Fréttablaðið - 07.07.2003, Síða 7
7MÁNUDAGUR 7. júlí 2003
Nýjung á tryggingamarkaði!
15% aukalega
í peningum!
Breyttu kaskótryggingunni í Ný-kaskó
og þú færð 15% af viðgerðar-
kostnaðinum greidd út í peningum
ef bíllinn þarf að fara á verkstæði vegna tjóns.
Kynntu þér málið á www.sjova.is
eða hafðu samband í síma 569 2500.
FORNLEIFAUPPGRÖFTUR
Aldrei hafa jafn margar fornleifarannsókn-
ir verið í gangi á jafn skömmum tíma og
nú í ár.
Fornleifarannsóknir:
Mikil gróska
FORNLEIFAR Fornleifavernd ríkisins
hefur veitt 28 leyfi til fornleifa-
rannsókna það sem af er árinu og
hafa aldrei jafn margar rannsókn-
ir verið í gangi á svo skömmum
tíma. Að sögn Kristínar Huldar
Sigurðardóttur, forstöðumanns
Fornleifaverndar ríkisins, er
ástæðan fyrir svo mörgum rann-
sóknum nú að fjármagni úr fjölda
sjóða hefur verið veitt til forn-
leifarannsókna.
Kristín vekur sérstaklega at-
hygli á þremur rannsóknum á
Vestfjörðum, en að hennar sögn
hefur til þessa ekki verið lögð
mikil áhersla á fornleifarann-
sóknir þar. ■
HÓTEL Í AÐALSTRÆTI
Áætlað er að hótelið verði tekið í notkun í
mars 2005, en að byggingunni standa
Reykjavíkurborg, Minjavernd og Innrétting-
arnar.
Hótel í Aðalstræti:
Byrjað í
haust
SKIPULAGSMÁL Skipulags- og bygg-
ingarnefnd Reykjavíkur hefur
samþykkt byggingu hótels á horni
Aðalstrætis og Túngötu. Reykja-
víkurborg stendur að bygging-
unni og varðveislu fornminja sem
fundust á lóðinni í samráði við
Minjavernd og Innréttingarnar.
Innréttingarnar hyggjast reisa og
reka hótelið eftir að byggður hef-
ur verið kjallari utan um forn-
minjarnar á vegum Reykjavíkur-
borgar.
Að sögn Steinunnar Valdísar
Óskarsdóttur, formanns skipu-
lags- og byggingarnefndar, verð-
ur bygging kjallarans undir hótel-
inu boðin út í dag og fara fram-
kvæmdir af stað með haustinu.
Áætlað er að þeim hluta fram-
kvæmdanna verði lokið 1. desem-
ber og í kjölfarið hefst bygging
Innréttinganna á hótelinu, sem
áætlað er að taki til starfa í mars
árið 2005. ■
Árangursstjórnun:
Skammt á
veg komin
STJÓRNSÝSLA Innleiðing árangurs-
stjórnunar í stjórnsýslu ríkisins er
skammt á veg komin. Þetta kemur
fram í skýrslu Ríkisendurskoðunar.
Af 212 stofnunum sem þóttu tækar
til að gera árangursstjórnunar-
samninga hafa 114 gengið frá slík-
um samningum. Af þeim hafa 37%
gert langtímaáætlun, 28% sett sér
tímasett markmið og einungis fjórð-
ungur sett sér mælanleg markmið.
Helstu ástæður þess hve hægt
hefur gengið eru sagðar skortur á
langtímastefnu ráðuneyta og að
ekki sé nægilega vel gengið úr
skugga um að árangursstjórn henti
öllum ríkisstofnunum jafn vel. ■
Ráðningaráform:
Fleiri vilja
ráða fólk
ATVINNA Tíunda hvert fyrirtæki inn-
an Samtaka atvinnulífsins hyggst
fækka starfsfólki samkvæmt könn-
un SA um ráðningaáform fyrir-
tækja. Það er rúmlega helmingi
minna en í desember síðastliðnum
þegar 21% fyrirtækja hugðist
fækka starfsfólki. Samkvæmt könn-
uninni hyggjast 13% fyrirtækja inn-
an SA fjölga starfsfólki, nær helm-
ingi fleiri en í desember.
Engra breytinga á starfsmanna-
fjölda er að vænta hjá nærri 80%
fyrirtækja innan Samtaka atvinnu-
lífsins. Þar meta menn stöðuna sem
svo að jafnvægi hafi náðst eftir
miklar uppsagnir. ■
Formaður og varaformaður LR segja af sér:
Ljósvetningagoði í Leikfélagið
LEIKFÉLAG Ellert A. Ingimundarson
hefur tekið við formennsku í Leik-
félagi Reykjavíkur. Hann hefur
haldið sig til hlés í harðvítugum
deilum félagsmanna undanfarna
mánuði og er þess vegna treyst til
að ná hlutlausri sátt um framtíð fé-
lagsins. Innan leikfélagsins er hon-
um líkt við Þorgeir Ljósvetninga-
goða, sem sætti heiðna menn og
kristna fyrir þúsund árum og forð-
aði landsmönnum frá klofningi.
Jóhann G. Jóhannsson, formaður
Leikfélags Reykjavíkur, og Sigurð-
ur Karlsson varaformaður sögðu af
sér á stjórnarfundi í síðustu viku í
von um að koma á sátt innan félags-
ins. Sigurður kom að máli við Jó-
hann og bauð honum uppsögn sína
ef hann fylgdi með. Þeir hafa und-
anfarið deilt um framtíð félagsins,
og verið hvor í sinni fylkingunni í
deilunni um breytingar á samþykkt
félagsins.
Stjórn félagsins og leikhússtjóri
vilja breyta reglum félagsins í þá
átt að aðild verði opnuð öðrum en
starfsmönnum og jafnframt verði
starfsmönnum meinuð seta í stjórn.
Sigurður Karlsson hefur farið
fremst í flokki þeirra rótgrónu fé-
lagsmanna sem andmæla breyting-
unum og hlutu þeir nýverið liðsinni
heiðursfélaga, þar á meðal Vigdísar
Finnbogadóttur, fyrrum leikhús-
stjóra og forseta Íslands. ■
SIGURÐUR KARLSSON
Sagði af sér sem varaformaður
Leikfélags Reykjavíkur í þeim tilgangi að
fá formanninn með sér á brott og koma
hlutlausum aðila að.