Fréttablaðið - 12.02.2003, Síða 17
17MIÐVIKUDAGUR 12. febrúar 2003
SÍMI 553 2075
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.15 Sýnd kl. 6
8 MILE kl. 8 og 10.15 THE LORD OF THE RINGS b.i. 12 kl. 5.30
JUWANNA MANN kl. 4 og 6 GULL PLÁNETTAN m/ísl. tali kl. 4 og 6
HARRY POTTER kl. 8Sýnd kl. 3.45, 5.45, 8 og 10.15 b.i.10.ára
Sýnd kl. 8 og 10
TRANSPORTER b.i. 14 kl. 10I SPY kl. 5.50, 8 og 10.10 bi. 12 ára
BANGER SISTERS kl. 6 og 8Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30 bi. 12 ára
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30 bi. 12 ára
Madonna undirbýr nú að blandasér í hóp stríðsandstæðinga.
Myndband við væntanlegt smá-
skífulag hennar
mun sýna hana
gagnrýna harðlega
áform Bush
Bandaríkjaforseta
um að ráðast á
Írak. Takmark
poppdrottningar-
innar er að sýna
afleiðingar þess að
til stríðs komi. Í myndbandinu
sjást meðal annars blóðug börn
auk þess sem Madonna kastar
handsprengjum í takt við tónlist-
ina. Væntanleg breiðskífa
Madonnu kemur til með að heita
„American Life“.
Bókaútgáfan Random Househefur ráðið rithöfundinn Mark
Winegardner til þess að skrifa
fjórða hluta sögu Corleone-fjöl-
skyldunnar. Fjórða Guðföðurbókin
ætti því að skila sér í hillurnar á
næsta ári. Bókin mun heita því
frumlega nafni „The Godfather
Returns“. Höfundur Guðföður-
bókanna, Mario Puzo, lést árið
1999. Nokkuð öruggt er talið að
kvikmyndaverið sem á réttinn á
myndunum um Guðföðurinn stefni
svo að því að gera fjórðu myndina
að veruleika.
Brad Pitt afþakkaði boð um aðfara aftur með gestahlutverk í
„Friends“-þáttunum. Hann lék
fyrrum skólafélaga Ross sem þoldi
ekki vinkonu hans, Rachel. Pitt
segist hafa neitað af listrænum
ástæðum. Hann telur að gestahlut-
verk eigi ekki að endurtaka þar
sem það myndi ekki hafa jafn mik-
il áhrif og í fyrra skiptið. Eigin-
kona hans, Jennifer Aniston, sem
leikur Rachel, var honum fyrst
ósammála en hann á að hafa skýrt
ákvörðun sína fyrir henni í róleg-
heitunum.
Leikkonan Renée Zellweger seg-ist hafa dáðst að einföldum
lifnaðarháttum sveitafólks í Rúm-
eníu er hún kynntist við tökur
myndarinnar „Cold Mountain“.
Hún segist hafa áttað sig á því
hversu lítið umstang mannskepnan
þurfi í raun og veru til þess að
komast af. Hún viðurkennir þó að
hún kunni vel að meta kvikmynda-
stjörnulíferni sitt.
Leikarinn George Clooney brástharkalega við á blaðamanna-
fundi á kvikmyndahátíðinni í
Berlín eftir að tyrkneskur blaða-
maður sagði mynd
hans „Solaris“
leiðinlega og
mislukkaða.
Clooney sagði yfir
allan fundinn að
blaðamaðurinn
væri aðeins að
reyna vera með
leiðindi og sagðist
vilja sjá hann gera nokkrar kvik-
myndir áður en hann kastaði slík-
um yfirlýsingum í andlit sitt.
Þrátt fyrir að myndin hafi ekki
fengið mjög blíðar viðtökur gagn-
rýnenda segist leikarinn afar sátt-
ur við hana.
KVIKMYNDIR Kvikmyndagerðarmað-
urinn George Lucas, sem er líklega
þekktastur fyrir Stjörnustríðs-
myndirnar, segist bjartsýnn á að
kvikmyndaver sem hann er að
byggja rétt fyrir utan San
Francisco muni efla kvikmynda-
gerð í borginni. Fyrirtækið mun
einbeita sér að gerð kvikmynda-
brellna, bæði tölvuteiknaðra og
annarra, og segist Lucas viss um að
tilkoma þess verði til þess að
Hollywood fái dygga samkeppni í
kvikmyndagerð frá San Francisco í
framtíðinni.
Lucas var viðstaddur sérstaka
athöfn á laugardaginn þegar fyrsta
skóflustungan var tekin. Áætlað er
að kostnaðurinn við að koma fyrir-
tækinu í gang sé um 300 milljónir
dollara (rúmlega 23 milljarðar ísl.
kr.).
„San Francisco hefur alltaf haft
yfirbragð í kvikmyndagerð sem
flestir vita ekki af,“ sagði Lucas á
athöfninni. „Okkur er ýtt undir hatt
Hollywood. Með þessu skrefi held
ég að heimurinn fari að viðurkenna
San Francisco sem kvikmynda-
gerðarborg.“
Kvikmyndaverið verður nálægt
Golden Gate-brúnni og mun bera
nafnið „Letterman Digital Arts
Center“. Áætlað er að framkvæmd-
um verði lokið árið 2005.
Lucas vinnur nú að þriðja kafla
Stjörnustríða, sem hann fullyrðir
að verði síðasta myndin. Hann hlýt-
ur að teljast til frumkvöðla í kvik-
myndagerð þar sem hann stofnaði
fyrsta tölvubrellufyrirtækið,
„Industrial Light & Magic“, auk
þess að hanna THX-hljóðkerfið.
Kvikmyndaver hans, Skywalker
Ranch, er einnig í nágrenni San
Francisco. ■
LUCAS OG FÉLAGAR
George Lucas, annar frá hægri, tekur fyrstu skóflustunguna nálægt Golden Gate-brúnni í
San Francisco þar sem byggja á nýtt kvikmyndaver. Hann segist vongóður um að koma
borginni á kortið sem kvikmyndaborg. Hann spáir því einnig að borgin muni veita
Hollywood mikla samkeppni í framtíðinni.
George Lucas:
Storkar veldi Hollywood
(A
P
PH
O
TO
/S
AN
F
R
AN
C
IS
C
O
C
H
RO
N
IC
LE
, K
U
RT
R
O
G
ER
S)
PERRY
Matthew Perry lætur sér ekki nægja að
leika í vinsælum sjónvarpsþáttum og kvik-
myndum.
Vinurinn Matthew Perry:
Á leiksvið í
Lundúnum
LEIKHÚS „Vinurinn“ Matthew Perry
mun heyja frumraun sína sem at-
vinnusviðsleikari í Lundúnum í
maí. Fetar hann þar með í fótspor
fjölmargra bandarískra leikara
sem stigið hafa á stokk í Lundúna-
borg.
Perry mun fara með hlutverk
Danny í leikritinu „Sexual Per-
versity in Chicago.“ Það er sama
persóna og Rob Lowe lék í kvik-
myndinni „About Last Night“ sem
gerð var árið 1986.
Meðleikarar Perry verða þau
Minnie Driver og Hank Azaria. ■