Fréttablaðið - 12.02.2003, Page 6

Fréttablaðið - 12.02.2003, Page 6
6 12. febrúar 2003 MIÐVIKUDAGURVEISTU SVARIÐ? Svörin eru á bls. 22 1. 2. 3. Hvaða alþingismaður vill fá að nota bókstafina DD í sérfram- boði sínu í Suðurkjördæmi? Starfsemi á Vogi hefur aukist og biðlistar heyra nú sögunni til þegar kemur að konum og ung- lingum. Hver er yfirlæknir á Vogi? Hann lék James Bond og Dýr- linginn. Nýlega var hann sæmd- ur orðu fyrir störf sín hjá SÞ. Hver er maðurinn? GENGI GJALDMIÐLA Bandaríkjadalur 77,52 +0,70% Sterlingspund 125,43 -0,26% Dönsk króna 11.14 -0,56% Evra 82,80 -0,56% Gengisvístala krónu 120,95 -0,16% KAUPHÖLL ÍSLANDS Fjöldi viðskipta 298 Velta 5.670,9 milljónir, ICEX-15 1.355,2 +0,19% Mestu viðskipti Samherji 83.871.850 Baugur Group 81.284.122 Búnaðarbanki Íslands 77.248.712 Mesta hækkun Búnaðarbanki Íslands +2,47% Eimskipafélag Íslands +1,67% Kaldbakur +1,33% Mesta lækkun Skýrr -4,50% SÍF -4,26% Íslenskir aðalverktakar-1,39% ERLENDAR VÍSITÖLUR DJ*: 7907,0 -0,2% Nasdaq*: 1303,7 +0,5% FTSE: 3669,2 +2,5% DAX: 2633,4 +1,8% Nikkei: 8484,9 +0,4% S&P*: 835,2 -0,1% *Bandarískar vísitölur kl. 17.00 Allar meðlagsgreiðslur verði skattfrjálsar: Framfærslueyrir en ekki tekjur MEÐLAG „Í hugum flestra er með- lag foreldris með barni ekki tekj- ur móttakanda heldur fremur ráð- stöfun tekna meðlagsgreiðanda í þágu barnsins,“ segir í greinar- gerð frumvarps þingkvenna Sam- fylkingarinnar sem vilja afnema skattlagningu á öllum meðlags- greiðslum, hvort sem um er að ræða einfalt, tvöfalt eða jafnvel margfalt meðlag. Í skattalegu til- liti er litið á meðlag umfram tvö- faldan barnalífeyri sem tekjur og því greiddur tekjuskattur af því sem umfram er. Jóhanna Sigurðardóttir er fyrsti flutningsmaður en auk hennar flytja frumvarpið þær Margrét Frímannsdóttir, Ásta R. Jóhannesdóttir, Sigríður Jóhann- esdóttir og Guðrún Ögmundsdótt- ir. Flutningsmenn benda á að sam- kvæmt barnalögum sé litið á með- lag sem framfærslueyri sem til- heyri barni og því illskiljanlegt að takmarka undanþágu frá tekju- skatti við tvöfalt meðlag, en gera meðlagsgreiðslur umfram það skattskyldar. Í slíkum tilvikum sé um tví- sköttun að ræða, því fyrst sé greiddur skattur af tekjum með- lagsgreiðanda og síðan af meðlag- inu þegar það er komið í hendur þess sem hefur forræði yfir barn- inu. Auk þessa vilja flutningsmenn að Innheimtustofnun sveitarfélaga verði gert skylt að annast inn- heimtu á aukameðlagsgreiðslum, sé þess óskað. Stofnuninni verði þó ekki heimilt að taka greiðslu fyrir innheimtuna líkt og nú tíðkast vegna innheimtu aukameðlags. ■ BRENNANDI HJÖRTU Þjóðernissinnaðir hindúar brenndu Valent- ínusarkort til þess að sýna vanþóknun sína á þeim auknu vinsældum sem hátíðin á að fagna á Indlandi. Þjóðernissinnaðir hindúar: Valentínus- ardegi mótmælt BOMBAY, AP Samtök þjóðernissinn- aðra hindúa á Indlandi hafa hafið mótmælaaðgerðir vegna Valent- ínusardagsins, sem haldinn verður hátíðlegur 14. febrúar næstkom- andi. Samtök þessi hafa árlega mót- mælt því harðlega að haldið sé upp á Valentínusardag í landinu, meðal annars með því að brenna kort, leggja gjafavöruverslanir í rúst og áreita pör sem haldast í hendur á almannafæri. Mótmælendurnir líta svo á að Valentínusardagur sé árás frá hin- um vestræna heimi á indverska menningu auk þess sem kaupmenn nýti sér hátíðina til þess að hafa ungmenni að féþúfu. Mjög hefur færst í vöxt á undanförnum árum að Indverjar haldi upp á þennan dag og fullyrða verslunarmenn að þess- ar mótmælaaðgerðir muni engin áhrif hafa á þá þróun. ■ Verkamannaflokkurinn: Minnsta fylgi í rúm tvö ár LONDON, AP Stuðningur við breska Verkamannaflokkinn mælist minni nú en dæmi eru um síðan í september árið 2000. Samkvæmt skoðanakönnun sem var unnin fyrir The Times myndu 35% breskra kjósenda greiða Verkamannaflokknum at- kvæði sitt. Íhaldsflokkurinn sækir í sig veðrið og nýtur stuðnings 34% kjósenda. Mun- urinn á flokkunum tveimur er innan skekkjumarka. Frjáls- lyndir demókratar eru sem fyrr minnsti flokkurinn en fengju samkvæmt könnuninni atkvæði fjórða hvers kjósanda. ■ Forstjóri Nokia: Vill lægri skatta HELSINKI, AP Jorma Ollila, forstjóri Nokia, hefur blandað sér í umræð- una um skattamál í Finnlandi þrátt fyrir að tjá sig almennt lítið um finnsk stjórnmál. Á ráðstefnu um efnahagsmál sagði Ollila að það væri brýn nauðsyn að lækka tekjuskatta, en þeir geta numið allt að 60% af tekjum þeirra launahæstu. Ollila sagði þetta nauðsynlegt ef tryggja ætti hag- vöxt og styðja við velferðarkerf- ið. Skattar á fyrirtæki væru þó sanngjarnir. Erkki Tuomioja utanríkisráð- herra vísaði kröfunni um skatta- lækkanir á bug og sagði engar ástæður fyrir því að svo stöddu. Um miðjan síðasta áratug var skattaprósentan 65%. ■ Hagstofan: Bráða- birgðatölur fiskaflans TÖLUR Hagstofa Íslands hefur ákveðið að hefja að nýju í dag birt- ingu bráðabirgðatalna fiskaflans þar sem vigtar- og ráðstöfunar- skýrslur eru hafðar til hliðsjónar. Með þeim gefa fiskkaupendur upplýsingar um kaup sín á hráefni og ráðstöfun þess. Þessar skýrslur gefa nákvæmari mynd af veiðum og vinnslu afla en fæst með upplýsing- um úr Lóðs, sem er aflaskráningar- kerfi Fiskistofu sem notað er á hafnarvogum. Skýrslurnar berast Fiskistofu nokkuð seinna en gerist með upplýsingar hafnarvoga sem skráðar eru í Lóðs. Því verður farin sú leið að birta þriggja mánaða gamlar upplýsingar, sem eykur gæði upplýsinganna. ■ JÓHANNA SIGURÐARDÓTTIR Segir illskiljanlegt að takmarka undanþágu frá tekjuskatti við tvöfalt meðlag og telur rétt að undanþiggja allar meðlagsgreiðslur skatti. BANDARÍKIN Leyniskytturnar John Muhammad og Lee Malvo skildu eftir sig blóði drifna slóð á aust- urströnd Bandaríkjanna á síðasta ári. Margir hafa átt um sárt að binda vegna þeirra ódæðisverka sem mennirnir tveir frömdu og ljóst er að líf aðstandenda fórnar- lambanna, sem og þeirra sex sem lifðu árásirnar af, munu aldrei verða söm aftur. Í grein sem birt- ist á dögunum í blaðinu New York Times er fjallað um afdrif þessa fólks en greinilegt er af því sem þar kemur fram að aðstæður þeirra og viðhorf til tilverunnar eru þó nokkuð mismunandi. Fórnarlömbin sem lifðu af og aðstandendur hinna látnu hafa fengið bætur úr sérstökum sjóði sem stofnaður var í kjölfar árásanna og hefur það hjálpað fólkinu mikið við að koma lífi sínu á réttan kjöl að nýju. Það er þó ljóst að engin veraldleg gæði fá fyllt upp í þau skörð sem myndast hafa í fjölskyldur fórn- arlambanna eða bætt það heil- sutjón sem þeir urðu fyrir sem lifðu árásirnar af. Sem fyrr segir eru viðbrögð fólksins við breyttu hlutskipti sínu, sem og tilfinningarnar í garð misgjörðamannanna, tölu- vert mismunandi. Sár reiði býr í brjósti margra aðstandendanna og er þeim mikið í mun að menn- irnir tveir fái makleg málagjöld. Nokkrir aðstandendanna hafa höfðað málsókn á hendur vopna- sala og framleiðanda sem að þeirra sögn snýst fyrst og fremst um að koma í veg fyrir að atburð- ir sem þessir endurtaki sig. Flest- ir hafa þó haft sig lítið í frammi og óskað eftir því að fá ró og næði til að halda lífinu áfram. James Ballenger, sem missti konuna sína fyrir hendi leyniskyttnanna, stóð uppi sem einstæður faðir og hefur ofan á allt annað þurft að kljást við mikla fjárhagsörðugleika. Ballen- ger segist engu að síður hafa þroskast mikið við þá auknu ábyrgð sem færst hafi á herðar hans í kjölfar andláts eiginkon- unnar. Í framhaldi af því hefur hann valið að vinna úr sorginni með því að leita leiða til þess að fyrirgefa misgjörðamönnum sín- um. Að sögn Ballenger er það eina leiðin til þess að öðlast frið í hjartanu og hefur hann hvatt fólk eindregið til þess að gera slíkt hið sama. ■ EVRÓPUSAMBANDIÐ „Mér líst í fyrsta lagi vel á hugmynd um þverpólitíska Evrópunefnd. Ég held að það sé gott að tefla þarna saman litrófinu í stjórnmálunum og fá að auki utanaðakomandi að- ila. Það verður vonandi til þess að umræðan kemst í vitrænt horf,“ sagði Magnús Stefánsson, vara- formaður utanríkismálanefndar Alþingis. Davíð Oddson forsætisráð- herra hefur skrifað formönnum stjórnmálaflokkanna bréf þar sem hann greinir frá hugmyndum um tíu manna Evrópunefnd og leitar eftir viðhorfum þeirra til slíkrar nefndarskipunar. Þetta er í takt við það sem fram kom í svari forsætisráðherra við fyrirspurn Steingríms J. Sigfússonar í lok janúar. Nefndin á ekki að vera Evrópustefnunefnd heldur á hún að fjalla á faglegan hátt um álita- efni í Evrópumálum, greina kjarnann frá hisminu. Við það er miðað að flokkarnir skipi tvo fulltrúa hver í nefndina, að því undanskildu að Frjálslyndi flokkurinn skipi einn. Forsætis- ráðherra skipar einn án tilnefn- ingar, sem jafnframt verður for- maður nefndarinnar. Ekki stendur til að setja nefndinni tímamörk eða kveða á um skipunartíma en þó er miðað við að greint verði reglulega frá gangi nefndar- starfsins. ■ DAVÍÐ ODDSSON Hefur nú skrifað formönnum stjórnmála- flokkanna bréf, líkt og hann upplýsti í janú- arlok, og leitar eftir viðhorfum þeirra til þverpólitískrar Evrópustefnunefndar. Tíu manna Evrópunefnd forsætisráðherra á teikniborðinu: Greini kjarnann frá hisminu BUGUÐ FJÖLSKYLDA Fjöldi manns á um sárt að binda eftir að stjúpfeðgarnir John Muhammad og Lee Malvo myrtu og særðu vegfarendur á götum Washington-borgar og nágrennis síðasta haust. Sár reiði og fyrir- gefning fórnarlamba Líf margra tóku stakkaskiptum í kjölfar árása bandarísku leyniskyttn- anna á síðasta ári. Fórnarlömb og aðstandendur hafa þurft að laga sig að gjörbreyttum aðstæðum.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.