Fréttablaðið - 12.02.2003, Blaðsíða 10
10 12. febrúar 2003 MIÐVIKUDAGUR
Útgáfufélag: Frétt ehf.
Ritstjóri: Gunnar Smári Egilsson
Fréttastjóri: Sigurjón M. Egilsson
Ritstjórnarfulltrúar: Reynir Traustason
og Steinunn Stefánsdóttir
Auglýsingastjóri: Þórmundur Bergsson
Ritstjórn, auglýsingar og dreifing:
Þverholti 9, 105 Reykjavík
Aðalsími: 515 75 00
Símbréf á fréttadeild: 515 75 06
Rafpóstur: ritstjorn@frettabladid.is
Símbréf á auglýsingadeild: 515 75 16
Rafpóstur: auglysingar@frettabladid.is
Setning og umbrot: Frétt ehf.
Prentvinnsla: Ísafoldarprentsmiðja ehf.
Fréttablaðinu er dreift ókeypis á heimili á höfuð-
borgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá
blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni.
Fyrirtæki geta fengið blaðið gegn greiðslu
sendingarkostnaðar; kr. 1.100 á mánuði.
Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni
blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum
án endurgjalds.
LÖGREGLUFRÉTTIR
Samkvæmt úttekt Verslunar-ráðs Íslands er Fréttablaðinu
dreift til lesenda sex daga vikunn-
ar í rúmlega 86 þús-
und eintökum. Til
samanburðar fara
að meðaltali tæp-
lega 54 þúsund ein-
tök af Morgunblað-
inu til lesenda á
hverjum degi. Upp-
lag Fréttablaðsins
er samkvæmt þessu
um 32 þúsund ein-
tökum stærra en
Morgunblaðsins.
Þetta eru háar
tölur. Það eru ekki
margar vörur sem eru framleidd-
ar í 86 þúsund eintökum á dag;
kannski mjólk í eins lítra umbúð-
um. Munurinn á mjólkinni og
Fréttablaðinu er hins vegar sá að
Fréttablaðið er ókeypis. Lesendur
fá dagblað sem kannanir sýna að
fólki líkar vel, en borga ekki
krónu fyrir það.
Í úttekt Verslunarráðs kom
fram að rétt tæplega 76.500 eintök
af Fréttablaðinu berast á heimili
fólks á höfuðborgarsvæðinu og á
Akureyri á morgnana. Ef við
reynum að yfirfæra þetta upplag
yfir í krónur kostar áskrift að
Morgunblaðinu 2.100 krónur á
mánuði en áskrift að DV 2.200
krónur á mánuði. Ef þessi 76.500
heimili myndu greiða fyrir áskrift
að Fréttablaðinu myndi það kosta
rúmar 160 milljónir á mánuði mið-
að við Moggaverð og tæplega 170
milljónir miðað við verðið á DV.
Þetta gerir rétt tæpa 2 milljarða
króna á ársgrundvelli.
Fréttablaðinu er einnig dreift í
verslanir og aðra sölustaði víða
um land; samtals í um 9.700 ein-
tökum. Þar getur fólk komið og
sótt sitt Fréttablað ókeypis. Ef við
færum þetta yfir í krónur og aura
kostar Morgunblaðið 190 krónur í
lausasölu en DV ýmist 100, 200
eða 350 krónur. Ef við miðum við
Moggaverðið jafngildir þessir
dreifing Fréttablaðsins því að
blöð að andvirði rúmlega 1,8 millj-
óna króna séu gefin á hverjum út-
gáfudegi. Það gerir rúmlega 46
milljónir á mánuði og rúmlega 550
milljónir á ári.
Samanlagt gefur Fréttablaðið
því landsmönnum dagblöð að and-
virði rúmlega 2.500 milljóna á ári.
En þetta kemur í raun engum
við. Hins vegar getur hver um sig
velt fyrir sér kjarabótinni sem
felst í því að fá dagblað á heimilið
án þess að borga fyrir það 25.200
krónur á ári. Til að borga þá upp-
hæð þarf fólk að vinna sér inn um
41 þúsund krónur á ári. Frí áskrift
að dagblaði er því meiri kjarabót
en jólabónusinn sem flest verka-
lýðsfélög hafa samið um. ■
Frítt dagblað er góð kjarabót
skrifar um 86 þúsund eintök
af Fréttablaðinu.
Mín skoðun
GUNNAR SMÁRI EGILSSON
ÓK Á 147 KM HRAÐA Ökumaður
var stöðvaður á 147 km hraða á
Hafnarfjarðarvegi um miðnætti í
fyrrinótt. Að sögn lögreglunnar í
Hafnarfirði er hámarkshraði 70
km. Ökumaður var ungur að
árum og þykir líklegt að hann
verði sviptur ökuréttindum. Þá
voru sjö til viðbótar stöðvaðir
vegna hraðaksturs í fyrirnótt.
Eiturlyfjasmygl:
Kókaín í
flugvél
MEXÍKÓ, AP Mexíkóskar hersveitir
fundu 2,2 tonn af kókaíni um borð
í flugvél sem lenda þurfti í norð-
urhluta landsins vegna vélarbil-
unnar. Þrír menn voru um borð,
tveir kólumbískir flugmenn og
einn Mexíkói, og voru þeir allir
handteknir. Lögreglan notaði
hunda til þess að aðstoða við leit í
vélinni og runnu þeir á lyktina.
Yfirvöld í Mexíkó hafa einnig
tilkynnt að sex lögreglumenn hafi
verið handteknir í Veracruz
vegna gruns um að hafa unnið
með eiturlyfjasmyglurum. ■
LÉK Á ALLS ODDI
Ali Imron útskýrði fyrir blaðamönnum með
miklum tilþrifum hvernig hann undirbjó og
framkvæmdi sprengjuárásirnar.
Sprengjuárásir á Bali:
Ódæðis-
maður
biðst
afsökunar
BALI, AP Ali Imron, sem grunaður
er um aðild að sprengjuárásunum
á Bali í október síðastliðnum, hef-
ur beðið aðstandendur fórnar-
lambanna afsökunar. Á óvenjuleg-
um blaðamannafundi sem haldinn
var í aðalstöðvum lögreglunnar á
Bali játaði hann jafnframt að hafa
skipulagt árásirnar og sýndi við-
stöddum hvernig hann setti
sprengjurnar saman. Hann gortaði
af færni sinni í sprengjugerð en
sagðist átta sig á því að hann hefði
notað hana í röngum tilgangi.
Imron heldur fram að indó-
nesísku samtökin Jemaah Islam-
iyah standi á bak við sprengjuárás-
irnar. Um 30 meðlimir samtakanna
hafa verið handteknir og hafa
margir þeirra játað aðild að árás-
unum. Engu að síður hefur gengið
erfiðlega að sannfæra almenning
um að indónesísk samtök hafi
framið þessi ódæðisverk. ■
Það er athyglisvert að fylgjastþessa dagana með hanaslagn-
um milli Ingibjargar Sólrúnar
Gísladóttur og Davíðs Oddssonar.
Enn eru þrír mánuðir til kosninga
og það nánast neistar af persónu-
legri óvild milli þessara foringja,
sem virðast gera sér far um að
bæta í spælingarsúpuna dag frá
degi. Hugmyndaflugið ræður
varla við þá hugsun hvernig þetta
verður orðið þegar líður að kosn-
ingum. Það stefnir í óvenjulega
kosningabaráttu – kannski ekki
síst vegna þess að fjandskapurinn
virðist ekki einskorðast við þessa
tvo foringja, heldur taka allir
helstu herforingjar flokkanna,
jafnt sem óbreyttir fótgönguliðar,
fullan þátt í ónotunum.
Ákveðin stigmögnun varð með
ræðu Ingibjargar Sólrúnar í
Borgarnesi um helgina. Þar fór
hún yfir sviðið og talaði eins og
hinn eini sanni foringi flokksins –
lagði línur um pólitískar áherslur
og kastaði enn einum stríðshanska
fyrir fætur Davíðs Oddssonar við
myljandi lófatak samflokksmanna.
Össur, hinn formlegi formaður,
mun að vísu hafa fengið hyllingu
líka – en sú hylling var meira í
anda pólitískrar minningargreinar.
Hans stóra hlutverk var að kunna
að draga sig í hlé – þeir jákvæð-
ustu myndu kannski segja að hann
hafi verið í hlutverki línumannsins
sem býr til pláss með blokk fyrir
skyttuna. Í það minnsta fer ekki
milli mála að Ingibjörg Sólrún er
orðin aðal andlit Samfylkingarinn-
ar.
Í ljósi þess að Samfylkingin er á
góðri siglingu þessa dagana í skoð-
anakönnunum vekur það athygli
að hið nýja andlit flokksins skuli
með svo afgerandi hætti stilla sér
upp sem valkosti við Davíð Odds-
son sérstaklega. Það er einfaldlega
útilokað að Ingibjörg Sólrún og
Samfylkingin fari í stjórn með
Sjálfstæðisflokknum eftir kosn-
ingarnar í vor eftir þau skeyti sem
hún hefur sent frá sér. Líklega var
þessi ítrekun á fyrri ummælum í
garð Sjálfstæðisflokksins mikil-
vægustu skilaboð Borganesræðu
forsætisráðherraefnis Samfylk-
ingarinnar. Í leiðinni undirstrikar
Ingibjörg Sólrún reyndar að ekki
sé ástæða til að leggja of grannt
við hlustir þegar Össur Skarphéð-
insson er að friða hægri kratana og
tala um að Samfylkingin gangi
óbundin til kosninga og ekki sé
hægt að útiloka neitt varðandi
stjórnarmynstur.
Hvað svo sem annars má segja
um þann pólitíska leðjuslag sem
virðist fram undan milli foringja
Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar
verður því varla á móti mælt að
með því að taka skrefið til fulls og
segja að annað hvort fari Samfylk-
ingin í stjórn eða Sjálfstæðisflokk-
ur, þá hefur Ingibjörg skapað sér
og flokki sínum miklu trúverðugri
stöðu sem spilari við pókerborð
stjórnmálanna. Þetta útspil er ein-
mitt í samræmi við vaxandi gengi í
könnunum og til þess gert að festa
flokkinn í sessi sem „hinn valkost-
inn“. Kannanir segja okkur að
tveir flokkar séu nokkuð jafnir og
áberandi stærstir í íslenska
flokkakerfinu og gætu hvor um sig
orðið burðarafl í nýrri ríkisstjórn.
Ingibjörg er einfaldlega að undir-
strika þessa nýju stöðu.
Þessi uppstilling á víglínum er
reyndar mjög skynsamleg fyrir
Samfylkinguna því hún framkallar
„Hafnarfjarðaráhrifin“ í stjórn-
málunum. Í sveitarstjórnarkosn-
ingunum í vor snerust stjórnmálin
í Hafnarfirði upp í einvígi milli
Samfylkingarmanna og Sjálfstæð-
ismanna – umræðan var milli þess-
ara tveggja og í kappræðunni voru
það á endanum Lúðvík Geirsson og
hans menn sem höfðu vinninginn.
Framsóknarmenn og Vinstri græn-
ir lentu í algerum aukahlutverkum
í þessari baráttu – þeir urðu að
statistum í leikmyndinni, en höfðu
ekki áhrif á framvindu leikritsins.
Það dylst engum að Ingibjörg Sól-
rún framkallar auðveldlega við-
brögð hjá keppinaut sínum eins og
viðbrögð forsætisráðherra við
Borganesræðunni sýna. Henni
lætur vel hlutverk nautabanans,
sem framkallar hið pólitíska naut í
forsætisráðherranum. Það eru því
verulegar líkur á að þessi tvö muni
einoka sviðið í hringleikahúsinu
þar sem þau sitja hvort í sínum
fylgisturni vikulegra skoðana-
kannana.
Slíkur tveggja turna slagur
gæti vissulega orðið fjörugur og
litskrúðugur fyrir áhugamenn um
stjórnmál. Hitt er þó alveg ljóst að
hann gæti reynst framsóknar-
mönnum og vinstri grænum erfið-
ur, nema náttúrulega – sem manni
sýnist raunar að gæti vel gerst –
turnbúarnir gleymi sér í hita leiks-
ins og kosningabaráttan leiði þá út
fyrir þá almennu velsæmislínu
sem kjósendur eru tilbúnir að
sætta sig við. ■
blaðamaður og
aðjúnkt við Háskól-
ann á Akureyri skrifar
um daginn og veg-
inn.
BIRGIR
GUÐMUNDSSON
Um daginn
og veginn
Tveggja turna slagur
Samanlagt
gefur Frétta-
blaðið því
landsmönnum
dagblöð að
andvirði rúm-
lega 2.500
milljóna á ári.
Allir kvarta yfir
háum vöxtum;
fyrirtæki jafnt
sem heimili.
Útsala
Úr, skartgripir og postulín
15-50% afsláttur
Laugavegi 61
Sími 552 4910 úrad. 552 4930
Mörkinni 6, sími 588 5518.
Opið 9-18 virka daga og 10-15 laugardaga.
Stórútsala
Yfirhafnir í úrvali
20-50%
afsláttur
Fyrstir koma, fyrstir fá
Allt á að seljast
Keramik fyrir alla • Laugavegi 48b, sími 552 2882.
Opið: virka daga 11-18, laugard. 13-17, miðvikudagskvöld 20-23
Bókanir fyrir
sérhópa á kvöldin.
Opið hús
í kvöld
kl. 20–23.