Fréttablaðið - 07.07.2003, Qupperneq 12
Miðsumarsnætur á Íslandi hafareynst mörgum erfiðar. Mörgum
finnst erfitt að leggjast til svefns í sól-
skini, ekki síst útlendingum sem hér
dvelja.
Við því er það einfalda ráð að
byrgja gluggana en margir virðast
hafa hugað að því í sumar. Anna Hall-
dórsdóttir í Z-brautum og gluggatjöld-
um segir að þar séu til myrkvunartjöld
í mörgum litum. Þau er hægt að fá eft-
ir máli og segir Anna þau ekki dýr.
„Þau einangra alveg birtuna úti og hafa
selst mjög mikið í sumar,“ segir hún.
Anna bendir á að það sé alls ekki bund-
ið við sumarið að nota þessi tjöld því
þau einangri einnig frá kulda.
Ikea gaf þær upplýsingar að þar
væru til tjöld sem byrgðu myrkur allt
frá innan við einn metra að breidd upp
í tvo metra en stærðin hleypur á 20 cm.
Þau eru til í þremur ljósum litum. ■
heimili o.fl.
V i k u l e g u r b l a ð a u k i F r é t t a b l a ð s i n s u m h ú s o g g a r ð a
Ritstjórn: sími 515 7500 – netfang: heimili@frettabladid.is. Auglýsingar: sími 515 7500 – netfang: auglysingar@frettabladid.is. Þjónustuauglýsingar: Gula línan, sími 580 8090 – netfang: auglysingar@gulalinan.is.
Miðsumarsnæturnar mörgum erfiðar:
Mikil eftirspurn eftir
myrkvunartjöldum
Þuríður Þórðardóttir er antiksafnariog kann því vel að hafa notalegt í
kringum sig. Hún rekur lítið gistihús
við Skólabrú í hjarta Reykjavíkur og
býr einnig í húsinu.
Svefnherbergið hennar er á efri
hæð hússins, lítið og mjög aðlaðandi.
„Ég var ung þegar ég fór að safna að
mér antik þótt ég hefði ekkert pláss
fyrir allt það sem ég sankaði að mér.
Nú kemur það sér vel því húsið við
Skólabrú býður svo sannarlega upp á
þá muni núna,“ segir Þuríður.
Í loftinu eru fallegir bitar sem
setja mikinn svip á herbergið. Rúmið
er frá 1860 og er stórt og mikið en það
keypti hún í Englandi og flutti með sér
heim. Dýnuna fékk hún hérna heima
og þurfti miklar tilfæringar við að
koma henni inn í herbergið. Gólfið er
með upphaflegaum gólfborðum sem
unnar hafa verið upp og pússaðar.
„Það er yndislegt að vakna hérna á
morgnanna við götusóparann, klukk-
urnar í Dómkirkjunni og þau hljóð
sem minna á nýjan dag. Helst vil ég
ekkert fara frammúr, það er svo un-
aðslegt að liggja svona í rúminu og
fylgjast með hvernig borgin vaknar
eftir nætursvefninn.“
Rúmteppið keypti Þuríður í Portú-
gal fyrir nokkrum árum og alla púð-
ana sem eru á rúminu hefur hún feng-
ið héðan og þaðan. „Ég er eldsnögg að
búa um með öllum púðunum. Það
kemst upp í vana,“ segir hún.
Maríustyttuna í glugganum keypti
hún á Ítalíu og dröslaðist með heim
eins og svo marga aðra hluti sem hún
hefur fundið í útlöndum og ekki stað-
ist. „Mér líður vel með hana þarna
fyrir ofan mig,“ segir hún.
Hún segir húsið hafa góða sál og
gott að búa í því enda orðið tæplega
hundrað ára og þar hafi margir átt
heima fyrir. „Það hafa án efa verið góð-
ar manneskjur því ég finn ekkert nema
góðan anda hér,“ segir Þuríður. ■
Gott að vakna við
götusóparann
GISTIHEIMILIÐ SKÓLABRÚ
Ólafur Þorsteinsson læknir byggði húsið árið
1912 í kálgarði Lækjarkots, heimili foreldra
sinna. Húsið teiknaði Rögnvaldur Ólafsson
arkitekt.
EITT HERBERGJA GISTIHEIMILISINS
Skólabrú er mjög fallegt og hlýlegt gistiheimili. Í
öllum herbergjum eru antikhúsgögn sem
Þuríður hefur keypt héðan og þaðan.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M
Þuríður Þórðardóttir býr í hjarta bæjarins. Hún á fallegt svefnherbergi undir súð og sefur
í tæplega hundrað ára gömlu rúmi.
ÞURÍÐUR ÞÓRÐARDÓTTIR
Hún hefur mikið dálæti á
antikmunum og hefur innrétt-
að svefnherbergi sitt mjög
notalega og skemmtilega.
ERFITT AÐ SOFA
Ef ekkert gengur þá er ekki annað að gera en
taka upp álpappírinn og byrgja gluggann. Það
er ekki fallegt en getur bjargað deginum.
þar sem tryggingar
snúast um fólk
Hringdu í síma
560 5000
og fáðu sendan
bækling um
fjölskylduvernd VÍS.
Vátryggingafélag Íslands,
Ármúla 3, 108 Reykjavík,
www.vis.is
Hvernig
röðum við sam
an
tryggingunum
okkar?
Mars 2003
Fjölskylduver
nd VÍS
Fplús – víðtæka fjölskyldutryggingin
tryggir bæði heimilinu og fjölskyldunni
þá vernd sem þú gerir kröfu um
– og veitir þér alla afslætti strax
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
F
I
0
0
7
3
4
5