Fréttablaðið - 07.03.2003, Page 10
SAN FRANCISCO, AP Gary Albert
Ewing var dæmdur til 25 ára
fangelsisvistar fyrir að hafa reynt
að ræna golfkylfum úr verslun.
Þetta var í þriðja skipti sem
Ewing var fundinn sekur um lög-
brot, en samkvæmt lögum Kali-
forníufylkis þýðir það að hann er
sjálfkrafa dæmdur til að dúsa í
fangelsi í aldarfjórðung án þess
að eiga möguleika á reynslulausn.
Lögin hafa verið afar umdeild og
gagnrýnt að menn geti lent bak
við lás og slá um áratugaskeið fyr-
ir smábrot.
Hæstiréttur Bandaríkjanna
kvað í vikunni upp úr um að lögin
stæðust stjórnarskrá. Fimm af
níu dómurum við hæstarétt þótti
lögin standast stjórnarskrá en
fjórir voru ósammála því. Málið
kom til kasta réttarins eftir að
máli tveggja þjófa var áfrýjað
alla leið til dómstólsins. Í meiri-
hlutaáliti segir að langur afbrota-
ferill réttlæti að menn séu dæmd-
ir til langrar fangelsisvistar til að
vernda samfélagið fyrir frekari
brotum þeirra.
Erwin Chemerinsky, lögmaður
Leandro Andrade, var mjög ósátt-
ur við úrskurðinn. „Hæstiréttur
hefur í heila öld sagt að refsingar
sem eru ekki í samræmi við brot-
ið brjóti gegn stjórnarskránni. Ef
einhver refsing er ekki í sam-
ræmi við brotið er það 50 ára
fangelsisdómur, án vonar um
reynslulausn, fyrir að stela vörum
sem eru jafnvirði 152 dollara.“
Andrade var fundinn sekur um að
hafa stolið myndböndum úr stór-
markaði. Andvirði ránsfengsins
nam innan við 12.000 krónum, 233
krónum fyrir hvert ár sem Andra-
de verður að sitja inni.
Lögin um að afbrotamenn fái að
lágmarki 25 ára dóm við þriðja
brot voru samþykkt í almennri at-
kvæðagreiðslu meðal íbúa Kali-
forníu eftir að síbrotamaður á
reynslulausn rændi og myrti unga
stúlku. Síðan þá hafa ekki færri en
7.000 einstaklingar verið dæmdir
samkvæmt lögunum, þar á meðal
rúmlega 300 sem frömdu minni-
háttar brot í þriðja tilfellinu. ■
10 7. mars 2003 FÖSTUDAGURSVONA ERUM VIÐ
INNFLUTNINGUR Innflutningur jókst
í febrúar miðað við sama mánuð í
fyrra samkvæmt bráðabirgðatöl-
um fjármálaráðuneytisins. Inn-
flutningur jókst um sjö prósent sé
miðað við gengi hvors árs, en um
sautján prósent sé miðað við sama
gengi bæði árin. Samkvæmt töl-
unum voru fluttar inn vörur fyrir
um fjórtán milljarða í febrúar
samanborið við rúma ellefu í
janúar.
Í vefriti fjármálaráðuneytisins
er bent á að miklar sveiflur séu á
milli mánaða. Hins vegar sýni
samanburður á föstu gengi litla
aukningu innflutnings. Þetta sé
athyglisvert í ljósi þess að krónan
hefur verið að styrkjast og verð
innfluttra vara að lækka. Það ætti
að óbreyttu að hafa í för með sér
aukinn innflutning. Þetta veki upp
spurningar um almennar efna-
hagshorfur á næstunni og hvort
búast megi við áframhaldandi
lægð í þjóðabúskapnum. ■
GARY ALBERT EWING
Reyndi að ræna golfkylfum. Var dæmdur
til 25 ára fangelsisvistar.
LEANDRO ANDRADE
Rændi myndböndum fyrir 12.000 krónur.
Dæmdur til 50 ára fangavistar.
HÆSTIRÉTTUR BANDARÍKJANNA
Dómarar höfðu skiptar skoðanir um lög
sem kveða á um 25 ára fangelsi fyrir þriðja
brot. Fjórir vildu fella þau úr gildi en fimm
staðfestu þau.
50 ára fangelsi fyrir
myndbandastuld
Hæstiréttur Bandaríkjanna hefur staðfest að lög sem kveða á um 25 ára fangelsisvist fyrir þriðja
brot afbrotamanns standist stjórnarskrá. Lögin voru samþykkt í almennri atkvæðagreiðslu.
HÆGUR VÖXTUR
Innflutningur jókst í febrúar miðað við sama mánuð í fyrra. Hægur vöxtur þrátt fyrir sterk-
ari krónu vekur spurningar um hvort efnahagslífið sé að fara að taka við sér.
Bráðabirgðatölur fjármálaráðuneytisins:
Hægur vöxtur í
innflutningi
Fyrsta þingmálið:
Hækka
laun sín
NAIRÓBÍ, AP Þingmenn í Kenýa eru
að ganga frá samþykkt fyrsta
þingmálsins eftir kosningar í síð-
asta mánuði. Það gengur út á að
hækka laun þingmanna um and-
virði 88.500 króna í 480.000 krón-
ur. Launahækkunin hefur vakið
mikla reiði í Kenýa þar sem ríkis-
fjárhagurinn er í rúst og rúmlega
helmingur 30 milljóna lands-
manna hefur innan við 80 krónur
til framfærslu dag hvern.
Stjórnarflokkurinn hlaut 132
þingsæti af 222 í þingkosningum
eftir að hafa lofað að berjast gegn
spillingu og bæta efnahag lands-
ins. ■
GIFTURÍKUR ÚTAFAKSTUR Ung
kona slapp ómeidd og bíll hennar
óskemmdur er hún missti hann út
af veginum á Fjarðarheiði um
kaffileytið í gær. Konan var að-
stoðuð upp á veg aftur og gat
haldið för sinn áfram.
LÖGREGLUFRÉTTIR
Skattamál Jóns Ólafssonar:
Menn sendir
til Bretlands
SKATTRANNSÓKN Skattrannsókna-
stjóri sendi í síðustu viku tvo menn
til London til viðræðna við bresk
skattayfirvöld vegna skattamála
Jóns Ólafssonar, kaupsýslumanns
og aðaleiganda Norðurljósa. Sam-
kvæmt heimildum Fréttablaðsins
var erindi mannanna að leita samn-
inga við bresk yfirvöld um það með
hvaða hætti Jón Ólafsson yrði
skattlagður í löndunum tveimur.
Víðtækri rannsókn skattayfir-
valda á skattamálum fyrirtækja
Jóns Ólafssonar er lokið með þeirri
niðurstöðu að fyrirtæki Jóns hafi
vantalið hagnað af eignasölu upp á
rúma þrjá milljarða. Jón Ólafsson
og lögmaður hans hafa mótmælt
þeirri niðurstöðu harðlega. Heim-
ildir Fréttablaðsins herma að við-
ræður íslenskra skattayfirvalda og
breskra gangi út á það hvort skipta
megi skattakökunni með einhverj-
um hætti en Jón Ólafsson hefur ver-
ið breskur skattþegn frá árinu 1998.
„Ég get ekkert tjáð mig um mál
einstakra skattaðila,“ segir Skúli
Eggert Þórðarson skattrannsókna-
stjóri. ■
NORÐURLJÓS
Víðtæk skattrannsókn stendur yfir á skatta-
málum fyrirtækja Jóns Ólafssonar.
DÓMSMÁL Útgerðarfyrirtækið
Birnir á Flateyri hefur verið
dæmt til að greiða Útgerðarfélag-
inu Tjaldi (áður Básafelli) 22
milljónir króna. Upphæðin er eft-
irstöðvar 83 milljóna króna kaup-
verðs á veiðikvóta.
Samið var um kvótakaupin í
júlí 1998. Samkvæmt kaupsamn-
ingi átti að greiða helminginn með
peningum og afganginn með
skuldabréfi. Félögunum samdist
hins vegar munnlega um að síðari
hluti kaupverðsins yrði greiddur
með því að útgerðin legði upp afla
hjá fiskvinnslunni. Þau viðskipti
stóðu fram til desember 1999 að
Básafell hætti rekstri fiskvinnsl-
unnar á Flateyri.
Héraðsdómur Vestfjarða segir
að eftir að aflaviðskiptunum lauk
hafi Básafell getað krafist upp-
gjörs á eftirstöðvum skuldarinn-
ar. Þá var deilt um verðmæti þess
afla sem þegar hafði verið lagður
upp og um það frá hvaða tíma-
punkti ætti að reikna dráttar-
vexti. Tjaldur (Básafell) vildi fá
25 milljónir. Birnir taldi sig ekki
eiga að greiða nema 22 milljónir
og tók héraðsdómur undir það
sjónarmið. ■
ÞORSKUR
Birnir ehf. á að greiða Útgerðarfélaginu
Tjaldi 22 milljónir króna vegna óuppgerðra
kvótakaupa.
Héraðsdómur Vestfjarða sker úr í deilu útgerðarfélaga:
Borgi 22 milljóna eftir-
stöðvar kvóta
FJÖLDI NEMENDA Í GRUNN-
SKÓLUM REYKJAVÍKUR
1999 14.242
2000 15.310
2001 15.493
2002 15.614
2003 15.711
Nemendum í grunnskólum Reykjavíkur
hefur fjölgað um rúmlega 10% á undan-
förnum fimm árum.