Fréttablaðið - 07.03.2003, Page 27
FÖSTUDAGUR 7. mars 2003
NÝJAR BÆKUR
NÝJAR BÆKUR
27
Bæjarlind 14-16 | 201 Kópavogi | Sími 564 4400 | Fax 564 4435 | tekk@tekk.is | www.tekk.is
H
R
IN
GDU EÐA
K
O
M
D
U
S
E
M
F Y R S T
N‡ sending af
glæsilegum eikarhúsgögnum
frá Ethnicraft
bor›stofubor› | bekkir | skápar | hillur | lampar
KVIKMYNDIR Samtök kvikmynda-
leikara í Bandaríkjunum eru æva-
reið um þessar mundir og segja að
afþreyingariðnaðurinn í landinu
megi alls ekki setja það fólk á
svartan lista sem talar opinber-
lega á móti hugsanlegu stríði gegn
Írak.
„Sumir hafa gefið í skyn und-
anfarið að vel þekktum einstak-
lingum sem láti í ljós „óhentugar“
skoðanir verði refsað með því að
tapa réttinum til að stunda vinnu
sína,“ sagði í yfirlýsingu samtak-
anna. „Þjóðin skal aldrei sætta sig
við að svo mikið sem gefið verði í
skyn að svartur listi verði tekinn
aftur í gagnið.“
Vísuðu samtökin þar í svartan
lista sem settur var upp í
Hollywood á sjötta áratug síðustu
aldar. Þá var öllum aðilum kvik-
myndaheimsins sem grunaðir
voru um þátttöku í starfi komm-
únista meinuð atvinna í borginni.
„Á þessu skammarlega tíma-
bili lét iðnaðurinn herferðir og
nornaveiðar stjórna sér í stað
þess að standa fast á þeim grund-
vallaratriðum sem byggja á skjöl-
unum sem þjóðin miðar sig við.“
Stutt er síðan Martin Sheen,
sem leikur í þáttunum „The West
Wing“, sagði stjórnendur NBC-
sjónvarpsstöðvarinnar vera
ósátta við hversu mótfallinn hann
væri stríðinu við Írak. Sagði hann
þá óttast að skoðanir hans skaði
þættina. ■
SHEEN
Martin Sheen er einn margra aðila úr
bandarískum skemmtanaiðnaði sem
hafa mótmælt harðlega hugsanlegu
stríði gegn Írak.
Samtök bandarískra kvikmyndaleikara:
Aldrei aftur svartur listi
Litlu bækurnar eftir BretannRoger Hargreaves um
Herramennina hafa notið mik-
illa vinsælda
síðustu ára-
tugi. JPV-út-
gáfa hefur nú
endurútgefið
fjórar bækur
um þessa við-
kunnanlegu
karla. Þær komu fyrst út á ís-
lensku fyrir um aldarfjórðungi
síðan og nutu mikilla vinsælda
hjá íslenskum börnum en þætt-
ir byggðir á bókunum voru
sýndir í Sjónvarpinu um svipað
leyti. Einungis hluti bókanna
kom út á sínum tíma en JPV-út-
gáfa hyggst nú endurútgefa
þær ásamt þeim bókum sem
ekki hafa komið út áður á ís-
lensku. Fyrstu Herramennirnir
sem mæta til leiks eru: Herra
Fyndinn, Herra Sterkur, Herra
Kjaftaskur og Herra Latur.
Bækurnar eru þýddar og end-
ursagðar af Þrándi Thoroddsen
og Guðna Kolbeinssyni.
SKÁK Þá er glæsilegri skákhrinu á
Íslandi lokið í bili. Veislan hófst
með Stórmóti Hróksins á Kjar-
valsstöðum, þá kom Íslandsmótið
og svo Eddumótið til minningar
um Guðmund J. Guðmundsson í
Borgarleikhúsinu. Hinn lettneski
Shirov, sem teflir fyrir Spán, vann
Stórmótið með glæsibrag, Hrók-
urinn sigraði á Íslandsmótinu í
efstu þremur deildum og Eddu-
mótið vann Mikhail Gurevitsj frá
Úkraínu, en hann teflir fyrir Belg-
íu. Hann var með 8 vinninga af 9
mögulegum, sem má heita glæsi-
legur árangur. Í 2. til 3. sæti voru
Ivan Sokolov og Emil Sutovsky.
Enginn Íslendingur náði að blanda
sér í toppbaráttuna, hvorki í
Eddumótinu né Stórmóti Hróks-
ins, og mega það teljast nokkur
vonbrigði. En Helgi Ólafsson, sem
reyndar tók ekki þátt í Stórmót-
inu, hélt merki Íslands á lofti með
snilldarskák sinni á Eddumótinu
gegn Veselin Topalov. Fréttablað-
ið birtir þessa mjög svo ágætu
skák í sárabætur. Það er skák-
fræðingur blaðsins, Ingvar Þór
Jóhannesson, sem skýrir. ■
HELGI ÓLAFSSON
Sá Íslendinga sem kemst næst því að telj-
ast snillingur þegar svörtu og hvítu reitirnir
eru annars vegar. Hann lagði 4. stigahæsta
skákmann heims á Eddumótinu.
Skákhrinu slotar í bili:
Snilld Helga
plástur á sárin
Helgi Ólafsson - Veselin
Topalov (2743)
Staðan eftir 23. leik svarts
1. e4 c5 2. c3 d5 3. exd5 Dxd5 4. d4
Rf6 5. Rf3 Bg4 6. dxc5 Dxc5 7.
Ra3 a6 8. Be3 Dc7 9. Da4+ Bd7 10.
Rb5 Dc8 11. Re5 Rd5 12. O-O-O
Rxe3 13. fxe3 Rc6 14. Rxd7 axb5
15. Db3 Dc7 16. Bxb5 e6 17. Hd3
Bd6 18. Hhd1 Bxh2 19. a4 h5 20.
Kb1 h4 21. Dc4 O-O-O 22. Dc5 g6
23. Bxc6 Dxc6 (Sjá stöðumynd)
Helgi hefur teflt þessa skák
meistaralega vel og stjórnað ferð-
inni allan tímann. Hér lætur
svarta staðan undan þrýstingnum
og Helgi vinnur lið.
24. Rb6+ Kc7 25. De7+ Kxb6 26.
Hxd8 De4+ 27. H1d3 Be5 28. Kc1
h3 29. a5+ Kb5 30. Dd7+ Kxa5 31.
Hxh8 hxg2 32. Ha8+ Kb6 33. Dd8+
Bc7 34. Hd6+ Kb5 35. Dd7+ Dc6
36. Hxc6 g1(D)+ 37. Kc2 Dg2+ 38.
Kb3 Dxc6 39. c4+ Kb6 40. Dxf7
Dd6 41. Dxg6 De5 42. Dd3 Kc6 43.
He8 Bd6 44. Dd4 Df5 45. Hd8 Bc5
46. Dd7+ Kb6 47. Db5+
Hér gafst Topalov upp enda er
hann mát eftir annað hvort
47...Ka7 48. Da5+ eða 47...Kc7
48.Hd7+ og tekur á b7. Helgi átti
aðeins eftir 38 sekúndur þegar
Topalov gaf!
SKÁK Þegar Íslendingur vinnur
fjórða stigahæsta skákmann heims
og það af öryggi er það þess virði að
birta alla skákina. Helgi Ólafsson
er einn okkar hæfileikaríkasti stór-
meistari og þessi skák ásamt
tveimur kappskákasigrum í röð á
Ivan Sokolov staðfesta það. Ég
mæli með að menn grípi í taflborð-
ið og skoði þessa skák hjá Helga.
Skákskýring:
Fram með taflborðið
ÓSKARINN Þrátt fyrir nokkrar
áhyggjur af áhorfi á beina útsend-
ingu frá Óskarsverðlaununum
þann 23. mars virðist útsendingin
ætla að verða hin besta gullgæs
fyrir ABC-sjónvarpsstöðina. Aug-
lýsingatekjur stöðvarinnar af út-
sendingunni stefna í nýtt met en
gert er ráð fyrir að hún skili stöð-
inni um 78,3 milljónum dollara og
þrátt fyrir að engin
tilnefndra mynda
jafnist á við Titanic
hvað vinsældir snert-
ir selur ABC hálfa
mínútu á 1,35
milljónir dollara
og hækkar verð-
ið frá 1,29 millj-
ónum í fyrra. ■
ABC-sjónvarpsstöðin:
Stórgræðir
á Óskarnum
ÓSKARSVERÐLAUNIN
Mikill áhugi auglýsenda er
ekki síst rakinn til þess að
sívaxandi stríðsótti verði
til að laða áhorfendur að
þessari ársátíð veru-
leikaflóttaiðnaðarins.
Sigurbjörn Þorkelsson, fram-kvæmdastjóri Laugarnes-
kirkju, hefur gefið út skáldsöguna
Júlía. Þar segir frá 18 ára Reykja-
víkurmær sem fer í gegnum ævi
sína í leit að skýringum á stöðu
sinni í lífinu með það fyrir augum
að ná áttum í tilverunni og reyna
að vinna sig út úr og lifa með
orðnum atburðum. Á bókarkápu
segist persónan vonast til þess að
saga sín veki fólk til umhugsunar
og leiði til skoðanaskipta.
Þá hefur Þorkell einnig sent
frá sér kverið Lát engan líta smá-
um augum á elli þína. Þetta er
óður til aldraðra sem er byggður á
erindi höfundar sem hann flutti á
fyrsta degi aldraðra á ráðstefnu í
Bústaðakirkju árið 2000.