Fréttablaðið - 22.05.2003, Side 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Suðurgötu 10, 101 Reykjavík — sími 515 7500
Tónlist 26
Leikhús 26
Myndlist 26
Bíó 30
Íþróttir 20
Sjónvarp 32
KVÖLDIÐ Í KVÖLD
LEIKLIST
Titillinn kallaði
á leikrit
FÓTBOLTI
Orðaður við
Real Madrid
FIMMTUDAGUR
22. maí 2003 – 116. tölublað – 3. árgangur
bls. 20bls. 24
HJÓNAVÍGSLA
Giftist á
afmælisdeginum
bls. 39
RÁÐSTEFNA Umhverfisráðuneytið og
Náttúrufræðistofnun Íslands
standa fyrir fræðsluráðstefnu í til-
efni af alþjóðlegum degi líffræði-
legrar fjölbreytni. Ráðstefnan
stendur milli 14 og 17. Hún fer
fram í Borgartúni 6.
Líffræðileg
fjölbreytni
STJÓRNMÁL Flokksráð Sjálfstæðis-
flokksins fundar klukkan 18 um
stjórnarsáttmálann sem þingflokk-
ar Sjálfstæðisflokks og Framsókn-
arflokks samþykktu í gær. Mið-
stjórn Framsóknarflokks kemur
saman til fundar klukkan 20.
Flokksstofnanir
funda um stjórn
FRUMSÝNING Leikrit Sigtryggs
Magnasonar, Herjólfur er hættur
að elska, verður frumsýnt í Leik-
smiðju Þjóðleikhússins í kvöld.
Sýningin hefst klukkan 20.
Hættur að elska
LJÓSMYNDIR Samsýning átta unglinga
sem hafa lært svarthvíta ljósmynd-
un í Myndlistaskóla Reykjavíkur
verður opnuð á Reykjavíkurtorgi
Borgarbókasafnsins í Grófarhúsinu
klukkan 17.
Sýn átta unglinga
STA Ð R EY N D UM
MEST
LESNA DAGBLAÐIÐ
Samkvæmt fjölmiðlakönnun Gallup í mars/apríl 2003
22,1%
52,3%
61,7%
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
M
O
R
G
U
N
B
LA
Ð
IÐ
D
V
REYKJAVÍK Norðlæg átt, 3-8
m/s. Skýjað með köflum
og stöku skúrir. Hiti 5 til
13 stig.
VEÐRIÐ Í DAG
+
+
VINDUR ÚRKOMA HITI
Ísafjörður 3-8 Hálfskýjað 9
Akureyri 5-10 Skýjað 6
Egilsstaðir 3-8 Skýjað 7
Vestmannaeyjar 3-8 Léttskýjað 10
➜
➜
➜
➜
+
+
STJÓRNARMYNDUN Davíð Oddsson
mun fara úr forsætisráðherra-
stólnum 15. september á næsta ári
og Halldór Ásgrímsson mun setj-
ast í hann. Þessi niðurstaða er í
takt við fréttaflutning Frétta-
blaðsins, en í blaðinu á föstudag-
inn var greint frá því að þetta
væri líkleg niðurstaða.
„Það er óhætt að segja að það
hafi komið ósk frá formanni
Framsóknarflokksins að þessi
skipti yrðu skoðuð og henni var
ekki hafnað af
minni hálfu,“ sagði
Davíð að loknum
þingflokksfundi
sjálfstæðismanna í
gær. Davíð sagði að
eins og hann hefði
búist við hefði ver-
ið svolítill „pirring-
ur“ á meðal sumra
þingmanna flokksins með þessi
skipti. Á endanum hefðu menn
samt fallist á þau.
„Eins og ég hef áður sagt þá á
enginn þennan stól. Sanngirnisrök
mæla með því, í svona löngu sam-
starfi, að formaður hins stjórnar-
flokksins fái einnig notið æðsta
trúnaðar í samstarfinu.“
Davíð sagðist ekki ætla að
hætta í stjórnmálum við þessi
tímamót, heldur hygðist hann ann-
að hvort setjast í stól utanríkis-
ráðherra eða fjármálaráðherra.
Ef hann færi í fjármálaráðuneytið
myndi Geir H. Haarde fara í utan-
ríkisráðuneytið. Hann sagði eðli-
legt að forsætisráðherraskiptin
yrðu 15. september þar sem
stefnuræða forsætisráðherra
væri í byrjun október.
Ráðuneytaskipanin verður í
fyrstu óbreytt, þ.e. hvor flokkur
verður með sömu ráðuneyti og á
nýloknu kjörtímabili. Þegar Sjálf-
stæðisflokkurinn lætur forsætis-
ráðuneytið af hendi mun hann fá
utanríkisráðuneytið og umhverf-
isráðuneytið í staðinn. Sjálfstæð-
isflokkurinn mun hafa for-
mennsku í átta þingnefndum á
móti fjórum hjá Framsóknar-
flokki og þá mun Sjálfstæðis-
flokkurinn tilnefna forseta Al-
þingis.
Sem forsætisráðherra sagðist
Halldór ætla að einbeita sér að
því að varðveita stöðugleikann,
byggja upp atvinnulíf og öflugt
velferðarkerfi.
Honum sagðist lítast vel á að
hafa Davíð áfram í ríkisstjórn
undir sínu forsæti.
„Ég teldi mikinn styrk af því
að hafa hann áfram í ríkisstjórn
og vonast eftir því að svo verði,“
sagði Halldór.
Hvorki Halldór né Davíð
vildu gefa upp hvort ráðherra-
skipanin yrði sú sama og á síð-
asta kjörtímabili, heldur yrði
það ákveðið í kvöld.
trausti@frettabladid.is
NEPAL, AP Junko Tabei, fyrsta konan
til að stíga fæti á Everest-tind, segir
að of margir fjallgöngumenn reyni
að klífa tindinn á ári hverju.
„Allt of margir fá að kífa Ever-
est,“ sagði Tabei. „Það á aðeins að
leyfa tveimur eða þremur hópum á
hverju tímabili að klífa tindinn.“
Tabei kleif þennan hæsta tind
veraldar árið 1975. Hún er stödd í
Katmandu, höfuðborg Nepals, til að
taka þátt í hátíðarhöldum í tilefni
þess að þann 29. maí verða 50 ár lið-
in síðan Sir Edmund Hillary og
Sherpinn Tenzing Norgay klifu
Everest fyrstir manna árið 1953.
22 hópar hafa fengið leyfi nep-
alskra stjórnvalda til að klífa tind-
inn á tímabilinu mars til maí á þessu
ári. Í hverjum hópi eru um það bil
12 manns auk burðarmanna.
Rúmlega 1.200 manns hafa kom-
ist á tind Everest undanfarin 50 ár.
Aftur á móti hafa tæplega 200
manns látið lífið í brekkunum. ■
Fyrsta konan á Everest tjáir sig:
Tindurinn þarf hvíld
Halldór vildi
forsæti og fær
Davíð Oddsson fer úr forsætisráðherrastólnum í september á næsta ári. Hann segir
Halldór Ásgrímsson hafa óskað eftir stólnum. Davíð verður fjármála- eða utanríkisráðherra.
Sjálfstæðismenn fá umhverfisráðuneytið.
ÚTSALAN
ER HAFIN
20-50%
AFSLÁTTUR
K R I N G L A N , S . 5 3 3 5 1 5 0
Í BEINNI Á EVEREST
Þrír kínverskir fjallgöngumenn náðu á Ev-
erest-tind í gær. Atburðurinn var sýndur í
beinni útsendingu í kínverska ríkissjón-
varpinu. Um 200 fjallgöngumenn ætla að
setja fjöldamet með því að klífa tindinn í
þessum mánuði.
AP
/M
YN
D
TÍMAMÓTAYFIRLÝSING FORSÆTISRÁÐHERRANS
Davíð Oddsson tilkynnti í gær að hann hygðist fara úr forsætisráðherrastólnum á næsta ári. Hann sagðist ekki ætla að hætta í stjórnmál-
um við þessi tímamót, heldur hygðist hann annað hvort setjast í stól utanríkisráðherra eða fjármálaráðherra.
■
Davíð sagði að
eins og hann
hefði búist við
hefði verið svo-
lítill „pirringur“
á meðal sumra
þingmanna
flokksins með
þessi skipti.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/B
IL
LI