Fréttablaðið - 07.07.2003, Qupperneq 14
bílar o.fl.
Vikulegur blaðauki Fréttablaðsins um al l t sem viðkemur bí lum
Ritstjórn: sími 515 7500 – netfang: bilar@frettabladid.is. Auglýsingar: sími 515 7500 – netfang: auglysingar@frettabladid.is. Þjónustuauglýsingar: Gula línan, sími 580 8090 – netfang: auglysingar@gulalinan.is.
Þegar Vaka auglýsir uppboð á tjóna-bílum í Vökuportinu flykkjast
menn á staðinn, svo jaðrar við örtröð,
til að gera góð kaup. En eru menn
raunverulega að gera góð kaup? Er-
lendur Karl Ólafsson, bifreiðasmiður
hjá GB Tjónaviðgerðum, segir allan
gang á því. „Þeir sem geta gert við
sjálfir hafa auðvitað bestu aðstæðurn-
ar til að græða eitthvað á kaupunum,
en við fáum oft bíla til viðgerðar sem
hafa verið keyptir á slíkum uppboð-
um. Það fer náttúrlega eftir því hvers
eðlis tjónið er hversu mikið þarf að
gera, er þetta veltibíll, afturtjón,
framtjón eða hliðartjón?“ Aðspurður
hvort bílarnir séu jafngóðir eftir seg-
ir Erlendur það vera í langflestum til-
fellum. „Auðvitað er hægt að gera
þetta illa eins og allt annað, en í 99%
tilfella er þetta í fínasta lagi.“
Erlendur telur að fleiri kaupi
svona bíla til að kaupa og selja, þá
væntanlega til að skila smá afgangi í
budduna. „En svo er stór hluti sem
kaupir þessa bíla til að eiga til fram-
búðar og gera þannig góð kaup.“
Erlendur segist orðinn þreyttur á
umræðunni um að uppgerðir tjóna-
bílar séu verri en aðrir bílar. „Lang-
flestir sem eru að gera við þessa bíla
eru strangheiðarlegir menn. Auðvit-
að geta viðgerðir bílar bilað, rétt eins
og til dæmis þvottavélar eða viðgerð
föt. En þetta snýst um að koma bíln-
um í fínu standi á götuna, og svo
verða menn að bera ábyrgð á sinni
vinnu. Við hjá GB Tjónaviðgerðum
vinnum samkvæmt stöðlum sem Vol-
vo, Ford, Daihatshu og Citroën gefa
út, erum með réttu verkfærin og
góða kunnáttu og stöndum keikir við
okkar viðgerðir.“ ■
STARFSMENN GB TJÓNAVIÐGERÐA
Segja bifvélavirkja strangheiðarlega
og vandaða í vinnubrögðum.
Tjónabílar:
Í 99% tilfella í fínu
lagi eftir viðgerð
Filmur í bílinn:
Ekki bara
fyrir útlitið
Börn og fullorðnir eiga stundumvonda vist í bílnum á löngum ferða-
lögum, ekki síst ef sólin skín skært. Þá
verður oft óbærilega heitt í bílnum og
erfitt stórum sem
smáum að þola ferða-
lagið. Hjá Auto Sport
ehf. í Akralind í Kópa-
vogi er hægt að fá
filmur til að setja í
rúður bíla. Svanhildur
Reynisdóttir, einn eig-
enda Auto Sport, segir að fjölskyldu-
fólk sé nú í meirihluta viskiptavinanna.
„Það þótti áður fyrr aðallega töff að
vera með filmur í rúðunum, en nú
koma æ fleiri fjölskyldur til að fá sér
þennan búnað í bílinn. Filman veitir
vörn gegn sól og UV-geislum, minnkar
upplitun og hita í bílnum og verndar
viðkvæm augu,“ segir Svanhildur.
„Það hefur líka reynst fólki með
mígreni mjög vel að fá sér svona film-
ur.“ Filmurnar fást í ýmsum styrkleik-
um og lífstíðarábyrgð fylgir ísetning-
unni. ■
Helga Braga Jónsdóttir leikkonasegist ekki vera mikil bílakona en
hún segir þó Porsche og Merzedes
Bens vera bíla drauma sinna. Helst
vildi hún eignast gul-gylltan bíl,
af annarri hvorri tegundinni,
með áklæði í stíl. Bíllinn henn-
ar yrði ekkert slor: „Með
brjáluðum græjum og
ofsalega kraftmikill,“
segir hún. Ástæðan fyr-
ir vali Helgu Brögu
er lúxusinn. Hún
segist alveg eins
eiga von á því að
hún komi til með
að eignast
draumabílinn sinn
– einhvern tímann:
„Það getur vel ver-
ið, kannski, maður
verður alltaf að lifa í
voninni.“ ■
Draumabíllinn
Býst við að eignast
Porsche eða Benz
HELGA BRAGA JÓNSDÓTTIR
Telur að hún muni einn daginn
eignast draumabílinn sinn.