Fréttablaðið - 06.03.2003, Page 27
FIMMTUDAGUR 6. mars 2003
Ragnar Ólafsson og Steinunn Sigvaldadóttir,
Bröttuhlíð 7, Mosfellsbæ: „Eftir að við fengum
markísuna hefur nýtingin á sólpallinum og
garðveran verið mun meiri. Skjólsælla er á
pallinum, blautviðri engin fyrirstaða og þetta
prýðir húsið okkar.“ Þegar Ragnar og Steinunn
halda sínar vikulegu grillveislur sér grillið um
varmann undir markísunni fram eftir kvöldi.
Eins og sést á myndinni er rigning engin
fyrirstaða fyrir útiveru á sólpallinum
Þessari tegund Markísa er stjórnað
innan frá að öllu leyti
Hrein fjárfesting ehf.
Nánari upplýsingar í síma 567 7773 og 893 6337 (kvöld og helgar)
Söluaðilar í Reykjavík, á Akureyri og Egilsstöðum
Níels S. Olgeirsson og Ragnheiður
Valdimarsdóttir, Bröttuhlíð 12, Mosfellsbæ:
„Að geta stjórnað hitanum innandyra og lokað
sólina úti svo hún baki ekki húsgögnin er mikils
virði. Okkur finnst þetta meiriháttar gott og
sniðugt. Við erum oft spurð að því hvort þörf sé
á þessu á Íslandi og hvort þetta virki. Eftir að
hafa haft þetta í á þriðja ár erum við í engum
vafa um notagildið.“
• Ryðfrítt.
• Hindrar 92% hita.
• Skýlir fyrir vindi af
þaki.
• 100% vatnshelt,
• Einföld uppsetning
• 1. handdrifið
• 2. rafdrifið
• 3. sjálfvirkt
Afgreiðslufrestur:
1 – 3 vikur í apríl og maí,
2 – 5 vikur í júní – ágúst.
Gott fyrir heimilið, vinnustaðinn og sumarbústaðinn
V e ð r i ð e k k e r t v a n d a m á l
Markísur
Einföld notkun: út-inn-upp-niður,
allt að þinni vild.
P
re
nt
m
et
e
hf
.
Hitamál
innandyra
leyst
OSBOURNE-HJÓNIN HJÁ LARRY KING
Hjónin Ozzy og Sharon Osbourne komu fram í spjallþætti Larry King á mánudag. Þar töl-
uðu þau um baráttu Sharon við ristilkrabbamein og fjölskylduvenjur þeirra. Hér sýnir Ozzy
bandarísku þjóðinni stærsta armbandið sitt.
Gettu betur:
Sundin mæta
Suðurnesjum
SKÓLAR Menntaskólinn við Sund og
Fjölbrautaskóli Suðurnesja mæt-
ast í kvöld í lokaumferð átta liða
úrslita í Gettur betur, spurninga-
keppni framhaldsskólanna.
Lið Menntaskólans við Sund
lagði lið Fjölbrautaskóla Norður-
lands vestra í 2. umferð und-
ankeppninnar með 32 stigum gegn
26. Í fyrstu umferð lagði MS Verk-
menntaskóla Austurlands, 31-16.
Fjölbrautaskóli Suðurnesja
lagði Menntaskólann á Laugar-
vatni í 2. umferð undankeppninnar
með 17 stigum gegn 16. Í fyrstu
umferð lagði FS Iðnskólann í
Reykjavík, 18-10.
Keppnin í kvöld er sýnd í Sjón-
varpinu og hefst útsending klukk-
an 20.
Verslunarskóli Íslands, Mennta-
skólinn í Reykjavík og Mennta-
skólinn á Akureyri hafa þegar
tryggt sér sæti í undanúrslitum. ■
SVEINN H. GUÐMARSSON
Er dómari keppninnar. Logi Bergmann
Eiðsson er spyrill en Svanhildur Hólm Vals-
dóttir er stigavörður.