Fréttablaðið - 14.02.2003, Blaðsíða 37
26 14. febrúar 2003 FÖSTUDAGURHVAÐA BÓK ERT ÞÚ AÐ LESA?
VALENTÍNUSARDAGURINN „Ef ég ætti
kærasta myndi ég nota tækifær-
ið til að vera extra næs í dag,“
segir Páll Óskar Hjálmtýsson,
öðru nafni Dr. Love, aðspurður
um það hvort hann telji að Val-
entínusardagurinn, sem er í dag,
eigi nokkuð erindi við Íslend-
inga. „Þessi dagur gefur líka
pörum ástæðu til að staldra við
og ræða málin,“ segir Páll Óskar.
„Þetta er andleg vörutalning fyr-
ir elskendur.“
Fáir hafa talað jafn mikið um
ástina og sungið jafn mikið af ást-
arsöngvum á undanförnum árum
en Páll Óskar. Fara ekki Íslend-
ingar hjá sér við allt þetta ástar-
hjal? „Nei, alls ekki,“ segir Páll.
„Íslendingar eru helteknir af ást-
inni.“ Hann segir umræðu um
ástina vera orðna mun vitsmuna-
legri. Sífellt fleiri geti tjáð sig um
ástina. „Þetta var mjög slæmt
áður fyrr, sérstaklega hjá strák-
um,“ segir Páll. „Það var eins og
það skorti tilfinningalegan orða-
forða. Margir strákar gátu ekki
fundið orð til þess að segja ein-
faldan hlut eins og að þeim þætti
vænt um einhverja stelpu. Núna
eru þeir orðnir sjóaðri í þessu.“
Páll Óskar hóf samstarf við
Moniku Abendroth hörpuleikara
fyrir tæpum tveimur árum og
hafa þau verið iðin við að flytja
hugljúfa ástarsöngva fyrir veður-
barna Íslendinga og hlotið góðar
viðtökur. Þau halda tónleika á
sunnudaginn í tilefni af Valent-
ínusardeginum. Á efnisskránni
verða lög af væntanlegri plötu,
auk annarra þekktra laga í flutn-
ingi Páls Óskars, eins og „Ó, hví-
líkt frelsi“, „Ást við fyrstu sýn“
og „Yndislegt líf“. En er Páll Ósk-
ar ekkert hræddur um að dag-
skráin sé of væmin? „Nei, alls
ekki,“ svarar hann. „Fólki er auð-
vitað frjálst að upplifa þetta sem
væmið. Mér finnst sándið í okkur
Moniku fyrst og fremst vera há-
tíðlegt.“
Það var sameiginlegur vinur
þeirra beggja sem leiddi Pál
Óskar og Moniku saman fyrir
nokkrum árum og segir Páll að
þau hafi átt lítið sameiginlegt
við fyrstu sýn. Síðan smullu þau
saman í flutningi ástarsöngva.
Það má því segja að samband
þeirra sé hálfgert ástarsam-
band. Verður þá andleg
vörutalning hjá þeim í dag?
„Það er alltaf andleg vörutaln-
ing hjá okkur Moniku,“ segir
Páll Óskar.
gs@frettabladid.is
Íslendingar eru
helteknir af ástinni
Í dag er Valentínusardagurinn og Páll Óskar Hjálmtýsson ætlar að
flytja lög um ástina ásamt Moniku Abendroth á sunnudagskvöld.
Páll Óskar segir fulla þörf á sérstökum degi fyrir elskendur.
PÁLL ÓSKAR OG MONIKA
Áttu fátt sameiginlegt við fyrstu sýn, en hafa smollið saman í tónlistinni við flutning
ástarsöngva.
Helgi Pétursson, starfsmaður Orkuveitu Reykjavíkur.
„Ég er að lesa ævisögu Stephans G. sem er
afar merkileg bók. Ég á mikið af skyldfólki
á Gimli í Vesturheimi og hef því alltaf haft
áhuga á þessari sögu. Svo er ég búinn að
pæla gegnum Jón Baldvin og ég verð nú að
segja það að ég hraðlas hana þar sem mér
þótti hann dvelja um of við sósíaldemó-
kratískar útleggingar sem eru ágætar í og
með en ekki sem aðalatriði.“
BÆKUR Skáldsaga Hallgríms Helga-
sonar, 101 Reykjavík, kom nýlega
út í Þýskalandi og óhætt er að
segja að hún hafi fallið þarlendum
gagnrýnendum vel í geð en þeir
hlaða Hallgrím lofi og líkja Hall-
grími við ekki minni og ólíkari
spámenn en Halldór Laxness og
Nick Hornby. Þá hafa svissneskir
gagnrýnendur einnig hrifist af
miðbæjarsögu Hallgríms og
gagnrýnandi Neue Züricher Zeit-
ung tengir Hlyn Björn, söguper-
sónu Hallgríms, við meistaraverk
Cervantesar og segir hann vera
„Don Kíkóta X-kynslóðarinnar“.
Gagnrýnandinn heldur svo
áfram að finna Hallgrími stað í
bókmenntasögunni og ber hann
saman við Aldo Keel og Halldór
Laxness.
Gagnrýnandi Süddeutsche
Zeitung segir Hallgrím „frábær-
an og hugmyndaríkan stílista“ og
segir aðalpersónu bókarinnar
vera jafn kynlífsóðan og heilan
skipsfarm af víkingum á ecstasy.
„Frásagnarsnilld Hallgríms“ felst
að hans mati í því „að gera þennan
þráhyggjufulla sögumann að per-
sónu sem maður er reiðubúinn að
fylgja í gegnum bókina, þrátt fyr-
ir allan munnsöfnuð og dóna-
skap.“ Hallgrímur er í Der Land-
bote sagður hafa mikla tilfinningu
fyrir svörtum húmor og þykir svo
sannarlega nýta sér hana „þegar
hann teflir fram eilífum og brjál-
æðislegum leikreglum karl-
rembusvínsins“.
Útgáfurétturinn á 101 Reykja-
vík hefur nú verið seldur til tólf
landa, þar á meðal til Bandaríkj-
anna, Bretlands, Frakklands, Ítal-
íu, Póllands og Rúmeníu, auk
Þýskalands. ■
HALLGRÍMUR HELGASON
Gagnrýnandi Der Landbote segir hann
hafa mikla tilfinningu fyrir svörtum húmor
sem hann nýti „svo sannarlega þegar hann
teflir fram eilífum og brjálæðislegum leik-
reglum karlrembusvínsins“.
Hlynur Björn:
Berst við vindmyllur í Reykjavík
BÆKUR Ritstjórinn Lilly Golden í
New York hefur, undir dulnefninu
B. Delores Max, tekið saman á
bók safn af sögum sem eru ætlað-
ar þeim sem eru í ástarsorg og
þykir því afar heppileg gjöf handa
fólki sem á ekki von á konfekti og
blómum í dag. Bókin heitir ein-
faldlega Dumped, eða Sagt upp,
og þar er meðal annars að finna
ástarsorgarsögur eftir Raymond
Carver, Lorrie Moore, Saul Bellow
og fleiri.
Sögurnar spanna býsna breytt
svið en þar er meðal annars saga
Roalds Dahl, Lamb til slátrunar,
sem fjallar um hefndina, til galsa-
fenginnar sögu Noah Baumbachs,
Zagat History of My Last
Relationship. Sambandsslit eru
skoðuð frá sjónarhornum karla,
kvenna, ungra og gamalla, giftra
og einhleypra, gagn- og samkyn-
hneigðra
Þá gat Golden ekki stillt sig um
að troða nokkrum köflum úr
Sense and Sensibility eftir Jane
Austen, þar sem fólk notar enn í
dag sömu meðul til að svíkja heit-
fólk sitt og Willoughby gerði á sín-
um tíma. ■
Valentínusardagurinn:
Bók fyrir fólk í ástarsorg
JANE AUSTEN
Á nokkra kafla í ástarsorgarbókinni
Dumped enda hefur nútímafólk ekki
enn vaxið upp úr lúalegum tryggðar-
svikum á borð við þau sem hún greindi
frá í bókum sínum.
Bókmenntafræðistofun HÍ ogHáskólaútgáfan hafa gefið
út ritið Hvað rís úr djúpinu? í
ritstjórn Birnu Bjarnadóttur.
Þar eru birt er-
indi sem haldin
voru á málþingi
í Hafnarborg
þann 16. mars
2002 í tilefni af
70 ára afmæli
Guðbergs
Bergssonar á
árinu. Þau Álf-
rún Gunnlaugs-
dóttir, Ármann Jakobsson, Ást-
ráður Eysteinsson, Eiríkur Guð-
mundsson, Gauti Kristmanns-
son, Kristín Ómarsdóttir, Krist-
ján B. Jónasson, Lise Hvarre-
gaard, Matthías Viðar Sæ-
mundsson og Oddný Eir Ævars-
dóttir eiga erindi í bókinni auk
heiðursgestsins Guðbergs
Bergssonar.
NÝJAR BÆKUR
1
METSÖLULISTI
2
3
4
5
6
7
8
9
10
MEST SELDU VIKURITIN Í VERSLUN-
UM PENNANS-EYMUNDSSONAR
NORSK UKEBLAD
HELLO
SUNDAY TIMES
TIME
NOW
HJEMMET
OK!
DER SPIEGEL
NEWSWEEK
ECONOMIST
Útsala
Úr, skartgripir og postulín
15-50% afsláttur
Laugavegi 61
Sími 552 4910 úrad. 552 4930