Fréttablaðið - 07.07.2003, Blaðsíða 33
kemur
15MÁNUDAGUR 7. júlí 2003
HRAÐAKSTUR MEÐ BARN Á
BRJÓSTI Lögregla handtók nýlega
Catherine Donkers, 29 ára konu
frá Pittsburgh, fyrir að aka á
ofsahraða eftir hraðbrautinni
samtímis því
að gefa barni
sínu brjóst.
Þá sinnti
Catherine
ekki lögreglu
þegar þeir
vildu stöðva
hana.
Catherine hef-
ur verið
ákærð, en hún heldur því fram
fullum fetum að það að gefa
barni á brjóst á ferð sé ekki
verra en að tala í farsíma. Mað-
urinn hennar, sem er prestur,
hefur sent inn mótmæli til sak-
sóknara og segist sjálfur vilja
sæta ákæru. „Ég er maðurinn
hennar og því ábyrgur fyrir
gjörðum hennar,“ segir klerkur-
inn.
GÖFUGIR ÞJÓFAR Sjö meðlimir
sömu fjölskyldu í Chile voru fyr-
ir nokkru ákærðir fyrir að stela
lúxusbílum, sem þeir notuðu til
að komast í jarðarför ættingja
síns. Fólkið, sem stal bifreiðum
af gerðinni Rolls Royce, Bentley,
Aston Martin og Land Rover, bar
því við að það hefði viljað sýna
hinum látna tilhlýðilega virðingu.
„Við vildum stóra og flotta jarð-
arför svo allir gætu séð að við
eyddum fullt af peningum í
hana.“ Lögreglan sagði að fólkinu
hefði raunverulega fundist það
göfugt og gott, enda stóð aldrei
annað til en að skila bílunum.
ÞUNGUR HARRY POTTER Póst-
þjónustan The Royal Mail í Bret-
landi bætti í bílaflota sinn hund-
ruðum sendi-
bíla til að
koma nýju
bókinni um
Harry Potter
til kaupenda.
„Bókin er svo
þung að við
urðum að
bæta í bíla-
flotann,“
segja tals-
menn pósts-
ins. Hver bók,
sem er 768 blaðsíður að lengd,
vegur um það bil kíló og við
reiknuðum með að koma að
minnsta kosti 500.000 eintökum
til kaupenda síðastliðinn laugar-
dag. Það tókst,“ segja talsmenn-
irnir.
Þessi skemmtilegilitli bíll, sem er að
hálfu leyti BMW ár-
gerð 1959 og að hálfu
leyti flugvél, var
hannaður af Dave
Major árið 1998. Sté-
lið er fengið af raun-
verulegri flugvél svo
og dekkin sem eru af
gerðinni Beech Jet
400A.
Þyrluspaðinn er
keyrður á 12 volta rafmagnsmót-
or, en bíllinn, sem er löglegur á
götum úti, er með 600 cc tvegg-
ja strokka BMW-mótor. Dyrnar á
bílnum opnast upp fyrir „flug-
manninn“. Bíllinn hefur verið
sýndur á fjölda sýninga víða um
heim síðan hann var smíðaður. ■
Stórir strákar finna sér ýmis-legt til dundurs. Á Hondaverk-
stæðinu við Dalveginn vinna sam-
an nokkrir knáir karlar sem sam-
einast í frítímanum um áhuga-
málið sitt, sem eru fjarstýrðir
bensínbílar. Þetta eru þeir Pétur
Pétursson, Guðmundur Árni Páls-
son og Kristmundur Rafnsson.
Aðspurðir hvernig dellan varð
til, segir Pétur að allt hafi það
byrjað með því að Guðmundur
kom með fjarstýrðan bíl á verk-
stæðið, sem hann hafði eignast í
vöruskiptum. „Ég var búinn að
eiga hann lengi uppi í skáp, en
þegar ég kom með hann hingað
varð allt brjálað,“ segir Guð-
mundur og hlær. „Þá kom í ljós að
Pétur átti líka svona bíl, sem var
reyndar sá elsti á landinu og hafði
aldrei snúist hálfan snúning.“
„Það voru svo lélegar vélarnar
í þessu fyrir 20 árum,“ útskýrir
Pétur. „En þarna varð ekki aftur
snúið og ég fór Tómstundahúsið
til að kaupa betri græju. Við höf-
um svo verið á fullu í þessu síð-
an.“
Strákarnir stofnuðu ekki beint
klúbb um hobbýið, en eru yfirleitt
fjórir saman. „Við förum út á
Granda og inn í Malbikunarstöð
og erum að leika okkur í brekkun-
um þar. Fjaran í Þorlákshöfn er
líka tilvalinn staður, torfærur frá
náttúrunnar hendi sem gaman er
að glíma við. Dýrðlegt að vera úti
í náttúrunni með kaffi, samloku
og bílinn,“ segja þeir og fá stráks-
legan glampa í augun.
Stundum leika strákarnir sér
með bílana fyrir utan verkstæðið
og þá stoppa menn gjarnan, og
vilja skoða og spjalla. „Þetta
vindur upp á sig,“ segir Krist-
mundur, „ þeim fjölgar stöðugt
sem eru í þessu.“
En hvað er það nákvæmlega
sem er svona gaman?
„Þetta er svo mikið kikk,“ seg-
ir Pétur. „Bílarnir komast í 70
kílómetra hraða og sporttýpurnar
í 120. Svo fer 30% af tímanum í að
gera við, breyta og bæta. Við
erum alltaf með verkfæratösku
meðferðis og þetta er bara eins
og að vera í stóru bílunum, nema
hvað við erum búnir með þann
pakka. Þetta er alveg jafn gaman,
bara miklu ódýrara.“
„Stofnkostnaður við sportið er
um það bil 70.000, þá ertu kominn
með góðan bíl og bara tilbúinn,“
segir Kristmundur. „Svo geta þeir
auðvitað farið upp í 300.000,“ seg-
ir hann, og vill ekki meina að bíl-
arnir eyði miklu bensíni. „Hálfur
lítri dugir daginn,“ segir Guð-
mundur.
Strákarnir vilja ekki viður-
kenna að þeir séu að upplifa
gamlan draum úr æsku. „Við höf-
um hins vegar varðveitt barnið í
okkur,“ segja þeir. „En þetta er
ekkert barna- eða unglingasport.“
Nú dreymir þá um að komast
fljótlega á mót í útlöndum. „Það
kemur að því,“ segir Kristmund-
ur, og strákarnir ljóma eins og
sólir þegar þeir skokka út í góða
veðrið með bílana sína undir
hendinni. ■
■ Bílar Séstakir bílar:
Flottur „flug-vélar“-bíll
BMW-INN ER LÖGLEGUR
Á GÖTUNUM.
Ekki fylgdi sögunni hvort bíllinn gæti hafið
sig til flugs á þyrluspaðanum.
Fjarstýrðir bensínbílar:
Vinnufélagar fara í
bílaleik í frístundum
GUÐMUNDUR, PÉTUR OG KRISTMUNDUR
Bílarnir þeirra eru smáir en aflmiklir og jafnast á við 1000 hestöfl á venjulegum bíl.
Á myndina vantar einn í hópinn, Björn Steinar þúsundþjalasmið.