Fréttablaðið - 06.03.2003, Síða 2
2 6. mars 2003 FIMMTUDAGUR
EVRÓPA
Elísabet Jökulsdóttir rithöfundur hefur verið virk í
mótmælum sínum gegn álverksmiðju á Reyðarfirði
og Kárahnjúkavirkjun. Í gær voru samþykkt á Al-
þingi lög sem heimila iðnaðarráðherra að hefja
undirbúning byggingar verksmiðjunnar á Reyðar-
firði.
Nei, nei, ég hef haft vit á að taka mér frí
inn á milli en nú byrja mótmælin fyrir
alvöru.
SPURNING DAGSINS
Elísabet, ertu ekki komin í frí
núna?
EINKAVÆÐING Hlutur ríkisins í Ís-
lenskum aðalverktökum verður
seldur í einu lagi. Eignarhlutur
ríkisins er tæplega 40 prósent eða
rúmar 550 milljónir að nafnverði.
Miðað við gengi bréfa Íslenskra
aðalverktaka er verðmæti hlutar-
ins um tveir milljarðar. Við sölu
svo stórs hluta er ekki óalgengt
að greitt sé hærra verð en al-
mennt gerist á markaði.
Einkavæðingarnefnd leitar að
kaupanda sem hefur áhuga á að
viðhalda rekstri fyrirtækisins,
efla það og stuðla að virkri sam-
keppni á verktakamarkaði. Gert
er að skilyrði að kaupandinn eigi
hlutinn í að minnsta kosti eitt ár
frá kaupdegi.
Áhugasömum fjárfestum er
boðið að sitja kynningarfund
fljótlega. Tilkynna skal um þátt-
töku á fundinum fyrir klukkan
fjögur á mánudag. Tilboðum skal
skila í síðasta lagi föstudaginn
21. mars. Við mat á tilboðunum
verður litið til verðs, áhrifa sölu
til viðkomandi tilboðsgjafa á
samkeppni á íslenskum verk-
takamarkaði, fjárhagslegs styrks
og fjármögnunar, framtíðarsýn
varðandi rekstur fyrirtækisins
og starfsmannamál og loks
stjórnunarlegrar reynslu og
þekkingar á þeim markaði sem
félagið starfar á. ■
SELT Í EINU LAGI
Tæplega 40 prósenta hlutur ríkisins í Íslenskum aðalverktökum verður seldur í einu lagi.
Kaupanda er skylt að stuðla að samkeppni á verktakamarkaði.
Ríkið selur Aðalverktaka:
Skilyrði að sam-
keppni verði virk
Davíðsmálið:
Hreinn
kemur í dag
STJÓRNMÁL „Ég frestaði ferð minni
um einn sólarhring og mun skoða
málin við heimkomuna. Fer yfir
málin með stjórninni á föstudag.
Hagsmunir Baugs ganga fyrir
öllu öðru,“ sagði
Hreinn Loftsson,
stjórnarformaður
Baugs, í samtali
við Fréttablaðið í
gær.
Hreinn hefur
undanfarna sólar-
hringa dvalið á
gömlum slóðum í
London en fundur
hans og Davíðs
Oddssonar for-
sætisráðherra á þeim slóðum 26.
janúar 2002 varð einmitt tilefni
eins mesta fjölmiðlafárs síðari
tíma.
Hreinn Loftsson hefur sagt að
á sínum tíma hafi hann farið til
fundarins í London til að hitta
Davíð og tilkynna afsögn sína í
einkavæðingarnefnd. Davíð hefur
sagt að þetta sé ósatt.
„Ég man ennþá orðalagið þegar
ég sagði Davíð að vegna allra að-
stæðna sem upp væru komnar
neyddist ég til að taka staf minn
og hatt,“ segir Hreinn, sem reynd-
ar sagði frá því í Íslandi í bítið á
Stöð 2 að hann hefði áður sagt af
sér sem formaður einkavæðingar-
nefndar vorið 2001. ■
Mengað vatn:
Milljónir
í hættu
TÓKÍÓ, AP Dag hvern ógnar mengað
drykkjarvatn og önnur
vatnstengd vandamál lífi tugþús-
unda einstaklinga, sagði Gordon
Young, ráðunautur vinnuhóps á
vegum Sameinuðu þjóðanna sem
hefur kannað þau vandamál sem
steðja að almenningi vegna ónógs
eða mengaðs vatns. Young sagði
að hægt væri að leysa vandann en
kostnaður við það væri á bilinu
4.000 til 8.000 milljarðar króna ár-
lega.
Samkvæmt tölum Sameinuðu
þjóðanna þjást 200 milljónir
manna af vatnstengdum sjúkdóm-
um ár hvert og 2,2 milljónir deyja
af þeim sökum. ■
EVRAN STYRKIST Evran hefur
styrkst gagnvart dollar vegna
ótta um stríð í Írak. Í gær fór
virði hennar yfir 1,10 dollara í
fyrsta skipti í fjögur ár. Þegar
evran var tekin upp 1. janúar
1999 fengust 1,18 dollarar fyrir
hana.
SKEMMTIFERÐ ENDAR MEÐ
ÓSKÖPUM Fimm eldri borgarar
létu lífið þegar bílstjóri rútu
missti stjórn á bifreiðinni og hún
lenti utan vegar. 19 til viðbótar
særðust, þar á meðal sjö alvar-
lega. Flestir farþeganna voru
eldri borgarar í skemmtiferð.
HREINN
LOFTSSON
Heim frá London.
GÓÐ EINKUNN
Fox Pitt Kelton-bankinn, sem sérhæfir sig í
mati á fjármálafyrirtækjum, mælir með Ís-
landsbanka og telur hann vel rekinn.
Erlendur sérfræðingur í
bankarekstri:
Mælir með
bréfum Ís-
landsbanka
VERÐMAT „Við munum mæla með
Íslandsbanka sem fjárfestingar-
kosti,“ segir Garth Leder, sér-
fræðingur hjá Fox Pitt Kelton-
bankanum, sem mat verðmæti
bankans. Hann segir bankanum
vel stjórnað. Dreift eignarhald
bankans geri hann einnig áhuga-
verðan kost fyrir fjárfesta. „Við
treystum okkur ekki til að mæla
með Landsbanka og Búnaðar-
banka á sama hátt vegna þess
hve eignarhaldið er þröngt og
umfang viðskipta er mun minna
en með bréf Íslandsbanka á
markaði.“
FPK fjárfestingarbankinn tel-
ur Íslandsbanka góðan fjárfest-
ingarkost og telur fjárfesta geta
vænst þess að gengi bréfa fari í
6,5. Gengið hefur verið rúmir 5
að undanförnu. FPK er fjárfest-
ingarbankaarmur Swiss Re, eins
stærsta tryggingafyrirtækis
heims. Bankinn sérhæfir sig í
fjármálageiranum og sinnir eink-
um bönkum og tryggingafyrir-
tækjum um allan heim. Sextíu
manna greiningardeild bankans
fylgist með yfir 400 fjármálafyr-
irtækjum í Bandaríkjunum,
Kanada, Evrópu, Suður-Ameríku
og Asíu. ■
Þríburafæðing í Noregi:
Þreföld
hamingja
þriðja þriðja
NOREGUR Hjón í Fjeldbraaten í
Noregi urðu þeirrar gæfu aðnjót-
andi að eignast þríbura 3. mars
síðastliðinn, eða þann 03.03.03.
Börnin þrjú, tveir drengir og ein
stúlka, voru tekin með keisara-
skurði á sjúkrahúsi í Kristians-
sand, að sögn Verdens Gang.
Foreldrarnir voru að vonum
ánægðir með barnalánið og þessa
skemmtilegu tilviljun. Hjónin
höfðu fengið að vita að þau ættu
von á þríburum fyrir um fjórum
mánuðum og hafði móðirin legið á
sjúkrahúsinu í 99 daga þegar
börnin komu í heiminn. Þau áttu
eina dóttur fyrir og er sú þriggja
ára gömul. ■
SAMEININGARVIÐRÆÐUR Friðrik Páls-
son, stjórnarformaður Sölusam-
bands íslenskra fiskframleiðenda,
segir viðræðuslit í sameiningar-
viðræðum við Sölumiðstöð Hrað-
frystihúsanna hafa verið í mesta
bróðerni. Mikill munur var á mati
fyrirtækjanna á eigin verðmæti
gagnvart mati á verðmæti hins
fyrirtækisins. Friðrik segir mun-
inn hafa hlaupið á hundruðum
milljóna. „Viðræðurnar gengu
vel. Menn hafa bara mjög ólíka
sýn á virði félaganna eftir því
hvorum megin menn líta á þau.“
Félögin hafa bæði keypt
erlend fyrirtæki þar sem unnið
er að endurskipulagi rekstrar.
Friðrik segir muninn ekkert
frekar liggja í verðmati og vænt-
ingum til þeirra félaga frekar en
annara eigna. „Þessi mismunur lá
á öllum sviðum fyrirtækjanna og
ekki ástæða til að draga einn þátt
fram frekar en annan. Heildar-
niðurstaðan var bara svo langt
frá því sem líklegt var til að leiða
til niðurstöðu. Þess vegna slitu
menn viðræðunum,“ segir
Friðrik. ■
SLIT Í SÁTT
Forsvarsmenn SÍF og SH standa sáttir upp
frá samningaborði. Munur á mati þeirra á
verðmæti fyrirtækjanna hljóp á hundruð-
um milljóna.
Mikill munur á mati SH og SÍF:
Skeikaði hundruðum milljóna
GRUNNSKÓLAR Um 450 ungmenni í
8. til 10. bekk í grunnskólum
Reykjavíkur hafa neytt ólöglegra
vímuefna að því er fram kemur í
skýrslu starfshóps gegn fíkni-
efnadreifingu í grunnskólum
Reykjavíkur.
„Nýlegar kannanir sýna að
langstærsti hluti grunnskólanema
er vímuefnalaus,“ segir í skýrsl-
unni. „Staðfest er
að 85 til 89% nem-
enda í efstu bekkj-
um séu að jafnaði
alveg laus við
ólögleg vímuefni.
Þá má draga þá
ályktun að u.þ.b.
150 ungmenni í
hverjum árgangi
8., 9. og 10. bekkjar hafi neytt
ólöglegra vímuefna, en víst er að
það er í mjög mismunandi mæli.“
Í skýrslunni segir að um 10%
þeirra sem neyti ólöglegra
vímuefna lendi hugsanlega í al-
varlegum ógöngum, eða um 40 til
50 börn hverju sinni. Vinnuhópur-
inn hafi fengið upplýsingar um að
nú séu líkast til 17 til 20 börn í
„óviðráðanlegum vanda“ með
fjölda lögregluskýrslna og með-
ferðartilrauna að baki. Grípa
verður til sértækra úrræða fyrir
hvern þessara einstaklinga að
mati vinnuhópsins.
Hópurinn var skipaður í nóv-
ember í kjölfar mikillar umræðu
um að sala fíkniefna ætti sér stað í
grunnskólunum. Í skýrslunni seg-
ir að talsmenn lögreglu telji ekki
að skipuleg sala fari fram í skólun-
um sjálfum. Lögreglan og Barna-
verndarstofa telja að dreifingin
fari fram í gegnum tilfallandi
kunningjanet. Dreifileiðir séu
einkum í gegnum stórnotendur
fíkniefna á skólaskyldualdri eða
eldri unglinga. Í skýrslunni segir
einnig: „Auðvelt er að kaupa vímu-
efni. Nemendur sem vilja nálgast
efni fá þau einkum með „maður
þekkir mann“ aðferðinni.“
Í niðurstöðum skýrslunnar
segir að taka verði þá einstak-
linga sem eigi við mesta vandann
„úr umferð“ meðal heilbrigðra
unglinga. Ekki einungis er átt við
skólann, heldur það umhverfi
sem unglingar lifa og hrærast í,
því þessi litli hópur er sagður
skemma mikið út frá sér. Starfs-
hópurinn bendir á að grunnskól-
arnir verði að efla forvarnir því
þær skili mestum árangri. Jafn-
framt verði skólar að geta vísað
þeim nemendum frá sem stundi
dreifingu og sölu vímuefna án
þess að skólaskyldan verji rétt
þeirra til að vera í almennum
grunnskóla á kostnað fjöldans.
Telur starfshópurinn heillavæn-
legast að þessum einstaklingum
verði gert kleift að stunda nám
utan hins almenna skóla á meðan
þeir séu í meðferð.
trausti@frettabladid.is
BARIST GEGN FÍKNIEFNADREIFINGU Í GRUNNSKÓLUM
Sérstakur starfshópur gegn fíkniefnadreifingu í grunnskólum Reykjavíkur var skipaður í nóv-
ember í kjölfar mikillar umræðu um að sala fíkniefna ætti sér stað í grunnskólunum. Í skýrsl-
unni segir að talsmenn lögreglu telji ekki að skipuleg sala fari fram í skólunum sjálfum.
Um 10% nemenda
hafa notað fíkniefni
Um 450 nemendur í grunnskólum Reykjavíkur hafa notað ólögleg
vímuefni. Um 20 börn í óviðráðanlegum vanda. Auðvelt að kaupa
vímuefni. Taka verður þá verst settu úr umferð.
„Nýlegar
kannanir sýna
að langstærsti
hluti grunn-
skólanema er
vímuefnalaus.“
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T