Fréttablaðið - 06.03.2003, Blaðsíða 15

Fréttablaðið - 06.03.2003, Blaðsíða 15
FIMMTUDAGUR 6. mars 2003 Opnum klukkan tólf Opið til hálf sjö ekkert brudl- E R A N /L a n d lis t Ferskur úrbeinað ur svínahna kki ferskar Tilboðin gilda til sunnudags eða á meðan birgðir endast svínahnakki Ferskur úrbeinaður 399kr.kg m/beini Ferskar svínakótelettur 489kr.kg ferskt á góðu verði Svínakjöt Ferskt svínahakk 189kr.kg SÍLDVEIÐAR Engar formlegar við- ræður eru í gangi um veiðiheim- ildir Íslendinga úr norsk-íslenska síldarstofninum. Aðilar ræðast þó við. Gunnar Pálsson, skrifstofu- stjóri í utanríkisráðuneytinu, seg- ir Íslendinga ekki hafa viljað ljá máls á kröfum Norðmanna um aukningu eigin aflaheimilda á kostnað Íslendinga. „Ég held að sé hægt að fullyrða að bæði ríkin stefni að því að taka upp þráðinn áður en langt um líður,“ segir Gunnar. Hann segir Íslendinga ekki hafa viljað gera tvíhlíða samninga við Norðmenn, eins og Evrópusambandið og Færeyingar. Útgerðarmenn hafa viljað láta reyna á Svalbarðasamkomulagið og einhliða veiðar Íslendinga úr stofninum, haldi Norðmenn sínum kröfum til streitu. Gunnar segir ekki vilja til að blanda Svalbarða- samningnum inn í viðræðurnar á þessu stigi. „Það er eitthvað sem kæmi til skoðunar ef við náum ekki samningum. Við kjósum að líta svo á að hagsmunum beggja sé best borgið með samningum. Náist samningar ekki muni ekki bara löndin bíða skaða af, heldur síldarstofninn sjálfur.“ Gunnar segir hins vegar brýnt að ljúka þessum samningum áður en út- hafsveiðar hefjast í maí. ■ HAGSMUNIR Í HÚFI Gunnar Pálsson, skrifstofustjóri í utanríkis- ráðuneytinu, segir það hagsmuni Norð- manna, Íslendinga og norsk-íslenska síld- arstofnsins að samningar takist milli þjóð- anna um veiðar. Viðræður um norsk-íslensku síldina: Hagsmunir allra að ná samningum ÁVÖXTUN Lífeyrissjóðir Kaupþings hafa líkt og margir aðrir rýrnað síðastliðin þrjú ár. Vilhjálmur Bjarnason, formaður Félags fjár- festa, segir að einstaklingar eigi að fylgjast með þróun eignar sinn- ar í slíkum sjóðum. „Félagið er ekki eftirlitsaðili með árangri ein- stakra sjóða. Það er óviðunandi staða að fjármálafyrirtæki hagn- ist meðal annars á verðbréfum og gengismun á verðbréfum á sama tíma og fjárvörsluþegar eru að tapa.“ Í kjölfar upplýsinga um launa- kjör forstjóra Kaupþings hafa vaknað ýmsar spurningar um samhengi launanna og árangur sjóða í vörslu félagsins. Vilhjálm- ur telur árangurtenginguna þrönga. „Í skýringum að árang- urstengingunni hjá Kaupþingi er vísað til þess að hún tengist fjölda viðskiptavina og umfangi fjár- muna. Það er engin árangursmæl- ing á því hvernig tekst til í ávöxt- un.“ Vilhjálmur hvetur eigendur í sjóðum að fylgjast vel með ár- angri þeirra og grípa til ráðstaf- ana með því að flytja fjármuni sína annað telji þeir fjármálafyr- irtæki ekki standa sig við ávöxtun þeirra. ■ MISJAFN ÁRANGUR Árangurstenging forstjóra Kaupþings byggist á fjölda viðskiptavina og umfangi en ekki ár- angri vörslusjóða. Formaður Félags fjárfesta gagnrýnir þetta. Afkomutenging forstjóra Kaupþings: Tengist umfangi en ekki ávöxtun SAMSETNING OG ÁVÖXTUN LÍFEYRISSJÓÐA KAUPÞINGS: Skuldabréf Hlutabréf Innlán Aldur í Ævilínu 2002 2001 2000 1999 Ævileið I 0% 100% 0% 18-30 ára -32,6 1,33 - - Ævileið II 35% 65% 0% 31-40 ára -18,48 -11,94 -21,32 48,53 Ævileið III 60% 40% 0% 41-54 ára -7,59 0,27 - - Ævileið IV 85% 15% 0% 55 ára og eldri 3,96 1,15 - - Ævileið V 0% 0% 100% Lífeyrisþegar 8,68 1,32 - - Í Fréttablaðinu síðastliðinn fimmtudag birtist forsíðugreinin „Skortur á sjúklingum fyrir læknanema“. Eiríkur Jónsson fréttamaður, sem samdi fréttina, hringdi í undirritaðan með nokkr- ar spurningar sem tengdust fjölda læknanema sem fá að hefja nám í deildinni. Í greininni eru orð und- irritaðs bæði slitin úr samhengi og rangtúlkuð. Verstu dæmin eru: #Við fréttamanninn var rætt að margar algengar aðgerðir hafi verið fluttar af sjúkrahúsum yfir á minni aðgerðarstofur úti í bæ en í fréttinni segir „að á sjúkrahús- unum geta læknanemar ekki fylgst með öðru en fátíðum og erf- iðum aðgerðum sem þarf að gera á sjúkrahúsum“. Þetta er röng túlkun á orðum mínum. #Við fréttamanninn var einnig rætt að krafan um styttri vinnu- dag væri vaxandi hjá yngri lækn- um og sú umræða væri meiri meðal kvenna sem hefðu m.a. komið fram með óskir að fundir yrðu innan en ekki utan vinnu- tíma, en í fréttinni segir „það er staðreynd að konur hvorki vilja né geta unnið eins langan vinnu- dag og læknar hafa gert fram til þessa“ Gefið er í skyn í fréttinni að ofannefnt sé haft orðrétt eftir undirrituðum, sem er alrangt. Undirritaður hefur aldrei haft og hefur ekki skoðanir sem þessar og er ósammála þeim. Þær eru því rangtúlkun fréttamannsins á orð- um mínum. Virðingarfyllst Stefán B. Sigurðsson Varadeildarforseti læknadeild- ar Athugasemd blaðamanns: Vera má að misskilnings hafi gætt varðandi túlkun á ummælum varadeildarforseta læknadeildar. Hafi hann verið misskilinn ber að harma það. Að öðru leyti stendur blaðið við frétt sína. ■ ATHUGASEMD TUTTUGU SVARTFUGLSHRÆ Lög- reglumenn á Sauðárkróki voru kallaðir að Borgarsandi um helg- ina en þar hafði rekið á land tutt- ugu hræ af svartfugli. Svo virðist sem sumir veiðimenn hendi hræjunum fyrir borð af bátum sínum. Hræin rekur síðan á land, náttúruunnendum til mikilla ama. Sum hræanna voru hol að innan en önnur heil. ÞJÓFUR REYNDIST ÖRYGGIS- VÖRÐUR Vökulir íbúar á Skógar- strönd tilkynntu lögreglunni í Búðardal um grunsamlegar mannaferðir í vikunni. Íbúarnir töldu víst að þarna væri á ferð- inni innbrotsþjófur. Við athugun kom hins vegar í ljós að maður- inn var í vinnu hjá öryggisfyrir- tæki við að staðsetja sumarhús með GPS-hnitum. LÖGREGLUFRÉTTIR ÞÖGULL CHIHUAHUA Dýralæknar segja að því fylgi alltaf ákveðin áhætta að skera á raddbönd hunda. Gæludýramarkaður: Skorið á raddbönd hunda TAÍVAN, AP Dýraverndunarsinnar í Taívan hafa orðið varir við það að hundaræktendur séu í síauknum mæli farnir að láta skera á radd- bönd hunda sinna til þess að verða við kröfum markaðarins. Það hef- ur nefnilega sýnt sig að í þessu litla og þéttbýla landi vilja íbúarn- ir hunda sem gelta ekki til þess að angra ekki nágranna sína. Það eru yfirleitt hundarækt- endur sem starfa án leyfis sem láta framkvæma þessar aðgerðir og þá meðal annars til þess að draga ekki að sér athygli yfir- valda. Einnig eru dæmi um að fólk sem tekið hefur að sér heimilis- lausa hunda leiti sjálft til dýra- lækna til þess að láta þagga niður í hundunum. ■

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.