Fréttablaðið - 22.05.2003, Blaðsíða 17
■ Lögreglufréttir
17FIMMTUDAGUR 22. maí 2003
Aðstoð á árinu 2002
Fyrir þinn stuðning...
Þúsundir Íslendinga studdu starf
Rauða krossins á síðasta ári
... er lífið léttbærara fyrir alla þá sem nutu aðstoðar
Rauða kross Íslands á árinu 2002.
• 750 geðfatlaðir einstaklingar komu alls 12.000 sinnum í athvörf Rauða krossins fyrir
geðfatlaða, Vin í Reykjavík, Dvöl í Kópavogi og Laut á Akureyri
• 75 ungmenni í vanda dvöldu að meðaltali í sjö daga hvert í Rauðakrosshúsinu
• 1.334 sjúklingar gistu á sjúkrahóteli Rauða krossins í Reykjavík í alls 13.502 gistinætur
• Hjálparsími Rauða krossins (áður Trúnaðarsíminn) og Vinalínan tóku við 6.285 sím-
tölum frá fólki sem vildi ræða í trúnaði um sín mál
• 7.000 manns fengu útgefið skírteini frá Rauða krossinum eftir að fara á námskeið
í skyndihjálp
• 18.615 manns nutu þjónustu sjúkrabíla Rauða krossins um allt land
• 30 þúsund manns á hungursvæðum í sunnanverðri Afríku fengu mataraðstoð í tvo
mánuði þökk sé 2.300 sjálfboðaliðum og öllum þeim sem létu fé af hendi rakna í
landssöfnuninni Göngum til góðs
Alþjóðleg neyðaraðstoð náði til milljóna manna í 52 löndum sem áttu um sárt að binda vegna náttúruhamfara,
hungursneyða, stríðsátaka og veikinda á árinu 2002. Félagið sendi 16 sendifulltrúa til alþjóðlegra verkefna og
með þeirra stuðningi var hægt að:
• hjúkra stríðssærðum í Súdan
• hlúa að alnæmissjúkum í Suður-Afríku og Malaví
• veita fátækum aðgang að heilbrigðisþjónustu og hreinu vatni í Mósambík
• vernda stríðsfanga í Eritreu
• aðstoða við uppbyggingu Rauða hálfmánans í Aserbædjan
• hjálpa fórnarlömbum flóða í Kína
Rauði kross Íslands tekur virkan þátt í starfsemi Alþjóða Rauða krossins og vinnur að
framgangi hugsjóna hreyfingarinnar hér á landi og um allan heim. Á árinu 2002:
• nutu þúsundir skólabarna á Íslandi fræðslu um mannúðarmál og skyndihjálp
• fengu 448.063 stríðsfangar heimsókn frá sendifulltrúum Rauða krossins
• voru endurreistir skólar í Afganistan undir stjórn Ríkarðs Péturssonar sendifulltrúa fyrir
2.380 drengi og stúlkur, en skólarnir hrundu í jarðskjálfta
• aðstoðuðu 1.300 fastir sjálfboðaliðar einstaklinga í margvíslegum þrengingum, skipu-
lögðu neyðarvarnir, fræddu um skyndihjálp, heimsóttu aldraða og sjúka, söfnuðu fötum
og tóku þátt í alþjóðlegu samstarfi á vegum Rauða kross Íslands.
• störfuðu tólf þúsund manns við aðstoð á 43 átaka- og spennusvæðum víða um heim,
hjúkruðu 14.400 stríðssærðum og útveguðu þrjátíu þúsund manns gervilimi og nauð-
synlega endurhæfingu
• unnu um 100 virkir sjálfboðaliðar Ungmennahreyfingar Rauða kross Íslands um 10.000
vinnustundir í þágu fatlaðra, við námsaðstoð við nýbúa, við skyndihjálparfræðslu, við
fataflokkun- og sölu og við átak gegn ofbeldi og fordómum í samfélaginu
• fengu 117 hælisleitendur húsaskjól og aðstoð hjá Rauða krossi Íslands
Starf Rauða kross Íslands er fjármagnað með hlutdeild félagsins í Íslenskum söfnunar-
kössum og rausnarlegum stuðningi almennings, fyrirtækja og stjórnvalda við verkefni
Rauða krossins.
Allir geta fengið hlutverk hjá Rauða krossinum. Hafðu samband ef þú vilt gerast félagi
eða sjálfboðaliði eða styðja á annan hátt fjölmennustu mannúðarhreyfingu heims.
Aðalfundur Rauða kross Íslands er á morgun, föstudag.
Ársskýrsla félagsins er á www.redcross.is/2002
M
Á
T
T
U
R
IN
N
&
D
Ý
R
Ð
IN
Hringið í 570 4000 til að fá
prentaða ársskýrslu í pósti.
IÐNAÐUR Ný lyfjaverksmiðja hefur
tekið til starfa á Grenivík í nýupp-
gerðu húsi þar sem slökkvistöð og
áhaldahús bæjarins voru áður til
húsa.
„Við getum séð það fyrir okkur
að þegar atvinnusagan verður
skrifuð á ný, síðar á öldinni, þá mun
bókin ekki heita bein úr sjó heldur
krem úr krús eða eitthvað þvíum-
líkt,“ sagði Valgerður Sverrisdóttir,
iðnaðar- og viðskiptaráðherra, í
ávarpi við gangsetningu verksmiðj-
unnar á föstudaginn.
Torfi Rafn Halldórsson, lyfja-
fræðingur og einn af stofnendum
fyrirtækisins, sem ber heitið
Pharm Artica, segir að hugmyndin
að fyrirtækinu hafi kviknað árið
1999. Í kjölfar breytinga á lyfja-
markaðnum hafi skrefið síðan ver-
ið stigið til fulls í lok síðasta árs.
Hann segir að stefnt sé að því að
fyrstu vörur fyrirtækisins komi á
markað um mánaðamótin.
„Við getum framleitt allt frá ein-
földum vörum upp í mjög flóknar
hágæðavörur,“ segir Torfi Rafn.
„Við erum að framleiða snyrtivör-
ur, lyf, krem, hóstamixtúru, sótt-
hreinsivökva og fleira. Markmiðið
er að taka yfir þá framleiðslu sem
áður var í apótekunum og höfum
við til dæmis gert samning við full-
trúa Lyfju um að framleiða vörur
fyrir þá.“
Torfi Rafn segir að verksmiðjan
uppfylli allar gæðakröfur sem
gerðar séu til lyfja- og snyrtivöru-
framleiðslu. Hann segir að fyrir-
tækinu hafi verið tekið frábærlega
á Grenivík. Hjá því starfi nú sjö
manns en ráðgert sé að starfsmenn-
irnir verði komnir vel á annan tug-
inn eftir næstu áramót.
Auk þess að hafa gert samstarfs-
samning við Lyfju segir Torfi Rafn
að fyrirtækið sé að vinna að mjög
spennandi verkefnum með Jurta-
smiðjunni og Íslenskum fjallagrös-
um. Þá hyggist Pharm Artica einnig
markaðssetja sína eigin snyrti-
vörur, annars vegar undir nafninu
Olympe og hins vegar Gaia. Hann
segir að þróunarvinnan hafi verið
unnin í samstarfi við franska fyrir-
tækið Cosmalia.
trausti@frettabladid.is
BAGDAD, AP Ráðstefnu þar sem
mynda á nýja bráðabirgðaríkis-
stjórn í Írak verður að líkindum
frestað fram í miðjan júlí, að
sögn L. Paul Bremer, æðsta full-
trúa bandarískra yfirvalda í Írak.
Áður hafði því verið haldið á lofti
að ný ríkisstjórn yrði skipuð í
júní en Bremer fullyrðir að sú
dagsetning hafi verið búin til af
fjölmiðlum.
Nú, sex vikum eftir að banda-
ríski herinn steypti ríkisstjórn
Saddams Husseins af stóli, hefur
enn ekki verið skipuð stjórn og
ráðuneyti landsins heyra undir
bandarísk yfirvöld. Bremer út-
skýrði ekki hvers vegna myndun
nýrrar ríkisstjórnar hefði dregist
á langinn. ■
ÞJÓFUR Í „DRAGI“ Lögreglan í
Reykjavík stöðvaði í fyrrinótt bíl
sem tveir menn höfðu notað
kvöldið áður við innbrot. Í fyrstu
var haldið að ökumaður væri
ljóshærð kona en reyndist það
vera annar innbrotsþjófanna. Bar
hann ljósa hárkollu og var í kven-
mannsfötum. Engin frekari af-
skipti voru höfð af manninum.
ÞJÓFUR Í STOFUNNI Íbúa í Breið-
holti brá heldur í brún þegar hann
kom heim til sín í fyrrakvöld og
rakst á ókunnugan mann í stof-
unni. Skemmst er frá því að segja
að þeim óboðna brá jafn mikið,
hljóp út á svalir, stökk fram af
þeim og hvarf. Í farteskinu hafði
hann fartölvu sem húseigandinn
átti auk fleiri verðmæta.
FUNDU HASS Á BLÖNDUÓSI Lög-
reglan á Blönduósi stöðvaði öku-
mann sem ók um Norðurlandsveg.
Grunsemdir vöknuðu um að hann
hefði eitthvað að fela. Við leit í
bílnum fundust 12-13 grömm af
hassi. Ökumaður viðurkenndi að
eiga hassið og að hann hefði ætlað
það til eigin neyslu. Var honum
sleppt að loknum yfirheyrslum.
NÝJA VERKSMIÐJAN TILBÚIN
Hjá Pharm Artica starfa nú sjö manns en ráðgert er að starfsmennirnir verði komnir vel á
annan tuginn eftir næstu áramót.
Ný lyfjaverk-
smiðja gangsett
Fjölbreytt framleiðsla hafin á lyfjum og
snyrtivörum á Grenivík. Húsakynnin
nýuppgerð slökkvistöð og áhaldahús bæjarins.
Stjórnarmyndun frestað:
Ný stjórn
í júlí
J. PAUL BREMER
Bremer segir að stefnt sé að því að öll
þjóðarbrot og trúarhópar fái sinn fulltrúa í
nýrri bráðabirgðaríkisstjórn.