Fréttablaðið - 07.07.2003, Page 6
7. júlí 2003 MÁNUDAGUR
■ Lögreglufréttir
■ Leiðrétting
vetraráætlun
N‡
til
Ali
cante
me›
Icelandair
í allan
vetur
Hlí›asmára 15 • Sími 535 2100
Fyrstir koma
- fyrstir fá!
22. október,
5. nóvember,
19. nóvember,
3. desember,
18. desember
og 5. janúar.
Kynningarver›
á fyrstu 200 sætunum
14.900 kr.
Flug aðra leið með flugvallarsköttum.
Vegna gífurlegrar
eftirspurnar höfum vi›
fengi› örfá vi›bótarsæti á
eftirfarandi dagsetningar:
25. júní 10 sæti - 9. júlí 8 sæti
23. júlí 15 sæti – 13. ágúst
10 sæti. – 27. ágúst – 10. sæti.
3., 10., 17. og 24. september
40 sæti.
Ver› frá
Ver› frá
27.930 kr.
Flug fram og til baka
með flugvallarsköttum.
Beint
leiguflug
fyrir
sumarhúsa-
eigendur
og a›ra
farflega
til Spánar!
Hnífsstungumálið í
Hafnarstræti:
Framsali
hafnað
FRAMSAL Beiðni yfirvalda bandaríska
varnarliðsins um framsal varnar-
liðsmannsins sem stakk annan mann
í Hafnarstræti hefur verið hafnað.
Maðurinn situr í gæsluvarðhaldi
til níunda þessa mánaðar. Að öllu
óbreyttu mun málið fara fyrir dóm
hér á landi líkt og önnur sakamál.
Áður hefur komið fram að ríkissak-
sóknari hafi ekki séð ástæðu þess
að framselja manninn þar sem
fórnarlambið og flest vitni séu ís-
lensk. Varnarliðið hefur sjaldnast
farið fram á framsal. Síðast er
dæmi um að það hafi verið reynt
1989 og var þeirri beiðni hafnað. ■
Álit Umhverfisstofnunar á framkvæmdum við Þjórsárver:
Landsvirkjun uppfylli ákveðin skilyrði
DÓMUR „Ég vil áfrýja og vera sýkn-
aður af öllu,“ segir Pétur Þór
Gunnarsson, annar ákærðu í mál-
verkafölsunarmálinu. Pétur var
sýknaður af stórum hluta ákæru-
liðanna en sakfelldur fyrir fjóra.
Hann var dæmdur í sex mánaða
fangelsi, skilorðsbundið til tveggja
ára.
Pétur Þór segist ekki vera búinn
að lesa gaumgæfilega í gegnum all-
an dóminn. En eftir að hafa lesið
yfir röksemdafærsluna fyrir sak-
fellingunni í þessum fjórum tilvik-
um finnst honum hún nokkuð loðin
og léttvæg. „Ég vil áfrýja en ég
legg ákvörðunina algjörlega í
hendurnar á Sigríði Rut, lögmanni
mínum, enda hefur hún staðið sig
frábærlega.“
Málsvarnarlaun Sigríðar Rutar
Júlíusdóttur voru 2,6 milljónir sem
eru þau hæstu eða með þeim hæstu
sem verið hafa hér á landi.
Pétur segist ekki vera hræddur
um að Hæstiréttur þyngi dóminn.
Þó hafi hann séð margt í dómskerf-
inu, Hæstiréttur hafi snúið dómum
Héraðsdóms alveg við.
„Ég get alveg skilið að það fólk
sem hæst lét á meðan málið var í
gangi sé ekki ánægt. Tryggvi Páll í
Fold og fleiri, sem hafa farið offari
í blöðum og sjónvarpi og sagt að
fölsunarmálið hafi eyðilagt mark-
aðinn. Það var búið að dæma mann
í rafmagnsstólinn löngu áður en
málið fór fyrir dóm. Fólk áttar sig
ekki alltaf á að það geti verið að
gera eitthvað rangt þegar illa geng-
ur í rekstrinum, heldur þarf alltaf
að finna einhvern sökudólg.“ Pétur
segir að auðvitað hafi fölsunarmál-
ið haft einhver áhrif á málverka-
markaðinn en vill benda á að málið
hafi farið af stað í mars 1997 með
mikilli fjölmiðlaathygli. Tæpu ári
síðar hafi hann haldið málverka-
uppboð sem hafi verið það besta í
sögu Gallerís Borgar.
„Ef ég hefði haft sama aðgang
að fjármagni og ríkislögreglustjóri
hefði ég getað fundið erlenda sér-
fræðinga sem hefðu komist að allt
annarri niðurstöðu um þessi mál-
verk.“ Hann nefnir sem dæmi að í
mörg ár hafi verið rifist um hvort
sum verk eftir Van Gogh væru föl-
suð eða ekki. „Það eru tvær hliðar á
öllum málum.“
Pétur segir það sýna frábæra
vinnu Sigríðar Rutar að hafa getað
sýnt fram á það gagnstæða eftir
allan þann her sem ríkislögreglu-
stjóri leiddi fram og kostaði tugi
milljóna. „Ég lít ekki á mig sem
sigurvegara í þessu máli, það er
enginn í máli sem er búið að ganga
í sjö ár. Ef það er sigurvegari þá er
það Sigríður Rut. Hún var 27 ára
þegar hún tók málið að sér, lítt
reynd og óþekktur lögmaður.
Kollegar hennar í lögmannastétt-
inni sögðu að hún yrði tekin í bak-
aríið. En að sjá hvernig hún tók á
þessu máli í vörninni, alveg ótrú-
legt að fylgjast með henni. Hún
fékk tækifæri og er sannarlega
búin að nýta það.“
Hann segir að þótt hann yrði
fundinn sekur um alla ákæruliði,
liti hann þannig á að hann væri fyr-
ir löngu búinn að taka út sína refs-
ingu. Hann sé að verða ónæmur
fyrir fjölmiðlafárinu í kringum
þetta, þótt það snerti sig og fjöl-
skylduna alltaf. Að hafa verið í
stöðu sakbornings í fimm ár sé
meira en að segja það. Hann, mað-
ur á miðjum aldri, fari ekki út að
sækja um vinnu. Hann segist vera
sakborningur í opinberu sakamáli,
verði kannski ákærður eftir eitt til
þrjú ár eða guð megi vita hvenær.
„Ég sat á Kvíabryggju í sex mánuði
en það er hátíð miðað við alla óviss-
una. Að vera dæmdur úr leik í þjóð-
félaginu en vera samt þátttakandi í
því,“ segir Pétur.
hrs@frettabladid.is
NORÐLINGAÖLDUVEITA Að mati Um-
hverfisstofnunar hafa fyrirhugaðar
framkvæmdir Landsvirkjunar við
Þjórsárver, eins og þær hafa verið
kynntar stofnuninni, ekki langtíma-
áhrif inni í friðlandinu í Þjórsárver-
um og skapa því ekki hættu á því að
friðlandinu verði spillt, uppfylli
Landsvirkjun nokkur skilyrði sem
stofnunin hefur sett.
„Áhrif af stíflu við Norðlinga-
ölduveitu eru mjög lítil inni í
friðlandinu,“ segir Davíð Egilsson,
forstjóri Umhverfisstofnunar.
Davíð segir Umhverfisstofnun
leggja mikla áherslu á að lónshæð
við Norðlingaölduveitu að sumar-
lagi fari ekki yfir 566 metra yfir
sjávarmáli, meðan aur er hvað
mestur í ánni, til þess að langvar-
andi uppsöfnun aurs eigi sér ekki
stað á sléttlendinu fyrir neðan
friðlandið. Stofnunin sér þó ekkert
því til fyrirstöðu að lónshæð sé
nokkuð hærri yfir vetrartímann.
Að sögn Davíðs þarf Umhverfis-
stofnun að veita leyfi fyrir mann-
virkjunum ef þau hafa áhrif inni í
friðlandinu. Stofnunin þurfi því
ekki að veita fyrirhuguðum fram-
kvæmdum Landsvirkjunar leyfi
sitt, uppfylli Landsvirkjun þau
skilyrði sem Umhverfisstofnun
setur. ■
ÚTSÝNI VIÐ ÞJÓRSÁRVER
Umhverfisstofnun telur ekki að fram-
kvæmdir Landsvirkjunar hafi áhrif inni í
friðlandinu í Þjórsárverum.
SIGRÍÐUR RUT JÚLÍUSDÓTTIR,
LÖGMAÐUR
Málsvarnarlaun Sigríðar Rutar eru með
þeim hæstu sem dæmd hafa verið, ef ekki
þau hæstu.
Hef verið fimm ár í
stöðu sakbornings
Pétur Þór Gunnarsson vill áfrýja en lætur lögmanni sínum eftir ákvörðunina. Hann segir að ef
hann hefði verið dæmdur sekur væri hann þegar búinn að taka út sína refsingu. Að vera sak-
borningur í opinberu máli í fimm ár sé meira en að segja það.
PÉTUR ÞÓR GUNNARSSON
Pétur segist ekki hræddur um að Hæstiréttur þyngi dóminn fari málið lengra.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M
Upplýsingar um kostnað í kosningabaráttu:
Samfylking segir frá,
Framsókn óákveðin
STJÓRNMÁL Ekki hefur verið tekin
ákvörðun um það hvort kostnaður
við kosningabaráttu Framsóknar-
flokks verði gefinn upp. „Ég er
ekki búinn að fá línuna frá fram-
kvæmdastjórn um hvort þetta
verði gefið upp,“ segir Sigurður
Eyþórsson, framkvæmdastjóri
flokksins. Uppgjöri vegna kosn-
ingabaráttunnar er ekki lokið. Sig-
urður segir að það verði varla til-
búið fyrr en í lok ágúst.
Karl Th. Birgisson, fram-
kvæmdastjóri Samfylkingar, seg-
ir að verið sé að fara yfir reikn-
inga og ganga frá uppgjöri kosn-
ingabaráttunnar. Þeir reikningar
verði kynntir með öðru bókhaldi
Samfylkingar á landsfundi í
haust og þar komi kostnaður við
kosningabaráttuna fram. „Þar
verður gerð grein fyrir öllum
framlögum í samræmi við þær
tillögur sem við höfum flutt á
þingi,“ segir Karl og vísar til
þess að leggi einstakir aðilar
fram meira en hálfa milljón í
flokkssjóði verði þeir nafn-
greindir.
Ekki náðist í Kjartan Gunnars-
son, framkvæmdastjóra Sjálf-
stæðisflokksins, þrátt fyrir ítrek-
aðar tilraunir. ■
MINNIHÁTTAR BRUNI Í FELLA-
HVERFI Lögreglunni var tilkynnt
um bruna í íbúð í Fellahverfi um
klukkan átta á laugardagskvöldið.
Bruninn reyndist minniháttar en
mikill reykur kom frá íbúðinni.
Einn maður var fluttur á sjúkra-
deild, hugsanlega með reykeitr-
un.
BÍLVELTA Á SNÆFELLSVEGI Bíll
valt á Snæfellsvegi, við mót
Skógarnesvegar, um klukkan tvö
á aðfaranótt laugardags. Þrír far-
þegar voru í bílnum og úlnliðs-
brotnaði einn þeirra. Aðrir
sluppu með skrámur.
Fyrir mistök við vinnslu laug-ardagsblaðs Fréttablaðsins
var síða sex úr föstudagsblaðinu
prentuð aftur í stað nýs efnis
sem átti að birtast. Beðist er vel-
virðingar á þessu.
ÚR KOSNINGABARÁTTU FRAMSÓKNAR
Ekki hefur verið tekin ákvörðun um hvort kostnaður kosningabaráttunnar verði gerður op-
inber. Vinstri-grænir og Frjálslyndir hafa þegar opinberað sínar tölur.