Fréttablaðið - 07.07.2003, Síða 20
Álklæðning
Stórhöfða 33
Sími: 577 4100til framtíðar
hús o.fl.
V i k u l e g u r b l a ð a u k i F r é t t a b l a ð s i n s u m h ú s o g g a r ð a
Ritstjórn: sími 515 7500 – netfang: hus@frettabladid.is. Auglýsingar: sími 515 7500 – netfang: auglysingar@frettabladid.is. Þjónustuauglýsingar: Gula línan, sími 580 8090 – netfang: auglysingar@gulalinan.is.
Fyrir fjörutíu árum setti James Railsig niður í Garðabæ með eiginkonu
sinni. Hann var einn landnemanna í
hreppnum sem síðar varð bær. Fljót-
lega byrjaði hann að rækta garð þar
sem ekki var annað en urð og grjót,
ekkert skjól og vindurinn gnauðaði.
Nú, tæplega hálfri öld síðar, eiga þau
Berta Eiðsdóttir bókavörður vin sem
notalegt er að njóta skjóls í frá ís-
lenska norðanvindinum. „Ég hef alltaf
haft gaman af að rækta og byrjaði
smátt og smátt. Eitt það fyrsta sem ég
gerði var að setja upp skjólgirðingu úr
viði sem þá þekktist ekki en er nú í
kringum flest hús,“ segir James.
James Rail er bandarískur og var
lengst af skólastjóri á Keflavíkurflug-
velli. Hann er nú kominn á eftirlaun
en vinnur fyrir háskólann í Oklahoma.
Hann segist vera með grænar fingur
og að garðurinn sé hans. Kona hans
Berta segist aldrei hafa tekið þátt í
ræktuninni enda hafi James viljað
hafa það þannig. „Ég sakna þess ekki,
hann er miklu hæfari en ég og hefur
auk þess mikla ánægju af að dútla í
garðinum,“ segir hún.
James segir Íslendinga vera alltof
trega til að breyta hjá sér í garðinum.
„Þeir hreyfa helst ekki við trjám og
runnum eftir að einu sinni hefur verið
gróðursett,“ segir hann. Hann bendir
niður Stekkjarflötina sem hann býr
við og segir: „Líttu á hvernig allir fela
hús sín og garða. Ég skil vel að fólk
vilji vera út af fyrir sig en það þurfa
ekki alltaf að vera hefðbundnir runn-
ar í kringum hús, það er gaman að
brjóta upp og breyta. Tré má klippa til
og færa þau. Það er ekkert náttúrulög-
mál að þau þurfi alltaf að vera á sama
stað,“ segir James.
Ein af þeim plöntum sem James er
með í garðinum sínum er íslenskt
brönugras sem hann segir vera sína
uppáhalds jurt. Það er hægt að taka
undir með honum að plantan er afar
sérstök og blómstrar fallega. James
segist ekki hafa séð hana víða en
plantan er tilvalin í steinabeð þar sem
hún skríður skemmtilega. „Það er
hægt að rækta svo margt ef lögð er
alúð í það. Ég held að menn séu oft
ekki nægilega þolinmóðir. Íslendingar
eru heldur ekki nógu duglegir við að
flytja í garða sína allar þær fallegu
jurtir sem til eru í íslenskri náttúru,“
segir James Rail. ■
SJALDGÆF JURT
Börnugras er uppáhalds plantan hans James.
Hann segir hana sjaldgæfa en hún blómstri
skemmtilega á sumrin auk þess sem hún þeki
beðin vel.
Gróðurvin þar sem
áður var urð og grjót
James Rail er einn frumbyggja Garðabæjar. Við húsið hans var urð og grjót og
norðanvindurinn gnauðaði. Nú er þar vin sem gott er að njóta.
JAMES OG BERTA
Hann er á því að Íslendingar séu ekki nógu kjarkaðir við að klippa til tré og færa úr stað. „Það er ekkert lögmál að þau þurfi alltaf að standa á sama
stað,“ segir hann.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/B
IL
L I
Mér finnst eins og öllum öðrumgaman að fá tækifæri til þess að
hjálpa vinum mínum. Jafnvel þó að
stundum þurfi þeir að fá smá skamm-
ir fyrir óraunhæfar hugmyndir varð-
andi fyrstu íbúðina sína. Þær hug-
myndir eru oft fengnar upp úr síðum
glanstímarita og spegla oft þann
raunveruleika sem við flest erum
blessunarlega laus við. Af fenginni
reynslu hef ég áttað mig á því að þótt
stundum sé nauðsynlegt að „henda
öllu út“ þá er líka stundum vel þess
virði að vinna í kringum það sem fyr-
ir er og er nothæft.
Oft eru ótrúlega
flott hreinlætistæki
frá sjötta áratugn-
um inni á baðher-
bergjum, t.d. grænt
klósett, grænn vask-
ur og grænt baðker. Í
stað þess að henda
þessum tækjum, hvers
vegna ekki að
velja flísar sem
gera eitthvað
fyrir tækin?
Draga fram lit tækjanna og
nota þau
áfram? Oft eru þetta ófáan-
legir gripir sem gera íbúðina
sérstaka og leyfa þér að líða
vel með ákvörðunina sem kost-
aði miklu minna en ef þú hefðir
skipt öllu út. Í staðinn getur þú
svo farið í helgarferð með
kærustunni eða gefið henni
blóm um hverja helgi í
langan tíma og verið ótrú-
lega vinsæll kærasti!
Kveðja, Frikki
Friðrik Weisshappel gefur góð ráð/
Vinsæll kærasti