Fréttablaðið - 12.02.2003, Blaðsíða 4
4 12. febrúar 2003 MIÐVIKUDAGURKJÖRKASSINN
Farðu inn á frett.is og segðu
þína skoðun
frétt.is
Ætlar þú til útlanda í
sumarfríinu?
Spurning dagsins í dag:
Ætlarðu að fylgjast með Eurovision á
laugardaginn?
Niðurstöður gærdagsins
á www.frett.is
15,8%
21,1%Nei
63,2%
LANDINN Á
LEIÐ ÚT Í
SUMARFRÍ
Meirihluti gesta á
frett.is ætlar að
leggja leið sína til
útlanda í sumarfrí-
inu.
Veit ekki
Já
DÓMSMÁL Jónatan Þórmundsson,
prófessor við lagadeild Háskóla Ís-
lands, segir skoðanakönnun Frétta-
blaðsins um afstöðu til dóms
Hæstaréttar yfir Árna Johnsen
kannski benda „til þess að Hæsti-
réttur sé á sömu bylgjulengd og
þorri almennings í landinu,“ eins og
Þórmundur orðaði það á málstofu í
Háskólanum í gær.
Niðurstaða könnunarinnar var
sú að 63% landsmanna telja
tveggja ára fangelsisdóm Árna
hafa verið hæfilegan, 26% sögðust
telja dóminn of þungan en 11%
sögðu að dómurinn væri of vægur:
„Það vekur svo aftur spurningar
hvort og hvernig dómstólar eigi að
fylgjast með almenningsálitinu;
hvort þetta var bara slembilukka
og hvort heppilegt sé að gera
snöggar eða tíðar breytingar á
refsimati af þeim sökum. Þetta sýn-
ir okkur að meðalhófið er vand-
ratað og að sitt sýnist hverjum.
Upplýsingar og umræður um þær
reglur og viðmiðanir sem dómstól-
ar hafa við að styðjast eru því gagn-
legar bæði fyrir dómstóla og al-
menning,“ sagði Jónatan. Hann
kvaðst sjálfur telja dóminn of
þungan. ■
Jónatan Þórmundsson lagaprófessor um könnun Fréttablaðsins:
Vafamál hvort Hæstiréttur
eigi að hlusta á almenning
JÓNATAN ÞÓRMUNDSSON
Telur dóminn yfir Árna of þungan.
Hópsjálfsmorð:
Skipulagt
á Netinu
TÓKÝÓ, AP Flest bendir til þess að
þrír einstaklingar, sem fundust
látnir í íbúð í Tókíó, höfuðborg
Japans, hafi framið sjálfsmorð eft-
ir að hafa skipulagt það á Netinu.
Sautján ára stúlka kom að fólk-
inu, karlmanni og tveimur konum,
eftir að hafa lesið áætlanir manns-
ins um að fremja sjálfsmorð sem
hann hafði birt á Netinu. Gluggum
íbúðarinnar hafði verið lokað og
límt fyrir allar glufur og síðan opn-
að fyrir gas.
Sjálfsmorðstíðni í Japan er með
því hæsta sem gerist. Árlega
fremja meira en 30.000 manns
sjálfsmorð þar í landi. ■
ÖRYGGI EFLT Í LUNDÚNUM
Breski herinn hefur verið kallað-
ur til að aðstoða lögregluna við
öryggisgæslu á
Heathrow-flug-
velli í Lundún-
um vegna
hættu á hryðju-
verkaárásum.
Hugsanlegt er
talið að al
Kaída-samtökin
muni láta til
skarar skríða undir lok íslömsku
trúarhátíðarinnar Eid al-Adha.
STUÐNINGUR VIÐ ÞÝSKALAND
Þýskur embættismaður hefur
lýst því yfir að aðeins fjórar af
fimmtán þjóðum öryggisráðs
Sameinuðu þjóðanna séu and-
vígar stefnu Þýskalands og
Frakklands í Íraksdeilunni.
Ellefu þjóðir telja því að leita
beri friðsamlegrar lausnar á
deilunni og leyfa vopnaeftirlits-
mönnum að halda áfram starfi
sínu.
BUSH VONSVIKINN Bush Banda-
ríkjaforseti hefur lýst yfir von-
brigðum vegna ákvörðunar
Frakka, Þjóð-
verja og Belga
um að beita
neitunarvaldi á
fundi Atlants-
hafsbandalags-
ins og leggjast
þannig gegn því
að hafinn verði
undirbúningur
að aðgerðum til þess að tryggja
öryggi Tyrklands ef til stríðs
kemur í Írak.
ÍSLÖMSK RÍKI STINGA SAMAN
NEFJUM Ráðamenn í íslömskum
ríkjum munu ræða óformlega þá
ógn sem stafar af yfirvofandi
stríði í Írak á ráðstefnu þróunar-
ríkja í Kuala Lumpur í næstu
viku, að sögn utanríkisráðherra
Malasíu.
MEIRI RÍKISSJÓÐSHALLI Fram-
kvæmdastjórn Evrópusambands-
ins hefur vakið máls á því að ef
stríð í Írak hefur neikvæð áhrif á
efnahagslíf komi til greina að
heimila ríkjum á evrusvæðinu að
reka ríkissjóð með meira en þeim
þriggja prósenta halla sem heim-
ill er samkvæmt samningum um
evruna.
FLUTNINGUR HERSVEITA Bush
Bandaríkjaforseti heldur því
fram að Saddam Hussein sé að
koma hersveitum sínum fyrir á
svæðum óbreyttra borgarara í
Írak svo hann geti kennt banda-
rískum hermönnum um hugsan-
legt mannfall ef til stríðs kemur í
landinu.
SENDIRÁÐUM LOKAÐ Úkraínsk
yfirvöld hafa flutt á brott alla
starfsmenn í sendiráði landsins í
Bagdad vegna yfirvofandi stríðs
í Írak. Portúgalar, sem stutt hafa
stefnu Bandaríkjanna í Íraks-
deilunni, hafa sömuleiðis lokað
sendiráði sínu í Bagdad.
ÍRAKSDEILAN
14 tróðust undir:
Harmleikur
á trúarhátíð
SÁDI-ARABÍA, AP 14 pílagrímar féllu
og tróðust undir fótum annarra
þegar múslímar sem komnir voru
til Mekka vegna hajj-trúarhátíð-
arinnar þyrptust fram til að grýta
djöfulinn.
Öflugar varúðarráðstafanir yf-
irvalda dugðu ekki til að koma í
veg fyrir harmleikinn. Fólki var
hleypt í hollum að þremur
steinsúlum sem eiga að tákna
freistingar djöfulsins og eru
grýttar í táknrænni athöfn. Þegar
einn hópur pílagríma var að yfir-
gefa staðinn og annar að koma í
staðinn myndaðist mikill troðn-
ingur með fyrrgreindum afleið-
ingum. ■
DÓMSMÁL Róbert R. Spanó, lektor í
lagadeild Háskóla Íslands, segir
það hafa verið nauðsyn hjá
Hæstarétti að láta þess getið í
dómi sínum yfir Árna Johnsen að
menntamálaráðherra og fram-
kvæmdasýslan hefðu með at-
hafnaleysi sínu skapað bygging-
arnefnd Þjóðleikhússins heimild
til að ráðstafa opinberum fjár-
munum, jafnvel þó nefndin hafi
aðeins átt að gera áætlanir.
Róbert var annar tveggja máls-
hefjenda á málstofu sem haldin
var í Háskólanum í gær um
hæstaréttardóminn yfir Árna.
„Það sem hins vegar vakti eft-
irtekt er að Hæstiréttur gengur
lengra og staðhæfir að verklag
nefndarinnar hafi í engu farið eft-
ir lögum um skipan opinberra
framkvæmda,“ sagði Róbert, sem
sagði þetta sýna það umhverfi
sem Árni Johnsen hefði skapað og
framið brot sín í.
„Má væntanlega halda því
fram að þarna hafi Hæstiréttur
verið að leggja á það áherslu að í
þessu máli hafi ráðherra og fram-
kvæmdasýsla ríkisins ekki rækt-
að eftirlitsskyldur sem á þeim
hvíldu að lögum,“ sagði Róbert. ■
RÓBERT R. SPANÓ
„Má væntanlega halda því fram að þarna
hafi Hæstiréttur verið að leggja á það
áherslu að í þessu máli hafi ráðherra og
framkvæmdasýsla ríkisins ekki ræktað eft-
irlitsskyldur sem á þeim hvíldu að lögum,“
sagði Róbert R. Spanó lektor á málstofu
gær.
Háskólakennari um skilaboð Hæstaréttar:
Ráðherra braut
eftirlitsskyldu
SKOÐANAKÖNNUN Rúmlega 60%
kjósenda telja tveggja flokka rík-
isstjórn æskilega að loknum kosn-
ingum í vor, samkvæmt skoðana-
könnun sem Fréttablaðið gerði á
laugardaginn. Einungis 2,5%
sögðust vilja þriggja flokka ríkis-
stjórn. 36,7% sögðust óákveðin
eða neituðu að svara.
Flestir vilja sjá Framsóknar-
flokkinn í ríkisstjórn að loknum
kosningum í maí eða 36,2%. Litlu
færri eða 35,3% telja æskilegt að
Samfylkingin setjist í ríkisstjórn
og 30,3% vilja sjá Sjálfstæðisflokk
í ríkisstjórn. Þá sögðust 18,8%
kjósenda vilja sjá Vinstri græna í
ríkisstjórn að loknum kosningum.
Áframhaldandi ríkisstjórnar-
samstarf Framsóknarflokks og
Sjálfstæðisflokks hugnast flestum
eða 22% kjós-
enda.
S a m k v æ m t
uppsöfnuðum
n i ð u r s t ö ð u m
fjögurra síðustu
skoðanakannana
Fréttablaðsins
gengur það sam-
starf þó trauðla.
Framsókn fengi
8 þingmenn og
Sjálfstæðisflokkur 23 eða samtals
31 þingmann.
15,8% nefndu ríkisstjórn Sam-
fylkingarinnar og Vinstri grænna,
sem hefði 32 þingmenn bak við sig
samkvæmt uppsöfnuðum niður-
stöðum.
Þá sögðust 14,2% helst vilja
samstarf Samfylkingarinnar og
Framsóknarflokks, sem hefði 34
þingmenn á bakvið sig.
Aðeins lítill hluti kjósenda
nefndi stjórn Sjálfstæðisflokks og
Samfylkingar og enn færri sam-
starf Sjálfstæðisflokks og Vinstri
grænna. Hverfandi fáir nefndu
þriggja flokka stjórnarmynstur.
Ef niðurstöður eru skoðaðar
eftir fylgi við flokkana má sjá að
59,5% kjósenda Framsóknar-
flokks vilja óbreytt samstarf með
Sjálfstæðisflokki en þriðjungur
vill samstarf við Samfylkinguna.
Þrír af hverjum fjórum kjós-
enda Sjálfstæðisflokksins segjast
vilja óbreytt samstarf við Fram-
sókn, 12,8% telja Samfylkinguna
fýsilegan kost.
Kjósendur Samfylkingarinnar
virðast aðeins sjá tvo kosti, 40,9%
hugnast samstarf við Vinstri
græna best, 40,4% vilja frekar
samstarf við Framsókn.
Líkt og Sjálfstæðismenn virð-
ast kjósendur Vinstri grænna
nokkuð ákveðnir þegar kemur að
stjórnarsamstarfi. 76,1% kjós-
enda Vinstri grænna telur sam-
starf við Samfylkinguna fýsileg-
asta kostinn en 15,2% vilja vinna
með Sjálfstæðisflokki.
the@frettabladid.is
Fimmtungur vill
óbreytt stjórnarmynstur
Kjósendum Vinstri grænna hugnast best ríkisstjórnarsamstarf með Samfylkingunni. Sjálfstæðis-
menn vilja óbreytt ríkisstjórnarsamstarf. Aðeins lítið brot kjósenda vill þriggja flokka stjórn.
Jafnt hlutfall kjósenda Samfylkingarinnar vill í stjórn með Framsókn og Vinstri grænum.
AFSTAÐA FYLGISMANNA FLOKKANNA TIL STJÓRNARMYNSTURS
B+D D+S S+B D+U S+U
B 59,5% 33,3%
D 75,7% 12,8%
S 40,4% 40,9%
U 15,2% 76,1%
DRAUMA-
RÍKISSTJÓRNIN
B+D 22,0%
S+U 15,8%
S+B 14,2%
D+S 5,3%
D+U 3,0%
B+S+U 2,3%
B+D+U 0,2%
Óákveðnir 36,7%
ÓSKARÍKISSTJÓRN KJÓSENDANNA
Tæplega 76% kjósenda Sjálfstæðisflokksins vilja áframhaldandi samstarf Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks. Tæp 60% kjósenda
Framsóknarflokks eru á sömu skoðun. Vinstri grænir kjósa hins vegar flestir samstarf við Samfylkinguna.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T