Fréttablaðið - 07.07.2003, Side 35

Fréttablaðið - 07.07.2003, Side 35
MÁNUDAGUR 7. júlí 2003 ■ LEIKLIST 17 upp  Leiksýningar Ferðaleikhússins Bjartar nætur hefjast í Iðnó í kvöld. Sýningin hefur staðið und- anfarin 32 sumur en að sögn að- standenda sýningarinnar er upp- færslan og efni breytilegt milli ára. Með aðalhlutverk í sýning- unni fara þau Kristín G. Magnús og Páll S. Pálsson en einnig eru þrír dansarar sem taka þátt í upp- færslunni. Markmiðið með sýningunum, sem fluttar eru á ensku, er að veita innsýn í íslenska menningu og eru fornar frásagnir og sögur sviðsettar og færðar í leikbúning. Tónlist skipar stóran sess í sýningunni en Hilmar Örn Hilm- arsson hefur samið hana fyrir álf- konudansinn og Steindór Ander- sen hefur verið til aðstoðar við rímnakveðskap. Þrátt fyrir að sýningin sé sam- felld er hún sett saman úr mörg- um sögum og frásögnum sem tengdar eru saman með rímna- kveðskap og skyggnum sem inni- halda fræðsluefni um sögu Ís- lands. Sýningar á Björtum nóttum, eða Light Nights, eru í Iðnó öll mánudags- og föstudagskvöld. ■ Bjartar nætur fortíðar fyrir ferðafólk KRISTÍN OG PÁLL Kristín G. Magnús og Páll S. Pálsson fara með aðalhlutverk í sýningu Light Nights í sumar. Sýningarnar eru í Iðnó.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.