Fréttablaðið - 07.03.2003, Blaðsíða 21
FÖSTUDAGUR 7. mars 2003 21
Bubbi Morthens verður á Borginni.
Óskar Einarsson trúbador skemmtir
á Ara í Ögri.
Hljómsveitin Spútnik verður með
stórdansleik á Kaffi Krók.
Austfirskur draugagangur á
skemmtistaðnum Players í Kópavogi.
Hljómsveitirnar Súellen, Dúkkulísur,
Búálfarnir og fleiri blása lífi í kulnaðar
glæður liðinna tíma.
■ ■ SÝNINGAR
Franski myndlistarmaðurinn Serge
Comte sýnir í Nýlistasafninu. Hann er
búsettur hérlendis en hefur að mestu
sýnt erlendis, einkum í París, þar sem
hann hefur átt velgengni að fagna.
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir hefur
valið verk eftir fjölmarga myndlistar-
menn á sýninguna Þetta vil ég sjá í
Gerðubergi.
Finnbogi Pétursson myndlistarmað-
ur sýnir innsetningu í Kúlunni í Ás-
mundarsafni þar sem hann myndgerir
hljóð.
Halldór Eiríksson, Helgi Snær Sig-
urðsson og Hrappur Steinn Magnús-
son sýna „Það sem þú vilt sjá“ í Gallerí
Skugga Hverfisgötu 39.
Sýning Blaðaljósmyndarafélags Ís-
lands á fréttamyndum ársins stendur
yfir í Gerðarsafni, Listasafni Kópavogs. Á
neðri hæðinni eru sýndar ljósmyndir
Ólafs K. Magnússonar frá fyrstu 20
árum hans á Morgunblaðinu.
Jón Sæmundur er með mynd-
bandsinnsetningu í rýminu undir stigan-
um í galleríinu i8 við Klapparstíg.
Fjórir ungir ljósmyndarar, Katrín Elv-
arsdóttir, Kristín Hauksdóttir, Orri og
Sigríður Kristín Birnudóttir, eru með
sýningu í Ljósmyndasafni Reykjavíkur.
Mannakyn og meiri fræði er yfir-
skrift sýningar á myndlýsingum í göml-
um íslenskum handritum, sem nú
stendur yfir í Listasafni Reykjavíkur –
Hafnarhúsi. Opið 10-17.
Nú stendur yfir þriðji hluti fjölbreyttr-
ar myndbanda- og gjörningadagskrá í
Listasafni Reykjavíkur – Hafnarhúsi.
Opið 10-17.
Á mörkum málverksins er sameig-
inleg yfirskrift þriggja sýninga í Listasafni
Íslands. Ragna Róbertsdóttir sýnir verk
úr vikri og muldu gleri, Mike Bidlo sýnir
eftirmyndir af frægustu málverkum 20.
aldarinnar og Claude Rutault sýnir
„málverk sem eru í sama lit og veggur
sýningarsalarins“. Opið 11-17.
Listamaðurinn Huginn Þór Arason
sýnir í Galleríi Sævars Karls í Banka-
stræti. Listamaðurinn útskrifaðist frá
skúlptúrdeild Listaháskóla Íslands vorið
2002. Á sýningunni getur að líta skúlp-
túr og gjörninga á vídeó.
Anna G. Torfadóttir sýnir í sal
Íslenskrar grafíkur, Hafnarhúsinu við
Tryggvagötu 17, hafnarmegin. Opið 14-
18.
Tilkynningar um viðburði og sýningar
sendist á hvar@frettabladid.is
Fyrir þá sem ætla reglulega fíntút að borða í borginni eru
nokkrir valkostir í boði. Hér eru
nefndir þrír þeirra.
Á Grillinu á Hótel Sögu er
klassískt franskt eldhús í hæsta
gæðaflokki. Vinsælasti forréttur-
inn er ristaðir humarhalar með
kóngasveppum, reyktri papriku
og rauðvínsgljáa. Yfirgnæfandi
meirihluti matargesta treystir
kokkum staðarins fyrir því að
velja handa sér óvissumatseðil
með fjórum réttum fyrir 6.750
krónur. Allir forréttir kosta 1.850,
aðalréttirnir eru á 4.300 og eftir-
réttirnir á 1.450.
Hótel Holt, Bergstaðastræti 37,
þykir ekki síður með því allra
fínasta. Vínseðill staðarins tók
miklum breytingum í síðustu
viku og er orðinn einn sá glæsi-
legasti á landinu. Af forréttum er
steikta kanadíska hörpuskelin
vinsælust og kostar 1.700 krónur.
Sveppafylltur lambahryggvöðvi
er einn heitasti aðalrétturinn,
kostar 3.900. Þá er hægt að fá
fjögurra rétta sælkeramatseðil
fyrir 7.100 krónur og fjögurra
rétta fiskiseðil á 6.600.
Veitingahúsið Sommelier
Brasserie á Hverfisgötu 46 er
með eitt mesta vínúrval á land-
inu. Þar er líka aðstaða fyrir vín-
smökkun. Forréttir kosta allir
1.400 krónur, aðalréttirnir frá
2.800 upp í 4.200 og eftirréttir
eru á 1.200. Af aðalréttum má
nefna lambafillet sem rúllað er
upp utan um brasseraða gulrót.
Þá er kominn nýr forréttur á
matseðilinn hjá þeim: svartbaun-
ir vafðar inn í nautacarpaccio og
yfir það er hellt peru- og mangó-
tesoði.
Laugavegurinní hádeginu
Rokksveitin Singapore Slingfer í fimm tónleika túr til
Bandaríkjanna í næstu viku.
Sveitin gaf út fyrstu breiðskífu
sína, „The Curse of...“, fyrir jólin
en hefur skoðað útgáfu erlendis
eitthvað lengur. „Við byrjuðum á
að senda inn umsókn á tónlistar-
hátíðina South by Southwest sem
haldin er í Texas, og fengum inni,“
útskýrir Einar Þór Kristjánsson
gítarleikari. „Næst nýttum við
okkur aðila sem við þekkjum í
New York til þess að setja upp
tónleika þar.“ Singapore Sling
hitar upp fyrir ferðina á Grand
Rokk í kvöld. Þar leikur hún
ásamt Rafgashausi. ■.
■ TÓNLIST
Á leið til Ameríku
SINGAPORE SLING
Það verður gaman að heyra hvort
liðsmenn komist í gegnum tollinn án
erfiðleika.
✓
✓
✓