Fréttablaðið - 22.05.2003, Blaðsíða 10
10 27. febrúar 2003 FIMMTUDAGUR
FJÖLDI GESTA Á
LISTASÖFNUM Á ÍSLANDI
1997 264.000
1998 251.000
1999 261.000
2000 290.000
2001 271.000
HEIMILD: HAGSTOFA ÍSLANDS
GESTAFJÖLDI ER AÐ HLUTA ÁÆTLAÐUR
BORGARRÁÐ Borgarráðsfulltrúar
Sjálfstæðisflokks lögðust gegn
því að hótel rísi á rústum land-
námsskálans við Aðalstræti á
fundi borgarráðs í gær. Ólafur F.
Magnússon, borgarfulltrúi
Frjálslyndra, hafði áður lagt
fram tillögu þess efnis. Tillögur
Reykjavíkurlistans ganga út á að
kjallari fyrirhugaðs hótels verði
sýningarsalur fyrir forn-
minjarnar.
„Okkur finnst að leyfa eigi
landnámsminjunum að hafa
ákveðinn forgang þarna,“ segir
Björn Bjarnason, oddviti sjálf-
stæðismanna. Sjálfstæðismenn
hafa lagt til að gamla bæjar-
stæðinu verði breytt í lítinn
garð, Fornleifagarð Reykjavík-
ur. „Þetta er einstakt í öllum
löndum, að menn finni land-
námsminjar í hjarta höfuðborg-
ar,“ segir Björn. „Að láta eins og
ekkert hafi í skorist finnst okkur
fráleitt.“
Stefán Jón Hafstein, borgar-
fulltrúi Reykjavíkurlistans, seg-
ir hótelbyggingu og varðveislu
fornminjanna vel geta farið
saman. „Þetta hefur verið klass-
ísk lausn erlendis,“ segir Stefán
Jón um hugmyndir Reykjavíkur-
listans. „Þar leysa menn nútím-
ann og fortíðina saman í nýjum
hugmyndum.“ ■
Borgarráð:
Deilt um
Orkuveituna
BORGARMÁL Borgarráðsfulltrúar
Sjálfstæðisflokksins vilja að fjár-
hagsmál nokkurra dótturfyrir-
tækja Orkuveitu Reykjavíkur
verði tekin til sérstakrar umræðu
í borgarstjórn vegna veikrar fjár-
hagsstöðu þeirra.
Um er að ræða fyrirtækin
Línu.net, Tetra Ísland og Raf-
magnslínu. Borgarráðsfulltrúar
Reykjavíkurlistans telja áhyggjur
sjálfstæðismanna óþarfar. Benda
þeir á að fjárhagsstaða Orkuveit-
unnar og dótturfyrirtækja hennar
sé afar sterk. Árið 2002 hafi hagn-
aðurinn numið þremur milljörð-
um króna. ■
SVEITARSTJÓRN Sveitarstjórn Dala-
byggðar samþykkti í gær einróma
að fara að vilja fjölmenns borg-
arafundar frá því í
síðustu viku og
leita leiða til þess
að halda Hitaveitu
Dalamanna í eigu
heimamanna. Áður
hafði meirihluti
s v e i t a r s t j ó r n a r
samþykkt í samráði við iðnaðar-
ráðuneytið að leita samninga við
Orkubú Vestfjarða um að það yf-
irtæki reksturinn. Drög að samn-
ingi voru á borðinu.
„Þessi niðurstaða gleður mig.
Sveitarstjórn fer að vilja íbúanna
og samþykkir að vinna að máli
hitaveitunnar fyrir opnum tjöld-
um. Ég er ánægður með þann
áhuga manna að slíðra sverðin og
vona að hugur fylgi máli,“ segir
Sigurður Rúnar Friðþjófsson, odd-
viti minnihlutans í Dalabyggð.
Hann segir að málið allt hafi ein-
kennst af pukri og þessi breytta af-
staða meirihlutans sé því gleðileg.
„Það er ýmislegt í þessu máli
frá iðnaðarráðuneytinu sérkenni-
legt. Þá vekja tengsl oddvita og al-
þingismanns athygli,“ segir Sig-
urður Rúnar og vísar til þess að
Guðrún Jóna Gunnarsdóttir, odd-
viti Dalabyggðar, og Kristinn H.
Gunnarsson, alþingismaður
Framsóknarflokks, eru systkin.
„Byggðaráð mun fara ofan í
þessi mál í framhaldi af borgara-
fundinum en persónulega er ég
ekki bjartsýn á að við getum end-
urfjármagnað hitaveituna,“ segir
Guðrún Jóna Gunnarsdóttir. Hún
segir að búið sé að gera hitaveitu-
málið að miklu æsingamáli, sem
orðið hafi til þess að ráðist var á
hana um kosningahelgina.
„Ég er búin að kæra líkams-
árás. Lögreglan í Búðardal fer
með þetta mál,“ segir Guðrún
Jóna, sem fékk glóðarauga.
Guðrún Jóna segir að á næstu
dögum verði gögn vegna hitaveit-
unnar send í hvert hús. Hún segist
í engu hvika frá þeirri skoðun
sinni að salan hefði gjörbreytt
skuldastöðunni. Hún segir að
sveitarfélagið skuldi yfir 400
milljónir króna í skuldir og að yfir
helmingur skuldanna sé vegna
þátttöku sveitarfélagsins í rekstri
fyrirtækja.
„Það þarf gríðarlegan niður-
skurð í rekstri sveitarfélagsins til
að halda okkur á floti. Það er nær
að við vinnum úr þessum málum
sjálf heldur en að fá félagsmála-
ráðuneytið inn á okkur. Fyrst vilji
fólksins stendur til þess að endur-
fjármagna hitaveituna þá tökum
við tillit til þess, en menn verða að
átta sig á því hverju verður fórn-
að í staðinn. Niðurskurður verður
í rekstri grunnskóla og leikskóla
og gatnaframkvæmdir munu
bíða. Þetta mun því kosta kyrr-
stöðu í framkvæmdum,“ segir
hún.
Hún gefur lítið fyrir þá gagn-
rýni að tengsl hennar og Kristins
H. Gunnarssonar séu tortryggi-
leg.
„Það er liður í áróðursherferð-
inni að dylgja um tengsl okkar.
Hvorugt okkar hefur ávinning af
sölu hitaveitunnar,“ segir Guðrún
Jóna.
rt@frettabladid
UNGBÖRN Lyfjastofnun telur að
foreldrar ungbarna geti óhrædd
gefið þeim AD-vítamíndropa
nema grunur leiki á að börnin séu
með ofnæmi fyrir hnetum.
Leiki hins vegar einhver vafi á
því má benda foreldrum á að
gefa börnunum frekar lýsi þar til
upplýsingar liggja fyrir um
hreinleika vörunnar, en eins og
fram hefur komið í fréttum hafa
droparnir verið innkallaðir sök-
um skorts á upplýsingum á
merkimiða vörunnar. Láðst hafði
að tilgreina jarðhnetuolíu sem
burðarefni A- og D-vítamíns í
vörunni. ■
FORNLEIFAUPPGRÖFTUR
VIÐ AÐALSTRÆTI
Sjálfstæðismenn hafa lagst gegn byggingu
hótels á rústum landnámsskálans.
Lagst gegn byggingu hótels við Aðalstræti:
Vilja fornleifagarð
KRISTINN H. GUNNARSSON
Gagnrýnt er að hann er bróðir oddvitans sem vill selja hitaveituna.
Sveitarstjórn sveigð
í hitaveitumálinu
Fyrirhuguð sala á Hitaveitu Dalabyggðar setti allt í bál og brand í héraðinu. Oddviti með
glóðarauga kærir líkamsárás og lofar að fara að vilja íbúanna. Minnihlutinn sigri hrósandi.
■
„Ég er búin að
kæra líkams-
árás. Lögreglan
í Búðardal fer
með þetta mál.“
ÓHRÆDD VIÐ DROPANA
Börn sem ekki eru með ofnæmi eiga að
geta tekið inn AD-dropa.
Lyfjastofnun:
Má gefa börnum
AD-dropa
Svonaerum við
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/B
IL
LI