Fréttablaðið - 06.03.2003, Blaðsíða 19

Fréttablaðið - 06.03.2003, Blaðsíða 19
19FIMMTUDAGUR 6. mars 2003 ® FÓTBOLTI Teitur Þórðarson, þjálfari norska úrvalsdeildarliðsins Lyn, telur að erfitt verði að fylgja eftir góðum árangri liðsins frá síðustu leiktíð. Þá lenti liðið í þriðja sæti deildarinnar. „Það er alltaf erfitt að fylgja eftir svo góðri leiktíð,“ sagði Teit- ur í samtali við Aftenposten. Erf- iðlega hefur gengið hjá Lyn í æf- ingaleikjum undanfarið. „Við höf- um misst marga menn í meiðsli og ungir og óreyndir leikmenn hafa því fengið að spreyta sig,“ sagði Teitur. ■ FÓTBOLTI Alex Ferguson, knattspyrnustjóri Man- chester United og Arsene Wenger, knattspyrnustjóri Arsenal, hafa eldað grátt silfur síðustu ár í baráttu liðanna um enska meist- aratitilinn. Þeir hafa verið með yfirlýsingar í fjöl- miðlum og nú reynir Ferguson að koma höggi á Wenger og lærisveina í von um að þeim verði á í lokasprettinum. Ferguson segir að þótt Arsenal hafi örugga forystu í deildinni gæti liðið misst af titlinum verði leikmenn þess of hrokafullir. „Þegar sjálfstraustið fer fram úr hófi, eins og hjá leikmönnum Arsenal nú, er hætt við því að það snúist í höndum þeirra og þeir fái það aftur í höfuð- ið,“ sagði Ferguson en Manchester United er í öðru sæti deildarinnar. „Arsenal er ekki búið að tryggja sér titilinn og það er enn margt sem getur gerst.“ Wenger er þó sallarólegur enda hefur Arsenal-liðið nánast verið óstöðvandi það sem af er vetri. Terry Venables, knattspyrnu- stjóri Leeds, telur öfugt við Ferguson að það sé fátt sem geti komið í veg fyrir að Arsenal vinni titilinn. Bilið á milli efstu liðanna sé of mikið og botninn hafi dottið úr leik United þegar liðið tapaði fyrir Liverpool í úr- slitum deildarbikarsins um síð- ustu helgi. „Öll lið sem tapa leik koma tví- efld í þann næsta. En að tapa svo mikilvægum leik á eftir að sitja í leikmönnum United,“ sagði Venables. ■ KÖRFUBOLTI Stephon Marbury, leik- maður Phoenix Suns, og Tim Dunc- an, leikmaður San Antonio Spurs, áttu báðir stórleik þegar Suns vann Spurs með 104 stigum gegn 97 í NBA-deildinni í körfubolta í fyrr- inótt. Marbury setti niður 35 stig og átti 13 stoðsendingar. Duncan skor- aði 35 stig og tók 21 frákast. Þetta var fyrsti ósigur Spurs í síðustu fimm leikjum. Carter skoraði 24 stig þegar Toronto Raptors vann Washington Wizards með 89 stigum gegn 86. Michael Jordan, leikmaður Wizards, þurfti að fara af leikvelli vegna bak- meiðsla snemma í leiknum. ■ Teitur Þórðarson, þjálfari Lyn: Erfitt að bæta góðan árangur TEITUR Teitur Þórðarson tók við Lyn fyrir þessa leiktíð eftir að hafa þjálfað Brann. NBA-deildin: Stórleikur Marbury og Duncan MARBURY Stephon Marbury tekur þriggja stiga skot yfir Tony Parker í leik Suns og Spurs í fyrr- inótt. Marbury skoraði sex þriggja stiga körfur í leiknum úr sex skottilraunum. Taugastríð í ensku úrvalsdeildinni: Ferguson skýtur föstum skotum VONBRIGÐI Mike Phelan, einn þjálfara Manchester United, og David Beckham urðu fyrir von- brigðum með tapið gegn Liverpool í úrslit- um deildarbikarsins. Spurning er hvort þeir missi líka af meistaratitlinum sjálfum.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.