Fréttablaðið - 07.07.2003, Side 1

Fréttablaðið - 07.07.2003, Side 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Suðurgötu 10, 101 Reykjavík — sími 515 7500 Tónlist 16 Leikhús 16 Myndlist 16 Bíó 18 Íþróttir 10 Sjónvarp 20 KVÖLDIÐ Í KVÖLD MÁNUDAGUR 7. júlí 2003 – 151. tölublað – 3. árgangur AFMÆLI Unglingur fram undir sextugt bls. 26 STA Ð R EY N D UM A U K I N F O R YS TA Samkvæmt fjölmiðlakönnun Gallup í júní 2003 29,1% 53,4% 65,9% FR ÉT TA B LA Ð IÐ M O R G U N B LA Ð IÐ D V Tilraunaeldhúsið í Nýlistasafninu TÓNLIST Tilraunaeldhúshópurinn stendur fyrir svokölluðu „Sælu- húsi“ í Nýlistasafninu við Vatnsstíg 1. Þeir sem koma þar fram í kvöld eru Borko, her torpedo, Ben Frost og Telco Systems. Sigurrós sýnir á Egilsstöðum MYNDLIST Sigurrós tileinkar m.a. sýningu sína þeirri uppbyggingu sem er að hefjast á Austfjörðum en myndirnar skírskota til náttúr- unnar og fólksins sem býr á lands- byggðinni. tjónabílar ● filmur ▲ SÍÐUR 14-15 bílar o.fl. Býst við að eignast Porsche eða Bens Helga Braga: myrkvunartjöld ● tágastólar ▲ SÍÐUR 12-13 Gott að vakna við götusóparann heimili o.fl. Þuríður Þórðardóttir: HVÍLD Í ÁRBÆNUM Bergur leyfði félaga sínum Ottó að sitja á bekknum þegar þeir tóku sér augnablik til að hvíla lúin bein í Árbænum í gær. Voru þeir djúpt hugsi þegar ljósmyndari smellti af þeim mynd. REYKJAVÍK Austanátt víða 5-8 m/s og skúrir. Hiti 10 til 15 stig. VEÐRIÐ Í DAG + + VINDUR ÚRKOMA HITI Ísafjörður 8-13 Skýjað 12 Akureyri 3-8 Skýjað 13 Egilsstaðir 5-8 Rigning 7 Vestmannaeyjar 8-13 Rigning 12 ➜ ➜ ➜ ➜ + + Grindavík tekur á móti ÍA FÓTBOLTI Lið Grindavíkur í Lands- bankadeild karla í knattspyrnu tek- ur á móti ÍA á Grindavíkurvelli. Leikurinn ætti að verða hörku- spennandi og hefst hann kl. 19.15. Bush heim- sækir Afríku ÚLÖND Fimm daga heimsókn Geor- ge W. Bush Bandaríkjaforseta til fimm landa Afríku hefst í dag. Bush hefur þau loforð í farteskinu að bæta hagvöxt, auka lýðræði og stöðva þjáningu manna í heimsálf- unni. Aðeins þrír aðrir Bandaríkja- forsetar hafa ferðast til landa sunnan Sahara á meðan þeir gegndu embættinu. Pólitíkusar í Afríku binda þó ekki miklar vonir við að heimsókn Bush hafi miklar breytingar í för með sér sem bæti hag hins almenna borgara í Afríku- löndunum. bls. 26 PERSÓNAN Lánaður til ráðherra bls. 6 DÓMSMÁL Hef tekið út refsingu UMFERÐARSLYS Mikið var um hraðakstur víða á landinu um helg- ina og ekki að sjá að þrjú banaslys á fjórum dögum drægju úr hraða vegfarenda. Í umdæmi lögregl- unnar í Vík í Mýrdal einu saman voru hátt í hundrað manns stöðv- aðir fyrir hraðakstur um helgina. Sá sem keyrði hraðast mældist á 192 kílómetra hraða og missti stjórn á bíl sínum. „Það eina sem ég get séð til þess að koma í veg fyrir umferðarslys er ennþá meiri áróður,“ segir Karl Ragnars, forstjóri Umferðarstofu, eftir að þrír einstaklingar létust í umferðinni á fjórum dögum. Að hans sögn hefur sýnt sig í öðrum löndum að fjöldi slysa sveiflast til nánast í hlutfalli við áróðursmagn- ið. „Ég er sannfærður um að áróð- ur skilar árangri,“ segir Karl. „Það er í sjálfu sér allt of snemmt að álykta um hverjar ástæður þess geta verið,“ segir Ágúst Mogensen, framkvæmda- stjóri Rannsóknarnefndar umferð- arslysa. Að sögn Ágústs hafa þó mun færri látist í umferðinni nú í ár en á sama tíma í fyrra, en það sem af er árinu hafa átta látist í umferðinni. Ágúst segir freistandi að þakka auknum áróðri færri umferðar- slys, en bendir þó á að sveiflur í fjölda banaslysa í umferðinni séu algengar. „Fyrstu þrjá til fjóra mánuði ársins varð ekkert banaslys í umferðinni, en síðan urðu þrjú slys núna um helgina,“ segir hann. Ágúst bendir auk þess á að aukinn umferðarþungi á þjóð- vegum landsins yfir sumartímann skili sér í fleiri umferðarslysum en yfir vetrarmánuðina. ■ LÖGREGLUMÁL Lögreglan í Reykja- vík rær öllum árum að því að finna sprengiefni sem stolið var úr geymslu nærri Rauðavatni aðfar- anótt föstudags. Þjófar leika nú lausum hala með 245 kíló af dínamíti og öðru sprengiefni sem stolið var úr afgirtri og ramm- gerðri geymslu á Hólmsheiði í þaulskipulögðu innbroti. Engar vísbendingar hafa borist um stað- setningu sprengiefnisins. „Það er ómögulegt að átta sig á því hver ætlun manna er með sprengiefninu. Þetta er stór spurn- ing og við vinnum hörðum höndum að því að finna sprengiefnið og koma því aftur í hús,“ segir Hallur Hilmarsson, vaktstjóri hjá lögregl- unni í Reykjavík. Benedikt Einar Gunnarsson, framkvæmdastjóri Ólafs Gíslason- ar & co, sem flytur inn sprengiefn- ið, segist vera uggandi yfir stuldin- um. „Ég get ekki nefnt það sem hefur flogið í hugann á mér um til- gang þess að stela sprengiefninu. Ég vona innilega að þetta hafi ver- ið gert í einhverjum stundarspenn- ingi.“ Að sögn Benedikts er sprengi- krafturinn gífurlegur. „Efnið veld- ur miklum usla ef það er sprengt óheft. Það er hugsað til að fara ofan í borholur til að sprengja burt jarðveg eða berg. Sprengiefnið er til dæmis notað við jarðgangna- gerð, virkjanaframkvæmdir og við að sprengja burt húsgrunna.“ Sprengiefnið kostar um tvö til fjögur hundruð krónur kílóið og er verðmæti ránsfengsins á bilinu 50 til 100 þúsund krónur. Samkvæmt upplýsingum lögreglu er líklegt að erfitt sé að koma efninu í sölu á svörtum markaði og eykur það enn á furðu manna á jafn skipulögðum og umfangsmiklum þjófnaði á efn- inu. Í 40 ára sögu Ólafs Gíslasonar & co hefur aldrei áður tekist að brjótast þar inn, þrátt fyrir nokkr- ar tilraunir. „Þetta var ekki rétti hluturinn til að stela. Það er heit ósk mín að þjófarnir skili þessu aftur, sjálfra sín vegna og okkar allra,“ segir Benedikt. Samkvæmt reglugerð dóms- málaráðuneytisins er skylda að fara á námskeið hjá Vinnueftirlit- inu til að meðhöndla sprengiefni. Þeir sem kaupa sprengiefni þurfa að sækja um leyfi hjá lögreglu- stjóra eða sýslumanni og eru öll kaup á efnunum skráð eftir magni og geymslustað. Ótti vegna stolna sprengiefnisins Þeir sem stálu sprengiefni úr geymslu nærri Rauðavatni fyrir helgi ganga enn lausir. Engar vísbendingar eru um hver hafi stolið efninu og alls óvitað hver tilgangurinn er. RAMMGERÐ GEYMSLA Margar tilraunir hafa verið gerðar til inn- brots í sprengiefnageymslu fyrirtækisins Ólafs Gíslasonar & co. en aldrei tekist fyrr en aðfararnótt föstudags. Leit að stolnum 245 kílóum af sprengiefni er efst á for- gangslista Lögreglunnar í Reykjavík. jtr@frettabladid.is nánar bls. 4 Mikið um hraðakstur um helgina þrátt fyrir þrjú banaslys í umferðinni: Enn meiri áróður brýnn FR ÉT TA B LA Ð IÐ /I R A Ísraelsstjórn: Föngum sleppt ÍSRAEL, AP Ísraelska ríkisstjórnin samþykkti í gær að sleppa hópum palestínskra fanga, með því skil- yrði að stjórn Palestínu fari í her- ferð gegn hryðjuverkahópum. Ariel Sharon, forsætisráðherra Ísraels, sagði frelsun fanganna koma til með að treysta palest- ínska forsætisráðherrann, Ma- hmoud Abbas, í leiðtogahlutverk- inu. Palestínumenn vilja að fleiri verði frelsaðir. Þúsund dagar eru síðan ofbeld- isaldan milli Palestínumanna og Ísraelsmanna reis á ný. Er frelsun fanganna talin fyrsta skrefið að umfangsmeiri frelsun á 5.000 palestínskum föngum. ■

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.