Fréttablaðið - 14.02.2003, Page 11
12 14. febrúar 2003 FÖSTUDAGURNORÐURLÖND
ORKA Bandaríska stórblaðið The
New York Times spáir því að
ljósaperan verði úrelt innan fjög-
urra ára. Við taki svokallaðir
tölvukristalskubbar sem þegar
eru komnir í notkun í ljósskiltum
á Times Square í New York.
Ljósakristalarnir hafi til þessa
verið of dýrir í framleiðslu til að
leysa ljósaperu Edisons af hólmi
en það sé að breytast. Uppfinning
Edisons á glóþræðinum er nú
orðin rúmlega hundrað ára göm-
ul og hafa margar atlögur verið
gerðar að henni á umliðnum
árum:
„Ljósaperan er búin að standa
sig vel og spádómar um fall
hennar hafa ekki gengið eftir til
þessa,“ segir Daði Ágústsson
hjá Rafhönnun. „Á sínum
tíma töldu menn að
sparperan myndi gera út
af við hana en hún var
bæði of dýr og svo var
ljósið af henni of kalt.
Og þó svo að halógen-
peran hafi að mörgu
leyti reynst vel þá er
hún ansi heit og með
þrönga ljósgeisla,“ segir
Daði og bendir á að þjóðir
á norðlægum slóðum vilji
hlýtt ljós eins og glópera
Edisons veiti. Þegar menn
komi til heitari landa sjái þeir
hins vegar meira af köldu ljósi:
„Það er eins og þetta sé inn-
byggt í okkur hérna norðurfrá
að vilja hlýja og milda lýsingu
eins og glópera Edisons veit-
ir,“ segir hann.
Nú er að sjá hvort nýju
tölvukristalskubbarnir búi
yfir þessum mildu eiginleik-
um glóperunnar en verði
þeir almennt teknir í notkun
eiga rafmagnsreikningar um
heim allan eftir að lækka svo
um munar. ■
LJÓSPERAN
Rúmlega hundrað ára uppfinning Edisons
á undir högg að sækja.
New York Times spáir byltingu í lýsingu:
Ljósaperan að verða úrelt
ÁFENGISAUGLÝSINGAR Farið er í
kringum lög um bann við áfengis-
auglýsingum með því að auglýsa
áfengislausan bjór sem lítur að
flestu leyti eins út og áfengur bjór
frá sama framleiðanda. Þorgerð-
ur Ragnarsdóttir, framkvæmda-
stjóri Áfengis- og vímuvarnaráðs,
vill breytingar á lögum um áfeng-
isauglýsingar. „Mér finnst leiðin-
legt að vinna með reglur og lög
sem ekkert gagn er í,“ segir Þor-
gerður. Hún segir nauðsynlegt að
endurskoða þessi lög. „Við höfum
verið sérstaklega ósátt við það hjá
framleiðendum og innflytjendum
áfengis að þeir beina auglýsing-
um að ungu fólki, þrátt fyrir að
þeir segist ekki vera að sækjast
eftir því að ala upp nýjan mark-
að.“ Hún segir innflytjendur jafn-
vel verri í slíkri markaðssetningu
en innlenda framleiðendur.
Í Svíþjóð féll á dögunum dóm-
ur um að bann við áfengisauglýs-
ingum væri óheimilt. Sigríður
Andersen, lögfræðingur hjá
Verslunarráði Íslands, telur
mögulegt fyrir innflytjendur og
framleiðendur hér á landi að láta
reyna á hvort bannið hér á landi
brjóti í bága við EES-samninginn.
„Mér finnst hins vegar að íslensk
stjórnvöld ættu að fara á undan og
breyta sjálf reglunum frekar en
að taka við skipun um það frá
Brussel,“ segir Sigríður.
Þorgerður segir að mikill
þrýstingur sé frá Suður-Evrópu
um frelsi í þessum efnum. Ástæð-
an sé offramleiðsla í ríkjum eins
og Frakklandi, Spáni og Ítalíu.
Málið snúist um landbúnað og
kvótasetningu hans í þeim lönd-
um. „Hins vegar má ekki gleyma
því að jafnvel í þessum löndum
eru verulegar takmarkanir á því
hvernig, hvar og hvenær má aug-
lýsa áfengi.“ Hún bendir á að á
Spáni megi ekki auglýsa áfengi
fyrr en seint á kvöldin í sjónvarpi.
Í tímaritum megi hlutfall áfengis-
auglýsinga ekki fara upp fyrir til-
tekin mörk.
„Víða í Evrópu gilda strangar
reglur um slíkar auglýsingar. Afl
áfengisframleiðenda til markaðs-
setningar er svo gríðarlegt og fjár-
munirnir svo miklir að ekki væri
hægt að spyrna við fótum ef ekki
væru settar neinar reglur.“ Þor-
gerður segir að umræða sé innan
Evrópusambandsins um að herða
reglur um áfengisauglýsingar og
setja þær í sama flokk og tóbaks-
auglýsingar. „Það mundi þýða að
þær væru nánast alveg bannaðar.“
haflidi@frettabladid.is
Lakar reglur um
áfengisauglýsingar
Núverandi reglur um áfengisauglýsingar gera lítið gagn að mati fram-
kvæmdastjóra Áfengis- og vímuvarnaráðs. Lögfræðingur Verslunarráðs
telur kominn tíma á endurskoðun áður en boð koma frá Brussel.
Einar Oddur Kristjáns-
son um aðgerðir ríkis-
stjórnarinnar:
Segjum þá
að þetta sé
kosningamál
ALÞINGI „Nú er það svo að það eru
kosningar á fjögurra ára fresti
eins og allir vita. Ríkisstjórnin er
að bregðast við aðstæðum í efna-
hagslífinu, sem þarf að bregðast
hratt við. Ef það skyldi vera að
Samfylkingin vildi hafa þetta
sem kosningamál, þá tel ég það
ákaflega vænlegt. Við skulum þá
bara segja það að þetta sé kosn-
ingamál. Þá veit fólkið það og
minnist þess í kosningunum
hverjir það voru sem voru í
fýlu,“ sagði Einar Oddur Krist-
jánsson, Sjálfstæðisflokki, á Al-
þingi í gær þegar verið var að
ræða aðgerðir ríkisstjórnarinnar
til að sporna gegn atvinnuleysi.
Og Einar Oddur sagði þörf á
að ræða fleira þegar atvinnuleys-
ið væri annars vegar.
„Það er stórhættulegt, það er
mikil þörf á því að við ræðum hér
opinberlega þá kreppuhagfræði
sem menn eru að boða hér í
Seðlabankanum. Við verðum að
horfast í augu við það og tala um
það,“ sagði Einar Oddur. ■
EINAR ODDUR KRISTJÁNSSON
Vill ræða opinskátt um þá kreppuhagfræði sem hann segir Seðlabankann boða.
Iceland Express:
Samið við
hótel á
Stansted
FERÐALÖG Lággjaldaflugfélagið
Iceland Express hefur samið við
hótel á Stansted-flugvelli um gist-
ingu fyrir farþega sína frá Íslandi
sem hyggjast halda áfram flugi á
annan áfangastað. Á Stansted-
flugvelli er flogið daglega til um
110 áfangastaða víða um heim en
flugvöllurinn er helsta miðstöð
lággjaldaflugfélaga á Bret-
landseyjum. Þar sem væntanlegt
flug Iceland Express frá Íslandi
til Stansted verður seint um dag
gæti gisting í nágrenni flugvallar-
ins oft orðið nauðsyn áður en
lengra er haldið.
Forráðamenn Iceland Express
hafa náð samningum við hótel um
næturgistingu í tveggja manna
herbergjum fyrir 4.500 krónur.
Einnig er Hilton-hótel á staðnum
en þar kostar gistingin um 28 þús-
und krónur nóttin. Frá Stansted til
Prag í Tékklandi er algengt verð á
flugfarseðli um 7 þúsund íslensk-
ar krónur – báðar leiðir. ■
FRÁ STANSTED-FLUGVELLI
Tveggja manna herbergi á 4.500 krónur.
Varaformaður bankaráðs:
Eykur við
hlut sinn
INNHERJAVIÐSKIPTI Kjartan Gunn-
arsson, varaformaður bankaráðs
Landsbankans og framkvæmda-
stjóri Sjálfstæðisflokksins, keypti
í gær hlut í Landsbankanum fyrir
sjö milljónir að nafnvirði. Gengi
kaupanna var 3,76 og verðmæti
þeirra rúmar 26 milljónir króna.
Eftir kaupin á Kjartan og aðilar
tengdir honum hlut í Landsbank-
anum að nafnvirði rúmar 48 millj-
ónir eða sem svarar 180 milljón-
um króna að markaðsvirði. Kjart-
an er innherji í bankanum, en upp-
gjör bankans liggur nú fyrir og
innherjum því heimilt að eiga við-
skipti með bréf sín. ■
Tjónamet hjá
Tryggingamiðstöðinni:
Ökutrygg-
ingar skila
mestum
hagnaði
AFKOMA Tjón Tryggingamiðstöðv-
arinnar hafa aldrei verið jafn
mikil og í fyrra. Tjón félagsins
voru 7,3 milljarðar króna en bók-
færð tjón tæpir
sjö milljarðar.
Stærsta einstaka
tjón félagsins var
þegar fjölveiði-
skipið Guðrún
Gísladóttir sökk
undan Noregs-
ströndum. Tjón
vegna þess nam
2,2 milljörðum
króna. Tjón fé-
lagsins hækkuðu
um rúm 40 pró-
sent, en iðgjöldin
hækkuðu um rúm
níu prósent.
Hagnaður fé-
lagsins var 455
milljónir króna
samanborið við
417 milljónir í fyrra. Ástæðan er
sú að fjármálarekstur gekk vel og
endurtrygging greiddi hluta
tjóna. Slæm afkoma endurtryggj-
enda og versn-
andi ástand í
þeirri grein hef-
ur orðið til þess
að kostnaður við
endurtryggingu í
sjó- og farm-
tryggingum hef-
ur aukist.
Tap var hjá
Tryggingamiðstöðinni í flestum
tryggingaflokkum. Ökutrygging
skilaði ríflega 400 milljóna hagn-
aði. Ástæðan er talin vera snjó-
léttir vetur að undanförnu. Af-
koma í sjúkra- og slysatrygging-
um var viðunandi að mati félags-
ins. ■
BÓKFÆRÐ
TJÓN TM
Í MILLJÓNUM
KRÓNA
1998 2.500
1999 3.199
2000 3.908
2001 4.912
2002 6.917
KVIKMYNDAIÐNAÐUR BLÓMSTR-
AR 2.000 manns störfuðu í danska
kvikmyndaiðnaðinum árið 2001
og velti hann um tveimur millj-
örðum danskra króna. Hann hef-
ur tvöfaldast að umfangi undan-
farin tíu ár. Í nýrri skýrslu segir
að Danir geti tekið Ástrali sér til
fyrirmyndar en þar hefur kvik-
myndaiðnaðurinn blómstrað.
Veðrið og málið eru þó talin
hamla Dönum í samkeppninni.
NAFNASKIPTI VINSÆL Umsóknum
um nafnaskipti fjölgar stöðugt í
Danmörku. Fræðimenn hafa velt
fyrir sér hvað búi að baki.Niður-
staða þeirra er að skýringanna sé
einkum að leita í því að æ fleiri að-
hyllast talnafræði og trúa því að
lífið verði betra ef stafasamsetning
nafnsins breytist. Það eru helst
konur á fertugsaldri sem vilja fá
nýtt nafn í stað þess gamla.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T
ÁFENGISAUGLÝSING?
Auglýsing á áfengislausum bjór sem lítur eins út og áfengur bjór er ein leið framleiðenda
og innflytjenda til að fara í kringum núverandi löggjöf um áfengisauglýsingar.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M
RAFTÆKJAVERSLUNIN SUÐURVERI
STÓRÚTSALA
á ljósum og lömpum.
Opið alla helgina.
Mikill afsláttur.
– Leikur í ljósum –
Stigahlíð 45, 105 Reykjavík. Sími 553-7637, fax 568-9456
TJÓNAMET
Stærsta einstaka
tjón Trygginga-
miðstöðvarinnar
var þegar
fjölveiðiskipið
Guðrún Gísladótt-
ir sökk. Tjónið var
2,2 milljarðar.