Fréttablaðið - 14.02.2003, Side 33
22 14. febrúar 2003 FÖSTUDAGUR
I SPY kl. 3.45, 5.50, 8 og 10.10 bi 12 JAMES BOND b.i. 12 ára kl. 10.10
LORD OF THE RINGS kl. 8 / 4 í lúxus
SPY KIDS 2 kl. 3.45 og 5.50
KALLI Á ÞAKINU m/ísl.tali kl. 4 og 6
DIDDA OG DAUÐI KÖTTURINN JUWANNA MANN kl. 4, 6 og 8
THE RING kl. 10.30 GULLPLÁNETAN m/ísl.tali kl. 4 og 6
JACKASS b.i.14.ára kl. 6, 8 og 10
ANALYZE THAT kl. 8 og 10.15
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10.20 - bi 16
Sýnd í lúxus kl. 8 og 10.30. bi. 12 ára
kl. 5.50 HAFIÐ
kl. 6DIDDA OG DAUÐI KÖTTURINN
kl. 10TIME IN THE MIDLANDS
kl. 10.40IRREVERSIBLE e. texti b. 16 ára
Sýnd kl. 5.50, 8 og 10.10
Sýnd kl. 6, 8 og 10
kl. 8STELLA Í FRAMBOÐI
Sýnd kl. 8 og 10
FRÉTTIR AF FÓLKI
Þá hafa 90 þúsund miðar veriðseldir á „Lord of the Rings:
The Two Towers“ hér á landi.
Myndin er þar
með orðin önnur
vinsælasta mynd
á Íslandi frá upp-
hafi en engri bíó-
mynd hefur tek-
ist að ryðja
„Titanic“ úr efsta
sætinu. Myndin
er orðin áttunda
vinsælasta mynd í Bandaríkjun-
um frá upphafi. Talsmenn kvik-
myndarinnar hér á landi segja að
aðsókn sé enn töluverð. Þeir von-
ast því til þess að komast yfir
100 þúsund miða markið.
Sjónvarpsmaðurinn MartinBashir varði heimildarmynd
sína um Michael Jackson í net-
spjalli á miðvikudagskvöld.
Hann sagði að honum fyndist
ekki að mynd sín hefði verið
ósanngjörn og að hann hafi að-
eins viljað sýna Jackson í réttu
ljósi. Hann benti
á að það hefði
verið Jackson
sem játaði, án
þess að blygðast
sín, að hann deil-
di svefnherbergi
sínu stundum
með börnum.
Bashir segist
ekki vera að saka Jackson um að
vera barnaníðungur. Hann hafi
bara viljað vekja fólk til vitund-
ar um að Jackson væri 44 ára
karlmaður sem leyfði börnum er
ekki eru skyld honum að deila
með sér svefnherbergi sínu.
Hann sagði líka að ef mynd sín
yrði til þess að Jackson yrði var-
kárari í framtíðinni væri það af
hinu góða.
Phil Spector segist hafa drepiðB-myndaleikkonuna Lönu
Clarkson af slysni. Lögfræðingar
hans hyggjast verja hann með
þeim rökum að um voðaskot hafi
verið að ræða og því hafi það
aldrei verið ætlun Spectors að
bana konunni. Vinir Spectors hafa
komið honum til varnar og segjast
fullvissir um að Spector hafi ekki
ætlað að myrða Clarkson.
Sýnd kl. 3.45, 5.50, 8 og 10.15
Sýnd í lúxus kl. 5.50, 8 og 10.15
TÓNLIST Lagið „Romantic
Exorcism“ með Mínus situr nú í
toppsæti vinsældalista Radíó X.
Þannig hefur sveitin náð að
teygja anga sína til hlustenda-
hóps sem hingað til hefur ekki
náð að laga eyrum sínum að
beittum tón hennar. Í næstu
viku heldur Mínus í hljóðver til
þess að taka upp þriðju breið-
skífu sína og fylgja eftir plöt-
unni „Jesus Christ, Bobby“ sem
opnaði þeim leið inn á erlenda
markaði.
„Við erum búnir að klára
prufuupptökur og erum á leið-
inni í Sýrland að taka upp plöt-
una,“ tilkynnir Frosti Logason,
gítarleikari Mínus. „Upptökur
áttu reyndar að vera byrjaðar
en Ken Thomas upptökumaður,
sem aðstoðar líka við útsetning-
ar, er að klára sólóplötu David
Gahan úr Depeche Mode. Hann
var ekki alveg búinn svo við
seinkuðum þessu aðeins. Við
erum í startholunum og byrjum
í næstu viku. Bibbi Curver og
Ken Thomas vinna plötuna sam-
an með okkur.“
Frosti viðurkennir að mikill
spenningur sé í herbúðum
Mínusmanna fyrir nýja efninu
og heitir því að sveitin reyni sitt
besta við að breiða tóna sína út
um gjörvalla veröld. „Þetta er
ennþá hart rokk en talsvert að-
gengilegra. Það var ekkert
markmið hjá okkur en við vor-
um orðnir þreyttir á svona „ösk-
ur“-söng. Við ákváðum því
snemma eftir síðustu plötu að
breyta því. Að öðru leyti er
þetta ekki mikið breytt, enn
metalgítarar og melódíur.“
Áætlaður útgáfudagur nýju
plötunnar er 5. maí.
Eftir upptökurnar taka
spennandi tímar við. Meðal ann-
ars fer sveitin í tónleikaferð
með Hell Is for Heroes.
„Það er ung sveit sem var
stofnuð í London árið 2000. Þeir
vöktu strax á sér athygli fyrir
þétta tónleikaframkomu. Ég
man að ég var alltaf að lesa um
þá í Kerrang. Þeir fengu alltaf
mjög háa stjörnugjöf fyrir tón-
leika og fengu svo fljótlega
samning hjá EMI, sem er nátt-
úrlega draumur allra rokk-
sveita. Fyrsta breiðskífan
þeirra, „Neon Handshake“, var
að koma út. Þetta er búið að ger-
ast mjög hratt hjá þeim og þeir
þykja með efnilegri sveitum í
Bretlandi.“
Í kjölfarið tók Frosti það að
sér að halda tónleika með Hell
Is for Heroes hér á landi. Þeir
fara fram 13. mars næstkom-
andi á Gauki á Stöng. Auk Mínus
mun rokksveitin Brain Police
hita upp. Mínus verður þá ný-
búin að hljóðrita nýju breiðskíf-
una og ætti því að vera hlaðin
ferskum hugmyndum og lögum.
biggi@frettabladid.is
4 og 6
Mínus, hetjur í helvíti
Rokkhljómsveitin Mínus er við það að hljóðrita sína þriðju breiðskífu. Eftir það
tekur margt spennandi við, til dæmis tónleikaferð með sveitinni Hell Is for
Heroes, sem þykir með efnilegri rokksveitum Breta í dag.
HELL IS FOR HEROES
Frosti segir að tónlist þeirra byggist á þungum og
grípandi gítarlínum. „Þeir eru bara búnir að heilla
alla með sér. Fóru svo út til L.A. og tóku upp fyrstu
plötuna sína þar. Fengu greinilega að sjá gamlan
glysdraum rætast.“
MÍNUS
Hefur líkt og Hell Is for Heroes fengið afbragðsdóma fyrir tónleika á síð-
um rokkblaðsins Kerrang. Þriðja breiðskífa sveitarinnar er væntanleg í
byrjun maí.SVAKA SKUTLA
Catherine Zeta-Jones sést hér í hlutverki
sínu í myndinni „Chicago“. Myndin er til-
nefnd til 13 Óskarsverðlauna, en þar af er
Zeta-Jones tilnefnd sem besta leikkona í
aukahlutverki.