Fréttablaðið - 07.07.2003, Side 4

Fréttablaðið - 07.07.2003, Side 4
4 7. júlí 2003 MÁNUDAGUR Hvað fannst þér um það þegar Berlusconi líkti þýskum jafnaðar- manni við nasistaforingja? Spurning dagsins í dag: Hefurðu áhyggjur af sprengiefnunum sem var stolið? Niðurstöður gærdagsins á www.frett.is 21,6% 55,4% Stríðni 23%Réttmæt gagnrýni Gróf móðgun Kjörkassinn Farðu inn á frett.is og segðu þína skoðun frétt.is UMHVERFISMÁL „Við höfum aldrei áður gert svona heildstæða áætl- un,“ segir Siv Friðleifsdóttir um- hverfisráðherra nýkomin úr sex daga ferð þar sem hún fór ásamt samstarfsfólki sínu í umhverfis- ráðuneytinu um 30 af 77 svæðum sem til stendur að vernda eða friða á næstu árum. „Við erum svo heppin að búa hér í stóru landi, lítt snortnu, sem býr yfir stórkostlegri nátt- úrufegurð og mjög miklum andstæðum og f r u m k r ö f t u m sem hafa mótað lönd um allan heim í gegnum söguna,“ segir Siv og ítrekar mikilvægi áætl- unarinnar um friðun og vernd svæða. „Alla vega hef ég ekki hitt nokkurn á mín- um vegi sem hefur bent mér á annað land sem býr yfir þessum fjölbreytileika í náttúrunni.“ Siv gerir ráð fyrir að Alþingi samþykki drögin að náttúru- verndaráætlun næsta vetur sem stefnumótun um hvaða svæði eigi að vernda. „Þá er eftir mjög mikil vinna. Þá verðum við að skoða hvert einstakt svæði með landeigendum og sveitarfélög- um. Ákveða í samstarfi við þá að- ila hvaða vernd og reglur eigi að gilda á svæðinu. Ég finn að mis- skilnings gætir hjá sumum. Þeir halda að í vetur verði þessu svæði öll friðuð og enginn hafi neitt um það að segja. Það er alls ekki svo. Það hefur aldrei neitt svæði á Íslandi verið verndað nema í samkomulagi við landeig- endur og sveitarfélög. Það er talsverð vinna eftir.“ „Hins vegar finnst mér al- mennt vera vel tekið í þessa áætlun þegar við höfum útskýrt þetta fyrir fólki sem við höfum hitt á síðustu dögum, sem er fjöl- margt, bæði sveitarstjórnar- menn og landeigendur. Fólk er mjög opið fyrir þessu. Það sér mikil tækifæri í vernduninni. Heimamenn skynja margir hverjir mjög sterkt hvað þeir búa í mikilvægu og stórfenglegu umhverfi sem þeir vilja vernda. Margir sjá tækifæri bæði fyrir náttúruvernd og ferðaþjónustu.“ Siv leggur áherslu á að svæð- in séu ekki ákveðin af handahófi heldur út frá ákveðnum viðmið- um. „Eins og því hvaða gildi svæðin hafa alþjóðlega, hvaða gildi þau hafa á landsvísu, hvaða plöntur eru þarna, hvers konar dýralíf, hvernig lífríkið er á svæðinu og landslag.“ brynjolfur@frettabladid.is Mesta átak í vernd svæða Siv Friðleifsdóttir fór á sex dögum um 30 svæði víða um land sem til stendur að vernda eða friða á næstu árum. Hún segir enn mikið verk óunnið, það verði gert í samræmi við heimamenn á hverjum stað. OFAN VÖÐLAVÍKUR Drögin að náttúruverndaráætlun voru dregin upp, einu sinni sem oftar, fyrir ofan Vöðlavík fyrir austan. Myndin er tekin af vef umhverfisráðherra, siv.is, þar sem er að finna ferðalýs- ingu og mikið magn mynda. „Heima- menn skynja margir hverjir mjög sterkt hvað þeir búa í mikilvægu og stórfeng- legu umhverfi sem þeir vilja vernda. M YN D /S IV .IS VIÐSKIPTI „Ég vona að það skýrist alveg á næstu dögum hverjar lyktir verða, en það er ómögulegt að segja á þessari stundu hvernig það fer,“ segir Ólafur Davíðsson, formaður einkavæðingarnefndar, um söluna á Sementsverksmiðj- unni á Akranesi. Að hans sögn er ekkert sérstaklega hægt að segja um málið á þessari stundu, en við- ræðum verður fram haldið í dag. Samningaviðræður um sölu Sementsverksmiðjunnar hafa staðið yfir um nokkurt skeið. Rík- ið á 100% hlut í verksmiðjunni og sér einkavæðingarnefnd um söl- una fyrir hönd ríkisins, en í hópn- um sem ákveðið var að ganga til samninga við eru Framtak fjár- festingabanki hf., norska sem- entsverksmiðjan Norcem, Björg- un ehf. og BM Vallá hf. „Það er búið að liggja fyrir í nokkurn tíma að reyna að fara þessa leið og menn sjá enga betri,“ segir Gísli Gíslason, bæj- arstjóri Akraness. „Að svo stöddu eru menn mjög sáttir við þær við- ræður sem eru í gangi, en vonast til þess að þeim verði lokið sem fyrst.“ Að sögn Gísla skiptir sköp- um fyrir byggðarlagið að hafa verksmiðjuna þar áfram. „Ég vona að þetta gangi upp og verði farsælt,“ segir hann. „Við höfum verk að vinna.“ ■ Viðræður um sölu Sementsverksmiðju ríkisins standa yfir: Skiptir sköpum fyrir bæjarfélagið SEMENTSVERKSMIÐJAN Á AKRANESI Viðræður um sölu á Sementsverksmiðj- unni standa nú yfir. Einkavæðingarefnd sér um söluna fyrir hönd ríkisins. Samkynhneigður prestur: Þiggur ekki biskupsstól LONDON, AP Samkynhneigður prest- ur hefur ákveðið að taka ekki við biskupsembætti sem hann hafði verið ráðinn til í Reading á Englandi. Í kjölfar ráðningar prestsins skrifuðu nokkrir bisk- upar víðsvegar um heiminn bréf til biskupsins í Oxford, sem stóð að ráðningunni, þar sem henni var mótmælt vegna þess að hún bryti í bága við siðareglur kirkjunnar. Presturinn segist kvíða því að ráðning hans valdi sundrung innan kirkjunnar. Hann hefur átt í lang- tímasambandi við annan mann en hefur þó fullyrt að hafa lifað skírlífi síðasta áratuginn. ■ Mannskæð flóð í kína: 160 látnir KÍNA, AP Miklar rigningar og flóð hafa verið í austurhluta Kína síð- ustu daga með þeim afleiðinum að 160 manns hafa látið lífið. Allt of mikið vatn er nú í stöðuvatni sem tengist Yangtze-ánni. Spáð er rigningu á næstu dögum og þykir mikil hætta á að stöðuvatnið, Dongting, flæði yfir bakka sína með skelfilegum afleiðingum. Flæði Dongting yfir bakka sína eru 667 þúsund hektarar af rækt- arlandi í Hunan-héraði í bráðri hættu en á svæðinu búa um tíu milljónir manna. ■ INDVERSKAR SKÓLASTÚLKUR Víða á Indlandi er litið á dætur sem þunga byrði þar sem greiða þarf með þeim talsverðan heimanmund. Örvæntingarfull móðir: Myrti fjórar dætur sínar INDLAND, AP Indversk kona sem ekki gat sætt sig við það að hafa aldrei eignast son eitraði fyrir dætrum sínum fjórum og stytti sér því næst aldur. Malati Mahato fór með dæturn- ar fjórar, á aldrinum tveggja til átta ára, út fyrir þorpið þar sem þær bjuggu og gaf þeim eitraða sælgætismola. Þegar hún hafði fullvissað sig um að þær væru látnar hengdi hún sig í tré skammt frá. Að sögn þorpsbúa var Mahato ítrekað misþyrmt af eiginmanni sínum og foreldrum hans sem álös- uðu hana fyrir að hafa aðeins fætt stúlkubörn í heiminn. Eiginmaður hennar og tengdafaðir hafa verið handteknir vegna málsins. ■ Björn Bjarnason: Tæknin tryggi öryggið SPRENGIEFNASTULDUR Björn Bjarnason dómsmálaráðherra hyggst fara yfir reglugerð um geymslu sprengiefna í dag með embættismönn- um í ráðuneytinu í kjölfar þess að 245 kílóum af sprengiefni var stolið úr geymslu f y r i r t æ k i s i n s Ólafs Gíslasonar & co. „Ég mun fjalla um þær reglur sem við höfum sett og eigum að setja til að tryggja að þetta endurtaki sig ekki. Það þarf að nota nýj- ustu tækni til að tryggja að alls öryggis sé gætt.“ ■ Vinnuslys í Tívolíinu: Varð fyrir leiktæki SLYS Sextán ára starfsmaður Tívolísins við Smáralind slasað- ist þegar hann varð fyrir einu leiktækjanna um miðjan dag í gær. Pilturinn gekk inn á örygg- issvæði tækisins og slóst það í höfuð hans þannig að hann hlaut áverka. Lögreglan skoðaði tækið og reyndist ekkert vera að öryggis- búnaði þess. Samkvæmt lögregl- unni í Kópavogi verða starfs- menn við slík tæki að vera orðn- ir 18 ára. Lögreglan ávítaði um- sjónamenn Tívolísins vegna þessa. Líðan piltsins er eftir at- vikum góð. Hann er ekki lífs- hættulega slasaður en verður áfram inni á eftirlitsdeild spítal- ans. ■ Rostungur ástarinnar látinn eftir nokkurra mánaða sjúkralegu: Lést eftir löng veikindi TÓNLIST Soul-söngvarinn Barry White lést á föstudagsmorgun á spítala í Los Angeles. Hann var 58 ára gamall og hafði verið rúmliggj- andi í nokkra mánuði vegna veik- inda sinna. Hann gekkst nýlega undir himnuskiljunaraðgerð. Hann hafði einnig beðið eftir nýju nýra frá því í september. White var alla tíð með óvenju háan blóðþrýsting og hafði það eyðilagt nýru hans. Í maí, á meðan hann beið eftir nýr- anu, fékk hann svo hjartaslag. Rödd White var mjög djúp og náði hann að skapa sér sérstöðu út á hana. Hann söng oftast rómantísk og róleg lög og öðlaðist þannig nokkur viðurnefni á borð við „rost- ungur ástarinnar“. Frægðarsól White reis hæst á áttunda áratuginum þegar hann söng lög á borð við „You’re My First, My Last, My Everything“ og „Can’t Get Enought Of Your Love, Babe“. Á síðasta áratug jókst áhuginn á soul-tónlist á nýjan leik og fóru lög White að heyrast í kvikmyndum. Honum var svo boðið gestahlut- verk í The Simpsons og Ally McBeal. ■ BARRY WHITE White verður minnst sem brautryðjanda á meðal svartra tónlistarmanna í Bandaríkjunum og var verðlaunaður sem slíkur á Soul Train Music verðlaununum árið 1994. Myndin var tekin við það tilefni. BJÖRN BJARNASON Tryggja verður að öryggis sé gætt.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.