Fréttablaðið - 06.03.2003, Blaðsíða 11

Fréttablaðið - 06.03.2003, Blaðsíða 11
11FIMMTUDAGUR 6. mars 2003 Lyfja Setbergi er ára! Í tilefni afmælisins Tilboðin gilda á meðan birgðir endast. Joe Boxer náttbuxur á dömur og herra 50% afsláttur & Clarins förðunardagar, frí förðun í dag og á morgun föstudag. Glæsilegir kaupaukar. 50 5 5 ára % afslátt af eftirtöldum vörum: bjóðum við Levante sokkabuxur Semi Opaque 40 den 50% afsláttur LANDHELGISGÆSLAN Nýlega hélt Landhelgisgæslan kynningu fyrir starfsfólk Rauða krossins um hættur sem stafa af sprengjum. Var kynning á jarðsprengjum, efna- og sýklavopnum og farið yfir þær varúðarráðstafanir sem gera þarf vegna slíkrar hættu. Kynn- ingin var liður í fræðslu m.a. vegna yfirvofandi stríðs í Írak. Dagmar Sigurðardóttir, upplýs- ingafulltrúi Landhelgisgæslunnar, segir að í flestum tilfellum sé sprengjusvæðum stjórnað af herj- um, bæði á stríðstímum og eftir stríð. „Skipulögð hreinsun sprengjusvæða er yfirleitt fram- kvæmd af herjum en oft í samráði við stofnanir sem hafa það að markmiði að standa fyrir slíkri hreinsun. Vandamál vegna jarð- sprengja og annarra virkra sprengja vegna stríðsátaka eru umtalsverð. Stór svæði í heimin- um eru ónothæf til landbúnaðar og jafnvel á Íslandi er 70-100 sprengj- um eytt á hverju ári.“ ■ Landhelgisgæslan: Varúð vegna sprengjuhættu SPRENGJUHÆTTA KYNNT Starfsmenn sprengjudeildar Landhelgisgæslunnar sáu um að kynna þær hættur sem starfsfólki Rauða krossins getur stafað af sprengjum. JARÐSPRENGJUR Á kynningunni voru sýndar jarðsprengjur og hætturnar sem af þeim stafa kynntar. Launmorðingi ákærður: Félagi Car- los fyrir rétti BERLÍN, AP Þýsk yfirvöld hafa ákært Johannes Weinrich, fyrrum aðstoðarmanns leigumorðingjans Ilich Ramirez Sanchez, eða Carlos eins og hann var betur þekktur, fyrir fimm morð og meira en 150 morðtilraunir á áttunda og níunda áratugnum. Weinrich, sem er í lífstíðar- fangelsi í Berlín fyrir árás á franska menningarstofnun í Berlín árið 1983, var aðgerða- stjóri Carlos í Evrópu á þeim tím- um þegar Carlos var einn þekkt- asti launmorðingi heims og ráðinn til að vinna verkefni fyrir araba- ríki og Austur-Evrópuþjóðir. ■ RAOUL WALLENBERG Sovéskir hermenn námu Wallenberg á brott í janúar 1945. Aldrei hefur orðið fylli- lega ljóst hver örlög hans urðu. Hvarf Wallenbergs: Stjórnvöld gagnrýnd STOKKHÓLMUR, AP Sænsk nefnd sem var sett á fót til að rannsaka hvarf Raouls Wallenbergs, sendiherra Svía í Ungverjalandi, undir lok seinni heimsstyrjaldar, segir að skortur á forystu í utanríkisráðu- neytinu á árunum eftir stríð eigi drjúgan þátt í því að ekki hefur tek- ist að skera úr um örlög Wallen- bergs. Nefndin fann skjöl sem sýndu að stjórnvöld töldu að Wallenberg hefði verið líflátinn skömmu eftir að Rússar fönguðu hann í janúar 1945. Rússar sögðu síðar að hann hefði látist af völdum hjartaslags 1947. Þó gengu sögur af því að hann hefði sést í gúlögum Sovétríkjanna fram á áttunda áratuginn. ■ REITT TIL HÖGGS Anfinn Kallsberg, lögmaður Færeyja, ákvað að víkja menntamálaráðherra landsins, Annlis Bjarkhamer, úr embætti. Taldi hann að hún hefði skaðað trúverðugleika land- stjórnarinnar. Ráðherra rekinn: Sagður skaða landstjórn Færeyja FÆREYJAR Anfinn Kallsberg, lög- maður Færeyja, hefur vikið menntamálaráðherra landsins, Annlis Bjarkhamer, úr embætti. Brottvikningin kemur í kjölfar umdeildrar skipunar Danans Steffen Stumman í embætti þjóð- minjavarðar en nefnd sérfræðinga hafði mælt með starfandi þjóð- minjaverði. Var litið svo á að Bjarkhamer hefði skaðað trúverð- ugleika landstjórnarinnar með því að virða ályktun sérfræðinganna að vettugi. Málið hefur síst orðið til þess að bæta samstarfið í landstjórninni en fyrir aðeins mánuði síðan var sjávarútvegsráðherrann Jörgen Niclasen þvingaður til afsagnar. ■

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.