reykjavíkur,
segir þetta ekki rétt.
Ríkisstjórnin hyggst veita ein-
um milljarði til vegagerðar á höf-
uðborgarsvæðinu á næstu 18 mán-
uðum til að þess að bregðast við
auknu atvinnuleysi. Davíð segir að
þegar ríkisstjórnin hafi rætt hug-
myndir að þeim framkvæmdum
sem hægt væri að leggja út í hafi
umrædd gatnamót komið til tals og
menn verið sammála um mikil-
vægi þess að flýta framkvæmdum
við þau. Hins vegar hafi komið í
ljós að vegna skipulags- og um-
hverfismála væri það ekki hægt.
Steinunn Valdís segir að ef það
sé eindreginn vilji ríkisstjórnar-
innar að leggja í framkvæmdir við
Kringlumýrar- og Miklubraut sé
það vel hægt. Hægt sé að flýta
skipulagsferlinu og ljúka því innan
sex mánaða.
„Ef það er vilji til þess að flýta
framkvæmdum hér í höfuðborg-
inni er kjörið að leggja út í færslu
Hringbrautar, þar sem skipulags-
vinnu er lokið,“ segir Steinunn Val-
dís. „Borgaryfirvöld eru líka alveg
tilbúin til þess að flýta fram-
kvæmdum við Kringlumýrar- og
Miklubraut.“ ■
GATNAMÓT KRINGLUMÝRARBRAUTAR OG MIKLUBRAUTAR
Steinunn Valdís Óskarsdóttir segir að hægt sé að ljúka skipulagsferlinu innan sex mánaða.
Forsætisráðherra segir ekki hægt að ráðast í
framkvæmdir við Kringlumýrar- og Miklubraut:
Borgin er tilbúin
að flýta skipulaginu