Fréttablaðið - 07.03.2003, Blaðsíða 6

Fréttablaðið - 07.03.2003, Blaðsíða 6
6 7. mars 2003 FÖSTUDAGURVEISTU SVARIÐ? Svörin eru á bls. 30 1. 2. 3. Hvað heitir nýskipaður for- stöðumaður Kvikmyndasafns Íslands? Hversu hátt hlutfall barna í grunnskólum er talið hafa neytt ólöglegra vímuefna? Hvað heitir íslenski togarinn sem liggur á hafsbotni við Noreg? Mörkinni 6 • Sími: 588-2061 • mail:sala@bodeind.is Kr. 149.900,- BOÐEIND w w w . b o d e i n d . i s Tæknil‡sing: Fer›atölvur AMD-XP-1400+ örgjörvi 256MB minni 14" TFT LCD skjár 3D VGA allt a› 64MB skjákort 40GB har›ur diskur 56K mótald 10/100 netkort USB Optical mús (mjög nett) Tengi:2*FireWire (1394), Innrautt, serial tengi o.fl. Li-Ion rafhla›a WindowsXP Home st‡rikerfi 2ja ára ábyrg› PcCillin vírusvörn, PC Prope, Asus DVD hugbúna›ur ASUS - L2000 DVD sh s 29 22 -2 00 3 Segist ofsóttur eftir brottkastsmyndirnar Sjómenn sýknaðir af meintu brottkasti en útgerðirnar bíða. Útgerðarmaður Bjarma segist hafa orðið fyrir ofsóknum yfirvalda, sem beiti lánastofnunum og varðskipum. BROTTKAST „Ég veit enn ekki hvers er að vænta frá yfirvöldum en mannskapurinn að undanskildum skipstjóra hefur fengið bréf um að fallið hafi verið frá rannsókn. Ég bíð eftir niður- stöðu hvað varðar sjálfan mig og út- gerð skipsins,“ segir Níels Ár- sælsson, skipstjóri og útgerðarmaður Bjarma ÍS, um lög- r e g l u r a n n s ó k n sem staðið hefur síðan í nóvember 2001. Þá sýndi Sjónvarpið frægar myndir af meintu brottkasti. Myndirnar vöktu mikla athygli og komust í heimsfréttirnar. Fiski- stofa kærði málið til lögreglu, sem hefur síðan rannsakað það. Áhafnir bæði Báru ÍS og Bjarma BA hafa staðfastlega neitað sök og sagt að eingöngu hafi verið um sýktan og skemmdan fisk að ræða. Eigi að síður var gripið til þess að svipta bátana veiðileyfum í allt að tvo mánuði án undangeng- innar rannsóknar. „Allt þetta mál er hið undarleg- asta og ber keim af ofsóknum valdhafanna og minnir á sumt þess sem við getum lesið um í sögubókum. Mín útgerð hefur þurft að þola stöðugar ofsóknir af hálfu Fiskistofu og Landhelgis- gæslunnar á meðan á rannsókn- inni hefur staðið,“ segir Níels. Hann segir að Fiskistofa hafi „sigað“ skipum Landhelgisgæsl- unnar á Bjarma BA. Níels segir að 18 sinnum eftir sjónvarpsfréttina hafi varðskipsmenn komið um borð í skip sitt án sjáanlegra ástæðna. Þannig hafi veiðieftir- litsmenn dvalið um borð í Bjarma allt að mánuð í senn. Níels segir að Bjarmi hafi í tvígang verið sviptur veiðileyfi eftir tveggja mánaða sviptinguna. Þetta hafi verið gert á mjög vafasömum for- sendum og að órannsökuðum og tilefnislausum ástæðum. „Starfsmönnum Gæslunnar var farið að ofbjóða þessar of- sóknir. Einn skipherrann sagði við mig nýlega að þetta gengi ekki svona lengur. Þeir væru orðið meira um borð í Bjarma en í sínu eigin skipi. Hann sagðist ekki geta hugsað sér að taka þátt í þessu lengur,“ segir Níels. Hann segir að öllum ráðum hafi verið beitt til þess að koma rekstri sínum í þrot. „Við þurftum að þola það að þrjár lánastofnanir sem áttu veð- skuldir á Bjarma gjaldfelldu lánin vegna smávægilegra vanskila. Þetta voru lánastofnanir í eigu rík- isins og þær sviku gerða samninga um greiðslufresti sem gerðir voru stuttu áður en brottkastsmyndirn- ar voru sýndar. Starfsmenn þess- ara lánastofnana hafa sagt að þeir hafi fengið skipanir að ofan um að gjaldfella og krefjast uppgreiðslu á þessum langtímaveðlánum, sem voru til allt að 10 ára,“ segir Níels. Níels segist hafa þurft að selja kvóta bátsins til að greiða upp veð- launin. „Bjarmi er í dag kvótalaus og ég þarf að gera út á leigukvóta sægreifanna. Allt frá því brott- kastsmyndirnar voru sýndar hafa yfirvöld í landinu reynt, án dóms og laga, að koma mér kné. Þeir haga sér eins og brjálæðingar en ég ætla ekki að gefast upp heldur ætla ég að vera viðstaddur þegar ríkisstjórnin fellur í vor,“ segir Ní- els. rt@frettabladid.is Stríðsglæpadómstóllinn: Kosovo- Albani ákærður HAAG, AP Fatmir Limaj, fyrrum leið- togi albanskra uppreisnarmanna í Kosovo, hefur verið framseldur til stríðsglæpadómstólsins í Haag. Limaj var handtekinn í síðustu viku eftir að dómstóllinn gaf út alþjóð- lega handtökutilskipun á hendur honum. Saksóknarar dómstólsins saka Limaj um að hafa, ásamt und- irmönnum sínum, myrt og pyntað Serba, haldið þeim ólöglega og stað- ið fyrir skipulögðum árásum á serb- neska íbúa Kosovo. Limaj hefur neitað öllum sökum. ■ Handtekinn hryðjuverkamaður: Segir bin Laden á lífi ISLAMABAD, AP Osama bin Laden er á lífi, við góða heilsu og heldur til í landamærahéruðum Afganistan og Pakistan. Þetta er meðal þess sem kom fram í yfirheyrslum yfir Khalid Shaikh Mohammed, þriðja æðsta yfirmanni al Kaída, að því er haft er eftir embættis- manni í pakistönsku leyniþjónustunni. Mohammed mun hafa sagt þeim sem yfirheyrðu hann að hann hefði hitt bin Laden fyrir fáeinum vikum. Bin Laden mun þá hafa ver- ið staddur í Pakistan, nærri afgönsku landamærunum. ■ BIN LADEN Ekki hefur tekist að hafa uppi á hryðjuverkafor- ingjanum eða fá nokkuð staðfest um hvort hann er lífs eða liðinn. Eiginkona Milosevic fyrir rétt: Misnotaði eignir ríkisins SERBÍA, SVARTFJALLALAND, AP Eigin- kona Slobodan Milosevic mun mæta fyrir rétt í Belgrad í næstu viku vegna ákæru um misnotkun á eignum ríkisins. Mirjana Markovic er gefið að sök að hafa í lok valda- tíðar eiginmannsins skaffað fóstru barnabarns síns lúxusíbúð í eigu ríkisins. Auk Markovic verður rétt- að yfir tíu öðrum ráðamönnum sem einnig eru sakaðir um að hafa not- að eignir ríkisins í eigin þágu í valdatíð Milosevic. Síðan forsetinn var hrakinn frá völdum árið 2000 hafa margir af fyrrverandi samstarfsmönn- um hans verið sakaðir um glæpi og börn hans tvö hafa einnig sætt ákærum. ■ Sjávarútvegsráðherra: Bíð niðurstöðu í brottkastsmáli SJÁVARÚTVEGSMÁL „Ég vil ekkert segja um þessi mál fyrr en nið- urstaða liggur fyrir varðandi út- gerðir og skipstjóra bátanna,“ segir Árni Mathiesen sjávarút- vegsráðherra um sýknu í brott- kastsmáli skipverja á Báru ÍS. Stýrimaðurinn á Báru hefur fengið bréf frá efnhagsbrota- deild ríkislögreglustjóra þar sem því er lýst að fallið sé frá rannsókn á hans þætti. Útgerðir bátanna Bjarma BA og Báru ÍS bíða enn niðurstöðu varðandi rannsóknina, sem hefur staðið síðan á árinu 2001. Rannsókn á meintu brottkasti hófst eftir að Magnús Þór Haf- steinsson fréttamaður var með fréttir af brottkasti í Sjónvarp- inu. Þar voru sýndar myndir teknar um borð í umræddum bátum. Sjávarútvegsráðherra var fyrir undirrétti dæmdur fyrir meiðyrði eftir að hann hélt því fram opinberlega að mynd- irnar væru sviðsettar. Ráðherr- ann áfrýjaði til Hæstaréttar. ■ ÁRNI MATHIESEN Bíður niðurstöðu lögreglunnar. BJARMI VE Ítrekað sviptur veiðileyfi. Útgerðarmaðurinn bíður enn niðurstöðu á rannsókn lögreglunnar frá því árið 2001. „Starfsmönn- um Gæslunn- ar var farið að ofbjóða þess- ar ofsóknir.“

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.