Fréttablaðið - 22.05.2003, Page 24
■ ■ FUNDIR
9.30 Kynning verður á BS-verkefn-
um við sjúkraþjálfunarskor Háskóla Ís-
lands.
Nýtt íslenskt leikrit verðurfrumsýnt í Þjóðleikhúsinu í
kvöld. Leikritið er eftir ungan
höfund, Sigtrygg Magnason, og
nefnist Herjólfur er hættur að
elska. Verkið er frumsýnt í nýju
sýningarrými Þjóðleikhússins við
Sölvhólsgötu sem áður hýsti
birgðahús Landssímans. Leik-
smiðjan setur verkið upp en
henni er ætlað að vera vettvangur
fyrir tilraunastarfsemi Þjóðleik-
hússins og miðar að því að vinna
með það nýjasta og ferskasta í
leiklistinni. Þrátt fyrir tveggja
ára starfsemi Leikmiðjunnar er
þetta í fyrsta sinn sem afrakstur-
inn er sýndur almenningi og því
vel við hæfi að sýna verk eftir
ungan og framsækinn höfund.
„Það fyrsta sem gerðist var að
titillinn kom að verkinu, Herjólf-
ur er hættur að elska. Það má
segja að þetta hafi verið titill
sem kallaði á verk,“ segir Sig-
tryggur þegar hann er spurð-
ur um hugmyndina að baki
verkinu.
„Það er frekar erfitt að
lýsa umfjöllunarefni verks-
ins með öðru en titlinum.
Þetta er um manninn Herj-
ólf sem kemst að því að
hann er hættur að elska.
Til að komast hjá því að
særa konuna sína þá
ákveður hann að drepa
hana, slíta úr henni
hjartað.“ Þrátt fyrir
þessa lýsingu vill Sig-
tryggur ekki meina að leikritið sé
þungt, „það er á köflum fyndið og
það er líka fallegt, það er eigin-
lega minnst ljótt“.
Leikendur í Herj-
ólfi eru þau Sigurð-
ur Skúlason, Guð-
rún Gísladóttir,
Edda Arnljóts-
dóttir og Bald-
ur Trausti
Hreinsson, en
leikstjórn er í
höndum Stef-
áns Jónssonar.
Stefán er fast-
ráðinn leikari við
Þjóðleikhúsið
og hefur
l e i k -
stýrt hjá áhugaleikfélögum og
leikhópum, en þetta er fyrsta
leikstjórnarverkefni hans í Þjóð-
leikhúsinu.
Sigtryggur tók sér mán-
aðarfrí og hefur því fylgst
með æfingum á verkinu
og segist mjög ánægður
með útkomuna: „það er
þó eiginlega sorglegt að
þurfa að frumsýna því
þá hættir þessi
skemmtilega vinna,“
segir höfundur verksins
að lokum. ■
22. maí 2003 FIMMTUDAGUR
hvað?hvar?hvenær?
19 20 21 22 23 24 25
MAÍ
Fimmtudagur
■ LEIKLIST
Titill kallaði á leikrit
ÓLAFUR INGI JÓNSSON
Capuccino þykir mér mjög gottog nú eru komnir margir stað-
ir í Reykjavík sem gera það með
sóma. Te & kaffi er meðal ágætra
brautryðjenda á því sviði, þó að
Mokka hafi náttúrlega verið leng-
ur við lýði. Ég sakna þess reyndar
frá því ég var við nám í Ítalíu að
þar er hægt að fá frábært capucc-
ino nánast hvar sem er, og ekki
síður hversu hratt það gekk fyrir
sig að fá það afgreitt.
Besta kaffiðí bænum
HEIÐRÚN JÓNSDÓTTIR
Þ að er ljóst að landsmönnumþarf ekki að leiðast þessa
„Eurovision-helgi“ en við þurfum
ekki að láta þar staðar numið því
margt annað er í boði um helgina,“
segir Heiðrún Jónsdóttir, upplýs-
ingafulltrúi Landssímans. „Mér líst
mjög vel á ljósmyndasýninguna á
Reykjavíkurtorginu. Þarna eru átta
unglingar að koma ferskir og orku-
miklir úr skóla, slík sýning getur
ekki verið annað en áhugaverð og
skemmtileg. Auk þess finnst mér
miklu meiri rómantík í svarthvít-
um ljósmyndum þannig að sýning
sem þessi getur ekki klikkað.
Wagnerafmæli Sinfóníunnar
hljómar líka vel. Maður er alltaf á
leiðinni á tónleika en í dagsins önn
miklar maður það of mikið fyrir
sér, sem auðvitað er fáránlegt.
Mig langar líka að sjá Rauða
spjaldið. Það klikkar varla heldur.
Ég hef lítið heyrt af sýningunni en
legg mitt traust á höfunda og leik-
ara og auðvitað aðra sem að koma.
Og svo aftur að nemendum. Út-
skriftarsýning myndlistar- og
hönnunarnemenda Listaháskólans
höfðar sterkt til mín. Nýtt, ferskt
og fjölbreytt, hversu undarlegt
sem það nú er þá finnst mér slíkar
sýningar oft skemmtilegastar og
áhugaverðastar. Nemendur hafa
lagt sig alla fram, ferskir en stund-
um ófágaðir, en þar liggur líka
stundum fegurðin, það er að segja
ef fólk hefur farið sínar eigin leið-
ir.“
Val Heiðrúnar
Þetta lístmér á!
SIGTRYGGUR MAGNASON
Nýtt íslenskt verk eftir dagskrárgerðar-
manninn og skáldið Sigtrygg
Magnason verður frumsýnt í
kvöld. Verkið er sýnt í
nýju sýningarhús-
næði Þjóðleik-
hússins við
Sölvhólsgötu.
✓
14.00 Í tilefni af alþjóðlegum degi
líffræðilegrar fjölbreytni bjóða umhverf-
isráðuneytið og Náttúrufræðistofnun
Íslands til fræðsluráðstefnu í Borgar-
túni 6. Sérfræðingar frá Háskóla Íslands,
Náttúrufræðistofnun Íslands, Umhverfis-
stofnun, Náttúrufræðistofu Kópavogs og
Hafrannsóknastofnun fjalla um flokkun
vistgerða, stöðuvatna, um botndýr á Ís-
landsmiðum, válista og náttúruverndar-
áætlanir.
16.00 Gagarín býður til málþings
um miðlun á nýrri öld að Höfðabakka
9. Meðal fyrirlesara eru María H.
Maack, umhverfisstjóri Íslenskrar
Nýorku, Einar Á. E. Sæmundsen,
fræðslufulltrúi þjóðgarðsins á Þingvöll-
um, Hreinn Hreinsson, upplýsingafull-
trúi Reykjavíkurborgar, og Geir Borg,
þróunarstjóri Gagarín.
20.00 Aðalfundur Nýrrar dögunar,
samtaka um sorg og sorgarviðbrög,
verður í Safnaðarheimili Háteigskirkju,
2. hæð.
20.00 Lúpus og Sjögrens-hóparnir
verða með sameiginlegan fræðslufund
fyrir félagsmenn og þá sem áhuga hafa
á málefninu í húsnæði Gigtarfélags Ís-
lands, Ármúla 5. Dr. Björn Guðbjörns-
son, dósent í gigtarrannsóknum, Rann-
sóknarstofu í gigtarsjúkdómum, flytur
fræðsluerindi um Sjögren með og án
Lúpus og dr. Gerður Gröndal, sérfræð-
ingur í gigtarsjúkdómum, gigtardeild
Landsspítala, flytur erindi sem nefnist
Yfirlit yfir lúpus.
■ ■ OPNANIR
17.00 Ljósmyndasýning verður
opnuð á Reykjavíkurtorgi Borgarbóka-
safnsins í Grófarhúsinu, Tryggvagötu 15.
Þetta er samsýning átta unglinga sem
hafa lært svarthvíta ljósmyndun í Mynd-
listaskóla Reykjavíkur á vormisseri. Sýn-
ingin er sýn unglinganna á Reykjavík.
Þar má sjá líf og leik unglinga, málefni
líðandi dags, listrænar hugleiðingar og
umhverfi sem er að hverfa.
18.00 Þrír breskir myndlistarmenn
opna sýningu á verkum sínum í Gallerí
Skugga, Hverfisgötu 39. Listamennirnir
heita Jo Addison, Hatty Lee og Lucy
Newman en þær starfa allar í London.
Verk þremenninganna samanstanda af
ljósmyndum, teikningum, skúlptúrum
og myndbandsverkum.
20.00 Hönnunar- og arkitektúr-
deild Listaháskólans verður með sýn-
ingu á vídeóverkum síðastliðins vetrar.
Sýningin nefnist Hreyfimyndir og er liður
í Vorhátíðinni sem fram fer í Listasafni
Reykjavíkur þessa dagana. Kynnir
kvöldsins verður Sóley Stefánsdóttir.
✓
Borgarskjalasafn Reykjavíkur
www.rvk.is/borgarskjalasafn
Sími: 563 1770
LESSTOFA OG AFGREIÐSLA
opin alla virka daga kl. 10-16.
www.ljosmyndasafnreykjavikur.is • 563 1790
Frumefnin Fimm -
Ferðadagbækur Claire Xuan
24. maí - 1.sept. 2003
Tekið er á móti hópum eftir samkomulagi,
nánari upplýsingar í síma 563 1790.
Afgreiðsla og skrifstofa opin virka daga
frá 10-16. Opnunartími sýninga virka daga 12-19
og 13-17 um helgar.
Aðgangur ókeypis
www.listasafnreykjavikur.is Sími 590 1200
HAFNARHÚS, 10-17
Útskriftarsýning Listaháskóla Íslands
Leiðsögn alla sunnud. kl. 15.00
KJARVALSSTAÐIR
10-17 Rússnesk ljósmyndun – yfirlitssýning
og Örn Þorsteinsson (opnaðar 17.5.), Kjarval
Leiðsögn alla sunnud. kl. 15.00
ÁSMUNDARSAFN
10-16 - Ásmundur Sveinsson – Nútímamaðurinn
Minjasafn Reykjavíkur
Árbæjarsafn - Viðey
www.arbaejarsafn.is
Safnhús Árbæjarsafns eru lokuð en boðið
er upp á leiðsögn alla mánud., miðvikud. og
föstudaga kl. 13. Einnig er tekið á móti
hópum eftir samkomulagi. Nánari upplýs-
ingar í síma 577 1111. Upplýsingar um
leiðsögn í Viðey í síma 568 0535.
Menningarmiðstöðin Gerðuberg
www.gerduberg.is • sími 575 7700.
Sýningar:
Brýr á þjóðvegi 1.
Gunnar K. Gunnlaugsson sýnir ljósmyndir
Íslandsteppi. Íslenska bútasaumsfélagið
sýnir 20 ný bútasaumsteppi
Íslandsteppið:
Íslenska bútasaumsfélagið sýnir ný búta-
saumsteppi.
Jón Ólafsson sýnir í Félagsstarfi
s. 563 1717
Upplýsingar um afgreiðslutíma:
s. 552 7545 og á heimasíðu
www.bokasafn.is
Hefurðu kynnt þér
bókamenntavef
Borgarbókasafns?
www.bokmenntir.is
Minjasafn Orkuveitunnar
Minjasafn Orkuveitunnar í
Elliðaárdal er opið
sun. 15-17
og eftir samkomulagi
í s. 567 9009
STÓRA SVIÐ
ÖFUGU MEGIN UPPÍ e. Derek Benfield
Lau. 24/5 kl. 20 - Eurovisiontilboð kr. 1.800,-
Sun. 1/6 kl. 20
Fös. 6/6 kl. 20
Fös. 13/6 kl. 20
PÚNTILA OG MATTI e. Bertolt Brecht
Í kvöld kl. 20
Sun. 25/5 kl. 20
Fim. 29/5 kl. 20
ATH: SÍÐUSTU SÝNINGAR
SÖNGLEIKURINN SÓL & MÁNI
eftir Sálina og Karl Ágúst Úlfsson
Fös. 23/5 kl. 20
Fös. 30/5 kl. 20
Lau. 31/5 kl. 20
ATH: SÍÐUSTU SÝNINGAR
NÝJA SVIÐ
SUMARÆVINTÝRI e. Shakespeare og leikhópinn
Í kvöld kl. 20
Lau. 24/5 kl. 20
Fim. 29/5 kl. 20
ATH: SÍÐUSTU SÝNINGAR
MAÐURINN SEM HÉLT AÐ
KONAN HANS VÆRI HATTUR
eftir Peter Brook og Marie-Hélène Estienne
Fös. 23/5 kl. 20
Fös. 30/5 kl. 20
ATH: SÍÐUSTU SÝNINGAR
GESTURINN e. Eric-Emmanuel Schmitt
Sunnudaginn 1/6 kl. 20 - AUKASÝNING
ÞRIÐJA HÆÐIN
PÍKUSÖGUR eftir Eve Ensler
Sun. 25/5 kl. 20 - 120. sýning
Lau. 31/5 kl. 20
ALLRA SÍÐUSTU SÝNINGAR
LITLA SVIÐ
RÓMEÓ OG JÚLÍA e. Shakespeare
í samstarfi við VESTURPORT
Mið. 4/6 kl. 20
Fim. 5/5 kl. 20
Fös. 6/6 kl. 20
ATH: SÍÐUSTU SÝNINGAR
Miðasalan, sími 568 8000
Miðasalan er opin kl. 13-18 alla virka daga og fram að sýningu sýningardaga.
Sími miðasölu opnar kl. 10 virka daga. Fax 568 0383
midasala@borgarleikhus.is
www.borgarleikhus.is
ALLIR Í LEIKHÚSIÐ - ENGINN HEIMA!
Borgarleikhúsið er fjölskylduvænt leikhús:
Börn, 12 ára og yngri, fá frítt í leikhúsið í fylgd með forráðamönnum.
(Gildir á ÖFUGU MEGIN, PÚNTILA, SUMARÆVINTÝRI, MAÐURINN SEM).