Fréttablaðið - 06.03.2003, Page 20
6. mars 2003 FIMMTUDAGUR20
hvað?hvar?hvenær?
3 4 5 6 7 8 9
MARS
Fimmtudagur
■ ■ FUNDIR
12.20 Fræðslufundur Keldna
verður haldin í bókasafni Keldna. Sigur-
björg Þorsteinsdóttir, líffræðingur á
Keldum, flytur erindi um sumarexem í
íslenskum og erlendum hestakynjum.
15.00 Fundur um viðskipti við
Ítalíu verður haldinn í fundarsalnum á
14. hæð í Húsi verslunarinnar. Í upphafi
fundarins munu Geir H. Haarde fjár-
málaráðherra og Daniele Molgora, að-
stoðarfjármálaráðherra Ítalíu, flytja
ávörp. Fundurinn fer fram á ensku. Ekk-
ert þátttökugjald.
16.15 Dr. L. Donald Duke flytur
fyrirlestur um hagnýtingu takmarkaðra
náttúruauðlinda og tekur dæmi af
vatnabúskap í Kaliforníu. Dr. Duke er
dósent í Suður-Flórídaháskóla og Ful-
bright gistiprófessor við Umhverfisstofn-
un HÍ á vormisseri 2003. Fundarstaður
er stofa 157 í húsi verkfræði- og raunvís-
indadeildar VRII við Hjarðarhaga.
19.30 Námskeið fyrir aðstandend-
ur geðklofasjúklinga verður haldið á
vegum geðsviðs Landspítala – háskóla-
sjúkrahúss í kvöld og næsta fimmtu-
dagskvöld í húsi iðjuþjálfunar að
Kleppi, austan við skrifstofubygginguna.
20.00 Málþing um atvinnu- og
velferðarmál á Suðurnesjum verður
haldið í boði Útskálaprestakalls í Safn-
aðarheimilinu Sandgerði. Yfirskrift mál-
þingsins er „Trú, velferð og stjórnmál“.
Framsögurerindi flytja Árni M.
Mathiesen, Guðni Ágústsson, Stein-
grímur J. Sigfússon og Össur Skarp-
héðinsson.
20.00 Biblíuskólinn við Holtaveg
gengst fyrir fræðslukvöldi um spádóms-
bók Daníels í Gamla testamentinu í húsi
KFUM og KFUK á horni Sunnuvegar og
Holtavegar í Reykjavík. Pétur Björgvin
Þorsteinsson, fræðslufulltrúi Háteigs-
kirkju, fjallar um bókina.
20.00 Ný dögun, samtök um sorg
og sorgarviðbrögð, bjóða til samtals um
sorg í Safnaðarheimili Háteigskirkju.
Rætt verður saman í litlum hópum. Allir
eru velkomnir og aðgangur ókeypis.
20.00 Orgelnefnd og kirkjukór
Kristskirkju Landakoti heldur bingó til
fjáröflunar fyrir viðhaldssjóð orgels kirkj-
unnar og kirkjukórsstarfið. Bingóið fer
fram í safnaðarheimili kirkjunnar að Há-
vallagötu 14 í Reykjavík.
■ ■ SÝNINGARLOK
Þórarinn Eldjárn hefur verið skáld
mánaðarins í Þjóðarbókhlöðu. Sýning-
unni lýkur í dag.
■ ■ LEIKLIST
20.00 Söngleikurinn Með fullri
reisn eftir Terrence McNally og Davit
Yazbek á Stóra sviði Þjóðleikhússins.
20.00 Söngleikurinn Sól og Máni
eftir Sálina hans Jóns míns og Karl Ágúst
Úlfsson á Stóra sviði Borgarleikhúss-
ins.
20.00 Maðurinn sem hélt að
konan hans væri hattur eftir Peter
Brook og Marie-Hélène Estienne á
Nýja sviði Borgarleikhússins.
Ég sit ekkert tímunum samanvið sjó eða læki að hlusta á nið-
inn, heldur nota ég hljóðið fyrst og
fremst sem hráefni í myndlistina,“
segir Finnbogi Pétursson mynd-
listarmaður. „En ég hef alltaf haft
áhuga á hljóði. Þetta er eitthvað
sem ég byrjaði á sem barn, að eiga
við elektróník og hljóð. Nálgunin
er samt alltaf út frá myndlistinni.“
Finnbogi er með sýningu í
Kúlunni í Ásmundarsafni,
þar sem hann sýnir inn-
setningu sérstaklega
hannaða fyrir þetta
sérstæða rými.
Hljómburðurinn í
kúlunni er engu lík-
ur. Þar magnast
hvert hljóð svo
minnsta hvísl berst
auðveldlega milli
fólks.
„Ég byrjaði á því
að mæla eigintíðni
kúlunnar, sem reynd-
ist vera 55 til 56 rið.
Ég gerði það með því
því að búa til hljóð í
tóngjafa og hækkaði
tíðnina þangað til eigin-
hljóðmögnun verður
sem mest. Svo nota ég
hljóð á tíu riða bili, fer
fimm rið upp fyrir og
fimm rið niður fyrir
þessa eigintíðni.“
Þessi hljóð koma
úr fjórum lágtíðnihátölurum, sem
Finnbogi hefur stillt upp andspæn-
is hver öðrum á jaðri kúlunnar.
„Ég beini þeim að veggjunum og
læt hljóðið þannig berast upp með-
fram veggjum kúlunnar. Hljóðinu
er síðan beint ofan í skál með
vatni, sem stendur á stöpli í miðri
kúlunni. Í stöplinum er ljós sem
lýsir í gegnum vatnið þannig
að hljóðbylgjurnar
verða í raun sýnilegar í
hvelfingunni.“
Úkoman er töfr-
andi samspil ljóss
og tóna sem leik-
ur um hvelfing-
una alla.
„Ég er
alltaf að færa
mig nær og
nær því að
m y n d g e r a
hljóðið. Ég
reyni að hafa
uppsetning-
una sem ein-
faldasta til
þess að gera
þetta aðgengi-
legra fyrir áhorf-
endur.“
■ MYNDLISTARSÝNING
Með samspili hljóðs, vatns og ljóss
reynir Finnbogi Pétursson að
myndgera hljóð á sýningu
sinni í Ásmundarsafni.
Gerir hljóðið sýnilegt
FINNBOGI PÉTURSSON
Finnbogi sýnir innsetningu í Kúlunni í
Ásmundarsafni, þar sem hann reynir
að myndgera hljóð.
gudsteinn@frettabladid.is
✓
Borgarskjalasafn Reykjavíkur
www.rvk.is/borgarskjalasafn
Sími: 563 1770
LESSTOFA OG AFGREIÐSLA
opin alla virka daga kl. 10-16.
www.ljosmyndasafnreykjavikur.is
ljós-hraði -fjórir íslenskir samtímaljós-
myndarar 28. febrúar - 4. maí 2003
Afgreiðsla og skrifstofa opin virka daga
frá 10 - 16. Opnunartími sýninga virka
daga 12 - 19 og 13 -17 um helgar.
Upplýsingar í síma 563 1790
Aðgangur ókeypis
www.listasafnreykjavikur.is Sími 590 1200
HAFNARHÚS
Lýsir, Hugarleiftur, Erró
Leiðsögn sunnud. kl. 15.00
KJARVALSSTAÐIR
Helgi Þorgils (frá 8.3.), Sveitungar, Kjarval
Leiðsögn sunnud. kl. 15.00
ÁSMUNDARSAFN
Finnbogi Pétursson, Ásmundur Sveinsson
Minjasafn Reykjavíkur
Árbæjarsafn - Viðey
www.arbaejarsafn.is
Safnhús Árbæjarsafns eru lokuð en boðið
er upp á leiðsögn alla mánud., miðvikud. og
föstudaga kl. 13. Einnig er tekið á móti hóp-
um eftir samkomulagi. Nánari upplýsingar í
síma 577 1111. Upplýsingar um leiðsögn í
Viðey í síma 568 0535.
Menningarmiðstöðin Gerðuberg
www.gerduberg.is
sími 575 7700.
Sýning: Ingibjörg Sólrún velur
verk á sýninguna Þetta vil ég sjá!
Sýning í félagsstarfi:
Ríkarður Ingibergsson sýnir tréskurð.
Sýningar opnar frá kl. 11-19
mán.-fös., kl. 13-17 lau.– sun.
Ókeypis aðgangur.
Verið velkomin
s. 563 1717
Upplýsingar um afgreiðslutíma:
s. 552 7545
Nýtt í bóksafninu Gerðubergi
Nettengdar tölvur fyrir almenning.
Upplýsingar í síma 557 9122
www.borgarbokasafn.is
www.bokmenntir.is
Minjasafn Orkuveitunnar
Minjasafn Orkuveitunnar í
Elliðaárdal er opið
sun. 15-17
og eftir samkomulagi
í s. 567 9009
✓