Fréttablaðið - 22.05.2003, Side 25
Ídag eru 190 ár frá fæðinguWagners og því ákvað Sinfóníu-
hljómsveit Íslands að helga honum
tónleika sína í Háskólabíói í dag.
Fluttar verða aríur og hljómsveit-
arþættir úr nokkrum helstu ópe-
rum Wagners ásamt ljóðabálknum
Wesendonck Lieder.
„Maður verður alltaf hrifnari
og hrifnari af Wagner. Þetta er
ákveðin sýki sem maður kemst
ekki út úr,“ segir Magnea Tómas-
dóttir sópransöngkona, sem verð-
ur í einsöngshlutverkinu á tónleik-
unum í kvöld. „Þótt þetta sé kanns-
ki ekki alveg orðið að trúarbrögð-
um hjá mér þá finnst mér þetta al-
veg mögnuð tónlist. En
ég fékk þennan sýkil
í mig þegar ég fór
fyrst til Bayreuth.
Það var árið 2000.“
Magnea söng hlutverk Sentu í
Hollendingnum fljúgandi á Lista-
hátíð í fyrra. Hún hefur einnig
áður sungið Wesendonck-ljóðin, en
þá var það aðeins með píanóundir-
leik.
„Það er gaman að fá tækifæri
til að syngja þetta með svona góðri
hljómsveit.“
Hljómsveitarstjóri Sinfóníunn-
ar í kvöld er Gregor Bühl, sem ætti
að vera íslenskum Wagner-aðdá-
endum að góðu kunnur því hann
stjórnaði hér flutningi Hollend-
ingsins fljúgandi í fyrra. ■
FIMMTUDAGUR 22. maí 2003 25
Það er óhætt að segja að rokkiðmuni ríkja á Gauknum í kvöld.
Botnleðja heldur þar tónleika í til-
efni af útkomu plötunnar „Iceland
national park“. Um fimmtu plötu
strákanna er að ræða en þeir hafa
verið mjög afkastamiklir og áber-
andi í íslensku tónlistarlífi síðan
þeir báru sigur úr býtum í
Músiktilraunum árið 1995.
Hljómsveitin vakti einnig verð-
skuldaða athygli í forkeppni Evró-
visjón á dögunum þar sem hún
lenti í öðru sæti. Nýja platan er
gefin út af norsku plötufyrirtæki,
Trust Me Records, en að sögn Har-
aldar, trommuleikara sveitarinnar,
er stefnt á alþjóðlega dreifingu.
„Við getum lofað frábærum
tónleikum þar sem við komum
áhorfendum á óvart með lögum
sem þeir eiga ekki von á,“ segir
Halli og upplýsir að Móri rappari
verði sérstakur gestur á tónleikun-
um.
Tónleikarnir hefjast klukkan 22
og forsala aðgöngumiða verður í
Skífunni. ■
Botnleðja rokkar
á Gauknum
BOTNLEÐJA
Evróvisjónsveitin Botnleðja fagnar útkomu fimmtu plötu sinnar á Gauknum í kvöld.
Hljómsveitin lofar skemmtilegum tónleikum og óvæntum uppákomum.
■ TÓNLIST
■ TÓNLIST
MAGNEA
TÓMASDÓTTIR
Syngur Wagner með
Sinfóníuhljómsveit
Íslands í Há-
skólabíói í
kvöld.
Wagnerveisla
Sinfóníunnar
■ ■ TÓNLEIKAR
19.30 Sinfóníuhljómsveitin heldur
upp á að 190 ár eru frá fæðingu
Wagners og því eru tónleikar dagsins í
Háskólabíói helgaðir honum.
20.00 Söngtónleikar í Salnum
Kópavogi. Margrét Stefánsdóttir, sópr-
an, og Hrefna Eggertsdóttir, píanó,
flytja íslensk og erlend söngljóð.
20.30 Snæfellingakórinn í Reykja-
vík heldur sína árlegu vortónleika í Ými
við Skógarhlíð í Reykjavík. Undirleikari er
Lenka Máteová og stjórnandi er Friðrik
S. Kristinsson.
21.00 Hljómsveitin Ríó Tríó spilar á
Garðatorgi í Garðabæ. Að tónleikunum
standa Menningar- og safnadeild Garða-
bæjar og atvinnuþróunarnefnd Garða-
bæjar í samstarfi við Café Cristó.
21.00 „Það er komið sumar“ verð-
ur yfirskrift sumartónleika sem haldnir
verða í Austurbæ við Snorrabraut. Systk-
inin Ellen Kristjáns og KK munu koma
fram ásamt hljómsveit. Magnús Eiríks-
son og KK munu leika saman og hljóm-
sveitin Mannakorn með þá félaga
Magnús Eiríksson og Pálma Gunnarsson
innanborðs mun m.a. frumflytja nokkur
splunkuný lög.
22.00 Hljómsveitin Botnleðja held-
ur útgáfutónleika á Gauk á Stöng.
Furstarnir og Geir Ólafsson ásamt
Birni Björnssyni baritónsöngvara á
Hverfisbarnum.
■ ■ LEIKLIST
20.00 Frumsýning í Þjóðleikhúsinu á
verki Sigtryggs Magnasonar, Herjólfur er
hættur að elska. Sýningar eru í Leiksmiðju
Þjóðleikhússins við Sölvhólsgötu.
20.00 Leikfélag Reykjavíkur sýnir
Rauða spjaldið á Stóra sviðinu í Þjóð-
leikhúsinu. Verkið er eftir þau Kjartan
Ragnarsson og Sigríði Margréti Guð-
mundsdóttur.
20.00 Leikfélag Reykjavíkur sýnir
Púntila og Matti á Stóra sviði Borgar-
leikhússins.
20.00 Sýning á Sumarævintýrinu
eftir Shakespeare og leikhópinn sjálfan.
Verkið er sýnt á Nýja sviði Borgarleik-
hússins.
20.00 Nemendaleikhúsið sýnir
Tvö Hús eftir Federico Garcia Lorca. Um
er að ræða útskriftarsýningu Leiklistar-
deildar Listaháskólans í leikstjórn Kjart-
ans Ragnarssonar.
21.00 Einleikurinn Sellofon eftir
Björk Jakobsdóttur sýnt á Hótel Sel-
fossi.
■ ■ SÝNINGAR
Eggert Pétursson sýnir í galleríinu
i8 við Klapparstíg.
Útskriftarsýning myndlistar- og
hönnunarnemenda Listaháskóla Íslands
stendur nú yfir í Listasafni Reykjavíkur,
Hafnarhúsinu.
Steingrímur Eyfjörð myndlistarmað-
ur er með sýninguna „of nam hjá fið-
urfé og van“ í Gallerí Hlemmi.
Upplýsingar um viðburði og sýningar
sendist á hvar@frettabladid.is ekki
síðar en sólarhring fyrir birtingu.
Þetta var mjögáferðarfallegt
og líflegt leikhús.
Og Teddi flottur,“
segir Hilmar
Jónsson, leikari
og leikstjóri, um
leikritið Púntilla og Matti í Borgar-
leikhúsinu. „Ungu leikararnir úr
Vesturporti voru líka frábærir.“
Mittmat
✓
✓
✓
✓
Í KVÖLD Í AUSTURBÆ VIÐ SNORRABRAUT KL. 21
Forsala í Japis, Laugavegi 13
í dag og í Austurbæ frá kl. 19Í Kvöld, HÓTEL SELFOSS
föst 23. maí, kl. 21, Nasa, örfá sæti
mið 28. maí, Lokasýning í Nasa í vor
lau 31. maí ZÜRICH í SVISS; frumsýning
fim 5. júní kl. 21, SJALLINN AKUREYRI
lau 7. júní kl. 21, Félagsheimilið Blöndósi
sun 15, júní kl. 21, Hótel Borgarnes
Miðasala á Selfossi í Alvörubúðinni, Eyrarvegi 3
Heimsækið www.lancome.com
Láttu varirnar
njóta sín með geis-
landi áferð
ROUGE ATTRACTION GOLD
ENDINGARGÓÐUR VARALITUR
Rouge Attraction Gold býður upp á nýj-
an lúxus og þekur varirnar með örfínum
perlum úr gulli.11mg af hreinu gulli og
brosið verður bjart og ómótstæðilegt.
TRÚÐU Á FEGURÐ
NÝTT
N°310
Glitrandi varalitir og púður eru meðal margra spennandi nýjunga sem
LANCÔME býður upp á þetta vorið. Ýmis tilboð og glæsilegir kaupaukar.
Kynning í dag, föstudag og laugardag.
Strandgötu 32 – sími 555 2615
Andorra