Fréttablaðið - 14.02.2003, Page 17
18 14. febrúar 2003 FÖSTUDAGURGOLF
MÆTTUR AFTUR
Tiger Woods dregur fram kylfu á æfinga-
hring fyrir Buick-mótið sem hófst í
Bandaríkjunum í gær. Þetta er fyrsta mót
Woods síðan hann fór í uppskurð á hné í
desember.
ÍÞRÓTTIR Í DAG
18.00 Kaplakriki
FH tekur á móti ÍBV í Esso-
deild kvenna í handbolta. ÍBV
er í efsta sæti deildarinnar en
FH í því sjöunda.
18.00 Valsheimili
Valur og Grótta/KR mætast í
Esso-deild kvenna í handbolta.
18.00 Sýn
Sportið með Olís.
18.30 Sýn
Football Week UK. Vikan í
enska boltanum.
18.30 Egilshöll
Valur og Fylkir eigast við í und-
anúrslitum Reykjavíkurmótsins
í knattspyrnu.
19.00 Sýn
Trans World Sport.
Íþróttir um allan heim.
19.15 Borgarnes
Skallagrímur tekur á móti KR í
Intersportdeildinni í körfubolta.
19.15 Grindavík
Grindavík fær nýkrýnda bikar-
meistara Keflavíkur í heimsókn
í Intersport-deildinni í körfu-
bolta.
19.15 Seljaskóli
ÍR-ingar og Haukar eigast við í
Intersportdeildinni í körfubolta.
20.00 Austurberg
ÍR-ingar taka á móti FH-ingum í
Esso-deild karla í handbolta.
20.00 Selfoss
Selfyssingar og Víkingar eigast
við í botnslag Esso-deildar
karla í handbolta.
20.00 Valsheimili
Topplið Vals tekur á móti
Gróttu KR í Esso-deild karla í
handbolta.
20.00 Framhús
Fram mætir Víkingi í Esso-deild
kvenna í handbolta. Fram situr
á botni deildarinnar en Víking-
ur er í fimmta sæti.
20.30 Egilshöll
Fram og Þróttur R. eigast við í
hinum undanúrslitaleik Reykja-
víkurmótsins í knattspyrnu.
Svo gæti farið að Steffen Iver-sen, framherji Tottenham,
verði frá það sem eftir er tíma-
bils. Iversen hefur verið þjakað-
ur af brjósklosi síðustu fimm ár
og bíður nú eftir niðurstöðu
lækna um hvort hann þurfi að
gangast undir aðgerð. Iversen
hitti sérfræðinga í Osló og vonast
til að fá mál sín á hreint.
Gordon Strachan, knattspyrnu-stjóri Southampton, segir að
lið hans hafi gert allt til að hjálpa
Agustin Delgado, framherja liðs-
ins, en án árangurs. Delgado
sagði upp samningi sínum við lið-
ið í byrjun vikunnar þar sem
hann taldi sig ekki hafa fengið
næg tækifæri með liðinu. Hann
hefur aðeins verið átta sinnum í
byrjunarliðinu á þessu tímabili.
Strachan segir ekkert til í því að
hann hafi haldið Delgado út úr
liðinu. „Við höfum gert allt í okk-
ar valdi til að hjálpa okkur en
svona bregst hann við. Ég vor-
kenni öllum í liðinu sem hafa
reynt að koma honum til hjálpar.“
FÓTBOLTI Mjaðmameiðsli Roy
Keane, fyrirliða Manchester
United, voru það alvarleg að
hætta var á að hann þyrfti að
leggja skóna á hilluna. Þetta
kemur fram í yfirlýsingu sem
stjórn United sendi frá sér í gær.
Keane ákvað í fyrradag að
hætta að leika með írska landslið-
inu eftir að hafa rætt við Brian
Kerr landsliðsþjálfara. Alex
Ferguson, knattspyrnustjóri
United, hafði farið þess á leit við
Keane að hann myndi hætta að
leika með landsliðinu enda kom-
inn á gamals aldur.
„Meiðslin voru það alvarleg að
það var hætta á að Keane þyrfti
að leggja skóna á hilluna,“ segir
meðal annars í yfirlýsingunni.
„Hann hefur hins vegar jafnað
sig af þeim að fullu en honum er
ráðlagt að segja skilið við lands-
liðið.“ ■
ROY KEANE
Er kominn á fullt eftir að hafa jafnað
sig af meiðslum sem gerðu næstum út um
feril hans.
FÓTBOLTI
FÓTBOLTI Ísland og Bandaríkin hafa
mæst fjórum sinnum í kvenna-
landsleik. Þrír hafa endað með
sigri Bandaríkjanna en einn með
jafntefli. Í þessum leikjum hefur
Íslandi ekki tekist að skora mark á
meðan bandaríska liðið hefur skor-
að 15.
Jörundur Áki segir að mjög
erfitt verkefni sé fram undan. „Við
erum að spila við heimsmeistarana
með sitt allra sterkasta lið. Við
erum hins vegar ekki með okkar
sterkasta lið. Það kemur til með að
verða mikil barátta hjá okkur að
komast sem best frá leiknum.“
Þrátt fyrir að tölfræðin sé ís-
lenska liðinu í óhag segir Jörundur
markmiðið að sjálfsögðu að gera
góða hluti í leiknum.“Þetta er
einnig frábært tækifæri fyrir okk-
ar stelpur og sérstaklega þær sem
eru að stíga sín fyrstu skref. Það
verða þarna útsendarar bæði frá
háskólum í Bandaríkjunum og eins
frá bandarísku atvinnumanna-
deildinni. Leikurinn verður einnig
sýndur í beinni útsendingu. Þetta
verður því heilmikið ævintýri.“
Jörundur ætlar að spila mjög
stífan varnarleik. „Ég hef haldið
mig við kerfið 5-4-1 og það hefur
gefist nokkuð vel. Við munum ekki
blása mikið til sóknar. Stelpurnar
okkar eru heldur ekki í neinu leik-
formi en bandaríska liðið er ný-
komið af fjögurra liða móti í Kína
sem þær unnu. Þær eru því í topp-
standi með allar sínar toppstjörn-
ur.“ Ein af þeim verður Mia
Hamm, sem kjörinn var knatt-
spyrnukona síðasta árs af Alþjóða-
knattspyrnusambandinu.
Leikurinn á sunnudag verður
síðasti leikur Jörundar Áka með
kvennalandsliðið. „Þetta verður
síðasti leikur minn í bili en hver
veit nema maður komi þarna aftur
einhvern tímann.“ Hann segist
kveðja liðið með söknuði. „Þetta er
búið að vera frábært tímabil. Liðið
er búið að festa sig í sessi sem eitt
af betri liðum í heiminum, á topp
15. Ég sé ekki annað en að framtíð-
in sé björt og lít svo á að riðillinn
sem stelpurnar eru í núna í und-
ankeppni EM sé mjög góður fyrir
okkur. Ég tel að liðið eigi virkilega
góða möguleika á að fara lengra.“
Helena Ólafsdóttir, fyrrverandi
landsliðskona og núverandi þjálf-
ari Vals, ferðast með landsliðinu til
Bandaríkjanna og tekur í fram-
haldinu við liðinu af Jörundi. „Mér
líst mjög vel á hana sem þjálfara.
Hún hefur mikla reynslu sem leik-
maður en kannski ekki alveg eins
mikla sem þjálfari. Ég vænti þess
að hún eigi eftir að standa sig mjög
vel í þessu starfi,“ sagði Jörundur.
freyr@frettabladid.is
Berti Vogts, landsliðs-
þjálfari Skota:
Þurfum að
gera betur
gegn Íslandi
FÓTBOLTI Berti Vogts, þjálfari
skoska landsliðsins í knattspyrnu,
sem er með Íslandi í riðli í und-
ankeppni EM, var afar ósáttur við
0:2 tap liðsins gegn Írlandi í vin-
áttuleik í fyrrakvöld.
„Fyrra markið kom eftir mis-
tök og það síðara líka. Eftir það
var leikurinn búinn,“ sagði Vogts.
„Við lékum ekki vel, sérstaklega í
fyrri hálfleik. Við verður að gera
mun betur í leiknum gegn Íslandi
þann 29. mars.“ ■
Íslenska kvennalandsliðið í knattspyrnu mætir Bandaríkjamönnum í
vináttulandsleik í Charleston á sunnudagskvöld. Jörundur Áki Sveins-
son, sem stjórnar liðinu í síðasta sinn, á von á mjög erfiðum leik.
JÖRUNDUR ÁKI
Jörundur Áki Sveinsson stjórnar kvennalandsliðinu í síðasta sinn á sunnudag. Hann ætlar
að einbeita sér að þjálfun Breiðabliks í meistaraflokki karla á næstunni.
ÍSLENSKI
LANDSLIÐSHÓPURINN
Lið Leikir
Þóra Björg Helgadóttir KR 23
María Björg Ágústsdóttir Stjarnan 2
Eva S. Guðbjörnsdóttir Breiðablik 5
Erla Hendriksdóttir FV Köbenh. 35
Olga Færseth ÍBV 36
Rakel Logadóttir ÍBV 3
Ásthildur Helgadóttir KR 50
Elín Jóna Þorsteinsdóttir KR 8
Hólmfríður Magnúsdóttir KR 0
Hrefna H. Jóhannesdóttir KR 1
Auður Skúladóttir Stjarnan 34
Elfa B. Erlingsdóttir Stjarnan 1
Dóra Stefánsdóttir Valur 1
Íris Andrésdóttir Valur 0
Laufey Jóhannsdóttir Valur 2
Málfríður E. Sigurðardóttir Valur 0
Rósa J. Steinþórsdóttir Valur 23
VIÐUREIGNIR ÍSLANDS
OG BANDARÍKJANNA
1998: Bandaríkin-Ísland 6:0
1998: Bandaríkin-Ísland 1:0
2000: Bandaríkin-Ísland 8:0
2000: Bandaríkin-Ísland 0:0
Roy Keane:
Ferillinn næstum úti
Ekki blásið
til sóknar
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/B
IL
LI
FÓTBOLTI Joan Gaspart, forseti
Barcelona, hefur sagt starfi sínu
lausu. Gaspart ætlaði upphaflega
að láta af störfum þann 1. mars
en snerist hugur og tilkynnti í
gær að hann myndi hverfa strax
frá úr forsetastólinum.
Hræðilegt gengi Barcelona í
spænsku deildinni, versnandi
fjárhagsstaða og ósætti í stjórn
liðsins er meðal ástæðna fyrir
uppsögninni.
Í lok janúar var Louis Van
Gaal rekinn úr starfi knatt-
spyrnustjóra eftir aðeins átta
mánuði í starfi.
Barcelona er sem stendur í 15.
sæti efstu deildar á Spáni en 20
lið leika í deildinni. Liðið er
tveimur stigum frá fallsæti.
Gaspart tilkynnti um uppsögn
sína eftir fund með stjórn liðsins.
Hann hefur stýrt Katalóníuliðinu
í tvö og hálft ár og á þeim tíma
hefur liðið ekki unnið til verð-
launa. ■
Joan Gaspart:
Stígur úr forseta-
stóli Barcelona
JOAN GASPART
Tilkynnti í gær að hann stigi niður úr forsetastóli Barcelona eftir tveggja
og hálfs árs dvöl þar.