Fréttablaðið - 22.05.2003, Page 2
2 22. maí 2003 FIMMTUDAGUR
„Sumarið er komið og það verður
enginn svikinn af því í Súðavík.“
Slegist er um sumarhús í Súðavík sem áður voru
einbýlishús á snjóflóðasvæði. Ómar Þór Jónsson
er sveitarstjóri á staðnum.
Spurningdagsins
Ómar, er sumar í Súðavík?
Júróbíll
BMW 320i 01/96.
Ekinn 143 þ. km. Vél 2000 cc. Sjálfskiptur.
Verð 990 þ. kr. www.toyota.is
„Ein bisschen Frieden, ein bisschen Sonne.“
Kauptu Júróbíl fyrir 24. maí.
Þú gætir unnið bíl til ókeypis afnota í heilt ár!
Kúariða greinist í Kanada:
Bandaríkin banna innflutning
WASHINGTON, AP Bandarísk yfir-
völd hafa bannað allan innflutn-
ing á kanadísku nautakjöti eftir
að tilkynnt var að kúariða hefði
greinst í átta ára gamalli kú í Al-
berta-ríki í Kanada.
Þetta er fyrsta tilfelli kúariðu
í landinu í áratug.
Bandaríkjastjórn ætlar að
senda dýralækna og annað að-
stoðarfólk til að hjálpa Kanada-
mönnum við rannsókn málsins.
Komi í ljós að um einangrað til-
felli sé að ræða verður innflutn-
ingsbanninu aflétt hið fyrsta.
Um 75% af öllum nautgripum
sem eru fluttir til Bandaríkj-
anna koma frá Kanada og um
7% alls nautakjöts sem Banda-
ríkjamenn borða kemur frá ná-
grönnunum í norðri.
Kúariða greindist síðast í
Kanada árið 1993 í nautgrip sem
hafði verið fluttur frá Bretlandi.
Þar í landi greindist sjúkdómur-
inn fyrst, eða árið 1986. Síðar
breiddist hann út um Evrópu og
til Asíu. ■
HUNDUR BEIT BARN
Tveggja mánaða gamalt barn lést
eftir að belgískur fjárhundur beit
það í þorpinu Hoque í Frakklandi.
Barnið hafði verið í pössun í ná-
grannahúsi. Nágranninn, sem átti
hundinn, verður líklega ákærður
fyrir manndráp af gáleysi.
KENNARAR VARAÐIR VIÐ
Menntamálaráðherra Frakklands
hefur varað
kennnara lands-
ins, sem eru í
verkfalli, við því
að hindra
próftöku nemenda. Tæplega 2000
nemendur gátu ekki tekið próf í
borginni Perpignan á mánudag
vegna þess að kennarar hindruðu
aðgang að skólanum.
■ Evrópa
Á BEIT
Kanadískir nautgripir á beit skammt frá
Cardston í Alberta. 60% af nautakjötsfram-
leiðslu Kanada fer fram í Alberta.
AP
/M
YN
D
FÉLLUST Á RÖK DAVÍÐS „Það var
sátt bæði um stjórnarsáttmálann
og skiptingu ráðuneyta,“ sagði
Árni Mathiesen sjávarútvegsráð-
herra. Hann viðurkenndi að ein-
hver pirringur
hefði verið um
að sjálfstæðis-
menn láti frá
sér forsætis-
ráðuneytið en
sagði þingmenn hafa sæst við
þau rök sem Davíð Oddson færði
fram. Árni sagðist ekki vita hvort
hann myndi sitja áfram í sjávar-
útvegsráðuneytinu, það kæmi í
ljós seinna í dag. Hann segir
þingmenn hafa fallist á
sáttmálann og lendingu í skatta-
og sjávarútvegsmálum munu
koma fram þegar stjórnarsátt-
málinn verði gerður opinber.
SAMKVÆMT HEFÐUM „Það var
mjög góð stemning á fundinum,“
segir Valgerður Sverrisdóttir,
iðnaðar- og viðskiptaráðherra.
Valgerður segir að hún sé sátt við
skiptingu ráðuneyta. Hvað varðar
að láta utanríkisráðuneytið og
umhverfisráðuneyti í stað for-
sætisráðuneytis segir hún það
vera samkvæmt hefðum.
FÁUM SKIPSTJÓRANN Á SKÚT-
UNNI „Stemningin á fundinum
var góð eins og alltaf hjá okkur,“
segir Hjálmar Árnason, þing-
maður Framsóknarflokks. Hann
segir þingmenn hafa viljað hafa
ráðuneytin fleiri, en þeir skilji
það og séu afskaplega ánægðir
með að fá forsætisráðherra.
„Forsætisráðherra er skipstjór-
inn á skútunni og við erum
ánægð með að hafa skipstjóra
framsóknarskútunnar þar.“
Hjálmar segist ekki vilja greina
efnislega frá inntaki stjórnar-
sáttmálans. Hann segir skipt-
ingu ráðherrastóla koma fram í
dag.
SÁTT RÍKTI UM STEFNUYFIRLÝS-
INGUNA „Þetta er
niðurstaða sem
náðist á milli
flokkanna,“ segir
Siv Friðleifsdóttir
umhverfisráð-
herra um skipt-
ingu ráðuneyt-
anna. Siv segir
mikla sátt hafa ríkt um stefnuyf-
irlýsinguna og uppskiptinguna
sem sýnd hafi verið í drögum.
Flóð og aurskriður:
500 enn saknað
SRI LANKA, AP Yfirvöld á Sri Lanka
hafa lýst því yfir að að minnsta
kosti 500 manns sé enn saknað
eftir flóð og aurskriður síðustu
daga.
Björgunarmenn hafa þegar
fundið 260 lík en ekki er vitað um
afdrif yfir 500 manna. Að
minnsta kosti 150.000 manns hafa
misst heimili sín af völdum flóð-
anna. Srílönsk yfirvöld hafa beð-
ið um aðstoð frá umheiminum,
einkum í formi vatnsflaskna,
byggingarefnis, fatnaðar og lyfja
til handa fórnarlömbum flóð-
anna. Tamil-tígrar gáfu fórnar-
lömbum flóðanna tíu vagnhlöss
af hrísgrjónum. ■
MÓTMÆLANDI HANDTEKINN
Íbúar Aceh-héraðs mótmæla herför indó-
nesískra yfirvalda gegn aðskilnaðarsinnum.
Átök í Indónesíu:
Harkan
eykst
INDÓNESÍA, AP Að minnsta kosti tíu
manns létu lífið í sókn indónesíska
hersins gegn aðskilnaðarsinnum í
Aceh-héraði á þriðja degi átaka. Að
sögn uppreisnarmanna voru
óbreyttir borgarar á meðal fórnar-
lambanna.
Eldflaugum var skotið úr her-
þyrlum að bækistöðvum uppreisn-
armanna auk þess sem harðir skot-
bardagar hafa geisað á jörðu niðri.
„Við verðum að hafa hraðar hend-
ur. Við viljum leysa þetta vandamál
fljótt og vel,“ sagði yfirmaður indó-
nesíska hersins.
Ríkisstjórnir annarra landa
hafa hvatt indónesísk yfirvöld til
að hefja friðarviðræður við að-
skilnaðarsinna að nýju. ■
VATNINU FAGNAÐ
Srílönsk yfirvöld köstuðu flöskum með
hreinu vatni úr herþyrlu til fórnarlamba
flóðanna.
■ Stjórnarmyndun
STJÓRNARMYNDUN Stjórnarsáttmál-
inn verður kynntur í dag. Miðað
við ummæli formanna Sjálfstæð-
isflokks og Framsóknarflokks í
gær náðu sjálfstæðismenn að
miklu leyti sínu fram í skattamál-
um en framsóknarmenn í húsnæð-
ismálum.
Davíð sagði
að almennt væri
sátt innan þing-
flokksins um
stjórnarsáttmál-
ann og engar
kröfur hefðu
verið gerðar um
breytingar. Hall-
dór tók í sama
streng.
Skattatillög-
ur Sjálfstæðis-
flokksins hafa
verið metnar á
tæpa 27 milljarða króna. Halldór
Ásgrímsson gagnrýndi tillögurn-
ar opinberlega fyrir kosningar, en
nú virðast formenn stjórnarflokk-
anna hafa náð sáttum.
Þegar Davíð var spurður að því
hvort það væri rétt að Sjálfstæð-
isflokkurinn hefði fengið að halda
sínum skattatillögum gegn því að
Framsóknarflokkurinn fengi
kosningaloforð sitt um 90% hús-
næðislán inn í sáttmálann sagði
hann: „Það er góð sátt á milli
manna með samninginn. Ég læt
það nægja.“ Halldór sagði hins
vegar: „Það er nú þannig í öllum
samningum að það þarf að ná
málamiðlun. Aðalatriðið er það að
við ætlum að reka ríkissjóð halla-
lausan. Við ætlum okkur að lækka
skatta í tengslum við kjarasamn-
inga og ræða það við aðila vinnu-
markaðarins. Endanlegar ákvarð-
anir í þeim efnum verða ekki
teknar fyrr en kjarasamningar
hafa komist á.“
Þegar Halldór var spurður að
því hvort hann hefði lagt mikla
áherslu á 90% húsnæðislán í
stjórnarmyndunarviðræðunum
sagði hann: „Við lögðum mikla
áherslu á það mál og ýmis önnur
mál í þessum stjórnarsáttmála.“
Halldór sagðist ekki telja að
skera þyrfti niður í velferðarkerf-
inu samfara skattalækkunum.
Hann ætti ekki von á því að farið
yrði út í skattalækkanir á þessu
ári heldur yrði það gert á seinni
hluta kjörtímabilsins.
Hvorki Davíð né Halldór vildu
fara nákvæmlega út í það hvernig
tekið væri á fiskveiðistjórnunar-
kerfinu í sáttmálanum. Þeir sögðu
þó að það yrði endurskoðað en í
meginatriðum yrði byggt á því
kerfi sem fyrir væri.
trausti@frettabladid.is
HALLDÓR ÁSGRÍMSSON FORMAÐUR FRAMSÓKNARFLOKKSINS
Halldór sagðist ekki telja að skera þyrfti niður í velferðarkerfinu samfara skattalækkunum.
Hann ætti ekki von á því að farið yrði út í skattalækkanir á þessu ári heldur yrði það gert
á seinni hluta kjörtímabilsins.
„Við ætlum
okkur að
lækka skatta í
tengslum við
kjarasamn-
inga og ræða
það við aðila
vinnumarkað-
arins.
Meiri skattalækkanir
gegn meiri lánum
Sjálfstæðismenn höfðu betur í skattamálum og Framsóknarflokkurinn
fékk sínu framgengt í húsnæðismálum ef miðað er við orð formanna
flokkanna í gær. Ekki er búist við skattalækkunum á þessu ári.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/B
IL
LI
KEYRT Á SJÖ ÁRA STÚLKU Sjö ára
stúlka slasaðist lítillega þegar
hún varð fyrir bíl. Atvikið átti
sér stað á mótum Borgarbrautar
og Bugðusíðu á Akureyri á sjö-
unda tímanum í gærkvöldi. Ekki
er vitað um tildrög slyssins.
Bíllinn var ekki á mikilli ferð og
meiðsl því lítil.
VÉLHJÓLAMAÐUR SLASAST Öku-
maður vélhjóls fótbrotnaði
þegar keyrt var á hann á
Skagaströnd. Maðurinn var flut-
tur á Fjórðungssjúkrahúsið á
Akureyri þar sem gert var að
sárum hans.
■ Lögreglufréttir