Fréttablaðið - 07.03.2003, Blaðsíða 22

Fréttablaðið - 07.03.2003, Blaðsíða 22
Fyrsta lota réttarhaldanna yfirRobert Blake er hafin. Nú er verið að taka ákvörðun um það hvort leikarinn verði kærður fyrir morð af fyrstu gráðu. Dómarinn heyrði á miðvikudag vitnisburð frá áhættuleikara sem vann náið með Blake. Hann sagði frá því hvernig Blake hefði reynt að ráða sig til þess að myrða eiginkonu sína. Áhættuleikarinn segir einnig að Blake hafi sagt sér að hann vildi vera við hlið eiginkonu sinnar þegar hún yrði drepin, sem svo varð raunin. Ef Blake verður fund- inn sekur er líklegt að hann verði í fangelsi til æviloka. Britney Spears er víst svo smeykvið japanska aðdáandann sem hún reynir nú að fá fjarvistarbann á að hún réð til sín tvífara. Stað- gengillinn hefur þá vinnu að lokka aðdáandann sem lengst í burtu frá poppsöngkonunni. Það var aðstoð- armaður Spears sem átti hug- myndina að tvífaranum. Hugmyndina á hann að hafa fengið eftir að hafa horft á heimildaþátt um Saddam Hussein Íraks- forseta en það er vel þekkt að hann noti tvífara í störfum sínum. 22 7. mars 2003 FÖSTUDAGUR LORD OF THE RINGS kl. 4/ 4 í lúxusSPY KIDS 2 kl. 3.45 og 5.50 GANGS OF NEW YORK kl. 8 í Lúxus GANGS OF NEW YORK b.i.16 kl. 10.10 I SPY b.i. 12 ára kl. 8 CHICAGO kl. 8 og 10.30 DIDDA OG DAUÐI KÖTTURINN GULLPLÁNETAN m/ísl.tali kl. 4 CATCH ME IF YOU CAN kl. 8 THE RING kl. 5.45, 8 og 10.20 SKÓGARLÍF 2 m/ísl.tali kl. 4 og 6 TWO WEEKS NOTICE 5.50, 8, 10.10Sýnd kl. 3.40, 5.50, 8 og 10.20 b.i.16.ára kl. 10CATCH ME IF YOU CAN Sýnd kl. 5.40, 8 og 10.20 Sýnd kl. 6, 8 og 10. kl. 8 og 10.15THE RING MAN WITHOUT A kl. 8 og 10 LILJA 4-EVER kl. .8 og 10.10 BYE, BYE BLUEBIRD kl. 6 OKAY kl. 6 NORRÆNIR BÍÓDAGAR Sýnd kl. 5.50, 8 og 10.10 Sýnd í lúxus kl. 5.50, 8 og 10.10 Sýnd kl. 5.40, 8 og 10.20 kl. 4 Öflugustu kvikmyndaáhuga-mönnum er ráðlagt að færa lögheimili sín yfir í eitthvert kvik- myndahúsanna tímabundið. Miðað við úrval og gæði þeirra mynda sem eru frumsýndar um helgina, og að maður tali nú ekki um þær myndir sem nú þegar eru í bíó, þá verða kvikmyndasalirnir nefni- lega annað heimili margra yfir helgina. Kvikmyndin „The Hours“ hef- ur verið mikið í fréttum upp á síðkastið, aðallega vegna vel- gengni myndarinnar á verðlauna- hátíðum. Rithöfundurinn Virginia Woolf (Nicole Kidman) er þunga- miðja myndarinnar. Myndin skipt- ist í þrjá hluta og gerist einn þeir- ra árið 1929 þegar Woolf skrifaði bók sína „Frú Dalloway“, sem lagði grunninn að auknum réttind- um kvenna í vestrænum þjóðfé- lögum. Hún var þá undir stöðugu eftirliti lækna og fjölskyldu henn- ar, sem óttuðust um geðheilsu hennar. Annar hluti myndarinnar gerist árið 1951 og segir frá húsfreyjunni Lauru Brown (Julianne Moore) sem þráir betra líf. Bók Woolf hef- ur mikil áhrif á hana og hún íhug- ar að gera róttæka breytingu á sínu lífi. Þriðji hlutinn gerist á síðasta áratug og segir frá degi í lífi Clar- issu Vaughan (Meryl Streep). Hún er bókaútgefandi og er að kveðja vin sinn og fyrrum elskhuga, sem er á dánarbeði með alnæmi. Per- sóna hennar er að miklu leyti byggð á aðalpersónu bókar Virg- iniu Woolf. Allar konurnar eiga það sameiginlegt að leita að æðri tilgangi með tilvist sinni. Nicole Kidman og Julianne Moore eru báðar tilnefndar til Óskarsverð- launa fyrir leik sinn í myndinni auk þess sem myndin sjálf keppir um styttuna fyrir „bestu mynd“. Kvikmyndin „Adapatation.“ er önnur kvikmynd Spike Jonze, sem gerði „Being John Malkovich“. Myndin er unnin upp úr bókinni „The Orchid Thief“ eftir Susan Or- lean. Sagan fjallar um handrits- höfundinn Charlie Kaufman (Nicolas Cage), sem er einmitt maðurinn sem skrifar handrit myndarinnar, og tilraun hans til þess að gera handrit upp úr áðurnefndri bók Susan Orlean (Meryl Streep). Hann fær þá klóku hugmynd að skrifa sjálfan sig inn í sögu Orlean. Hann lendir svo í vandræðum þegar raunveruleiki og skáldskapur rekast á. Ekki bæt- ir úr skák að tvíburabróðir Charlie flytur inn til hans og tilkynnir hon- um að hann ætli sér einnig að verða handritshöfundur. Myndin hefur hlotið hreint ótrúlega dóma gagnrýnenda. Nicolas Cage og Meryl Streep fengu Óskarsverðlaunatilnefning- ar fyrir leik sinn og Charlie Kauf- man fyrir handritið. Leikstjórinn Paul Thomas And- erson sló eftirminnilega í gegn með myndinni „Boogie Nights“ og bætti svo um betur með hinni frá- bæru mynd „Magnolia“. Nýjasta mynd hans, „Punch Drunk Love“, þykir svo standast allar gæðakröf- ur. Anderson segist hafa samið handritið sérstaklega með Adam Sandler í huga þrátt fyrir að myndin sé ekkert í líkingu við eldri myndir kappans. biggi@frettabladid.is Fréttiraf fólki ■ KVIKMYNDIR Stór bíóhelgi Þrjár stórmyndir verða frumsýndar í bíóhúsum um helgina. Tvær þeirra eru tilnefndar til fjölda Óskarsverðlauna. „The Hours“ fékk níu tilnefningar en „Adaptation“ fjórar. „Punch Drunk Love“ er svo ný mynd frá leikstjóra „Magnolia“ og „Boogie Nights“. ADAPTATION Leikarinn Nicolas Cage leikur handritshöfundinn Charlie Kaufman, sem skrifaði handrit „Adaptation.“ um sjálfan sig, og fer einnig með hlutverk tvíburabróður hans. Myndin er ein af þremur stórmyndum sem frumsýndar eru í dag. DÓMAR Í ERLENDUM MIÐLUM: Punch Drunk Love Internet Movie Database - 7.9 / 10 Rottentomatoes.com - 82% = Fresh Entertainment Weekly - B+ Los Angeles Times - 4 1/2 (af fimm) The Hours Internet Movie Database - 7.8 / 10 Rottentomatoes.com - 80% = Fresh Entertainment Weekly - B- Los Angeles Times - 4 1/2 (af fimm) Adaptation. Internet Movie Database - 7.9 / 10 Rottentomatoes.com - 91% = Fresh Entertainment Weekly - A- Los Angeles Times - 4 1/2 (af fimm) Aðrar frumsýningar um helgina: Trapped NEIL YOUNG Gaf síðast út plötuna „Are You Passionate?“ í fyrra. Neil Young: Með kassa- gítarinn um Evrópu TÓNLIST Íslenskum aðdáendum Neil Young gefst nú tækifæri á að sjá goðið hugljúfa á tónleikum á næstu mánuðum. Hann er að fara í 12 tón- leika túr um Evrópu þar sem hann leikur m.a. á stöðum sem flogið er til af skerinu. Young ætlar að koma fram einn með kassagítarinn en það hefur hann ekki gert síðan árið 1999. Young heimsækir flestar stórborg- ir Evrópu og leikur meðal annars í Stokkhólmi, Osló, Hamborg, Berlín, Dublin og París. Það má því búast við því að Óli Palli á Rás 2 skelli sér í stutta utan- landsferð á næstu mánuðum. ■ Höfum opnað aftur Konur - Try me buxur eru í miklu úrvali verð frá kr. 3900 Hallveigarstíg 1 (Húsi iðnaðarmanna) Sýnd kl. 3.45, 5.50, 8 og 10.10 b.i.12.ára

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.