Fréttablaðið - 06.03.2003, Page 10
6. mars 2003 FIMMTUDAGUR
KLÁM Lögreglan í Reykjavík hefur
lokið rannsókn á tveimur málum
þar sem mikið magn af barnaklámi
kom við sögu. Í öðru tilvikinu var
um að ræða hátt í fjörutíu þúsund
myndir með barnaklámi og í hinu
tæplega 16 þúsund myndir af
dýraklámi. Tveir karlmenn á miðj-
um aldri hafa viðurkennt að hafa
sótt myndirnar af Netinu.
Hörður Jóhannesson segir þessi
mál hafa komið upp sömu vikuna í
janúar á síðasta ári. Unnið var að
ótengdum málum sem kröfðust
þess að lagt yrði hald á tölvubúnaði.
Þegar innihaldið var síðan skoðað
hafi barnaklámið komið í ljós.
Hörður segir ekkert benda til þess
að um innlent efni hafi verið að
ræða.
Í byrjun síðasta árs tóku gildi
hertari viðurlög við barnaklámi. Í
stað fjársektar er í dag hægt að
dæma menn í allt að tveggja ára
fangelsi. Hörður segir mennina lík-
lega sleppa með sekt þar sem mál
þeirra hafi komið upp áður en
breytingin tók gildi. ■
Tveir karlmenn sóttu barna- og dýraklám af Netinu:
Viðurkenna að
eiga klámefnið
Menningarmálanefnd:
Úthlutar
14,5 millj-
ónum
MENNING Karlakórinn Fóstbræður
og Íslenska tónverkamiðstöðin fá
einnar milljónar króna styrk hvor
frá Menningarmálanefnd Reykja-
víkur.
Nefndin hefur nú lokið við að
úthluta styrkjum fyrir þetta ár.
Styrkupphæðin nemur alls 14,5
milljónum króna og eru styrkþeg-
arnir 32 talsins. Samband ís-
lenskra myndlistarmanna fékk
næsthæsta styrkinn eða 800 þús-
und krónur. Aðrir fá styrki á bil-
inu 200 til 750 þúsund krónur. ■
ALÞINGI Guðjón A. Kristjánsson er
fyrsti flutningsmaður frumvarps
til laga um aðskilnað ríkis og
kirkju sem nú hefur verið vísað til
allsherjarnefndar.
Í greinargerð með frumvarp-
inu segir meðal annars að hér á
landi hafi lengi starfað fríkirkju-
söfnuðir, sumir hverjir evang-
elísk-lúterskir eins og þjóðkirkj-
an, en hafa þó ekki notið aðstoðar
ríkisvaldsins með sama hætti og
þjóðkirkjan.
Með núverandi skipan mála má
segja að öðrum trúarhópum en
þjóðkirkjunni sé sýnt óréttlæti
sem ekki samrýmist eiginlegu
trúfrelsi. Skoðanakannanir hafa
leitt í ljós að 60-65% þjóðarinnar
styðja aðskilnað ríkis og kirkju.
Guðjón A. Kristjánsson segir
að í stjórnarskrá sé ákvæði þar
sem segi að allir eigi að vera jafn-
ir fyrir trú sinni. „Ég tel að við
eigum að stíga það skref að
þannig verði það. Til að svo geti
orðið verður annað hvort að vera
aðskilnaður ríkis og kirkju eða að
öll trúfélög sitji við sama borð
fjárhagslega.“
Guðjón segir að tilgangurinn
hafi verið að fá atkvæðagreiðslu
um leið og kosið verði til þings í
vor en nú sé útlit fyrir að frum-
varpið dagi uppi í allsherjar-
nefnd. „Ríkisstjórnin hefur engan
vilja til að spyrja þjóðina að einu
né neinu. Ég mun hins vegar ekki
gefast upp og flyt frumvarpið aft-
ur ef ég sit áfram á þingi eftir
kosningarnar í vor,“ segir Guðjón
A. Kristjánsson. ■
Flutningsmaður segir frumvarpið svæft:
Aðskilnaður ríkis og
kirkju í allsherjarnefnd
GUÐJÓN A. KRISTJÁNSSON
VILL TRÚFRELSI
Hann hefur flutt frumvarp til laga um að
landsmenn kjósi um aðskilnað ríkis og
kirkju. Þannig verði allir jafnir fyrir lögum.
RÚSSLAND 50 árum eftir að Jósef
Stalín, einræðisherra Sovétríkj-
anna, lést gengu rúmlega 3.000
kommúnistar um götur Moskvu til
minningar um þjóðarleiðtogann ill-
ræmda. Göngu þeirra lauk við gröf
Stalíns nærri Kremlarmúrum.
Göngumenn héldu á lofti fána
gömlu Sovétríkj-
anna, lögðu blóm-
sveig að grafreit
Stalíns og sumir
felldu tár.
M i n n i n g a r -
ganga kommún-
ista til heiðurs
ó g n v a l d i n u m
gamla sýnir að
margir Rússar
bera enn mikla
virðingu fyrir hon-
um. Þeir kunna
honum einna helst þakkir fyrir að
leiða Sovétríkin til sigurs í barátt-
unni gegn nasistum á tímum síðari
heimsstyrjaldar og að iðnvæða
Rússland. Samkvæmt nýlegri
rússneskri könnun telur rétt rúm-
lega helmingur Rússa að áhrifin af
stjórnartíð Stalíns hafi verið mjög
jákvæð, eða frekar jákvæð en nei-
kvæð. Aðeins þriðjungur taldi
áhrif valdatíðar hans vera mjög
neikvæð eða fremur neikvæð.
Utan Sovétríkjanna er almennt
litið svo á að Stalín hafi verið ill-
menni sem hafi leitt miklar hörm-
ungar yfir þjóð sína. Sagnfræðing-
urinn Robert Conquest fjallar um
stjórnartíð Stalíns í The Guardian.
Þar segir hann að það hafi verið
heppilegt að Stalín hafi látist fyrir
50 árum. Hefði hann lifað lengur
hefðu afleiðingarnar getað orðið
skelfilegar. Skjöl sem hafi komið
fram í sviðsljósið á undanförnum
árum sýni að valdatíð Stalíns hafi
verið einstaklega grimmileg síð-
asta árið sem hann lifði. Um það
beri handtökur á fjölda lækna
vitni, en þeir voru sakaðir um sam-
særi gegn heilsu leiðtogans. Eins
hafi meintum og raunverulegum
andstæðingum hans verið komið
fyrir kattarnef í stórum stíl og síð-
ur en svo dregið úr því.
Menn hefur greint á um hvort
Stalín hafi látist af völdum heila-
blóðfalls eins og skýrt var frá op-
inberlega eða hvort hann hafi ver-
ið myrtur. Tveir sagnfræðingar,
Rússinn Vladimir P. Naumov og
Bandaríkjamaðurinn Jonathan
Brent, leiða að því getum í bók
sem kemur út síðar í mánuðinum
að eitrað hafi verið fyrir Stalín.
Þeir telja líklegast að Lavrenti P.
Beria, yfirmaður leyniþjónustunn-
ar, hafi staðið fyrir tilræðinu.
Hvernig svo sem dauða Stalíns
bar að höndum varð ekkert af
áformum hans um að byggja upp
fjórar gríðarstórar fangabúðir í
Síberíu sem talið er að hafi átt að
nota við frekari hreinsanir í land-
inu. ■
Minntust Stalíns
með velþóknun
50 árum eftir að Stalín lést telur rúmlega helmingur Rússa að jákvæð
áhrif af stjórnartíð hans séu meiri en þau neikvæðu. Breskur sagnfræð-
ingur segir að verr hefði getað farið hefði Stalín lifað lengur.
STALÍNS MINNST Í MOSKVU
Á fjórða þúsund kommúnista minntust Stalíns með velþóknun í gær þegar 50 ár voru lið-
in frá andláti hans. Meðal þeirra sem tóku þátt í göngu honum til heiðurs var Gennadí
Tsjúganov, leiðtogi kommúnista.
JÓSEF STALÍN
Sovéski harðstjór-
inn var 73 ára
þegar hann lést.