Fréttablaðið - 22.05.2003, Blaðsíða 39
Ég var þarna til að sjá um að alltfæri vel fram. Halda frétta-
mönum í hæfilegri fjarlægð og
láta allt ganga upp,“ segir Karl
Gíslason, sem prýddi forsíður út-
breiddustu dagblaða landsins í
gær á ljósmynd þar sem hann stóð
í dyragættinni á Bessastöðum og
fylgdist með handabandi forsæt-
isráðherra og forseta lýðveldisins
sem ljósmyndarar fengu að
mynda. Karl er myndrænn í gætt-
inni á Bessastöðum; í raun þunga-
miðja ljósmyndarinnar þó Davíð
og Ólafur Ragnar séu vissulega í
forgrunni og fókus:
„Ég er gæslumaður hér á
Bessastöðum og hef búið hér á
setrinu frá árinu 1996. Ég hef eft-
irlit með byggingum á svæðinu,
sé um að grasflatir séu slegnar og
er nú til dæmis að þrífa bílaplanið
fyrir ríkisráðsfund sem haldinn
verður á morgun,“ segir Karl,
sem býr í norðurhúsinu svokall-
aða á Bessastöðum ásamt eigin-
konu sinni, Sigurbjörgu Sigur-
björnsdóttur. Eiginkonan starfar
ekki á Bessastöðum heldur sækir
vinnu til Reykjavíkur þar sem
hún starfar sem fulltrúi hjá Orku-
veitu Reykjavíkur. „Áður var ég í
21 ár í lögreglunni í Reykjavík,“
segir Karl, sem kann því til verka
sem gæslumaður hvort sem um er
að ræða byggingarnar á Bessa-
stöðum eða þá forsetann sjálfan
og hans ágæta fólk. ■
39FIMMTUDAGUR 22. maí 2003
Persónan
KARL GÍSLASON
■ birtist á forsíðum útbreiddustu dag-
blaða landsins í gær þar sem hann stóð í
dyragættinni á Bessastöðum á milli þeir-
ra Davíðs Oddssonar og Ólafs Ragnars
Grímssonar. Með vakandi auga á handa-
bandi forsætisráðherra og forseta. En
hvað var Karl að gera þarna?
Golfmót sveina og meistara (MH, TR) verður haldið
hjá Golfklúbbi Kiðjabergs, sunnudaginn 25. maí.
1. Mótið er höggleikur, einstaklings- og sveitakeppni, opið sveinum og
meisturum í húsasmíði ásamt mökum þeirra. Leiknar eru 18 holur á einum
degi. (Verði veður óhagstætt að mati mótstjórnar getur hún látið leika 9 holur.)
Hæsta gefin forgjöf karla er 30 en kvenna 36.
2. Karlar leika á gulum teigum og konur á rauðum.
3. Veitt eru verðlaun fyrir 1., 2. og 3. sæti með og án forgjafar og makar fá 1., 2.
og 3. verðlaun með forgjöf. Aukaverðlaun fyrir að vera næst holu á 3. (12.) og
7. (16.) holu. Dregið verður úr skorkortum viðstaddra keppenda í mótslok.
Bikar er í sveitarkeppninni og nafn sveitarinnar grafið á hann.
Sveitarkeppnin er án forgjafar. Verðlaun verða afhent í mótslok. Einnig er keppt
í gestaflokki með forgjöf.
4. Verði tveir eða fleiri keppendur jafnir í verðlaunasæti án forgjafar þá skulu
þeir leika bráðabana. Verði tveir eða fleiri keppendur jafnir í verðlaunasæti með
forgjöf þá skal leika 9 síðustu holurnar með forgjöf. Verði þeir enn jafnir skal
reikna 6 síðustu holurnar, þá 3, 2 og 1.
5. Í sveitakeppni eru fimm keppendur í hvorri sveit meðlimir í fagfélögunum.
Ef jafnt skor er hjá sveitunum skal bæta við manni við hvora sveit þar til
úrslit fást.
Keppnisgjald 2.000 kr.
Skrásetning á staðnum.
Styrktaraðili er Húsasmiðjan
Golfmót
Mótið hefst kl. 10.00 og ræst verður út kl. 10.30.
Gæslumaður forsetans
FORSÍÐUMYNDIN
Karl Gíslason í dyragættinni á milli forsætisráðherra og forseta lýðveldisins á þriðjudaginn.
Andrés Magnússon, Heiðmörk 18,
Hveragerði, lést 19. maí.
Ásgeir J. Sandholt, bakarameistari, lést
19. maí.
Fríður Sigurjónsdóttir frá Litlulaugum í
Reykjadal lést 5. maí. Útförin hefur farið
fram í kyrrþey.
13.30 Svanlaug Rósa Vilhjálmsdóttir,
áður á Flókagötu 63, verður jarð-
sungin frá Fríkirkjunni í Reykjvavík.
13.30 Viktor Guðbjartsson, Mýrarbraut
35, Blönduósi, verður jarðsunginn
frá Bústaðakirkju.
■ Andlát ■ Jarðarfarir
Gifti sig á
afmælisdaginn
Við vorum búnir að ákveðaþetta löngu áður en við viss-
um um brúðkaup forsetans,“ seg-
ir Heimir Már Pétursson, skáld
og fjölmiðlafulltrúi Flugmála-
stjórnar, sem gifti sig á afmælis-
daginn sinn síðastliðinn þriðju-
dag. Er því líkt á með Heimi kom-
ið og Ólafi Ragnari Grímssyni
forseta, sem notaði einmitt af-
mælisdaginn sinn til að ganga að
eiga Dorrit Moussaieff. „Við gift-
um okkur hjá sýslumanninum í
Reykjavík og fórum svo út að
borða í Humarhúsinu,“ segir
Heimir Már, sem á ýmislegt ann-
að sameiginlegt með forseta
Íslands en það að gifta sig á af-
mælisdaginn. Heimir Már er
fyrrverandi framkvæmdastjóri
Alþýðubandalagsins og Ólafur
Ragnar fyrrum formaður sama
flokks.
Eiginmaður Heimis Más heitir
Jean Francoise og er frönskumæl-
andi Quebec-búi frá Kanada. ■
HEIMIR MÁR OG JEAN FRANCOISE
Gefnir saman af sýslumanni eins og forsetinn og Dorrit.
Hjónavígsla
HEIMIR MÁR PÉTURSSON
■ skáld og fjölmiðlafulltrúi Flugmála-
stjórnar, gekk að eiga kærasta sinn frá
Kanada á afmælisdaginn sinn síðastlið-
inn þriðjudag. Hann segist ekki vera að
feta í fótspor forsetans.