Fréttablaðið - 07.03.2003, Blaðsíða 19

Fréttablaðið - 07.03.2003, Blaðsíða 19
19FÖSTUDAGUR 7. mars 2003 Alla helgina! 599 10 túlipanar N‡ blómadeild kr. 990 10 rósir kr. Prímúla í kaupbæti opnar í Sigtúni í dag Útsölumarkaður í Garðskálanum Allir sem versla í nýju deildinni fá Prímúlu í kaupbæti. Blómavörur á tombóluverði Tilboð ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S U RV 2 04 60 03 /2 00 3 ÍÞRÓTTIR Í DAG 18.00 Sýn Sportið með Olís. Fjallað er um helstu íþróttaviðburði heima og erlendis. 18.30 Sýn Football Week UK. Nýjustu fréttir úr enska boltanum. 18.30 Egilshöll Fram og Afturelding eigast við í deildarbikarkeppni karla í fót- bolta. 19.00 Sýn Trans World Sport. Íþróttir um allan heim. 20.30 Fífan Eyjamenn mæta Fylkismönnum í deildarbikarkeppni karla í fót- bolta. 20.30 Egilshöll Valur og Haukar eigast við í deildarbikarkeppni karla í fót- bolta. 20.00 Framhús Fram tekur á móti KA í Esso- deild karla í handbolta. Fram er í sjötta sæti deildarinnar en KA í því fjórða. 20.00 Varmá Afturelding og ÍBV eigast við í Esso-deild karla í handbolta. 20.00 Vestmannaeyjar Eyjastúlkur taka á móti Gróttu/KR í Esso-deild kvenna í handbolta. ÍBV er í efsta sæti deildarinnar en Grótta/KR í því sjöunda. 2.40 Sjónvarpið Formúla 1. Bein útsending frá tímatöku fyrir fyrsta kapp- aksturinn á nýju keppnis- tímabili, í Melbourne í Ástralíu. KÖRFUBOLTI Kobe Bryant, leikmað- ur L.A. Lakers, skráði sig á spjöld sögunnar þegar hann komst yfir 10 þúsund stiga múrinn yngstur allra leikmanna í NBA-deildinni í körfu- bolta. Bryant, sem er 24 ára, skoraði 20 stig í 97:95 sigri Lakers gegn Indiana Pacers í fyrrinótt. Þar með sló hann met Bob McAdoo, sem áður hafði verið yngstur til að ná áfanganum. Þetta var jafnframt í fyrsta sinn í síðustu 17 leikjum sem Bryant skorar færri en 30 stig í leik. Shaquille O’Neal, samherji Bryant, skoraði 26 stig í leiknum. Tracy McGrady, stigahæsti leikmaður deildarinnar, átti fínan leik þegar Orlando Magic vann Milwaukee Bucks með 111 stigum gegn 99. McGrady skoraði 48 stig , tók 10 fráköst og gaf 5 stoðsend- ingar. Þetta var sjöundi sigur Magic í síðustu átta leikjum. Michael Jordan kom aftur inn í lið Washington Wizards eftir meiðsli og skoraði tíu stig í 99:80 sigri á L.A. Clippers. ■ NBA-deildin: Bryant á spjöld sögunnar BRYANT Kobe Bryant hefur verið frábær fyrir L.A. Lakers upp á síðkastið. Hér tekur hann skot á körfuna í leik gegn Indiana Pacers. Arsene Wenger: Segir bara sannleikann FÓTBOLTI Arsene Wenger, knatt- spyrnustjóri Arsenal, segir að Alex Ferguson, stjóri Manchest- er United, geti ekki fengið hann til að hætta að hæla leikmönnum sínum fyrir góða frammistöðu. Ferguson lýsti því yfir í við- tali á dögunum að leikmenn Arsenal væru orðnir of góðir með sig og gætu átt eftir að súpa seyðið af því. „Vill fólk að ég segi að við getum ekki unnið titilinn þegar ég veit að við getum það? Ég segi bara sannleikann eins og ég sé hann, af hverju ætti ég að ljúga?“ sagði Wenger. ■

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.