Fréttablaðið - 07.03.2003, Síða 2
SKATTGREIÐSLUR Þingmenn voru á
einu máli um að fordæma flutning
á peningum úr landi til skatta-
paradísa til þess að forðast að
greiða skatta hér á landi. Ög-
mundur Jónasson var málshefj-
andi utandagskrárumræðu um
málið. Hann vísaði til skýrslu
skattrannsóknarstjóra um mál
Jóns Ólafssonar
þar sem lýst er
sölu eigna til fyrir-
tækja í hans eigu
sem skráð eru á
bresku Jómfrúa-
eyjunum. Sakaði
Ögmundur ríkis-
stjórnina um and-
varaleysi í málinu.
Taldi Ögmundur ríkisstjórnina
hafa opnað fyrir slík undanskot
með því að gefa bröskurum laus-
an tauminn. Spurði hann ráðherra
hvað liði reglum til að koma í veg
fyrir slíkt.
Geir H. Haarde sagðist ekki
vilja ræða einstök mál, allra síst
þau sem væru til rannsóknar.
Hann sagði ríkisstjórnina hafa
eflt eftirlitsstofnanir samfélags-
ins samhliða því að fjármála-
markaður var opnaður. Ekki væri
um að kenna skattalöggjöfinni,
heldur því að hún væri ekki virt.
Hann sagði kröfuna um að spilling
og undanskot yrðu upprætt rétt-
mæta, og ef þyrfti að breyta
lögum til þess yrði það gert. Hann
sagði unnið að reglum um slíka
fjármagnsflutninga. „Slíkar regl-
ur geta verið með ýmsum hætti.
Slíkar reglur tryggja ekki að það
náist til þeirra sem ráðnir eru í að
hafa þær að engu.“ Hann sagði hið
nýja og opna viðskiptaumhverfi
ekki hafa átt að vera gróðrarstíu
spillingar og skattaundanskota.
Það sé leitt ef einhverjir misnot-
uðu sér það frelsi sem efldi heið-
arleg viðskipti.
Þingmenn lögðu á það áherslu
að fordæma bæri tilraunir til að
greiða ekki eðlilega skatta hér á
landi. Með því væru ríkir einstak-
lingar að skjóta sér undan því að
taka þátt í samfélaginu. Almennt
voru skoðanir samhljóða. Geir H.
Haarde reiddist þó þeim orðum
Ögmundar undir lok umræðunnar
að skattalöggjöfin hefði ýtt undir
þessa þróun. Sagði Geir málflutn-
ing Ögmundar einkennast af því
sjónarmiði að öll viðskipti væru
brask. Slíkt bæri vott um steinald-
arhugsun.
haflidi@frettabladid.is
2 7. mars 2003 FÖSTUDAGUR
Slíkar reglur
tryggja ekki að
það náist til
þeirra sem
ráðnir eru í að
hafa þær að
engu.
Birgitta Haukdal syngur íslenska Eurovisonlagið
sem nú er rætt hvað mest um að líkist öðru lagi.
Strákarnir í Botnleðju hafa boðist til að fara út og
syngja ef eitthvað ber út af með lagið.
Veistu, ég hef engar áhyggjur af þessum
málum. Ég hlæ að þessu öllu saman.
SPURNING DAGSINS
Birgitta, ertu búin að sækja
um að komast í Botnleðju?
Vafasöm fortíð:
Þingkona
stundaði
vændi
SVÍÞJÓÐ Þekkt sænsk þingkona
starfaði í vændishúsi í miðborg
Stokkhólms í nokkur ár á áttunda
áratugnum. Á meðal viðskipta-
vina hennar voru háttsettir menn
innan lögreglunnar auk ráðherra
en einnig sóttu ýmsir aðrir ráða-
menn húsið heim. Þetta kom fram
í þætti sem sýndur var á sænsku
sjónvarpstöðinni TV3 í gærkvöldi
en fjallað var um málið í Aftonbla-
det.
Konan, sem ekki hefur viljað
koma fram undir nafni, stundaði
vændi samfara námi og þegar
vændishúsinu var lokað af yfir-
völdum ákvað hún að snúa við
blaðinu og hefja nýtt líf. Þegar
hún svo mörgum árum síðar var
kosin á þing kom það ítrekað fyrir
að hún hitti fyrrum viðskiptavini
sína á göngum þinghússins. ■
Níundi hver
eyðnismitaður:
Dregur úr
lífslíkum
HÖFÐABORG, AP Meðallífslíkur
svartra íbúa Höfðaborgar í Suð-
ur-Afríku eru ekki háar í dag, 55
ár. Þó gera vísindamenn ráð fyrir
að verulega dragi úr þeim áður
en þessi áratugur er úti. Sam-
kvæmt nýrri rannsókn sem heil-
brigðisyfirvöld í borginni hafa
látið gera lækka meðallífslíkur
um 15 ár þannig að lífslíkur
verða 40 ár.
Rannsóknin er talin gefa vís-
bendingar fyrir landið í heild
sinni. Þar er níundi hver maður
sýktur af HIV-veirunni, alls 4,7
milljónir einstaklinga. ■
HEILBRIGÐI Læknarnir Guðmundur
Vikar Einarsson og Ástráður
Hreiðarsson voru meðal ræðu-
manna á fundi sem haldinn var á
Hótel Loftleiðum í gærkvöldi þar
sem fjallað var um kosti og galla
nýja stinningarlyfsins Cialis.
Lyfið er nýtt á markaði og veitir
Viagra stífa samkeppni enda
spannar virkni þess 24 klukku-
stundir á meðan Viagra virkar
aðeins í rúmar 4 klukkustundir.
Á fundinum var einnig dr.
Lucio Varanesi, sem stýrir sam-
evrópskri rannsókn á Cialis sem
einnig nær til Íslands. Íslensku
læknarnir, sem fyrr voru nefndir,
sjá um íslenska hluta rannsókn-
arinnar. Tilgangur hennar er m.a.
að fá úr því skorið hvort nóg sé
að taka Cialis þrisvar í viku eða
þá að hafa það við höndina þegar
þörf krefur.
Munu þátttakendur í rann-
sókninni halda sérstaka kynlífs-
dagbók á meðan á rannsókninni
stendur. Niðurstöðu er að vænta
síðar á þessu ári. ■
Uppruni himintunglanna:
Sjö ný tungl
við Júpíter
HONULULU, AP Stjörnufræðingar
hafa uppgötvað sjö ný tungl á
braut um Júpíter en þau fundust
með aðstoð sjónauka og gríðar-
stórra stafrænna myndavéla sem
komið var fyrir á tindi eldfjalls á
Hawaii. Vonir eru bundnar við það
að þessi uppgötvun geti gefið vís-
bendingar um uppruna hnattarins.
Möndulsnúningur tunglanna er
gagnstæður snúningi Júpíters, en
það bendir til þess að þau hafi orð-
ið til annars staðar en hnötturinn.
Rannsókn stjörnufræðinga miðar
nú einkum að því að finna skýring-
ar á því með hvaða hætti tunglin
lentu á braut um Júpíter. ■
FANGELSI Árni Johnsen hringdi
sjálfur í Húsgagnabólstrun Ragn-
ars Björnssonar í Hafnarfirði og
spurðist fyrir um verð og leitaði
tilboða í ný rúm fyrir fangelsið á
Kvíabryggju. Það skilaði góðum
árangri og nú eru rúmin fjórtán
farin frá Ragnari Björnssyni með
stefnuna á Grundarfjörð þar sem
Kvíabryggja er.
„Þessi rúm ættu að duga í 16
ár. Og þegar þau fara að bila get-
um við endurunnið þau fyrir
fangelsið,“ segir Birna Ragnars-
dóttir, framkvæmdastjóri hjá
Ragnari Björnssyni, en Birna er
dóttir Ragnars. „Rúmin voru met-
ers breið og rúmlega 190 sentí-
metrar að lengd. Þetta eru sömu
gæðin og mörg bestu hótela
landsins eru að kaupa,“ segir
Birna.
Rúmin frá Ragnari Björnssyni
eru notuð hjá KEA á Akureyri, á
Hótel Loftleiðum, Sögu og á Hót-
el Íslandi, þar sem ekki hefur
þurft að skipta um rúm frá því
hótelið opnaði fyrir um tveimur
áratugum síðan.
Eftir að Árni Johnsen hafði
leitað tilboða í rúmin var haft
samband við rúmfyrirtæki Ragn-
ars Björnssonar frá Rauða kross-
inum á Vesturlandi og gengið frá
pöntun sem byggði á tilboði því
sem Árni fékk. ■
VALGERÐUR SVERRISDÓTTIR
Forstjóri Löggildingarstofu hefur fengið
frest hjá iðnaðar- og viðskiptaráðherra til
að skila athugasemdum vegna greinar-
gerðar Ríkisendurskoðunar um fjármála-
óreiðu stofnunarinnar.
Fjármálaóreiðan í Lög-
gildingarstofu:
Forstjórinn
fær lengri
frest
STJÓRNSÝSLA Gylfi Gautur Péturs-
son, forstjóri Löggildingarstofu,
hefur fengið aukinn frest til að
skila iðnaðar- og viðskiptaráðu-
neytinu athugasemdum vegna
greinargerðar Ríkisendurskoðun-
ar.
Ráðuneytið telur Ríkisendur-
skoðun hafa sýnt fram á stór-
fellda óreiðu í bókhaldi og fjár-
málum Löggildingarstofu. Því
telji ráðherra forsendur til að
veita forstjóranum tímabundna
lausn frá embætti.
Meðal þess sem Löggildingar-
stofa er talin hafa brotið af sér
eru farsímakaup fyrir aðra en
starfsmenn stofnunarinnar. Stofn-
unin hafi enn fremur greitt öll af-
notagjöld fyrir símana. Þá eru
nefnd óheimil jeppakaup fyrir
forstjórann og óhófleg og skipu-
lagslaus tölvukaup.
Launamál Löggildingarstofn-
unar eru einnig harðlega gagn-
rýnd. Starfsmenn eru sagðir hafa
fengið mun hærri laun en samn-
ingar segja til um. Tveir þeirra
hafi verið hækkaðir verulega í
launum skömmu fyrir starfslok.
Einnig er átalið að heilu hjarð-
irnar af ættmennum yfirmanna
hafi fengið verktakagreiðslur frá
stofnuninni. ■
Læknar funda á Hótel Loftleiðum:
Viagra fær stífa samkeppni
HÓTEL LOFTLEIÐIR
Fundað var um viagra á Hótel Loftleiðum.
Hótelrúmin farin á Kvíabryggju – duga í 16 ár:
Árni hringdi sjálfur
og bað um tilboð
SKATTAUNDANSKOT FORDÆMD
Geir H. Haarde sagði löggjöf ekki um það að kenna að einstaklingar sem staðráðnir
væru í að skjóta sér undan skattagreiðslum hér á landi fyndu einhverjar leiðir til þess.
Þingmenn stjórnar og stjórnarandstöðu fordæmdu slík undanskot.
Fordæma fjármagn
í skattaparadísum
Þingmenn voru á einu máli um að flutning fjármagns í því skyni að
skjóta sér undan skattgreiðslum hér á landi bæri að fordæmi. Fjármála-
ráðherra segir ekki löggjöf um að kenna.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T
Hlutur ríkisins í
Búnaðarbanka:
Seldur á
markaðs-
gengi
EINKAVÆÐING Einkavæðingarnefnd
hefur ákveðið sölugengi bréfa rík-
isins í Búnaðarbankanum. Sala
bréfanna hefst í dag og stendur í
átta daga, eða skemur ef bréfin
seljast fyrir þann tíma. Gengi
bréfanna var ákveðið 5,05, sem er
sama gengi og lokaverð á bréfum
bankans á markaði í gær. Sam-
kvæmt því er söluverð 9,11 pró-
senta hlutar ríkisins 2,5 milljarð-
ar króna. Búnaðarbankinn verð-
bréf munu sjá um útboðið, sem
fer fram gegnum sölukerfi Kaup-
hallar Íslands. ■