Fréttablaðið - 06.03.2003, Side 8
8 6. mars 2003 FIMMTUDAGUR
AFRÍKA
Íslandssími birtir
forstjóralaun:
1,1 milljón
á mánuði
FORSTJÓRALAUN Óskar Magnússon,
forstjóri Íslandssíma, hafði 1,1
milljón króna á mánuði í laun á
síðasta ári. Íslandssími hefur
ákveðið með hliðsjón af nýjum
reglum Kauphallar Íslands, sem
taka gildi 1. júlí næstkomandi, og
umræðu um launakjör forstjóra
skráðra félaga á aðallista Kaup-
hallar, að birta opinberlega eftir-
farandi upplýsingar um launakjör
forstjóra Íslandssíma. Óskar hef-
ur jafnframt kauprétt sem nemur
4 milljónum króna að nafnverði á
ári til næstu fjögurra ára og er
hann á genginu 2,1. ■
ÍSLANDSSÍMI
Forstjórinn er með 1,1 milljón
í laun á mánuði.
SPRENGJA Í EINKABÍL Maður lést
þegar kyrrstæð bifreið sem hann
sat í sprakk í loft upp í íbúðar-
hverfi í París. Fimm vegfarendur
sem urðu vitni að atvikinu hlutu
minniháttar meiðsl og eldur
kviknaði í nærliggjandi bílum.
Ekki er talið að um hryðjuverk
hafi verið að ræða en málið er
rannsakað sem sakamál.
FIMM FARAST Í RÚTUSLYSI Rúta
með 25 eldri borgara innanborðs
fór út af vegi og valt í Bretagne-
héraði í Frakklandi. Að minnsta
kosti fimm manns létu lífið og
nítján slösuðust, þar af sjö alvar-
lega. Talið er að bílstjórinn hafi
misst stjórn á rútunni en hann
var meðal þeirra sem létust.
ÞYRLA FLAUG Á FJALL Þyrla sem
var að koma úr sjúkraflugi í Ung-
verjalandi flaug á fjall í norð-
vesturhluta Rúmeníu. Um borð
voru tveir þyrluflugmenn, læknir
og aðstoðarmaður hans og fórust
þeir allir. Orsök slyssins er enn
ókunn.
+ ,
)-&./( &.001.21 34 5 .). )
% 67'8954 .! 4 :;
$&%
<&%
4
=0
BJÖRGUNARSTARF Tekist hefur að
koma fyrir lofttönkum við togar-
ann Guðrúnu Gísladóttur, sem
liggur á hafsbotni við Noreg. Að
sögn Ásgeirs Loga Ásgeirssonar,
sem stjórnar aðgerðum á vett-
vangi, var í gær unnið að því að
koma fyrir flotbelgjaeiningum
við skipið.
Ásgeir segir verkinu miða
ágætlega þó ákjósanlegra væri
að það gengi hraðar. Hann sagði
veður hafa verið skaplegt að und-
anförnu og ekki hamlað verkinu.
Þegar öllum lofttönkum og
flotbelgjum hefur verið sökkt og
komið fyrir við skipið verður það
rétt á kjölinn. Síðan á að hleypa
lofti á tankana og lyfta skipinu
upp á yfirborðið.
Að sögn Ásgeirs starfa nú ríf-
lega 20 manns við björgun Guð-
rúnar Gísladóttur. Ekki er um
áhlaupaverk að ræða því skipið,
sem er 72 metra langt og 2.400
tonn á þyngd, liggur á um 40
metra dýpi.
Samkvæmt samkomulagi við
stjórnvöld í Noregi hafa eig-
endurnir frest fram í maí til að
koma skipinu upp fyrir hafs-
flötinn. ■
Björgun íslenska togarans af hafsbotni við Noreg
heldur áfram:
Flotbelgjum sökkt að
Guðrúnu Gísladóttur
GUÐRÚN GÍSLADÓTTIR
Fjölveiðiskipið Guðrún Gísladóttir steytti á
ókortlögðu skeri við Noreg í fyrra, lagðist
síðan á hliðina og sökk öllum að óvörum.
EVRÓPA
LÖGREGLUMENN SAKFELLDIR
Tveir suður-afrískir lögreglu-
menn hafa verið fundnir sekir
um líkamsárás eftir að hafa sigað
hundum á þrjá blökkumenn.
Þriðji lögreglumaðurinn tók at-
vikið upp á myndband en þar
mátti sjá sakborningana berja og
niðurlægja þrjá Mósambíkana og
siga á þá hundum að tilefnis-
lausu.
HUNGURSNEYÐ YFIRVOFANDI
Talsmenn matvælaáætlunar Sam-
einuðu þjóðanna hafa gefið út þá
yfirlýsingu að um þriðjungur úg-
andskra barna þjáist nú af alvar-
legum næringarskorti. Varað er
við því að ef ekki berist aðstoð nú
þegar muni blasa við gífurleg
hungursneyð í landinu.
STJÓRNMÁLAMAÐUR MYRTUR
Háttsettur maður í nígerísku
stjórnarandstöðunni var skotinn
til bana á heimili sínu í höfuð-
borginni Abuja. Harry Marshall
var meðlimur í nígeríska þjóðar-
flokknum en kosningar munu
fara fram í landinu í næsta mán-
uði.
Leyniskytta:
Myndataka
bönnuð
WASHINGTON Dómarinn í málinu
gegn hinum 18 ára gamla Lee
Boyd Malvo, sem er ákærður fyr-
ir leyniskyttumorðin í og við
Washington-borg síðasta haust,
hefur ákveðið að fjölmiðlum sé
óheimilt að mynda réttarhöldin,
að sögn Washington Post.
Dómarinn hafnaði beiðni stóru
bandarísku sjónvarpsstöðvanna
sem höfðu farið fram á að fá að
sjónvarpa frá réttarhaldinu, ann-
að hvort í heild sinni eða að hluta.
Beiðni blaða um að fá að taka ljós-
myndir var einnig hafnað. ■
RÉTTARHÖLDIN
Teikningar verða að duga frá réttarhöld-
unum, myndatökur eru bannaðar.
EFNAHAGSMÁL Útflutningur til
Rússlands hefur dregist saman um
70% á fimm árum. Árið 1997 fluttu
Íslendingar út vörur fyrir rúma 2,3
milljarða króna en árið 2001 nam
útflutningsverðmætið rúmum 700
milljónum.
Benedikt Höskuldsson, for-
stöðumaður viðskiptaskrifstofu ut-
anríkisráðuneytisins, segir að
efnahagskreppan í Rússlandi og
sveiflur í veiðum á síld og loðnu
hérlendis séu helstu skýringarnar
á þessum samdrætti í útflutningi.
„Það sem gerðist er að í kjölfar
efnahagskrísunnar sem reið yfir
Rússlands misstum við fótanna,“
segir Benedikt. „Við vorum með
fyrirtæki sem voru búin að koma
sér ágætlega fyrir inni í Rússlandi
og þau urðu að draga sig til baka
og þess vegna varð þessi niður-
sveifla í útflutningi til landsins.“
Á sama tíma og fluttar voru út
vörur fyrir 700 milljónir króna
nam innflutningur frá Rússlandi
rúmum 3,5 milljörðum króna. Inn-
flutningurinn hefur nokkurn veg-
inn staðið í stað, en árlega nemur
hann um 2% af heildarinnflutn-
ingi til landsins.
Útflutningurinn náði lágmarki
árið 1999 þegar heildarverðmæti
hans nam 421 milljón króna, en
síðan þá hafa útflutningsverð-
mætin aukist. Árið 1997 nam út-
flutningur til Rússlands um 1,9%
af heildarútflutningi landsins, en
fimm árum síðar nam hann 0,5%.
Rúmur þriðjungur útflutnings-
tekna árið 2001 var vegna útflutn-
ings á frystri síld og loðnu og um
fimmtungur tengdist útflutningi á
öðrum vörum tengdum sjávarút-
vegi, svo sem búnaði til fiskveiða.
Benedikt segir að þau fyrir-
tæki sem hafi þurft að draga sig
til baka hafi aðallega verið sjávar-
útvegsfyrirtæki, en einnig þjón-
ustufyrirtæki eins og Eimskip.
„Nú eru menn hægt og bítandi
að vinna sér leið aftur inn á mark-
aðinn. Við munum ná fyrri stöðu
og jafnvel sterkari stöðu til lengri
tíma og það er meðal annars
þannig sem við nálgumst aðildar-
viðræður Rússa um inngöngu inn
í Alþjóðaviðskiptastofnunina. Þar
erum við að leggja höfuðáhersl-
una á sjávarútveginn og hátækni-
iðnaðinn.“
trausti@frettabladid.is
Kreppa dregur úr
útflutningi til Rússa
Útflutningur til Rússlands hefur dregist mikið saman á fimm árum.
Forstöðumaður viðskiptaskrifstofu utanríkisráðuneytisins segir efna-
hagskreppunni um að kenna. Fyrirtæki hafi þurft að draga sig til baka.
EFNAHAGSKREPPAN Í RÚSSLANDI TEYGÐI ANGA SÍNA TIL ÍSLANDS
Í kjölfar efnahagskreppunnar sem reið yfir Rússlands misstu íslensk fyrirtæki fótanna. Benedikt Höskuldsson, forstöðumaður viðskipta-
skrifstofu utanríkisráðuneytisins, segir að íslensk fyrirtæki horfi björtum augum á framtíðina og að þau muni ná fyrri stöðu og jafnvel
sterkari stöðu til lengri tíma.
VÆRI 300 MILLJÓNIR
EF HANN HEFÐI KEYPT
Í MICROSOFT
Ég held reyndar
að ég skuldi Kára
25-kall fyrir
kókómjólk frá því
í menntaskóla.
Davíð Oddsson.
Morgunblaðið ,
4. mars.
ÞAÐ GERUM VIÐ
BOLLURNAR LÍKA
Við bakarar hlökkum alltaf til
bolludagsins.
Geir Andreassen bakari.
Morgunblaðið, 4. mars.
SÆLLA AÐ ÞIGGJA EN GEFA
Íslendingar þiggja gjarnan fé er-
lendis, en eru ófúsari að gjalda
líku líkt.
Margrét Rún Guðmundsdóttir kvikmynda-
leikstjóri. Morgunblaðið, 4. mars.
ORÐRÉTT